Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 4
KORFUKNATTLEIKUR
Sætur sigur á Englendingum
■ GUÐMUNDUR Bragason byij-
aði leikinn á því að taka uppkastið
gegn Spencer og skora síðan sjálf-
ur fyrstu körfuna.
■ TÓLF leikmenn voru á leik-
skýrslu hjá hvoru liði. Torfi Magn-
ússon notaði tíu leikmenn í gær,
Pétur Ingvarsson og Marel Guð-
laugsson komu ekkert inná.
ÍSLENDiNGAR unnu Englend-
inga 104:95 í Kef lavík í gær-
kvöldi. Sigurinn var sætur því
þrátt fyrir að vera höfðinu
styttri náðu íslensku strákarnir
upp mikilli baráttu og leikgleði
sem skóp sigur, sem að vísu
hékk á bláþræði undir lokin,
en sigur engu að síður. Þetta
var ellefti landsleikur þjóðanna
og hafa íslendingar sigrað í
fimm en Englendingar í sex
þannig að með sigri í Smáran-
um í kvöld jafnar Island metin.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það var ljóst frá fyrstu mínútu
að íslenska liðið ætlaði að selja
sig dýrt gegn hinum hávöxnu leik-
mönnum Englands.
Guðmundur Braga-
son kom okkar
mönnum á bragðið
en gestirnir höfðu
frumkvæðið fram í miðjan fyrri
hálfleik, en það tók íslenska liðið
nokkum tíma að ná úr sér tauga-
spennunni og að stilla saman
strengi sína. Falur Harðarson og
Teitur Örlygsson tóku til sinna ráða
undir lok fyrri hálfleiks og skoruðu
trekk í trekk — breyttu stöðunni
úr 21:25 í 41:33. Staðan í leikhléi
var 50:37 og það er alls ekki slæmt
að halda þessu enska liði í 37 stig-
um í einum hálfleik.
Það kom líka á daginn því í síð-
ari hálfleik skoruðu þeir 58 stig
gegn 54 stigum íslands. „Þessir
strákar trúðu mér ekki þegar ég
sagði þeim að íslendingar gætu
skotið utan af velli,“ sagði Laszlo
Nemeth, landsliðsþjálfari Englend-
inga, eftir leikinn. „Þeir fengu að
finna fyrir því í fyrri hálfleik og
vonandi trúa þeir mér fyrir næsta
leik,“ bætti hann við. Já, íslending-
ar skoruðu sex þriggja stiga körfur
í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur var jafnari og
eftir að íslendingar náðu 18 stiga
forystu snemma í hálfleiknum lét
Laszlo lið sitt breyta um vöm, skipti
yfir í pressuvörn og síðan svæði
með þeim árangri að okkar strákum
fataðist flugið um tíma og Englend-
ingar minnkuðu muninn í fímm stig,
en nær komust þeir ekki.
Líflegur sóknarleikur
Sóknarleikur íslenska liðsins var
líflegur og árangursríkur. Sá leik-
maður sem tók knöttinn fram völl-
inn hveiju sinni sagði strax hvaða
leikkerfí ætti að nota og síðan var
hreyfingin á leikmönnum án bolta
mjög mikil og góð. Boltinn var lát-
inn ganga manna á milli, oftast
með talsvert löngum sendingum,
og þannig losnaði alltaf um ein-
hveija skyttuna, og þær eru marg-
ar, þannig að menn fengu frítt skot.
Þetta nýttu okkar menn sér vel og
skotnýtingin var góð. Mikill hraði
var í sókninni þó að hraðaupphlaup
yrðu ekki mörg. Þegar ekki tókst
að keyra upp hraðann létu menn
skynsemina ráða og léku af yfirveg-
un þar til menn komust í skotfæri.
Mikil barátta í vöminni
Það tekur á að leika vöm í körfu-
knattleik og ekki síst þegar flestir
leikmenn mótheijanna eru rúmlega
höfðinu hærri en maður sjálfur.
Þannig var það í gær. Ensku leik-
mennimir voru flestir höfðinu hærri
.
Morgunblaðið/Sverrir
Smugan notuð
FALUR Harðarson nýtti sér oft smugur á milli varnarmanna Englendinga og smeygði sér upp að
körfunni. Hér skýst hann á milli tveggja varnarmanna og leggur knöttlnn í körfuna.
en þeir íslensku, en okkar menn
bættu það upp með baráttu og aft-
ur baráttu. Menn voru á tánum ail-
an leikinn og það var virkilega gam-
an að sjá hvernig „smátittir" náðu
að stíga risana út í teignum og
taka fráköst og það er alltaf jafn
gaman að fylgjast með baráttu ís-
lenska liðsins. Sem dæmi má nefna
að Teiti mistókst að skora úr hraða-
upphlaupi, boltinn var sendur yfír
völlinn og þar ætlaði einn Enlend-
inganna að skora en hver var þá
mættur til að blokka hann. Jú, Teit-
ur Örlygsson. Svona á að beijast.
Guðmundur Bragason var sterk-
ur í gær og virðist aldrei betri en
þegar hann þarf að kljást við risa-
vaxna mótheija. Herbert Arnarson,
Valur Ingimundarson, Teitur Örl-
ygsson, Falur Harðarson og Jón
Arnar Ingvarsson léku allir vel. Sig-
fús Gizurarson og Nökkvi Már Jóns-
son léku mjög vel í vöminni og Jón
Kr. Gíslason var mikilvægur. Sá
eini sem ekki náði sér alveg á strik
að þessu sinni var Guðjón Skúla-
son. Það er ekki oft sem hann skor-
ar ekki stig, en hann átti nokkrar
góðar stoðsendingar.
Bestir í liði Englendinga vom
Roger Hyggins (nr. 9) og Karl
Brown (nr. 5).
■ HERBERT Arnarson fékk
tvær villur á fyrstu 50 sekúndunum
en tókst að passa sig betur það sem
eftir var leiks.
■ JÓN Sigurðsson fyrmm landsl-
iðsmaður í körfuknattleik var með
Torfa Magnússyni landsliðsþjálf-
ara á bekknum í gærkvöldi.
■ LASZLO Nemeth sagði fyrir
leikinn að þetta væri næstum því
sterkasta liðið sem hann gæti not-
að. Það vantaði aðeins tvo leik-
menn. Sex leikmenn vom að leika
sinn fyrsta landsleik í enska liðinu.
■ IAN Whyte var einn þein-a, og
kom hann nokkuð við sögu. í fyrri
hálfleik fékk hann dæmda á sig
villu þegar Guðmundur tróð yfir
hann. í bræði sinni þrasaði hann
boltanum upp í ijáfur og fékk á sig
tæknivíti. Fimm stiga sókn.
■ HANN kom aftur við sögu und-
ir lokin þegar rúm mínúta var eftir
og staðan 98:93. Herbert hafði
verið að svekkja hann dálítið og
endaði það með því að Whyte ýtti
í Herbert sem datt í gólfið. Ásetn-
ingsvíti og tvö vel þegin stig.
ísland - England 104:95
íþróttahúsið í Keflavík, landsleikur í körfu-
knattleik, þriðjudaginn 27. desember 1994.
Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 9:12, 17:14,
18:23, 26:27, 34:27, 44:33, 50:37, 50:39,
62:45, 67:49, 70:59, 82:77, 86:79, 93:79,
94:89,_ 98:93, 103:93, 104:95.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 30,
Herbert Amarson 20, Falur Harðarson 17,
Valur Ingimundarson 12, Teitur Örlygsson
11, Jón Amar Ingvarsson 5, Jón Kr. Gísla-
son 4, Sigfús Gizurarson 3, Nökkvi Már
Jónsson 2.
Fráköst: 22 í vöm, 18 í sókn.
Stig Englands: Roger Hyggins 20, Peter
Scantlebury 17, Karl Brown 17, Spencer
Dunkley 12, Neville Austin 9, Ian Whyte
7, Tony Simms 6, Donald Baker 4, Steve
Nelson 3.
Fráköst: 19 í vöm, 8 í sókn.
Ðómarar: Helgi Bragason og Kristinn Ósk-
arsson. Dæmdu erfiðan leik vel
Áhorfendur: Um 400.
ísland - Danmörk 77:71
Sundsvall í Svíþjóð, Norðurlandamót ungl-
ingalandsliða drengja.
Stig íslands: Pétur Már Sigurðsson 16,
Finnur Vilhjálmsson 15, Steinar Kaldal 13,
Baldur Ólafsson 9, Daði Sigurþórsson 8,
Páll Vilbergsson 7, Daníel Árnason 5, Hall-
dór Karlsson 4.
■Staðan var jöfn, 62:62, að venjulegum
leiktíma loknum, en Island hafði betur í
framlengingunni. I fyrri hálfleik spilaði lið-
ið maður á mann vöm sem gekk ekki og
voru Danir yfir í hálfleik, 34:21. Strákamir
byijuðu seinni hálfleik vel og náðu að
minnka muninn f fjögur til sex stig, en um
miðjan hálfleikinn kom Pétur Már Sigurðs-
son inn á og á stuttum kafla skoraði hann
fjórar þriggja stiga körfur. Hann jafnaði
62:62 á ótrúlegan hátt á síðustu mínútu.
ísland hafði öll völd í framlengingunni og
Finnur Vilhjálmsson sýndi mikið öryggi í
vítaskotum i lokin en sigurinn var liðsheild-
arinnar.
ísland - Noregur 80:91
Stlgahæstir: Páll Vilbergsson 23, Finnur
Vilhjálmsson 21, Pétur Már Sigurðsson 16,
Daði Sigurþórsson 5.
■Strákamir léku svæðisvörn gegn mjög
grimmum Norðmönnum. Þeir voru undir
allan fyrri hálfleik en komust í 44:43 með
þriggja stiga körfu rétt fyrir leikhlé. Norð-
menn gerðu 10 fyrstu stigin í seinni hálf-
leik og eftir það var á brattann að sækja.
ísland - Danmörk 46:73
Norðurlandamót unglingalandsliða kvenna.
Stig íslands: Erla Þorsteinsdóttir 19, Júlía
Jörgensen 6, Hildur Ólafsdóttir 5, Georgía
Kristiansen 4, Erla Reynisdóttir 3, Pálína
Gunnarsdóttir 3, Kristín Þórarinsdóttir 3,
Ásta Guðmundsdóttir 3.
■íslenska liðið lék langt undir getu, einkum
í sókn. Erla Þorsteinsdóttir og Hildur Ólafs-
dóttir vora bestar.
GETRAUNIR: X 2 2 X X 2 X22 XX11
LOTTO: 6 8 21 28 32 + 5