Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.12.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA V 1994 fHjrrgnttMð&ft ■ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER SNOKER Jóhannesfer í atvinnumennsku JÓHANNES R. Jóhannesson, snókerspilari, hefur ákveðið að gerast atvinnumaður í snóker, um tíma að minnsta kosti. „Ég geng frá því í fyrra- málið og bytja svo í Blackpool í Englandi í júlí," sagði Jóhannes við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Til að byrja með ætla ég ekki í heilt tímabil. Ég greiði ársgjaldið sjálfur núna en fer síðan til Englands til að athuga með styrktaraðila, og ég held að það verði ekki mikið mál. Ég vil hafa þann möguleika opinn að koma heim aftur ef mér líkar þetta ekki. Mótið er þannig uppbyggt að komist maður í gegnum íjórar umferðir þá eru aðrar ijórar leiknar tveimur mánuðum seinna og svo framvegis," sagði Jóhannes og bætti því við að hann ætíaði einnig á Embassy-mótið sem yrði í janúar. Magnús Scheving, þolfimikappi úrÁrmanni, íþróttamaðurársins Morgunblaðið/Kristinn Magnús Schevlng þolflmlkappl og unnusta hans, Ragnheiður Melsteð, bregða ð lelk á Hótel Loftlelðum eftir að kjðrl íþróttamanns árslns var lýst í gærkvöldl. Sýnir að allir eiga jafha möguleika að er alveg frábært að fá þessa viðurkenningu — það stærsta á mínum ferli, alveg frá upphafi," sagði Magnús Scheving þolfimi- kappi úr Armanni eftir að hann hafði verið útnefndur íþróttamaður ársins 1994 af Samtökum íþróttaf- réttamanna á hófi á Hótel Loftleið- um í gærkvöldi. En átti kappinn ekki von á þessu? „Nei, það átti ég ekki,“ segir Magnús. Alls ekki? „Nei. Ég bjóst við að boltinn yrði yfirsterkari, vegna þess að þetta er svo nýtt. Ég bjóst ekki við að íþróttafréttamenn, með fullri virð- ingu fyrir þeim, væru svona nútíma- legir. Þeir þorðu að taka áhættu og þetta sýnir að það hafa allir jafna möguleika," sagði Magnús. Þú er alveg sáttur við kjörið? „Jú, ég myndi segja það. Öll þau mót sem ég hef tekið þátt í og náð þessum árangri. Þetta er góður árangur, ég veit að ég hef náð góð- um árangri, en það eru líka margir aðrir íþróttamenn sem hafa náð góðum árangri. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er matsatr- iði hjá íþróttafréttamönnum og það er alls ekki auðvelt að vera í þeirri stöðu að velja hann og lenda í því að fara að bera saman íþróttir." Þolfími — er það einhver íþrótt? „Jaaaá,“ segir Magnús og brosir. „Það er í rauninni ekki mitt að svara því, en þolfimi er þannig íþrótt að þú verður nánast að hafa allar íþróttir á bak við þig. Þú verður að vera liðugur, þú verður að vera snöggur, þú þarft að vera sterkur, þú þarft að geta komið fram, þú þarft að vera einn, þú þarft að geta samið, þú þarft að hafa takt í þér, þetta sameinar svo til allar íþróttir. Þess vegna má eiginlega segja að til að vera í öðrum íþróttum þarf maður á vissan hátt bara að hafa brot af þvi sem góður þolfimimaður þarf að hafa. Það eina sem maður þarf kanski ekki að hafa er bolta- tækni. Þolfimi er ný íþrótt sem á eftir að verða stærri og við eigum eftir að ná langt sé rétt haldið á spilun- um. Fyrir tuttugu árum þótti hall- ærislegt að skokka þannig að menn voru að hlaupa í myrkri þegar eng- inn sá til. Nú þykir skokk ósköp eðlilegt. Á sama hátt þykir okkur hálf hallærislegt að sjá mann tala í síma úti á götu, en þetta á allt eftir að breytast." Hver er staða þolfimi íheiminum? „Þolfimi er að breytast mikið í heiminum. Stefnt er að því að koma henni inn á Ólympíuleika 1996 og flest öll alþjóðasamtökin eru að sameinast, til dæmis sameinast IAF og fimleikasamböndin í heiminum þann fimmta mars og munu standa að sameiginlegu heimsmeistaramóti í fimmta nóvember í París. Lönd eins og Rússland eiga eftir að koma mjög sterk inn í þetta. Ég hef til dæmis bara keppt tvisvar við Rússa en þeir eru alltaf framarlega í öllu svona þegar þeir fara af stað.“ Nú hótaðir þú því að hætta ekki alls fyrir löngu. Ætlar þú að standa við þá hótun eða halda áfram að keppa? „Núna hafa aðstæður breyst hjá mér. Þolfimin er komin inn í ÍSÍ og það hefur hjálpað mér mikið þannig að ég þarf ekki að berjast í því einn að komast í mótin sem ég hef haft áhuga á að keppa á. Menn hafa getað séð það á skrifum kollega minna að undanförnu, manna sem telja sig vera forsvars- menn fyrir keppnina. Þetta er ég búinn að beijast við öll þessi ár. Mig langar að sjá væntanlega kepp- endur frá íslandi geta einbeitt sér að því að keppa. Menn eiga ekki að þurfa að vera skipuleggjendur, framkvæmdaaðilar og sjá um alla þætti sem snúa að þátttöku í svona mótum. Ég er ofboðslega þreyttur á stússinu í kring um þessa hluti. Ég hef verið keppandi, skipuleggjandi og allt í einum pakka. Auk þess hef ég verið að kynna íþróttina í skólum og annað. Ég held það hafi skilað sér því krakkar eru farnir að hafa meiri áhuga á leikfimi, og ég vil kynna þetta sem leikfimi þó svo þetta heiti þolfimi. íslendingar eru fljótir að gera hluti sem þarf að gera á stuttum tíma og þolfimin er dæmi um það. Það er ótrúlegt hversu vel fjölmiðl- ar og íþróttaforystan hefur tekið við sér og ég held að þetta eigi að hjálpa okkur á komandi árum að vera í fremstu röð. Ef við höldum rétt á spilunum og erum ekki að rífa niður, heldur byggja upp, þá er framtíðin björt hjá okkur. Hver veit, ef til vill verður þolfimi fyrsta greinin þar sem við fáum gull á Olympíuleikum," sagði íþróttamað- ur ársins 1994. KÖRFUKNATTLEIKUR: ENGLENDIIMGAR GENGU AF VELLI / C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.