Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 2

Morgunblaðið - 30.12.1994, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 C 3 IÞROTTIR IÞROTTIR Formaður Samtaka íþróttafréttamanna við 39. útnefningu íþróttamanns ársins Mikilvægt uppeldis- og forvamarstarf |AGNÚS Scheving, þolfimi- meistari, var í gær útnefnd- ur íþróttamaður ársins af Samtök- um íþróttafréttamanna i hófi á Scandic Hótel Loftleiðum. Magnús hlaut 395 stig af 440 mögulegum, Arnór Guðjohnsen varð í öðru sæti með 280 stig og Martha Ernstdótt- ir i þriðja sæti með 126 stig. Skapti Hallgrímsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, af- henti Magnúsi styttuna glæsilegu sem nafnbótinni fylgir. Magnús er 27. íþróttamaðurinn sem hampar styttunni, sem nú var afhent í 39. sinn. í ávarpi sínu við verðlaunaaf- hendinguna sagði Skapti meðal - annars: „Óðum styttist í mót merkra ára í sögu þjóðarinnar; á því sem nú er að ljúka fögnuðum við 50 ára lýðveldi íslands og á þvi næsta fer hér fram stærsti íþróttaviðburðurinn til þessa: heimsmeistarakeppni í handknatt- leik. Það gæti orðið eitt eftirminni- legasta íþróttaár í sögu landsins; allir vona það besta og áramótaósk margra íþróttaáhugamanna að þessu sinni verður væntanlega að landsliði okkar gangi vel á HM. En það er önnur saga, sem rakin verður að ári.“ Skiptar skoðanir Skapti kom inn á að skoðanir væru jafnan skiptar þegar hið ár- lega kjör íþróttafréttamanna færi fram. „Síðan listi yfir tíu stiga- hæstu menn að þessu sinni var birtur á Þorláksmessu, hef ég ver- ið spurður hvers vegna þessi væri ekki listanum og hvers vegna ekki hinn. Fátt er auðvitað um svör þegar slíkar spurningar eru bornar fram, og ekki við því að búast að allir séu sammála. Og sem betur fer er ástandið ekki þannig að ein- hveijir tíu íþróttamenn séu nánast sjálfkjörnir á listann — breiddin er það mikil, að margir mjög svo frambærilegir hlutu ekki náð fyrir augum íþróttafréttamanna að þessu sinni, en hefðu sannarlega sómt sér vel hér í kvöld að margra dómi. Og til gamans má geta þess að aðeins einn er á lista yfir tíu efstu, sem var á honum við síðasta kjör,“ sagði hann. Uppeldis- og forvarnarstarf „Ég hef haft orð á mikilvægi íþrótta fyrir þjóðlífið við þetta tækifæri í tvö síðustu skipti, og get ekki látið hjá líða að fara einn- ig örfáum orðum um þennan mikil- væga þátt í lífi íslendinga að þessu sinni. Gjarnan er einblínt á afreks- fólkið, sem vissulega er af hinu góða því þar eru fyrirmyndimar, en íþróttimar snúast vitaskuld um miklu meira en afreksmennina. Almenningsíþróttir blómstra sem aldrei fyrr og uppeldis- og forvarn- arstarf það sem íþróttahreyfingin vinnur er ómetanlegt. Mesta og besta staðfesting þess, sem sést hefur í langan tíma, varð einmitt gerð opinber síðla árs; niðurstöður úr viðamikilli könnun prófessors Þórólfs Þórlindssonar og fleiri meðal íslenskra ungmenna sýndu að íþróttir vega þungt í lífi ungs * „Ohætt er að taka undir hvatningarorð um að meira flármagni verði veitt til íþrótta- hreyfíngarinnar“ fólks og fram kom að unglingar sem stunda íþróttir og eru í góðri líkamlegri þjálfun eru ekki eins lík- legir og aðrir til að reykja, drekka og neyta fíkniefna. Þeir segjast yfirleitt fá hærri einkunnir í skóla, telja sig betur undirbúna fyrir tíma og líður betur í skólanum, hafa meira sjálfstraust og þjást síður af þunglyndi og kvíða, svo dæmi séu tekin. Þetta hlýtur að vekja enn frekari athygli en áður á for- vamarhlið íþróttastarfseminnar og óhætt er að taka undir hvatningar- orð um að meira fjármagni verði veitt til íþróttahreyfingarinnar vegna þessa,“ sagði Skapti. „Tuttugu og tveir íþróttafrétta- menn af sjö fjölmiðlum eiga aðild að Samtökum íþróttafréttamanna. Allir hafa jafnan atkvæðisrétt og neyttu hans allir sem fyrr. Hver skilar inn lista með tíu nöfnum, sá efsti fær 20 stig, næsti 15, þriðji 10, fjórði 7, fimmti 6 og svo koll af kolli. Óvenju margir fepgu at- kvæði að þessu sinni — alls 41 íþróttamaður — sem hlýtur að vera til vitnis um mikla breidd í íslensku íþróttalífi," sagði formaður Sam- taka íþróttafréttamanna. Gjafir Flugleiðir voru styrktaraðili Samtaka íþróttafréttamanna vegna kjörsins að þessu sinni, ásamt Máli og Menningu. Flugleið- ir gáfu þremur stigahæstu íþrótta- mönnunum eignarbikara, og íþróttamanni flugmiða að eigin vali á einhverri flugleið félagsins. íþróttamennirnir tíu fengu bóka- gjöf frá Máli og Menningu, tvær bækur hver; Orðastaður — orðabók um íslenska málnotkun, eftir Jón Hilmar Jónsson og í deiglunni 1930-1944, frá Alþingishátíð til Lýðveldisstofnunar, sem Mál og Menning gaf út í samstarfi við Listasafn Islands. í bókinni er fjall- að um íslenska list á þessu árabili. Þau urðu í efstu sætum Morgunblaðið/Kristinn TÍU íþróttamenn voru heiðraðir af Samtökum íþróttafréttamanna í gærkvöldi í hófi að Hótel Loftleiðum. Hér sjást þeir sem voru mættir, en Pétur Guðmundsson kúluvarpari er í Bandaríkjunum. í fremri röð frá vinstri eru Jóhannes R. Jóhannesson snókerspilari, Martha Ernstdóttir frjálsíþróttamaður, Magnús Scheving þol- fimimaður og íþróttamaður ársins 1994 og Vanda Sigurgeirsdóttir knattspyrnumaður. í aftari röð frá vínstri eru Jón Arnar Magnússon frjálsíþróttamaður, Arnór Guðjohnsen knattspyrnumaður, Ásta B. Gunnlaugsdóttir knattspyrnumaður, Sigurður Sveinsson handknattleikmsaður og Geir Sveinsson handknattleiksmaður. Bikarinn næstum því stærri en ég ÞAÐ vakti kátínu í salnum í gærkvöldi er Magnús Scheving sagði, í viðtali við Ingólf Hannesson í sjónvarpinu strax eftir kjörið, að hann hafði aldrei dreymt um að fá bikarinn sem nafnbótinni fylgir — bikar sem væri jafnvel stærri en hann sjálfur. Magnús hefur einmitt oft gantast með það að hann sé ekki mjög hár vexti, en það hái honum auðvitað alls ekki neitt. Áhorfendur í salnum hlógu einnig er Magnús beindi orðum sínum til Ólafs G. Einarssonar, menntamálaráðherra, sem var meðal áhorfenda; sagði að nú vantaði svolitla peninga t.il að bæta íþróttaaðstöðu í landinu og gaf Ólafi merki, þannig að ráðherra áttaði sig örugglega við hvern hann væri að tala! Morgunblaðið/Kristinn Glatt á hjalla ÞAÐ var mikið spjallað og hlegið í hófinu enda margs að minnast frá liðnum árum. Hér eru fjórir fyrrum íþróttamenn ársins á tali og greini- legt að Skúli Óskarsson, íþrótta- maður ársins 1978 og 1980, er að segja Bjarna Friðrikssyni, íþrótta- mannai ársins 1990, eitthvað skemmtilegt og þeir feðgar, Einar Vilhjálmsson, Iþróttamður ársins 1983, 1985 ocj 1988, og Vilhjálmur Einarsson, Iþróttamaður ársins 1956, 1957, 1958, 1960 og 1961, fylgjast sposkir með, en Skúli segir jafnan skemmtilega frá. Atkvæðaskiptingin í kjörinu 1. Magnús Scheving, Ármanni - þolfimimaður.......................395 2. Arnór Guðjohnsen, Örebro - knattspyrnumaður...................280 3. Martha Ernstdóttir, ÍR - fijálsíþróttamaður...................126 4. Pétur Guðmundsson, KR - frjálsíþróttamaður....................114 5. Sigurður Sveinsson, Selfossi/Víkingi - handknattleiksmaður.....73 6. Jón Arnar Magnússon, UMSS - fijálsíþróttamaður.................69 7. Jóhannes R. Jóhannesson - snókerspilari........................53 8. Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki - knattspyrnumaður........50 9. Geir Sveinsson, Alzira/Val - handknattleiksmaður...............47 10. Vanda Sigurgeirsdóttir, Breiðabliki - knattspyrnumaður.........41 11. Geir Sverrisson, Ármanni - fijálsíþróttamaður..................37 12. Vemharð Þorleifsson, KA - júdómaður....'........................36 13. Ásta S. Halldórsdóttir, ísafirði - skíðamaður..................34 14. Sigursteinn Gíslason, IA - knattspyrnumaðut....................28 15. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp - sundmaður......................26 16. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki - hestaíþróttamaður.................23 17. Teitur Örlygsson, Njarðvík - körfuknattleiksmaður..............20 18. Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki - knattspymumaður.............18 19. Þorvaldur Örlygsson, Stoke City - knattspyrnumaður.............17 20. Ólafur Eiríksson, ÍFR og KR - sundmaður.........................16 21. Birkir Kristinsson, Fram - knattspyrnumaður.....................10 22. Guðmundur Bragason, Grindavík - körfuknattleiksmaður...............9 Broddi Kristjánsson, TBR - badmintonmaður.........................9 24. Herbert Arnarson, IR - körfuknattleiksmaður........................7 Guðmundur Stephensen, Víkingi - borðtennismaður...................7 26. Olga Færseth, Breiðabliki/Keflavík - körfukn,- og knattspyrnumaður.6 Patrekur Jóhannesson, Stjömunni/KA - handknattleiksmaður..........6 Bergsveinn Bergsveinsson, FH/Aftureldingu - handknattleiksmaður...6 Eyjólfur Sverrisson, VfB Stuttgart/Besiktas - knattspyrnumaður....6 30. Sigurpáll Geir Sveinsson, GA - kylfingur.........................5 Guðjón Skúlason, Keflavík/Grindavík - körfuknattleiksmaður.........5 32. Úlfar Jónsson, Keili - kylfingur.................................4 Guðrún Arnardóttir, Ármanni - fijálsíþróttamaður..................4 Sigurður Bergmann, Grindavík - júdómaður..........................4 ElvaRut Jónsdóttir, Björk - fimleikamaður.........................4 Guðjón Guðmundsson, Ármanni - fimleikamaður.......................4 37. Karen Sævarsdóttir, GS - kylfingur...............................2 Rúnar Jónsson, bifreiðaíþróttamaður...............................2 39. Orri Björnsson, KR - glímumaður..................................1 Elsa Nielsen, TBR - badmintonmaður.................................1 Arnar Freyr Ólafsson, HSK - sundmaður..............................1 Morgunblaðið/Kristinn Til hamingju SIGURBJÖRN Bárðarson, íþróttamaður síðasta árs, óskar arftaka sínum, Magnúsi Schevlng tll hamingju með nafnbótina. Magnús er glannaíega gódur Mér líst feiknalega vel á Magnús sem eftirmann minn, og ég var reyndar búinn að spá þessu, sagði Sigurbjörn Bárð- arson hestamaður og íþróttamað- ur síðasta árs, en hann er á mynd- inni hér að ofan að óska arftaka sínum til hamingju með titilinn. „Hann er frábær íþróttamaður og verðugur fulltrúi þeirra sem fá að geyma þennan fallega grip. Magn- ús er glannalega góður,“ sagði Sigurbjörn. Aðspurður hvort ekki væri eftirsjá af bikarnum úr safn- ingu góða sagði hann: „Jú auðvit- að er eftirsjá af honum, en þetta er gangur lífsins. Það er mikill þungi, virðing og ábyrgð sem fylg- ir því að halda þennan bikar í eitt ár.“ HANDKNATTLEIKUR Kvennalandsliðið hafnaði í öðru sæti KVENNALANDSLIÐ íslands í handknattleik hafnaði í öðru sæti í sjö liða móti sem fór fram í Osló í Noregi í vikunni. Stúlkurnar töpuðu 12:10 gegn norska 1. deildarliðinu Toten í úrslitaleik en Toten erí 3. til 4. sæti í norsku deildinni. Þá léku stúlkurnar æfingaleik við Elver- um, sem er í 2. deild, og vann 35:20. Stúlkurnar hafa æft á morgnana og spilað á kvöldin, en þær koma heim í dag. Þær segja að ferðin hafi heppnast vel, en þær bjuggu í sumarbústöðum og elduðu sjálfar ofan í sig mat sem fyrirtækin Pott- brauð, Sól hf., Ölgerð Egils Skaliagrímssonar, íslensk matvæli, Osta og smjörsalan og Nathan & Olsen gáfu. Landsliðsmenn í pressuliði kvöldsins LANDSLIÐ Þorbergs Aðalsteinssonar fær verðuga mótheija i Pressul- iðinu í Víkinni í kvöld en um er að ræða síðasta leikinn fyrir mótið í Svíþjóð, sem hefst á mánudag. Reyndir kappar eru í Pressuliðinu og þegar liggur fyrir að þrír þeirra fara með landsliðinu til Svíþjóðar, en það eru þeir Róbert Sighvatsson og Jason Ólafsson úr Aftureldingu. Leikur kvöldsins hefst kl. 20.30 en dagskráin í Víkinni hefsttveim- ur klukkustundum fyrr. KNATTSPYRNA Kristján og Rafnar Bandaríkjameistarar KRISTJÁN Brooks og Rafnar Hermannsson urðu Bandaríkjameistarar í háskóladeildinni í knattspyrnu með skóla sínum, University of Tampa í Flórída, en þar stunda þeir nám. Fyrir tveimur árum varð skólinn, sem er lítill á bandarískan mælikvarða, í öðru sæti en tókst að fara alla leið að þessu sinni. KORFUKNATTLEIKUR Islensku stelpurnar unnu Eistland ÍSLENSKU stúlkurnar í unglingalandsliðinu hafa staðið sig vel á Norðurlandamótinu í körfuknattleik. í gær unnu stúlkurnar lið Eistlend- inga 67:66 í hörkuleik þar sem íslensku stúlkurnar voru undir nær allan tímann og mestur varð munurinn 15 stig. En íslensku stelpurn- ar börðust af miklum krafti og uppskáru eftir því. Undir lok leiksins fóru þær að hitta mjög vel og tíu þriggja stiga körfur frá Júlíu, Erlu og Georgíu tryggði þeim sigur, annan sigur þeirra á mótinu. Júlía Jörgensen var stigahæst með 21 stig, Erla íteynisdóttir gerði 14, Georgía Christiansen 11, Kristín Þórarinsdóttir 10, Erla Þorsteins- dóttir 6, Svana Bjarnadóttir 2, Pálína Gunnarsdóttir 2 og Hildur Ólafs- dóttir 1. Keflavíkurhraðlestin á ferð og flugi KEFLVÍSKIR körfuboltamenn ætla að reyna með sér í kvöld, en þá leika Keflvíkingar, sem leika með öðrum liðum í ár, gegn liði Keflavík- ur. Leikurinn hefst kl. 20 í íþróttahúsinu í Keflavík og er ekki að efa að um hörkuleik verður að ræða. í liði „gamalla“ Keflvíkinga eru Nökkvi Már Jónsson, Guðjón Skúlason og Pétur Guðmundsson, sem allir leika með Grindavík, Falur Harðarson og Brynjar Harðarson koma úr KR, Kristinn Friðriksson úr Þór, Guðni Hafsteinsson og Jonathan Bow úr Val og Hjörtur Harðarson og Júlíus Friðriksson, en þeir eru báðir við nám erlendis. Liðsstjóri verður þjálfari KR-inga, Axel Nikulás- son, sem er að sjálfsögðu Keflvíkingur. VIÐURKENNING Sigurpáll íþrótta- maður Norðurlands SIGURPÁLL Geir Sveinsson, kylfingur í Golfklúbbi Akureyrar, var í gær útnefndur íþróttamaður Norðurlands 1994. Þetta var tilkynnt í hófi á Akureyri í gær en það er dagblaðið Dagur og lesendur þess sem völdu Sigurpál, en þetta er í tíunda sinn sem útnefningin fer fram. Vernharð Þorleifsson júdómaður varð í öðru sæti, Jón Arnar Magnús- son fij álsíþróttamaður í því þriðja, Einar Gunnlaugsson akstursíþrótta- maður i því fjórða og Kristinn Björnsson skíðamaður í fimmta sæti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.