Morgunblaðið - 04.01.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
GOLF
Júlíus.
Héðinn.
Héðinn og Júlíus
mætast í bikarslag
HÉÐINN Gilsson og Júlíus Jónasson, landsliðs-
menn í handknattleik, mætast í næstu viku —
leika þá sinn fyrsta leik eftir að þeir meiddust,
þegar Diisseldorf fær Gummersbach í heimsókn
í bikarkeppninni í Þýskalandi. Deildarkeppnin
hefst síðan á ný 15. janúar. Þess má geta að
Kristján Arason og lærisveinar hans hjá Dor-
magen máttu sætta sig við tap, 23:24, gegn
Hameln á útivelli á milli jóla og nýárs í deild-
inni. Leikmenn Dormagen misnotuðu hraðaupp-
hlaup á síðustu sek. leiksins.
Þórður í sjúkraþjálf-
un í Bochum
ÞÓRÐUR Guðjónsson er byrjaður að æfa í Boc-
hum eftir stutt jólafrí á Islandi. Þórður, sem
var skorinn upp fyrir meiðslum á ökkla á dög-
unum, verður í sérstökum æfingum hjá sjúkra-
þjálfara í tvær vikur, en þá á hann að geta
byrjað að æfa með félögum sinum.
Nýr þjálfari hjá
Nurnberg
Tvíburarnir frá Akranesi, Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir, byrja að æfa undir stjórn
Giinter Sebert hjá Niirnberg í dag, en þá hefj-
ast æfingar hjá félaginu eftir jólafrí. Sebert tók
við þjálfarastarfinu lijá Niirnberg fyrir jól, þeg-
ar Rainer Zobel var látinn hætta. Það á að vera
hlutverk Sebert að lyfta liðinu upp úr öldudal.
Konráð með sitt
300. landsliðsmark
KONRÁÐ Olavson skoraði
fjögur mörk gegn Norð-
mönnum í Eskilstuna í gær
— fjórða mark hans var
hans 300. mark í 120 land-
sleikjum.
Konráð hóf að leika með
landsliðinu 1987, er hann
fór í Bandaríkjaferð með
því — lék fimm Ieiki í ferð-
inni og skoraði 14 mörk.
Konráð.
Sex ár.
síðan Svíar
voru lagðir
ÍSLENSKIR handknattleiksmenn
hafa löngum átt í erfiðleikum með
að leggja Svía að velli. Þjóðirnar eig-
ast viðí fertugusta skipti í Linköping
í dag. Islendingar hafa aðeins fimm
sinnum náð að leggja Svía — aldrei í
Svíþjóð, gert tvö jafntefli, en tapað
32 leikjum. Það eru rúm sex ár síðan
f slendingar náðu síðast að sigrast á
„Svíagrýlunni" — í desember 1988 í
Laugardalshöllinni, 23:22. Þá léku
þrír þeirra leikmanna sem mæta í
kvöld, Sigurður Sveinsson, Bjarki Sig-
urðsson og Guðmundur Hrafnkelsson.
Þessir þrír leikmenn, ásamt Geir
Sveinssyni, voru einnig í liði sem náði
að leggja Svía í Irum á Spáni sama
ár. Þorbergur Aðalsteinsson lék aftur
á móti með i tveimur sigurleikjum
gegn Svíum 1984 — fyrst 22:20 á NM
í Finnlandi og síðan 25:21 í Laugar-
dalshöllinni. Fyrsti sigurinn á Svíum
og sá eftirminnilegasti vannst á HM
I Tékkóslóvakíu 1964, þegar Svíar
voru skelltir 12:10 á glæsilegan hátt
í Bratislava, sem frægt varð.
Morgunblaðið/Sverrir
Þelr hafa alltaf verið íslendlngum erfiðir — Staffan Olsson og fyrirliðl Svía
(3) Magnus Wislander, sem leika báðlr í Þýskalandi.
Jltotgmtfytafeife
1995
MIDVIKUDAGUR 4. JANUAR
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Ná íslendingarað brjóta „Svíagrýluna" á bakaftur?
Fjórir íslendingar
á atvinnumótum
NOREGUR
Ágúst til
Brann
ÁGÚST Gylfason, mið-
villarspilari úr Val, skrifar
undir tveggja ára samning
við norska félagið Brann í
dag. Ágúst æfði með Brann
í nóvember og var þjálfar-
inn Anders Giske ánægður
með hann — kom til íslands
um miðjan desember til við-
ræðna við forráðamenn
Val. Valsmenn hafa farið
yfir ýmis gögn í sambandi
við félagaskiptin og er ekk-
ert til fyrirstöðu að Ágúst
skrifi undir samning við
Brann. Giske vill fá Ágúst
sem fyrst til Bergen til æf-
inga.
FJÓRIR íslendingar keppa á
Tommy Armour mótaröðinni í
golfi í vetur. Mótin eru leikin í
Flórída í Bandaríkjunum og
keppt er um verðlaunafé, sem
reyndar er miklu minna en
gengur og gerist í stóru at-
vinnumannamótunum.
Pórmenningamir eru þeir Úlfar
Jónsson, Siguijón Amarsson
sem báðir léku í þessari mótaröð
sl. vetur, Jónatan Drummond fyrr-
um kennari hjá Golfklúbbi Reykja-
víkur sem er með íslenskan ríkis-
borgararétt og Jón Karlsson sem
kennt hefur golf hjá Golfklúbbnum
Oddi.
Jón hefur undanfarið verið að
læra golfkennslu í Flórída og hafði
lokið einni önn af fjórum. Hann
ætlar að hætta í því námi og reyna
við atvinnumennskuna sem spilari.
„Það var annað hvort að hrökkva
eða stökkva. Draumurinn um at-
vinnumennskuna er til staðar og
ég held ég geti staðið mig í þeirri
baráttu eins og hver annar. Það er
lítið hægt að læra meira hvemig
slá á kúluna heldur skiptir andlega
hliðin meira máli þegar komið er
upp í þennan getuflokk,“ sagði Jón.
Jón sagði að lestur bókar hefði
haft mikil áhrif á ákvörðun hans
um að hætta í skólanum og reyna
fyrir sér sem atvinnuspilari. „Einn
kennari í skólanum benti mér á að
lesa bókina „Giant within," eftir
Anthony Robbins en titillinn gæti
útleggst á íslensku sem risinn inní
í sjálfum þér og fer inn á svið
íþróttasálfræðinnar. Ég hreifst af
því sem hann hafði fram að færa
í bókinni og hef reynt að fyigja
mörgum ráðleggingum,“ sagði Jón
sem hélt utan í gær eftir jólafrí hér
á landi.
„Ég ætla að taka mér mánuð í
Jón Karlsson.
að undirbúa mig og koma mér í
gott úthald en reikna svo með því
að spila á fyrsta mótinu sjötta febr-
úar.“
HAIVIDKIMATTLEIKUR: IMORÐMEIMIM MED TAK Á ÍSLENDINGUM / C4