Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 3
2 D FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKIMATTLEIKUR
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 D 3
KÖRFUKIMATTLEIKUR
frábær
Anfemee Hardaway skoraði 33
stig, Shaquille O’Neal 25 og Nick
Anderson 20, átta af þeim á síð-
ustu 3:45 mín. fyrir Orlando Magic,
sem vann sinn fjórtánda heimaleik
í röð þegar New Jersey Net kom í
heimsókn, 113:110. Orlando hefur
unnið sjö af síðustu átta leikjum
sínum. Þess má geta að Hardaway
hitti ellefu sinnum ofan í körfuna
úr sextán skotum utan af velli og
tíu af fjórtán skotum undir körf-
unni. Hann átti auk þess átta stoð-
sendingar og tók átta fráköst.
Derrick Coleman skoraði 19 stig
fyrir New Jersey og Kenny Ander-
son og Chris Morris voru báðir með
18 stig Nets, sem vann Orlando
síðast þegar liðin mættust, 128:101,
12. desember.
David Wesley var hetja Boston,
þegar hann skoraði sigurkörfuna,
117:113, gegn Miami með þriggja
stiga skoti þegar 15,9 sek. voru eft-
ir af framlengingu. Miami var yfir
113:108 þegar 1:53 mín. voru eftir,
„PATRICK Ewing lék eins vel
og hann hefur gert best áður,“
sagði Pat Riley, þjálfari New
York, eftir að Ewing hafði farið
á kostum gegn Atlanta Hawks,
89:80. Ewing skoraði 21 stig
og tók tólf fráköst. Varnarleikur
New York var geysilega sterk-
ur, þannig að leikmenn Atlanta
skoruðu ekki stig utan af velii
síðustu sjö mín. leiksins, sem
segir allt um varnarleikinn —
leikmenn skoruðu aðeins með
skotum undir körfu og úr víta-
skotum. Anthony Mason var
einnig sterkur ívörn New York
— tók tíu f ráköst.
Morgunblaðið/Einar Falur
Patrlck Ewing ðttl snilldarleik með New York gegn Atlanta.
en leikmenn Boston skoruðu níu- síð-
ustu stig leiksins. Dominique Wilkins
skoraði 31 stig fyrir Boston, en Glen
Rice 37 stig fyrir Miami.
Elliot Perry var í sviðsljósinu í
Phoenix, skoraði sex af 21 stigum
sínum á síðustu 89 sek. og átti stór-
an þátt í sigri Phoenix Suns,
127:122, gegn Philadelphia 76ers.
Charles Barkley skoraði 35 stig og
tók 14 fráköst fyrir heimamenn.
Clarence Weatherspoon skoraði 31
stig fyrir 76ers.
Scottie Pippen skoraði 21 fyrir
Chicago Bulls, Toni Kukoc 20 og
B.J. Armstrong átján, sex af þeim
á síðustu 1:50 mín., þegar Bulls
lagði Denver Nuggets 86:80.
Reggie Miller skoraði 20 stig
fyrir Indiana Pacers gegn Washing-
ton Bullets, sem tapaði sínum
fimmta leik í röð 94:90, og þrett-
ánda af síðustu fjórtán leikjum.
Leikmenn Indiana hafa aftur á
móti unnið tíu leiki í röð á heima-
velli.
Fjórtán sigurleikir
Það vinna fáir á vörn New York,
þegar hún hrekkur í gang.
Atlanta var yfir 50:33 í leikhléi,
þegar leikmenn New York sögðu;
lok, lok og læs, þannig að gestimir
skoruðu aðeins 30 stig í
seinni hálfleik. Derek
Harper skoraði 20 stig
og Charles Smith 16 fyrir
heimamenn, sem hafa
unnið fjóra leiki í röð, en
það er ekki langt síðan
að New York tapaði fimm
leikjum í röð, sem kemur
ekki oft fyrir á þeim bæ.
Gary Payton hjá Se-
attle SuperSonics fór á
kostum þegar hann og
félagar náðu að koma í
veg fyrir, 116:85, að Cleveland næði
sigri á heimavelli. Hann skoraði 32
stig og setti met — hitti úr fjórtán
skotum utan af velli í röð og bætti
félagsmet Lonnie Shelton, sem skor-
aði úr þrettán skotum í röð 1979,
einnig gegn Cleveland. Gamla
stjaman Wilt Chamberlain, Philad-
elphia, á NBA-metið — hann skor-
aði úr átján skotum í röð 1967.
Skotnýting Seattle var 61%
leiknum. Detlef Schrempf skoraði
20 stig, en fímm aðrir leikmenn
skoruðu yfir tíu stig fyrirr Seattle,
sem hefur unnið átta af síðustu tíu
leikjum sínum. John Williams skor-
aði 17 stig og Mark Price 13 fyrir
Cavs.
NBA
Leikir 1 fymnótt:
Boston- Miami........117:113
■Eftir framlengingu.
Charlotte - Portland.118:106
Cleveland - Seattle.. 85:116
Indiana - Washington .. 94: 90
New York - Atlanta... 89: 80
Orlando -New Jersey...113:110
Chicago - Denver..... 86: 80
Phoenix - Philadel
127:122
í kvöld
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið f meistaraflokki
karla í knattspymu innanhúss hefst
með leik Fram og Víkings i a-riðli i
Laugardalshöii á kl. 17, en átta leik-
ir í riðlinum fylgja í kjölfarið. Auk
þeirra eru Fylkir, Valur, ÍR og KR
i a-riðli.
Erfiður múrfyrir Wilkens
LENNY Wilkens, þjálfari Atlanta Hawks, sem mátti sætta sig við
tap, 80:89, fyrir New York, er í sviðsljósinu þessa dagana, því að
hann þarf aðeins sigur í þrettán leikjum til að að slá út sigurleikja-
met Red Auerbach, fyrrum þjálfara Boston Celtic, í NBA-deildinni.
Wilkens hefur stjórnað liðum til sigurs í 939 leikjum. „Þetta er erfið-
asti múr sem ég hef þurft að vinna á,“ sagði Wilkens.
+i
V"
BJARNI Guðmundsson, einn
kunnasti handknattleiksmaður
íslands á árum áður, ákvað fyrir
þetta keppnistímabil að leggja skóna
á hilluna, eftir að hafa leikið með
þýsku liðunum Nettelstedt og
Wanne-Eickel í fjórtán ár, eða eftir
að hann fluttist til Þýskalands 1981.
Bjarni, sem er 38 ára gamall, hefur
náð að festa rætur í Þýskalandi, þar
sem hann vinnur við eigin fyrirtæki.
Þessi snaggaralegi leikmaður lék 193
landsleiki fyrir Islands og þeir voru
ófáir leikirnir sem hann fékk áhorf-
endur til að standa upp yfir spenntir
þegar hann brunaði fram með knött-
inn í hraðaupphlaupi — til að skora
jöfnunarmark eða tryggja íslandi
sigur. Bjarni var ár eftir ár talinn
einn besti hægri hornamaðurinn í
þýskum handknattleik og var ófá
árin í efsta sæti í kjöri þýska blaðs-
ins Handball Magazin.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins var á ferð um Þýskaland á dög-
unum lék honum forvitni á að vita
hvar Bjarni Guðmundsson væri nið-
urkominn og hvað hann hefði fyrir
stafni.
Lífið eftir handknattleikinn
„Eftir að ég var búinn að leika í
tuttugu ár sem meistaraflokksmað-
ur, ákvað ég að breyta til — leggja
skóna á hilluna og snúa mér að vinnu,
fjölskyldu og lífinu eftir handknatt-
leikinn. Ég er nú að átta mig á því
hvort ég geti verið án handknatt-
leiksins, fer öðru hvoru til að sjá leiki
og hef gaman af — ég skoða leikinn
frá annarri hlið. Það koma oft augna-
blik þegar maður hugsar um og sér
leiki í sjónvarpinu að mig langar að
leika með. Ég sé til hvað gerist því
að eftir þetta keppnistímabil veit ég
hvar ég stend. Það getur verið að
ég komi nálægt handknattleiknum
næsta keppnistímabil. Þá verð ég að
gera það upp við mig hvort ég geti
hugsað mér að fara að þjálfa eða
jafnvel að leika á ný, þá með liði í
neðri deild til að hafa gaman af. Ég
er mjög vel á mig kominn líkamlega
— á engin vandamál með meiðsli,
enda hef ég verið heppinn þau ár sem
ég lék handknattleik. Þess vegna á
ég möguleika á að leika lengur og
ég er það vel á mig kominn að ég
get leikið áfram í þriðju deildinni
hér.“
ÁrsveKa 4,4 milljaröar ísl. kr.
Bjarni rekur tölvufyrirtækið
Megabite, sem hann stofnaði fyrir
nokkrum árum með félögum sínum.
„Ég sé um eitt verkefni á vegum
fyrirtækisins — sé um annað stórt
fyrirtæki, Spinnrad, þar sem ég
stjóma tölvudeild í sambandi við inn-
kaup og annað, þannig að mitt fyrir-
tæki er fyrirtæki inni í fyrirtæki. Ég
er þar með fimm starfsmenn í minni
umsjá. Spinnrad er alltaf að vaxa
og vaxa — fyrirtækið er með tilbún-
ar snyrtivörur, gjafavörur. Vörur
fyrirtækisins eru á náttúrusviðinu,
efnagerð í kremum, hársápum og
snyrtivörum sem unnar eru úr efnum
úr náttúrunni. Vörumar hafa fengið
mjög góða viðurkenningu. Mikið af
vömnum kemur frá Asíu, þar sem
Spinnrad er með fólk í vinnu til að
framleiða hinar ýmsu vörur. Það eru
um fjögur tii fimm hundruð manns,
fjölskyldur, sem vinna á vegum fyrir-
tækisins í Asíu við að búa til gjafa-
vömr. Fyrirtækið á nú þegar með
120 verslanir í Þýskalandi, starfsfólk
í þeim er yfir þúsund. Vöxtur fyrir-
tækisins er svo mikill að áætlað er
garðinn sinn
í faðmi fjölskyldunnar
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
Bjarni Guðmundsson, Gabi og DavíA við tjörnlna í garðinum góða. Bjarni hefur lagt skóna á hllluna eftir 20
ára keppnisferll og leggur áhersluna að rækta fjölskyldu og garðlnn sinn f smábænum Rheinhausen í út-
jaðri Duisburg. „Það var kominn tími til að takast á við lífið eftir handknattleikinn."
í gegnum símann. í svona stómm
verslunarkeðjum er ekki annað hægt
en vera með mjög fullkomið tölvu-
kerfi — það er í svo mörg horn að
líta, ýmis vandamál koma upp og
því er það minnsta sem hægt er að
gera að hafa tölvukerfið mjög full-
komið.“
- Það er ekki annað að heyra en
dagurinn sé bæði langur og strangur
hjá þér. Attu nokkurn frítíma frekar
en þegar þú lékst handknattleik af
fullum krafti?
„Það góða við þetta er að ef mað-
ur nær að stjóma vinnu sinni og
skipuleggja vel, eins og mér hefur
tekist, er vinnudagurinn mjög eðli-
legur. Hvað er eðlilegur vinnudagur?
Jú, ég byija að vinna á morgnana
klukkan átta og ég er kominn heim
klukkan hálfátta á kvöldin. Það er
eins og maður þekkir á íslandi —
eðlilegur vinnudagur. Um helgar á
ég frí, en það er þó alltaf hægt að ná
í mig þegar eitthvað kemur uppá, í
farsíma."
AA rækta garðinn sinn
Bjami, sem hefur verið í Þýska-
landi frá 1981, hefur komið sér fyrir
ásamt eiginkonu sinni, Gabi, og fimm
ára syni, Davíð, í skemmtilegu rað-
húsi í Rheinhausen í útjaðri Duis-
burg. „Það var kominn tími til að
koma sér vel fyrir, því á síðustu þrett-
án árum hef ég búið á fimm stöðum.
Við erum loksins komin heim, eins
og má segja, því að konan mín fædd-
ist og ólst upp á þessu svæði. Okkur
líður sérstaklega vel, enda er alltaf
gott að vera stutt frá mömmu og
pabba. Mamma mín er heima á ís-
landi, en mamma Gabi er hér og við
fínnum vel hvað er gott að vera rétt
hjá æskuheimilinu. Þá er mjög stutt
fyrir mig að fara í vinnuna — ég
keyri þetta þrjátíu kílómetra, en þar
sem umferðarkerfið í Þýskalandi er
mjög fullkomið, er það ekkert vanda-
mál,“ sagði Bjarni, sem kann mjög
vel við sig í Þýskalandi.
„Þó að ég sé búinn að eiga heima
í Þýskalandi í jfjóifán ár, veit ég vel
að ég kem frá íslandi, er með íslensk-
an ríkisborgararétt og er stoltur af
að vera íslendingur. Þrátt fyrir mik-
ið útlendingahatur í Þýskalandi er
ekkert vandamál að vera íslendingur
hér. Ég veit að eyjan heima hverfur
ekki, ef eitthvað kemur uppá get ég
alltaf farið heim. Það er alltaf
skemmtilegt að koma heim, en hér
líður okkur mjög vel — erum búin
að byggja upp stóran vina- og kunn-
ingjahóp. Ég verð hér í framtíðinni.“
Bjarni hefur lagt skóna á hilluna
og það má með sanni segja að hann
sé farinn að rækta garðinn sinn. Við
hús Bjarna er skemmtilegur garður
með lítilli tjörn sem hann hefur út-
búið og í henni má sjá físka synda
um. „Það má segja að eftir mörg ár
í handknattleik, hafi maður loksins
gefíð sér tíma til að lifa fullkomnu
fjölskyldulífí. Á árum áður vann ég
mikið í garðvinnu og hafði gaman
af. Nú hef ég eignast eigin garð og
það hefur farið mikill tími í að vinna
í garðinum. Þar sem húsið okkar er
svo að segja nýtt, hef ég getað skipu-
lagt hvemig garðurinn á að vera.
Ég er búinn með helminginn, en mun
ljúka við garðinn næsta sumar.
Þetta er skemmtileg tilbreyting,
þar sem íþróttin hefur verið númer
eitt svo lengi — ég hef fórnað miklu
fyrir handknattleikinn. Þrátt fyrir
það hef ég alltaf verið með hugsun-
ina, sem ég vona að aðrir íþrótta-
menn hugsi sem eru komnir í íþrótt-
ir sem borgaðir eru peningar fyrir,
að þeir gleymi ekki að eftir íþróttim-
ar kemur annað líf sem þeir verða
að takast á við. Þá er maður fljót-
lega gleymdur og grafínn — er ekki
lengur í sviðsljósinu. Þá geta íþrótta-
mennirnir skoðað myndir, en það er
ekki hægt að lifa á minningunni,
þannig að maður verður að hugsa
um að byggja upp sitt líf á þeim tíma
sem maður er á fullum krafti í íþrótt-
unum. Þetta er hugsun sem allir
ættu að hafa hugfasta, vegna þess
að íþróttamenn sjá mjög eftir því ef
þeir hafa gleymt að hugsa um fram-
„Maður verður að hlúa að árunum sem koma
eftir íþróttirnar. Það er alltaf gaman að lifa
lífinu létt á meðan á þeirri skemmtun stendur,
en menn verða að hafa það hugfast að það er
líf eftir íþróttimar, því að eftir að menn hverfa
úr sviðsljósinu em þeir fljótlega gleymdir og
grafnir. Þá geta menn skoðað myndir, en það
er ekki hægt að lifa á minningunni,“ sagði
Bjami Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður í
handknattleik, þegar Sigmundur Ó. Steinars-
son sótti hann heim við Rínarbakka. Bjami
hefur lagt skóna á hilluna eftir 20 ár á vellin-
um, en hann tekur nú þátt í uppbyggingu á
fyrirtæki sem veltir 4,4 milljörðum ísl. kr. á
ári, rekur 120 verslanir í Þýskalandi, er með
hundmð manns í vinnu í Asíu og ætlar að
opna 400 nýjar verslanir í Þýskalandi og víða
um Evrópu á næstu fimm ámm.
Fljótasti
maðurinn
í íslensk-
um hand-
knattleik
ÞAÐ vakti mikla athygli
þegar Birgir Björnsson,
landsliðsþjálfari, valdi
hinn 17 ára leikmann
úr Val, Bjarna Guð-
mundsson, í landsliðið
1974. Hvað segir Birgir
um Bjarna?: „Hann er
ftjótasti maður sem hef-
ur verið í íslenskum
handknattleik, afskap-
lega samviskusamur og
sannaði það í því hlut-
verki sem hann var í —
að vera hornamaður og
hraðaupphlaupsmaður.
Þá var hann mjög góður
í vörn, enda las hann
leikinn vel — var alltaf
í góðu jafnvægi í horn-
inu og léttur á sér. Þó
að hann væri grannur
bætti hann það upp með
því hvað hann hafði
góða snerpu. Þegar ég
tók hann inn í landsliðið
á sínum tíma, sem ung-
an dreng, þótti mörgum
ég vera að gera ein-
hverja bölvaða vitleysu,
en ég var einmitt þá að
leita eftir manni með
þá eiginleika sem Bjarni
hafði — fljótum, með
góða knattmeðferð."
Bjarni GuAmundsson í leik með Wanne Elckel (Þýskalandl —
kominn á auðan sjó og skorar örugglega.
að það opni á næstu fímm árum um
fjögur hundruð verslanir í Þýskalandi
og víða um Evrópu. Ársvelta fyrir-
tækisins er um hundrað milljónir
þýskra marka [4,4 milljarðar ísl. kr].
Hluti af veltunni fer í tölvubúnað sem
ég sé um. Það þýðir fyrir mig enn
meiri vinnu og þess vegna verð ég
að ieggja áhersluna á vinnu mína.
Ég hef mjög gaman af því að taka
þátt í þessari uppbyggingu og það
gengur vel. Eins og ég sagði þá er
ég farinn að lifa lífinu eftir hand-
knattleikinn, sem er mjög þægilegt
og virkilega gaman að lifa,“ sagði
Bjami, sem sér um hið fullkomna
tölvunet fyrirtækisins — hann hefur
alfarið séð um að forrita tölvukerfið
síðustu sex árin. „Tölvukerfíð er
mjög fullkomið og í því sér maður
allt — nýjustu tölur á hverju augna-
biiki, hveija hreyfingu í hinum fjöl-
mörgu verslunum, þangað liggja sí-
malínur og fullkomnar tölvur eru í
öllum verslununum. Allar upplýs-
ingar um veltu og annað eru sóttar
Oftar með lands-
liðinu en Val
ÞEGAR Bjarni Guðmundsson var
búinn að leika fjóra landsleiki, var
hann búinn að leika oftar með lands-
liðinu heldur en Yalsliðinu. Bjarni
var valinn til að leika með landslið-
inu 1974,17 ára leikmaður úr 2.
flokki Val, sem hafði aðeins leikið
þijá meistaraflokksleiki með Val í
Reykjavíkurmótinu. Bjarni fór með
landsliðinu til Lúxemborgar og
Sviss. Axel Axelsson, sem lék þá
með Dankersen í Þýskalandi, kom
á móts við landsliðið í Lúxemborg
— þá varð að kynna hann fyrir
Bjarna, sem hann hafði aldrei séð
áður. Bjarni lék við hlið Axels í
fyrsta sigurleik Islands gegn V-
Þýskalandi, 18:15, í Ziirich.
tíðina á meðan þeir eru í íþróttum.
Það er alltaf gott og gaman að þéna
peninga á íþrótt sinni og geta lifað
lífinu létt á meðan á þeirri skemmtun
stendur, en eftir á kemur annar harð-
ur tími — menn verða að vera vel
undirbúnir fyrir þann tíma.
Ég kom ungur hingað til Þýska-
lands og fékk tækifæri til að iæra
af „gömlu refunum" sem höfðu verið
hér úti á undan mér, eins og Ólafi
H. Jónssyni, Axel Axelssyni og Ein-
ari Magnússyni. Þegar ég talaði við
þá heyrði ég hvernig lífið gekk fyrir
sig og ég reyndi að setja þeirra skoð-
anir og eigin hugmyndir um hvernig
væri best að lifa lífinu öðruvísi en
allir aðrir íþróttamenn — ég var
ákveðinn að gera allt til að byggja
upp atvinnulífíð með handknattleikn-
um. Menn verða að hlúa að árunum
sem koma á eftir íþróttirnar. Sá pen-
ingur sem menn vinna sér inn í íþrótt-
um, er sá peningur sem hjálpar þeim
í framtíðinni, ekki þeir peningar sem
menn lifa fyrir eftir íþróttimar,"
sagði Bjarni Guðmundsson.
A MORGUN
„Við vorum ekki
stórstjörnur“