Morgunblaðið - 27.01.1995, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA
m grindahlaupi
Heimsmeistara-
mótinu frestað
GUÐRÚN Arnardóttir, hlaupakona úr Ár-
manni, setti íslandsmet í 55 m grindahlaupi á
móti í Gainesville í Flórída um síðustu helgi.
Hún hljóp á 7,73 sekúndum, varð í öðru sæti
á mótinu og bætti eigið met um 0,02 sekúnd-
ur. Sigurvegari var Gillian Russel frá Jamaíku,
sem hljóp á 7,55 sekúndum en hún er i 24. sæti
á heimslistanum í 100 metra hlaupi á þar best
12,97 sek. Kim Batten frá Bandaríkjunum varð
þriðja á 7,74 sek., en hún var í 2. sæti á heims-
listanum í 400 m grindahlaupi í fyrra, 53,77 sek.
Guðrún bætti ís-
landsmetið í 55
JJtó
1995
FOSTUDAGUR 27. JANUAR
BLAÐ
Hetja og
skúrkur
Janúar 1995: Cantona rekinn út
af gegn Crystal Palace fyrir gróft
brot, og lendir síðan í átökum við
áhorfenda; sparkar í hann að hætti
kung-fu manna og slær í þokkabót.
Ágúst 1994: Rekinn af velli gegn
Glasgow Rangers í vináttuleik og
úrskurðaður í þriggja leikja bann.
Júlí 1994: Handtekinn af öryggis-
vörðum eftir rifrildi við starfsmann
á heimsmeistaramótinu í Bandaríkj-
unum, fyrir leik Brasilíu og Svíþjóð-
ar í undanúrslitum í Los Angeles.
Guido Tognoni, talsmaður FIFA,
sagði leikmanninn hafa lent í rifr-
ildi vegna úthlutunar sætis í blaða-
mannastúkunni og hafi verið hand-
tekinn eftir að hafa slegið starfs-
manninn. Canton, sem starfaði fyr-
ir franska sjjónvarpsstöð á keppn-
inni, var fljótlega sleppt.
Marz 1994: Úrskurðaður í fimm
leikja bann eftir að hafa verið rek-
inn af velli með fjögurra daga milli-
bili, gegn Swindon og Arsenal. En
hann sagði þá: „ástarsambandi
mínu og ensku knattspyrnunnar er
ekki lokið.“
Október 1993: Cantona lentir í
deilu við tyrkneska lögreglumenn,
eftir Evrópuleik gegn Galatasaray
í Istanbul; talið var að lögreglumað-
ur hefði slegið leikmanninn. Can-
tona var rekinn út af í leiknum
vegna orða sem hann lét falla í
garð dómarans.
•Cantona kom til Englands í febr-
úar 1992, er hann gekk til liðs við
Leeds og varð enskur meistari um
vorið. í desember, sama ár, var
hann seldur til Manchester United,
við lítinn fögnuð áhangenda Leeds,
og hann hefur orðið enskur meist-
ari tvisvar síðan; 1993 og 1994.
Reuter
ERIC Cantona mlssti stjórn á skaj>l sínu eftir aö hafa verlö viklð af velli í fyrra-
kvöld og sparkaði í áhorfanda. A stóru myndinnl er Frakkinn á niðurleið eftlr
sparkið og á hinni hefur vallarstarfsmaður skorist í leiklnn.
til
HEIMSMEISTARAMÓTINU á skíðum, sem átti
að hefjast í Sierra Nevada á Spáni á mánudag,
var í gær frestað til næsta árs. Ástæðan er
snjóleysi og veðurspá um viðvarandi ástand
næstu daga. Frestun hefur legið í loftinu að
undanförnu en dregið var að taka ákvörðun
fram á síðustu stundu. I fyrsta sinn í nær aldar-
fjórðung er lítill sem enginn snjór í Sierra
Nevada en mótshaldarar höfðu sett gervisnjó
í brautirnar. Veðurspá fyrir næstu daga gerir
hins vegar ráð fyrir hlýnandi veðri og jafnvel
rigningu og því var fyrrnefnd ákvörðun tekin.
Sjö íslenskir skíðamenn voru skráðir til þátt-
töku; Ásta S. Halldórsdóttir, Kristinn Björns-
son, Arnór Gunnarsson, Vilhelm Þorsteinsson,
Haukur Arnórsson, Gunnlaugur Magnússon og
Pálmar Pétursson.
KORFUKNATTLEIKUR
IMýliði fékk
flest atkvæði í
fyrsta sinn
NÝLIÐINN Grant Hill hjá Detroit Pistons fékk
flest atkvæði í kjöri almennings um hveijir
eigi aðleika í stjörnuleik NBA-deildarinnar í
körfuknattleik. Þetta er í fyrsta sinn sem ný
liði er tekinn fram yfir reyndari menn en Hill
fékk 1.289.585 atkvæði, 26.134 fleiri en Shaq-
uille O’Neai hjá Orlando í miðvarðarstöðu
Austurdeildar. Þeir verða í byrjunarliðinu
ásamt framverðinum Scottie Pippen hjá
Chicago og bakvörðunum Anfernee Hardaway
hjá Orlando og Reggie Miller hjá Indiana.
Sljörnuleikurinn, sem fer fram í 45. sinn,
verður í Phoenix sunnudaginn 12. febrúar.
Cantona í slæmu máli
Claude Simonet, formaður
Knattspyrnusambands
Frakklands, sagði í gær að mikil
óvissa ríkti um framtíð Erics Can-
tonas sem landsliðsmanns eftir að
hann réðst á áhorfanda í fyrra-
kvöld í kjölfar þess að hafa verið
vikið af velli í leik Crystal Palace
og Manchester United í ensku úr-
valsdeildinni. „Því miður held ég
að taka verði Eric Cantona úr
franska landsliðinu. Ég segi því
miður því hann er maður mikilla
hæfileika,“ sagði formaðurinn.
Framkoma Cantona vakti víða
mikla athygli. Alþjóða knatt-
spyrnusambandið harmaði atburð-
inn og Knattspyrnusamband Eng-
lands hélt sérstakan fréttamanna-
fund þar sem kom fram að leik-
maðurinn hefði verið ákærður fyrir
óprúðmannlega framkomu. Tekið
yrði á þessu af hörku en réttlætis
gætt og því fengi Cantona 14 daga
frest til að undirbúa vörn í málinu.
Cantona á einnig ákæru yfir höfði
sér fyrir líkamsárás.
Hegðun fyrirliða franska lands-
liðsins var víða fordæmd en einnig
var á það bent að leikmaðurinn
hefði sagt í myndbandi um sjálfan
sig að hann gengi stundum of
langt. Ummmæli hans og fram-
koma bentu til þess að Hann hefði
ekki stjórn á sjálfum sér og þyrfti
að fara í meðferð.
Stjórnarfundur var hjá Man-
chester United í gærkvöldi en tals-
menn félagsins þögðu þunnu hljóði
að honum loknum og Cantona lét
ekkert hafa eftir sér. Enska knatt-
spyrnusambandið kastaði boltan-
um til United og gaf til kynna að
félagið ætti að taka fyrsta skrefið
varðandi refsingu. United mætir
Wrexham í fjórðu umferð bikar-
keppninnar á morgun og er talið
að Cantona verði ekki með en búist
er við yfirlýsingu frá Manchester
United um málið í dag.
■í FRAKKLANDI lék Cant-
ona með Auxerre, Martigues,
Auxerre aftur, Marseilles,
Bordeaux, Montpellier, Mars-
eilles aftur og loks Nimes.
Hann lenti oft í vandræðum;
var gerður brottrækur úr
landsliðinu um tíma fyrir
móðgandi ummæli um þáver-
andi landsliðsþjálfara, var rek-
inn af velli fyrir að kasta knetti
í dómarann og var þá úrskurð-
aður í leikbann, sem var síðan
lengt eftir að hann móðgaði
aganefnd franska knatt-
spyrnusambandsins á fundi.
SKIÐI
FRJALSIÞROTTIR
RALL: SPAIMVERJIIMN CARLOS SAINZ SIGRAÐIIMONTE CARLO / C4