Morgunblaðið - 29.01.1995, Síða 1
BILAR A UNDIR EINA MILLJONKRONUR - B&L MEÐ
BÍLA FRÁ FIMM FRAMLEIÐENDUM - REYNSLUAKSTUR
Á CHRYSLER NEON - SPORTBÍLL FRÁ A UDI
Toyota Corolla
1.199.000
Corolla Hatchback, 3ja dyra.
Nú geturðu eignastToyota Corolla
á verðifrá 1.199.000 kr.
® TOYOTA
Tákn um gæöi
Ný lína frá Audi til íslands í mars
NÝIR bílar frá Audi verksmiðjunum
þýsku eru væntanlegir til íslands í
byijun mars þegar Hekla hf. kynn-
ir nýja línu. Eru það Audi A4, A6
og A8 en sá
nefndi er reynd-
ar sérstak-
lega fenginn hingað til lands fýrir
Happdrætti Háskóla íslands og
verður bíllinn aukavinningur i út-
drætti í desember. Audi A4 og A6
taka við af Audi 80 og 100 en þar
er sem fyrr um að ræða framdrifs-
bíla og eru auk þess fáanlegir með
aldrifi.
Audi A4 og A6 eru vel
og skemmtilega hannað-
ir bílar. Þeir eru með
nýjum svip, ávalir
mjúkir á
AUDI A4 er fallegur bíll með
miklum búnaði, m.a. líknar-
belgjum og hemlalæsivörn.
Morgunblaðið/jt
alla lund en samt sem áður nokkuð
líkir fyrirrennurum sínum. A4 bíll-
inn verður boðinn með 1,8 lítra og
125 hestafla vél og allvel búinn,
með rafmagnsrúðuvindum og hlið-
arspeglastillingum, samlæsingum,
hemlalæsivörn og líknarbelg í stýri
og fyrir farþega framsætis. Verð
hans er frá 2,3 m.kr. A6 er ekki
síður vel búinn, verður tekinn hing-
að með 2,6 lítra og 150 hestafla
vél og ívið meira er í hann lagt í
innréttingum og mun hann kosta
sjálfskiptur kringum 3,3 millj-
ónir.
Audi A4 og A6 voru
kynntir íslenskum
blaðamönnum í Sví-
þjóð á dögunum og
eru hér greinilega
á ferð vandaðir
gripir o g vel bún-
ir, snarpir í við-
bragði og þægi-
legir á allan hátt.
Ekki síst er A6 Qu-
attro öruggur í veðri
og færð sem Svíþjóð bauð
uppá um síðustu helgi, snjó og
hálku. ■
Neikvæður hvati í af
slætti til verkstæða
STILLING hf. hefur unnið að stofnun
innkaupasambands með aðilum á
Norðurlöndum og hyggst þannig ná
fram lægra innkaupsverði á vara-
hluti. Hugsanlegt er að 5-10% verð-
lækkun til neytenda næðist fram með
slíku samstarfi.
„Við höfum rætt við nokkra aðila
sem eru á svipaðri línu og við um
að við stæðum saman að innkaupum.
Þarna er um að ræða fyrirtæki sem
eru með mörg þau umboð sem við
erum með. Markmiðið er að láta eina
sameiginlega deild sjá um innkaup
fyrir öll fyrirtækin og knýja þannig
fram lægra verð. Varan yrði þó send
til hvers lands fyrir sig þannig að
lágmarks yfirbygging yrði í kringum
innkaupasambandið," segir Stefán
Bjarnason hjá Stillingu hf.
Það var Júlíus Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Stillingar sem upphaf-
lega ýtti hugmyndinni um norrænt
samstarf um innkaup á varahlutum
úr vörinni. Hefur hann leitt norræna
starfsbræður sína saman í viðræðum.
Stefán telur nokkuð víst að þessu
verði hrundið í framkvæmd. Stórir
aðilar standa að þessu með Stillingu,
eins og t.a.m. innkaupasamband bif-
reiðaverkstæðanna í Danmörku.>
„Það er okkar hagur að þetta verði
sem stærst í sniðum því við erum
minnstir og þar af leiðandi líklega
með hæstu verðin. Ég gæti vel trúað
því að innkaup með þessum hætti
skiluðu neytendum fimm til tíu pró-
sent verðlækkun," segir Stefán. ■
Sidekick með
ábyrgð
SUZUKI bílar hf. hafa hafið inn-
flutning á Suzuki Sidekick jeppum
frá Bandaríkjunum og býður fyrir-
tækið bílana á 1.880 þúsund kr.
Úlfar Hinriksson framkvæmda-
stjóri Suzuki bíla segir að með
þessu sé fyrirtækið að svara sam-
keppni sem það hefur fengið. Fyrir-
tækið býður Sidekick með eins árs
ábyrgð. Ennfremur hafa Suzuki
bílar lækkað verð verulega á
Suzuki Vitara, sem er með sams-
konar vél og Sidekick en mun bet-
ur búinn að öðru leyti, úr 2.295
þúsund krónum í 2.175 þúsund
krónur. ■
Hummer á íslandi
GMÞ Bílaverkstæðið hf, Fosshálsi
27, hefur samið við AM General
Corporation í Bandaríkjunum um
innflutning og sölu til íslands á
fjórhjóladrifna Hummer-farartæk-
inu. Bíllinn getur dregið yfir fjögur
og hálft tonn og er burðargetan
rúmlega tvö tonn. í Hummer er
svo kallað CTIS-kerfí (Central Tire
Inflation System). Með því er
hægt að hleypa lofti úr dekkjunum
sem eru 37 tommur á hæð meðan
ekið er og þessu stjórnað úr öku-
mannssæti. Ævar S. Hjartarson
framkvæmdastjóri GMÞ Bílaverk-
stæðisins hf. segir að þegar
hafi borist pantanir í 3-4
Hummer frá einstaklingum
hér á landi. Hummer kost-
ar hérlendis frá 4,8 millj-
ónum króna. ■
ÆVAR reynsluekur Hummer á til-
raunasvæði framleiðandans í
South Bend. Indianíi
Jafnari
sala milli
tegunda
HÁTT í 30 Hyundai Accent
bílar hafa selst það sem af er
þessu ári og segir Pétur Péturs-
son sölustjóri hjá Bifreiðum og
landbúnaðarvélum að bílkaup-
endur hafí tekið bílnum afar
vel. Þriggja dyra Accent með
1,3 lítra, 84 hestafla vél kostar
949 þúsund krónur.
Fyrstu 20 daga ársins hefur
VW hæstu markaðshlutdeild-
ina, 17,6%, og virðist Golf ætla
að halda sínu góða gengi frá
síðasta ári, í næsta sæti kemur
Toyota með 15,1%, sem er mik-
il minnkun því á síðasta ári var
hlutur Toyota bíla um 26%.
Hyundai og Nissan eru með
14,5% hlut. Hér er verið að
tala um sölu fyrstu þijár vikur
ársins og ef þær eru marktæk-
ar sem vísbending fyrir fram-
haldið virðist sem mun jafnari
dreifing sé að verða í bílasöl-
unni milli tegunda. ■