Morgunblaðið - 29.01.1995, Síða 2
2 C SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
r
Auglýst fyrir
150 millj.
BIFREIÐAUMBOÐIN aug-
lýstu á síðasta ári fyrir a.m.k.
150 milljónir króna, að mati
Gísla Guðmundssonar for-
stjóra B&L. Heildarbílasalan á
síðasta ári var um 5 þúsund
bílar þannig að auglýsinga-
kostnaður á hvern seldan bíl
var um 30 þúsund krónur, eða
um 3% af verðmæti bíls sem
kostaði eina milljón krónur.
NEON, tveggja sæta
sportbíll.
Neon
„roadster
TVÖ afbrigði eru talin verða
boðin af Chrysler Neon þegar
önnur kynslóð kemur á mark-
að árið 1999. Þessi afbrigði
eru tveggja sæta sportbíll og
lítill fjölnotabíll á viðráðan-
legu verði. Fjölnotabíllinn er
sagður vera mitt á milli
Plymouth Voyager og Eagle
Summit fjölnotabílanna að
stærð. Líklegt þykir að fjöl-
notabíllinn verði með hefð-
bundnum hurðum á lömum
til að draga úr framleiðslu-
kostnaðinum en vélarlínan
verður 2.0 og 2.4 lítra, sextán
ventla vélar auk díselvélar
fyrir Evrópumarkað. „Ro-
adsterinn“ verður byggður á
sömu grind og tveggja dyra
Neon en verður ódýrari en
Mazda MX-5 Miata, eða á um
12.500 bandaríkjadollara.
Líklegast þykir að hann verði
með 2.4 lítra, fjögurra
strokka vél en einnig er hugs-
anlegt að hönnuð verði enn
kraftmeiri vél með forþjöppu.
Navistar vél
Ford
CUMMINS díselvélin í Dodge
Ram pallbílnum hefur vakið
svo mikla hrifningu að í
Bandaríkjunum hefur verið
stofnaður aðdáendaklúbbur
um hana. Navistar díselvélin
í Ford F-250, F-350 og F-
Super Duty pallbílnum er tal-
in standa Cummins lítt að
baki. Hún er með beinni inn-
spýtingu og með forþjöppu
eins og Cummins og er ekki
síður kraftmikil. F-250 sem
er afturhjóladrifinn er 13,4
sekúndur úr kyrrstöðu í 100
km hraða á klst sem þykir
gott fyrir pallbíl. Navistar-
vélin er stærri en Cummins,
7.3 lítra V8 en Cummins 5.9
lítra, sex strokka línuvél.
Navistar afkastar 210 hest-
öflum við 3.000 snúninga en
Cummins 175 hestöflum.
Sætisáklæði
með geislun
JAPANSKT fyrirtæki hefur
hannað ökumannssæti sem
sagt er að örvi blóðrás bíl-
stjórans og komi í veg fyrir
að hann þreytist á langferð-
um. Áklæði sætisins er gert
úr leðurlíki samsettu úr poly-
urethan og keramikpúðri sem
er sagt gefa frá sér geislun.
Framleiðandinn, Kyowa Leat-
her Cloth Company, segir að
einnig sé hægt að nota áklæð-
ið í hurðaklæðningar. ■
HUMMER er smíðaður í nokkrum útfærslum, m.a. sem pallbíll, hálfyfirbyggður, yfirbyggður og með seglþaki.
GMÞ Bílaverkstæðið hf.
semur við AM General Co.
ÆVAR S. Hjartarson og Greg Daniels, yfirmaður
alþjóðadeildar AM General, handsala samninginn
við höfuðstöðvar fyrirtækisins í Indiana.
mm GMÞ Bílaverkstæðið hf, Foss-
O hálsi 27, hefur samið við AM
Z General Corporation í Banda-
J ríkjunum um innflutning og
U) sölu til íslands á Qórhjóla-
drifna Hummer-farartækinu.
Ævar S. Hjartarson er fram-
kvæmdastjóra GMÞ (General
O Motors þjónustunnar) og
O prufukeyrði Hummer á til-
3 raunasvæði framleiðandans í
S South Bend, Indiana.
■3 Hummer fjölnotabíllinn
gjg hefur vakið athygli um allan
Ukl heim og þekkja því flestir til
^ útlit hans án þess að hafa
kynnst honum af eigin raun.
S Það sem gerir þennan íjölnota
~| bíl áhugaverðan er styrkur
“ samfara mikilli endingu þar
sem hönnun á Hummernum var
gerð samkvæmt ströngustu kröf-
um Bandaríkjahers um áreiðan-
leika í akstri. Krafan var gerð um
tólf ára endingartíma að lágmarki
án viðhalds að frátöldu því að
skipta um olíur, loftsíu og öðru
slíku.
Schwartzenegger
heimtaði bíi
Ævar segir að tilurð þess að
Hummerinn er nú framleiddur
einnig fyrir fijálsan markað er sú
að hinn frægi leikari Arnold
Sehwartzenegger staðnæmdist er
herfylki ók framhjá honum. „Hann
var staðráðinn í að fá þennan bíl
sem samræmdist svo tröllslegu
útliti hans sjálfs. Hann hringdi í
AM General og þeir trúðu því ekki
í fyrstu að þetta væri kraftamaður-
inn og lögðu bara tólið á. Amold
gafst ekki upp heldur hringdi í
yfirmann fyrirtækisins og hann
sagði þvert nei því hann trúði fyrir-
spyijenda ekki heldur. Arnold fór
með flugvél strax til höfuðstöðva
AM General og óskaði þar eftir
bíl og urðu þeir þá
við óskum hans,“
segir Ævar.
Árið 1992 rann
fyrsti bíllinn.fyrir
almenn^n markað
af færibandinu.
Yfír 170.000 ein-
tök hafa verið
framleidd frá ár-
inu 1983. Farar-
tækið hefur stað-
ist próf reynslunn-
ar. Nú er rætt um
allt að tuttugu ára
endingartíma fyrir
herinn. Hummer
var hannaður frá
grunni miðað við
ákveðnar forsend-
ur um mikið þol,
öflug afköst og
varanleika. Bíllinn
tók ekki sérstak-
lega mið af mark-
aðnum heldur var gæðakrafan ein
látin sitja í fyrirrúmi. Núna eru
þarfir einstaklinganna á ftjálsum
markaði einnig hafðar í huga hvað
varðar þægindi og rekstrarkostn-
að.
Lokuð öndun á drifbúnaði
Að innan er bíllinn búinn
vönduðum innréttingum, hljóm-
flutningstækjum og góðum sætum.
Árgerð 1995 er búin nýrri vél frá
General Motors, 8 cyl. 6.5 lítra
diesel vél, sem skilar 170 hestöfl-
um. Vélin tengist nýrri fjögurra
gíra sjálfskiptingu, gormafjöðrun
er sjálfstæð á öllum hjólum, nið-
urgírun er út í hjól 2:1 og lægsti
hæðarpunktur frá jörðu er yfir 40
cm sem er meira en nokkur annar
framleiðandi getur státað af. Drif-
búnaður er með tregðulæsingum
framan og aftan af Zexel Torsen
gerð. Bíllinn er frá framleiðanda
útbúinn kælingu (heavy duty) fyrir
vökvastýri, sjálfskiptingu, milli-
kassa og olíu á vél. Öndun á drif-
búnaði er lokuð og leidd upp í loft-
hreinsara sem og gerir bílnum
kleift að komast yfir vötn og ár
þótt töluvert djúpar séu - allt að
einn metri. Með aukabúnaði sem
í boði er má aka í enn meira dýpi.
Rafkerfið er tólf volta og rafallinn
framleiðir 124 amper.
Það sem alvöru jeppamönnnum
finnst meðal annars áhugavert í
Hummer er svo kallað CTIS-kerfi
(Central Tire Inflation System).
Með því er hægt að hleypa lofti
úr dekkjunum sem eru 37 tommur
á hæð meðan ekið er og þessu
stjórnað úr ökumannssæti. Breyt-
ingin frá 8 pundum í 35 pund tek-
ur innan við tvær mínútur. Öku-
maður getur valið að breyta loftinu
að framan, aftan eða allra íjögurra
í einu. Ef springur á hjólbarða er
hægt að hafa svokallað Runflat
dekkjakerfi sem leyfir áframhald-
andi akstur í allt að 50 kílómetra
eftir hraða.
Yfirbygging bílsins er úr áli sem
hefur verið sérstaklega hitameð-
höndlað til að standast tæringu
sem venjulegar bifreiðir lenda í
enda hefur smíði yfirbyggingar
verið líkt við flugvélasmíði. Yfir-
byggingin er límd og svo drag-
hnoðuð (yfir 2200 draghnoð).
Þyngdardreifing er jöfn (50/50)
og þyngdarpunktur liggur mjög
neðarlega sem gerir farartækinu
fært að aka í miklum hliðarhalla.
Frá 4,8 milljónum kr.
Hummerinn er með veltibúri til
að tryggja frekara öryggi. Þótt
Islendingum sé tamt að vilja breyta
fjórhjólabifreiðum sínum má með
sanni segja að Hummer sé frá
byijun framleiddur fyrir átök í
náttúrunni og því gerist ekki þörf
á að breyta véla- og drifbúnaði
þrátt fyrir að auðvelt sé að setja
44 tommu hjólbarða undir tækið.
Bremsukerfið er útbúið diskum
að framan og aftan, 10,5 tommur
að stærð, og eru þeir staðsettir
milli grindarbita sem næst drifkúl-
um og verða því síður fyrir hnjaski
eða áhrifum bleytu. Útblástur-
skerfið er úr ryðfríu stáli og áli.
Bílinn er hægt að fá í ýmsum litum
og stærðum. Yfir pallútgáfuna má
auðveldlega smíða yfirbyggingar
sem henti hveijum og einum. Víða
um heim er bíllinn notaður af veitu-
stofnunum eins og rafveitu, pósti
og síma, orkustofnunum en síðast
en ekki síst af björgunarsveitum
og slökkviliði. Bíllinn getur dregið
yfir fjögur og hálft tonn auk
burðargetu rúmlega tvö tonn.
Ævar segir að Hummer muni
kosta hérlendis frá 4,8 milljónum
króna. ■
Nýr bíll
m m ■
iynr mmna en milljón Vélarstærð og -afl Stærð Hestöfl Stærð bílsins Lengd Breidd Sam- læs. Útbúnaður í bílnum Vökva- Rafdr. Loftp. f. stýri rúður ökum. Útv. og segulb. Bensín- eyðsla Pr. 100 km bl. akstur VERÐ M. vsk., skrán. og ryðvörn
Daihatsu Charade 1,31 84 3,75 m 1,62 m nei já nei nei nei ca. 8 I 998.000 kr.
Fiat Punto 1,21 55 3,76 m 1,62 m nei nei nei nei nei 7,9 I 964.000 kr.
Fiat Uno Arctic 1,01 45 3,69 m 1,56 m nei nei nei nei nei 6,1 I 814.000 kr.
Hyundai Accent, 3 dyra 1,31 84 4,10 m 1,62 m nei já nei nei já 7-8 I 949.000 kr.
Hyundai Accent, 5 dyra 1,31 84 4,10 m 1,62 m nei já nei nei já 7-8 I 999.000 kr.
Lada Safir, 4 dyra 1,51 73 4,13 m 1,62 m nei nei nei nei nei 10 1 588.000 kr.
Lada Station 1,51 77 4,12 m 1,62 m nei nei nei nei nei 101 677.000 kr.
Lada Samara, 5 dyra 1,31 61 4,01 m 1,65 m nei nei nei nei nei 81 624.000 kr.
Lada Sport 1,7 1 84 3,72 m 1,68 m nei nei nei nei nei 121 949.000 kr.
Nissan Micra, 3 dyra 1,31 76 3,69 m 1,58 m nei já nei nei nei 6-7 1 970.000 kr.
Nissan Micra, 5 dyra 1,31 -76 3,69 m 1,58 m nei já nei nei nei 6-71 998.000 kr.
Opel Corsa 1 1,21 45 3,73 m 1,60 m nei nei nei nei já 7,7 1 999.000 kr.
Peugeot106 1,1 I 60 3,56 m 1,59 m nei nei nei nei nei 6,51 888.000 kr.
Peugeot 205 (m. topplúgu) 1,41 75 'W 3,70 m 1,57 m já nei já ■ neifr nei 7,7 1 980.000 kr.
Renault Twingo * 1,31 55 3,43 m 1,63 m nei nei nei nei nei 7,7 1 898.000 kr.
Skoda Favorit 1,31 55 3,81 m 1,62 m já nei nei nei nei 7,91 746.000 kr.
Skoda Forman ('94) 1,31 55 4,16 m 1,62 m já nei nei nei nei 7,91 798.000 kr.
Suzuki Swift 1,01 58 3,74 m 1,59 m nei nei nei nei nei 6,01 998.000 kr.
* Fjarstýrð samlæsing, rafdrifnir speglar og rúður kosta 30.000 kr. í viðbót
i