Morgunblaðið - 29.01.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1995 C 3
B&l með umbod fyrir fímm framíeióendur
Fleiri stoðum skotið
undir rekstur B&L
BIFREIÐAR og Landbúnaðarvélar
hf., sem er umboðsaðili Lada og
Hyundai, hefur sem kunnugt er
komist að samkomulagi við Bí-
laumboðið hf. að taka við umboði
BMW og Renault. Með í samning-
unum fylgir umboð fyrir Rover sem
BMW eignaðist meirihluta í á síð-
asta ári. Með þessum breytingum
verða Bifreiðar og Landbúnaðar-
vélar eitt stærsta bílaumboðið hér
á landi. A síðasta ári seldi umboðið
763 fólks- og sendibíla af Hy-
undai- og Lada-gerðum. Bílaum-
boðið seldi á síðasta ári 254 fólks-
bíla, þar af 28 BMW, 45 Renault
Clio, 43 Twingo og 128 Renault
19. Þá seldust einnig 10 Renault
vörubílar yfir 5.000 tonn, þar af 4
yfir 22.000 tonna bílar. Gísli Guð-
mundsson forstjóri Bifreiða og
landbúnaðarvéla segir að gengið
hafi verið til þessara samninga til
að skjóta fleiri stoðum undir rekst-
ur B&L og fyrirtæki á þessu sviði
þurfi að vera af ákveðinni stærð-
argráðu til þess að þau beri sig.
Gengið verður frá samningunum
einhvern næstu daga, að sögn
Gísla. Hann segir að forsvarsmenn
BMW sem voru staddir hér á landi
nýlega hafi lagt á það áherslu að
Rover-umboðið yrði hjá sama inn-
flytjanda og BMW. Hann segir að
of snemmt sé að segja til um hvaða
möguleika Rover eigi hér á landi,
fyrst þurfi að kynna merkið og það
eitt og sér útheimti mikla fjár-
muni. Hann kveðst þó sjá ýmsa
möguleika í bílum eins og Land
Rover Discovery og jafnvel smá-
bílnum Mini, sem eitt sinn seldist
ágætlega hérlendis, þá undir teg-
undarheitinu Austin.
HOFUÐSTOÐV AR Bif-
reiða og landbúnaðarvéla
við Armúla. Þar verður
innan tíðar að öllum
líkindum boðið upp
jfeaN. á bíla frá fimm
itk. frainleiðendum.
ROVER hefur
kynnt áform um
nokkra minni bíla þar á meðal
þennan glæsilega smábíl sem ráð-
gert er að framleiðsla hefjist á
1997.
Gísli segir að sala á nýjum bílum
Renault og BMW verði flutt strax
í höfuðstöðvar B&L í Ármúla en
verkstæði og varahlutaþjónusta
verði fyrst um sinn, líklega fram
að páskum, í höfuðstöðvum Bí-
laumboðsins að Krókhálsi 1. „Það
verður dálítið erfitt að koma vara-
hlutadeildinni fyrir en það mun
takast. Við förum út í þetta meðal
annars til að skjóta fleiri stoðum
undir reksturinn og nýta betur
okkar aðstöðu og mannskap. Við
seldum hér eitt árið 2.800 bíla á
einu ári og árið áður seldum við
2.500 bíla,“ segir Gísli. Hann segir
BMW 316 Compact verður einn þeirra bíla sem B&L býður.
að á vissan hátt sé fyrirtækið að
fara út í samkeppni við sjálft sig
með því að selja Renault samhliða
Hyundai en þó eru þessir bílar með
ólíkan karakter. En sama gildi um
mörg önnur umboð, ekki síður hér-
lendis en erelendis. Hann bendir á
að í Danmörku er BMW og Hy-
GÍSLI Guðmundsson
forstjóri B&L.
undai umboðin á sömu hendi, í
Noregi er Mazda og Hyundai saman
og í Svíþjóð Mitsubishi og Hyundai.
Sama vélarlína í BMW
og Rover
„Fyrirtækin virðast þurfa að
vera af ákveðinni stærðargráðu því
auglýsingakostnaðurinnn er rnikill
og dýrt er að þjálfa upp starfsfólk.
Auglýsir.gakostnaðurinn lækkar
svo með fleiri seldum einingum."
Gísli segir að B&L hafi ekki sóst
eftir Rover-umboðinu heldur hafi
forsvarsmenn BMW boðið það á
fundi í síðustu viku. „Þeir ætla að
bjóða sömu vélar og búnað að hluta
til í BMW og Rover og þess vegna
fínnst þeim betra að umboðin séu
á einni hendi,“ sagði Gísli.
„Þetta leggst vel í mig. Við
erum komnir með breiðari línu og
bíla frá bæði Evrópu og Asíu,“
sagði Gísli. ■
STÓR hjól en lítil framrúða er sterk-
asta svipmótið á tveggja sæta sport-
bilnum sem Audi setur á markað 1998.
Sportbíll frú Audi '98
AUDI setur senn á markað nýjan
hlaðbak í smábílaflokki, A3, sem
í stórum dráttum er byggður á
Golf. Út frá A3 hafa verksmiðjurn-
ar svo þróað opinn tveggja sæta
sportbíl, roadster, RS3, og annar
bíll er á teikniborðinu en sá kall-
ast RS og er óvenjulegur hlaðbak-
ur. RS3kemur á markað snemma
árs 1998 og verður smíðaður af
Porsche.
Útlitshönnun sportbílsins er
eins og á mörgum öðrum sportbíl-
um í dag, lítill framendi en þeim
mun stærri afturendi. Bíllinn er
hannaður í Ingolstadt þar sem
höfuðstöðvar Audi eru. Framrúðan
er lítil og hægt að bregða blæju
yfir bílinn með rofa úr ökumanns-
sæti. Aftan við hnakkpúðana er
veltivörn. Bíllinn verður með nýrri
fjögurra strokka, 1,8 lítra, 20
ventla túrbóvél sem einnig er í
A4, þó í breyttri mynd, og skilar
hún 190 hestöflum. Hugsanlegt
er að bíllinn verði boðinn með
Syncro fjórhjóladrifskerfí VW en
kúpling, hemlar og fjöðrun er sér-
smíðuð fyrir þennan bíl.
VR6 túrbó?
Hlaðbaksútfærslan verður með
sérstaklega gerðum stuðurum og
grilli, breiðari hjólum og fleiri sér-
kennum. Líklegast þykir að hann
verði búinn fjögurra strokka túrbó-
vélinni en Porsche gælir einnig við
þá hugmynd að búa hann út með
VW VR6 túrbó sem fyrst var kynnt
í Sharan RSl fjölnotabílnum í Par-
ís sl. haust. Audi gerir sér vonir
um að selja 10 þúsund hlaðbaka
og roadstera á ári. ■
TILBOÐ
ÓSKAST
í Isuzu Tropper4x4,4 dyra, 6 cyl., árgerð ’92 (ekinn
9 þús. mílur), Chevrolet Blazer S-10,4x4, árgerð '87,
Buick Somerset, árgerð '86, Dodge Dakota (tjónabifreið),
árgerð '94 (ekinn 9 þús. mílur) og aðrar bifreiðar, er verða
sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 31. janúar 1995
kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
...blabib
- kjarni málsins!
Sjábu hlutina í víbara samhengi!