Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
1971
V
Bikarmeistarar karla í körfuknattleik
frá 1970, er keppnin
var fyrst
haldin
1990
f1976
1975
Armann
1982
L
Fram
1978
■ CARLTON Myers gerði 87
stig í körfuboltaleik um helgina
og setti þar með ítalskt met en
Sandro Riminucci átti fyrra met-
ið — gerði 77 stig í leik árið 1964.
■ MYERS leikur með Rimini
sem vann Udine 147:99 í 2. deild-
inni. Han gerði m.a. 11 stig á
sömu mínútunni í seinni hálfleik,
hitti úr 14 af 22 tveggja stiga
skotum, úr níu af 19 þriggja stiga
skotum og úr 32 af 35 vítaskotum.
■ WILT Chamberlain á metið í
NBA-deildinni, 100 stig í einum
leik 1961, en Myers, sem er 23
ára, segir að takmarkið sé að kom-
ast í NBA-deildina.
■ NOUREDDINE Morceli frá
Alsír, var nálægt því að bæta eig-
ið heimsmet í 1.500 m hlaupi
innanhúss á fyrsta móti sínu í ár,
í Grenoble í Frakklandi um helg-
ina. Hann hljóp á 3 mín. 34,39
sek., sem er aðeins 0,13 sek. frá
metinii.
■ JÚRGEN Klinsmann, þýski
framheijinn hjá Tottenham í
Englandi, rotaðist um stund eftir
að Mark Bosnich, markvörður
Aston Villa, hljóp hann gróflega
niður í leik liðanna í síðustu viku.
Óttast var í fyrstu að bein hefðu
brotnaði í andliti Þjóðveijans, en
hann reyndist ómeiddur — ótrúlegt
en satt — lék með gegn Sunder-
land í bikarkeppninni um helgina
og skoraði tvívegis.
■ LOTHAR Matthaus, fyrirliði
Bayern Miinchen og þýska lands-
liðsins í knattspyrnu, sleit hásin í
síðustu viku eins og fram kom í
Morgunblaðinu. Óttast var að fer-
ill kappans væri jafnvel á enda,
en hann fór í aðgerð sem tókst
vel, og vona Þjóðveijar nú að
Matthaus geti leikið meðal þeirra
bestu á ný næsta vetur.
■ ÞÝSKI heims- og ólympíu-
meistarinn í langstökki kvenna,
Heike Drechsler, stóð sig einnig
mjög vel á mótinu í Grenoble;
stökk 6,95 m, sem er besti árang-
urinn til þessa á árinu.
■ HEIMSMEISTARAMÓTIÐ á
skíðum, sem átti að hefjast í Si-
erra Nevada á Spáni í gær, var
frestað til næsta árs og byijar 11.
febrúar. Undirbúningur keppninn-
ar hefur kostað mótshaldara um
350 millj. dollara (liðlega 24 millj-
arða) og þar af fóru 25 milljónir
dollara í að útbúa gervisnjó.
■ ZICO, fyrrum landsliðsmaður
Brasilíu sem er 41s árs, var með
þrennu þegar Brasilía vann
Bandaríkin 8:1 í úrslitaleik fyrsta
heimsmeistaramótsins í strand-
knattspyrnu. Keppnin fór fram á
Copacabanaströndinni í Río de
Janeiro að viðstöddum fjölda
áhorfenda. Frank Worthington
og samheijar í enska liðinu unnu
Ítalíu 7:6 eftir framlengdan leik
í keppni um bronsið.
AHRIF
Grindvíkingar voru „gulir og
glaðir“, eins og fylgismenn
hins sigursæla knattspyrnuliðs
Skagamanna, I Laugardalshöli-
inni á laugardaginn þegar karla-
lið þeirra sigraði lið Njarðvíkinga
í sínum fyrsta bikarúrslitaleik.
En það voru ekki allír glaðir í
Höllirmi á laugardag-
inn. Annað liðið tap-
aði og fylgismenn
þess voru vonsviknir
í leikslok. Það sem
allt of margir stuðn-
ingsmenn beggja liða
áttu þó sameiginlegt
var að vera undir
áhrifum. Því miður ekki áhrifum
góðrar skemmtunar af því að sjá
skemmtilega leiki, heldur undir
áhrifum áfengis.
Mörg undanfarin ár hafa
Knattspyrnu-, Handknattleiks-
og Körfuknattleikssambandið
haft úrslitaleiki bikarkeppninnar
á laugardegi, og er ekkert nema
gott eitt um það að segja. Það
stingur hins vegar mjög í stúf,
og er vægast sagt óviðeigandi,
að stuðningsmannafélög liðanna
sem keppa hveiju sinni, auglýsi
í blöðum og útvarpi að nú eigi
að hittast á hinni eða þessari
kránni til að undirbúa sig fyrir
viðkomandi leik. Á þessi mót
koma einnig börn sem horfa uppá
óhóflega drykkju manna sem síð-
an vita varla hvað þeir heita, því
enginn er talinn maður með
mönnum nema mæta á kránna
nokkrum klukkustundum áður en
sjálfur leikurinn hefst. Þá vill það
brenna við, jafnvel snemma
morguns, að einhveijir fá sér ein-
um of mikið. Afleiðingin getur í
besta falli orðið að viðkomandi
missi af leiknum, sem er hið besta
mál. Afleiðingamar gætu hins
staklega þegar haft er í huga að
öryggisgæsla á íþróttaviðburðum
hér á landi er lítii sem engin eins
og dæmin sanna.
Drukkið fólk í sigurvímu er
alla jafna ekki hættulegt um-
hverfí sínu, en drukkið fólk sem
hefur horft á lið sitt tapa getur
vegar orðið mun alvarlegri, sér-
Hvers vegna ekki að
njóta íþróttaviðburða
án áhrifa frá áfengi?
hins vegar verið stórhættulegt
leikmönnum, dómurum og öðrum
áhorfendum.
Vonandi verður aldrei alvarlegt
vandamál vegna þessa, en við
höfum svo oft brennt okkur á að
gera ekkert í málunum fyrr en
um seinan. Á að leika bikarúr-
slitaleiki á sunnudögum? Það yrði
til þess að drykkjan yrði minni
þó ekki nema væri að færri færu
á kránna snemma á sunnudags-
morgni.
Erlendis tfðkast að menn fái
sér áfengi á íþróttaviðburöum en
þrátt fyrir það hefur undirritaður
mjög sjaldan séð dauðadrukkið
fólk á stórleikjum, nema á fs-
landi. Vínmenning er lítil hér á
landi, en fer þó batnandi og vert
er að hafa í huga að hóflega
drukkið vín gleður mannsins
hjarta. Menn gera engum greiða
með þvf að flykkjast á krár mörg-
um klukkustundum áður en leikir
hefjast til þess eins að fara í
kappdrykkju við félaga sína. Slfk-
ir menn ættu að láta vera að
mæta á leikinn.
Skúli Unnar
Sveinsson
Loks fangaði bandaríski körfuboltamaðurinn FRANC BOOKER titli á íslandi?
Verða tveir
þettaáríð
FRANC Booker, körfuknattleiksmaðurinn bandaríski sem leik-
ur með Grindavík lék mjög vel með liði sínu í bikarúrslitaleikn-
um gegn Njarðvík á laugardaginn. Hann hefur leikið hér á
landi við góðan orðstýr síðan 1991, fyrst með ÍR síðan Val
og nú Grindavík. „Nú hef ég loks fagnað titli hér á íslandi. Ég
er viss um að þeir eiga eftir að verða tveir þetta árið,“ sagði
með því að komast í Bowling Green
háskólaliðið og lék með því í þijú
ár.“
- Hvað tók við eftir háskókinn?
„Ég var valinn til að æfa með
New Jersey- Nets eftir skólann og
stóð mig ágætlega, en liðið varð
að velja á milli mín og annars leik-
manns og ég varð látinn fara. Ég
fór þv! aftur í háskólann til að ljúka
náminu.“
- Hvers vegna komstu til íslands?
„Það æxlaðist þannig að ég tal-
aði við vin minn, sem er umboðs-
maður, og sagðist hafa áhuga á
að leika körfubolta í Evrópu. Fyrsta
landið sem kom upp var ísland.
Umboðsmaðurinn sagði að þ_að
væri gott fyrir mig að byija á ís-
landi áður en ég færi annað. Ég
ákvað að prófa og hér er ég enn.“
-Þú hefur nú verið hjá þremur
félögum. Hvernig hefur þér líkað
vistin?
„Ég byrjaði með IR í janúar
Booker sem er 31 s árs.
Booker er fæddur í Augusta í
Georgíu og segist hafa byijað
að æfa körfubolta mjög ungur.
„Ætli ég hafi ekki
Eftjr verið svona fimm
til sex ára þegar
Jónatansson éS byijaði að fara
í körfubolta með
bróður mínum, sem er einu ári
yngri en ég. Við lékum oftast mað-
ur á mann eða þá tveir á móti
tveimur öðrum strákum úr hverf-
inu,“ sagði Booker.
- Hvers vegna valdir þú körfu-
bolta?
„Þetta er góð spurning. Ég held
að aðal ástæðan hafi verið sú að
ég elska körfubolta. Þetta er íþrótt
sem býður upp á mikinn hraða og
mikla spennu. Eins hafði það sitt
að segja að vinur minn sagði við
mig einu sinni þegar ég var ungur
að ég yrði aldrei góður körfubolta-
maður. Ég var ákveðinn í að af-
sanna þá kenningu og gerði það
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
FRANC Booker hefur dvallð hér á landi síðan 1991. Hann
hafði aldrei náð að hampa bikar fyrr en með Grindvíkingum
um helgina. Ég trúi þvf að við getum einnig orðið meistarar f
vor, segir Booker sem hér heldur á blkarnum eftirsótta.
1991 og lék út tímabilið. Síðan fór
ég til Vals og átti þar þijú mjög
góð ár. Það var gott að vera hjá
Val og þar kynntist ég góðum fé-
lögum eins og Tómasi Holton,
Ragnari Þór, Svala og fleirum. Ég
fann að það var kominn tími fyrir
mig að breyta til. Ég hafði löngun
til að verða meistari og ég vissi
að Grindvíkingar voru með gott lið
og ættu góða möguleika. Eg trúi
því að við getum orðið meistarar,
en það verður erfitt og við verðum
að vinna vel saman, eins og í bikar-
leiknum á laugardaginn. Við sýnd-
um þá að við getum sigrað hvaða
lið sem er í deildinni."
- Verður þú aldrei þreyttur á
körfuboltanum?
„Nei, ég held að menn þreytist
ekki meðan þeir hafa gaman af því
að leika körfubolta og það hef ég
svo sannarlega. Ég átti þó í smá
vandræðum fyrst þegar ég kom til
Grindavíkur vegna þess að miklar
væntingar voru bundnar við mig
og eins átti ég sjálfur í persónuleg-
um vandamálum. En þetta lagaðist
fljótt og nú hef ég ánægju af lífínu
og körfuboltanum.“
- Átt þú íslenska unnustu?
„Nei, en ég á son. Hann heitir
Aron og er sex mánaða. Hann er
dásamlegur. Hann verður frábær
íþróttamaður því get ég lofað þér.“
- Hefur þú áhuga á að leika hér
áfram næsta keppnistímabU?
„Já, ég kann vel við mig hér á
landi. Hér er gott fólk. Ef Grindvík-
ingar vilja hafa mig áfram, þá er
ég tilbúinn. Ég hef áhuga á vera
nálægt syni mínum — vera honum
góður faðir, það er mér mikilvægt.“