Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ + KORFUKNATTLEIKUR Gull til Grindaví GRINDVÍKINGAR eru bikarmeistarar í körfuknattleik karla. Þeir sigruðu Njarðvíkinga, 105:93, í úrslitaleik á laugardaginn og sýndu að lið þarf ekki að hafa leikið marga úrslitaleiki áður en kemur að sigri. Þetta var ífyrsta sinn sem Grindvíkingar iéku í Laugardalshöll, en leikmenn liðsins létu það ekki trufla sig, heldur léku eins og þeir sem reynsluna höfðu og unnu sanngjarnan sigur. Það var mikill hraði í leik lið- anna fyrstu mínúturnar og greinilegt strax frá fyrstu sekúndu að Grindvíkingar höfðu unnið heimavinnuna sína vel. Liðið hafði tap- aði tvívegis í deild- inni fyrir Njarðvík, eftir að hafa leitt lengstum, og nú átti ekki að láta leikinn endurtaka sig. Grindvík- Skúli Unnar Sveinsson skrifar FOLX ■ FRIÐRIK Ingi Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga á stuttan en glæsilegan feril að baki sem þjálfari meistaraflokks. Hann er nú að þjálfa fjórða árið sitt og hefur tvívegis orðið bikarmeistari og einu sinni íslandsmeistari. ■ HANN varð íslandsmeistari með UMFN árið 1991, bikarmeistari með sama lið ári seinna, en vann ekkert með KR-ingum keppn- istímabilið 1992/93 og í fyrra hvfldi hann sig, en er með Grindvíkinga núna og þeir eru orðnir bikarmeist- arar. ■ ÍSAK Leifsson sjúkraþjálfari Grindvíkinga er enn taplaus í Laugardalshöll. Hann varð bikar- meistari með Keflvíkingum síðustu tvö keppnistímbil og svo nú með UMFG, en hann er frá Njarðvík. ■ ÆGIR Ágústsson formaður körfuknattleiksdeildar UMFG átti afmæli á laugardaginn, varð 41 árs og var að vonum ánægður með af- mælisgjöfina sem hann fékk frá liði sínu. ■ ÞEGAR áhorfendur komu í Laugardalshöllina til að fylgjast með kvennaleiknum vakti það óneit- anlega athygli að hliðardyr voru opnar og mikill kuldi í salnum. Við þessar aðstæður urðu stúlkumar að hita upp, en tæknimenn Stöðvar 2 vom að koma tækjum sínum og tólum fyrir í húsinu. ■ ÁHORFENDUM á kvennaleikn- um var meinað að sitja á bekkjunum niðri í sal, þeir vom sagðir frátekn- ir fyrir áhorfendur frá Grindavík og Njarðvík sem ætluðu að fylgjast með karlaleiknum. ■ KYNNINGIN á karlaliðunum varð ekki eins glæsileg og til stóð. Slökkva átti ljósin og nota ljóskast- ara við kynninguna, en einhverra hluta vegna vom öll ljósin ekki slökkt þannig að kastaramir nutu sín alls ekki. Tvær reyksprengjur voru sprengdar áður en liðin vom kynnt. Þetta hefði getað orðið flott hefðu ljósin verið slökkt. ■ KLUKKAN í Laugardalshöll er alls ekki gerð fyrir körfuknattleik því ekki er hægt að fylgjast með villum einstakra leikmanna og svo er erfitt að sjá hvernig staðan er hveiju sinni. Þetta var miklu betra á meðan klukkan hékk í lofti Hallar- innar, en nú er hún á endaveggnum. ■ FJÓRIR fimleikastrákar úr Gerplu sýndu listir sínar í leikhléi, hoppuðu á trampólíni með bolta, •'fóm snúninga í loftinu og tróðu síð- an með stæl í körfuna. Skemmtileg sýning. ■ GRINDVÍKINGAR gerðu 11 þriggja stiga körfur í leiknum, Boo- ker og Guðjón fjórar hvor, Marel tvær og Nökkvi Már eina. ■ NJARÐVÍKINGAR gerðu fimm slíkar, Valur og Teitur tvær hvor og Astþór eina. ingar unnu uppkastið og náðu tíu stiga forystu, 12:2, eftir tvær mín- útur, og síðan 18:10 eftir rúmar fjórar mínútur. Heldur róaðist leikurinn er á leið en mikið var um hraðaupp- hlaup og tilraunir til að gera þriggja stiga körfur. Guðmundur Bragason fékk tvær villur á fyrstu fimm mínútunum og fékk því að hvíla sig um tíma. Friðrik þjálfari setti hann samt inná aftur skömmu fyrir hlé og þá fékk hann sína þriðju villu. Nökkvi Már Jóns- son var einnig kominn með 3 vill- ur í fyrri hálfleik og Teitur Örlygs- son hinum megin. Það hvorki gekk né rak hjá Njarðvíkingum framan af leiknum en undir lok fyrri hálfleiks skiptu þeir yfir í svæðisvöm með þeim árangri að þeim tókst að minnka muninn í fimm stig, 46:41. Grind- víkingar mættu til leiks í síðari hálfleik með svæðisvörn en Njarð- víkingar kipptu sér ekkert upp við það í fyrstu og komust yfir, í fyrsta Urslitaleikurinn í bikarkeppni karla í körfuknattleik 1995 G rindavík Njarövík 105 STIG 93 26/35 Víti 14/20 11/28 3ja stiga 5/14 36 Fráköst 33 22 (varnar) 22 14 (sóknar) 11 12 Bolta náð 10 16 Bolta tapað 10 21 Stoðsendingar 21 21 Villur 28 og eina skiptið, er fjórar mínútur voru liðnar, 55:56. Guðjón Skúlason hafði farið mikinn í liði Grindvíkinga, gerði þijár þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik og alls 17 stig. Teitur gætti hans vel í síaðri hálfleik en þegar staðan var jöfn og Njarðvík- ingar virtust líklegir til að ná und- irtökunum tók Franc Booker til sinna ráða. Hann gerði 19 stig á stuttum kafla og átti auk þess nokkrar stoðsendingar á félaga sína og þar með var draumur Njarðvíkinga úti. Á þessum kafla sýndi Helgi Jónas Guðfinnsson einnig mikinn styrk á vítalínunni og aðrir leikmenn stóðu fyrir sínu. Grindvíkingar léku allir ágæt- lega. Guðjón var frábær í fyrri hálfleik og Booker í þeim síðari. Marel var ógnandi í fyrri hálfleikn- um og þeir Guðmundur og Nökkvi Már sterkir undir körfunni. Helgi Jónas var öruggur í vítaskotunum og skoraði úr 9 af 10 skotum það- an og Pétur Guðmundsson var grimmur í fráköstunum. Þetta var ekki dagur Njarðvík- inga, sem náðu sér einhvern vegin alls ekki á strik. Ótrúlega mikill doði var í leik þeirra og virtust þeir í vandræðum með að fínna sitt sterkasta fimm manna lið. Rondey skilaði þó sínu eins og venjulega. Teitur var sterkur í vöminni og var með ágæta nýt- ingu í sókninni. Valur var grimm- astur Njarðvíkinga í fráköstum en aðrir leikmenn geta allir betur. Biðin loks á enda Nú er tólf ára bið á enda, loksins!," sagði Guðmund- ur Bragason fyrirliði Grindvíkinga sæll og ánægður eftir sigurinn gegn Njarðvíkingum, en Guð- mundur hefur leikið í meistaraflokki í tólf ár og þetta er fyrsti sigur hans í stórmóti og það var ekki laust við að þungu fargi væri létt af fyrirliðanum. „Við byijuðum af miklum krafti og ég var í raun hissa hversu rólegir Njarðvíkingarnir voru í upphafi leiksins. Við höfum tapað tvisvar fyrir þeim í deild- inni og vissum að það var vegna þess að við höfum leikið illa á lokamínútum þeirra leikja og því vissum við að það var undir okkur sjálfum komið hvort við næðum bikamum. Við vomm ákveðnir í að láta þetta ekki endurtaka sig og það tókst. Það var frábær stemmning í hópnum fyrir leikinn en menn voru samt ekki yfirspenntir. Við höfðum trú á að við gætum þetta og undirbúningurinn var góður hjá okkur. Þegar á leið leikinn urðum við enn staðráðn- ari í að leyfa þeim ekki að komast inn í leikinn og ég held að úrslitakeppnin í fyrra hafi haft áhrif því þar fengum við mikla reynslu. Áhorfendur voru frá- bærir og stóðu við bakið á okkur alveg frá byijun og það gefur mann auka kraft,“ sagði Guðmundur alsæll. Vorum hungraðri en þeir „Við ætluðum okkur sigur hér og vomm ákveðnir í að láta leikinn frá því í leikjum liðanna í vetur ekki endurtaka sig. Eg held að við höfum einfaldlega ver- ið hungraðri en Njarðvíkingar," sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga eftir sigurinn. En var svæðisvörnin í síðari hálfleik vendipunkturinn? „Ég veit.það nú ekki, en hún kom þeim að ein- hveiju leyti á óvart því þeir hafa sjálfsagt undirbúið sig undir að eiga við sömu vörn og í fyrri hálfleik. Við byijuðum af krafti og héldum síðan haus allan tímann. Strákarnir voru samstilltir og samvinnan var frábær." Varstu ekkert ragur við að setja Guðmund inná skömmu fyrir hlé með tvær villur? „Ég var aldrei hræddur um að við töpuðum þessum leik. Við vomm búnir að undirbúa okkur mjög vel í vikunni og ég var viss um að strákamir kæmu rétt stemmdir til leiks, ekki of spenntir, en samt fullir áhuga og hungurs eftir titli. Varðandi Guðmund þá er það auðvitað alltaf spurning hvað maður á að gera, þannig em íþróttir. Maður er aldrei alveg örugg- ur en þetta gekk eftir.“ Grindavík er með frábært liö Booker vann leikinn fyrir þá „Þetta var efíður leikur og ég er að drepast í ökk- lanum,“ sagði Franc Booker eftir sigurinn, en hann átti stórleik í síðari hálfleik þegar mest reið á. Hann hefur verið meiddur í ökkla en lét það ekki á sig fá í hita leiksins. „Maður gleymir þessu í hita leiksins, en fær svo þeim mun meiri verk eftir að leiknum er lokið. Grindavíkurliðið er frábært og það em svo sterkir I ÁHORFENDUR voru vel með á nótunun Þetta var fyrsti úrslitaleikur UMFG og lf< Allterl Keflavíkurstúlkur bikarmei KEFLAVÍKURSTÚLKUR urðu á laugar- daginn bikarmeistarar í körfuknattleik kvenna er þær unnu KR 61:42 í úrslita- leik í Laugardalshöll. Þetta var jafnframt 100. íslands- eða bikarmeistaratitill Kefl- víkinga í körf uknattleik og það fór vel á að meistaraflokkur kvenna krækti íþann merka titil því stúlkurnar hafa verið með sterkasta kvennalið hér á landi undanfar- in ár og sýndu á laugardaginn að það er eitthvað í að breyting verði þar á. Morgunblaðið/Bjarni Guðjón í miklum ham GUÐJÓN Skúlason var í miklum ham í leiknum og skoraðl ótrúlegar körfur. Hér er hann að skora eina af þremur fjórum þriggja stiga körfum sínum en Njarðvíkingurlnn Jóhannes Krist- björnsson fær ekkert að gert. Skúli Unnar Sveinsson skrifar einstaklingar í því að þegar einn þarf að hvíla sig tekur sá næsti við. Ég held að það hafí haft mikið að segja með úrslit þessa leiks að við þráðum að sigra,“ sagði Booker. „Þetta var hreinlega ekki okkar dagur,“ sagði Valur Ingimundarsson, þjálfari og leikmaður Njarð- víkinga, eftir tapið. „Ég átti satt besta að segja ekki von á okkur svona slökum. í byijun leiks vom menn að gera allt annað en lagt var upp fyrir leikinn og það var bara eins og við hefðum farið yfirum. Eftir þessa döpra byijun komumst við ekki inn í leikinn fyrr en í síðari hálfleik og þá kom Booker. Hann vann þennan leik algjörlega fyrir þá,“ sagði Valur. Keflavíkurstúlkur gerðu út um leikinn strax í upphafi og leikurinn varð því aldrei spennandi eins og menn voru að vonast til. Sóknir KR vom vandræðalegar en boltinn gekk vel manna á milli hjá Keflvíkingum. Það hafði einnig sitt að segja að Guðbjörg Norðfjörð, ein lykil- stúlkna KR, fékk þijár villur á fyrstu fjórum mínútum leiksins og það munar um minna. Svæðisvöm Keflvíkinga var einnig góð og virtust Vesturbæingar eiga í miklum erfiðleik- um gegn henni. Raunar var það-svo um tíma að sóknarleikur KR lá eins og opin bók fyrir vöm Keflvíkinga og í þokkabót hittu KR-stúlk- ur illa þó þær kæmust í góð færi. Pressuvöm KR var alls ekki sannfærandi og það var eins og lið KR hefði ekki trú á að það gæti sigrað Keflvíkinga þó svo það hafi gert það fyrr í vetur í Kefiavík meira að segja. Eftir góða byijun Keflvíkinga var ljóst hvert stefndi en KR klóraði aðeins í bakkann um tíma en Keflavíkurliðið, þrátt fyrir ungan aldur, er einfaldlega allt of gott til að láta góða forystu af hendi. Þetta var ekki dagur KR. Helga Þorvalds- dóttir var best og hún ásamt Maríu Guðmunds- dóttur, sem tók mörg fráköst, voru þær einu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.