Morgunblaðið - 31.01.1995, Qupperneq 8
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
mm
Meistamir í
erfidleikum
Klinsmann meðtvö mörklyrirSpurs
Manehester United átti lengi
vel í erfíðleikum með Wrex-
ham í 4. umferð ensku bikarkeppn-
innar en svo fór að Englandsmeist-
aramir unnu 5:2.
Heimamenn voru óöruggir til
að byija með og eftir átta mínútur
voru þeir marki undir. Kieron
Durkan skoraði en níu mínútum
síðar jafnaði Denis Irwin og þá
fyrst náði United áttum. Giggs
kom heimamönnum yfír um miðj-
an fyrri hálfleik og þar með var
ljóst hvert stefndi. Brian McClair
gerði þriðja markið um miðjan
seinni hálfleik, Irwin skoraði úr
vítaspyrnu á 73. mínútu og skot
frá Giggs fór í varnarmann og
þaðan í netið níu mínútum fyrir
leikslok. Varamaðurinn Jonathon
Cross átti síðan síðasta orðið og
minnkaði muninn fyrir Wrex-
hamm rétt áður en flautað var til
leiksloka.
Alex Ferguson, yfírþjálfari Un-
ited, neitaði að ræða um Cantona
en var ánægður með leikinn. „Ég
var ánægður með frammistöðu
leikmannanna. Menn lögðu mikið
á sig til að komast inn í leikinn
og halda áfram á réttri braut eftir
að ísinn var brotinn."
Paul Kitson gerði öll mörk New-
castle í 3:0 sigri gegn Swansea,
þar af tvö með skalla.
Portsmouth missti tvo menn út
af með rautt spjald gegn Leicester
og þar með fór draumurinn um
að komast áfram en Iwan Roberts
gerði eina mark leiksins rétt fyrir
hálfleik.
Manchester City vann Aston
Villa 1:0 og gerði Paul Walsh
markið á sjöundu mínútu en það
var fyrst og fremst Tony Coton
sem tryggði sigurinn með frábærri
markvörslu.
Liverpool lék illa á útivelli gegn
Bumley og gerði markalaust jafn-
tefli en fær annað tækifæri á
heimavelli.
Jiirgen Klinsmann gerði tvö
mörk í 4:1 sigri Tottenham gegn
Sunderland. Hann kom liði sínu á
bragðið með marki úr vítaspymu
snemma í seinni hálfleik eftir að
Gary Bennett hafði varið með
hendi. Bennett var vikið af velli í
kjölfarið og eftirleikur Spurs var
auðveldur. Teddy Sheringham
bætti öðm marki við sex mínútum
síðar og ekki leið á löngu þar til
Gary Mabbutt hafði skorað. Phil
Gray minnkaði muninn stundar-
fjórðungi fyrir leikslok en Klins-
mann innsiglaði öruggan sigur.
Reuter
DENIS Irvwin fagnar fyrra markl sínu gegn Wrexham.
Vialli
tryggði
Juve
sigur
Juventus vann Brescia 2:1 um
helgina og er með þriggja stiga
forystu í ítölsku deildinni. Gianluca
Vialli tryggði sigurinn með marki
úr vítaspymu á síðustu mínútu.
Eugenio Corini skoraði úr víta-
spymu fyrir botnliðið á 10. mínútu
en Alessandro Del Piero jafnaði
með marki úr aukaspyrnu.
Parma gerði 1:1 jafntefli við
Cremonese. Gianfranco Zola skor-
aði fyrir Parma úr vítaspyrnu á 49.
mínútu og var það gegn gangi leiks-
ins, en Enrique Chiesa jafnaði úr
aukaspyrnu 20 mínútum fyrir leiks-
lok.
Abel Balbo frá Argentínu skoraði
fyrir Roma á fyrstu mínútu og það
nægði til sigurs gegn Foggia. Roma
er með jafn mörg stig og Lazio í
þriðja sæti en Lazio tapaði 2:1
heima fyrir Bari. Sanðro Tovalieri
gerði bæði mörk gestanna og er
kominn með 13 mörk á tímabilinu.
Fiorentina átti tækifæri að kom-
ast í hóp efstu liða en tapaði 2:0
fyrir Cagliari. Roberto Muzzi gerði
fyrra markið eftir hálftíma leik,
ýtti boltanum í autt markið eftir
að Vittorio Pusceddu hafði skotið í
stöng úr aukaspymu af 25 metra
færi. Jose Herrera frá Umguay
innsiglaði sigurinn úr umdeildri
vítaspyrnu á síðustu mínútu.
Sampdoria fór í fímmta sæti með
4:1 sigri gegn Padova. Englending-
urinn David' Platt gaf tóninn en
mörk frá Alberigo Evani, Roberto
Mancini og Vladimir Jugovic fylgdu
í kjölfarið. Gianluca Zattarin
minnkaði muninn undir lokin.
■ IAN Wríght, miðheiji Arsenal,
var í gær dæmdur í fjögurra leikja
bann og var gert að greiða 1.000
pund í sekt fyrir að vera kominn
með 41 refsistig á tímabilinu. Wright
missir af úrvalsdeildarleikjum gegn
Sheffield Wednesday, Leicester,
Manchester United og Crystal
Palace.
■ DICK Advocaat, fyrrum lands-
liðsþjálfari HoIIands, stjómaði PSV
í fyrsta sinn í hollensku deildinni
um helgina og fagnaði 5:0 sigri gegn
Roda JC Kerkrade sem er í öðru
sæti.
■ RONALDO frá Brasilíu gerði tvö
mörk fyrir PSV og er markahæstur
í deildinni með 13 mörk.
■ JEAN Tigana, fyrram landsliðs-
maður Frakklands, hefur gert það
gott sem þjálfari og hefur komið
mest á óvart með Lyon í deildinni.
Lyon vann Auxerre 3:0 um helgina
og er sjö stigum á eftir Nantes 1
efsta sæti.
■ GONZALEZ, fyrirliði Deportivo,
fékk að sjá rauða spjaldið fyrir að
láta dómarann heyra það í leik gegn
Albacete í spænsku deildinni um
helgina en félagar hans náðu að vinna
2:1. Staðan var 2:0 þegar fyrirliðinn
fór af velli snemma í seinni hálfleik.
■ REAL Madríd gerði markalaust
jafntefli við Betis sem hefur ekki
fengið á sig mark í sex leikjum í röð.
TENNIS
r w Reutcr
Fernan i augsyn
ANDRE Agassi frá Bandaríkjunum tók í fyrsta sinn þátt í Opna
ástralska mótlnu í tennis og slgraði. Hann var elnnlg melstari á
Opna bandaríska mótlnu fyrir áramót og hefur fagnað slgri á
Wimbledonmótinu en á eftir að ná fyrsta sæti á Opna franska tll
að ná fernunni eftlrsóttu sem aðelnS einum manni hefur tekist.
Önnur slemma
Agassis í röð
Andre Agassi frá Bandaríkjun-
um varð meistari í einliðaleik
karla á Opna ástralska mótinu í
tennis sem lauk um helgina. Hann
sigraði Pete Sampras, landa sinn
og meistara síðustu tveggja ára,
í flóram settum en leikur kapp-
anna stóð í rúmar tvær og hálfa
klukkustund. Þetta var í fyrsta
sinn sem Agassi tekur þátt í þessu
móti og jafnframt er þetta annar
sigur Agassis í röð á einu af hinum
stóru mótum, slemmumótum.
Agassi hefur tvívegis áður sigr-
að á slemmumóti. Hann hefur leik-
ið mjög vel að undanförnu og er
í öðra sæti heimslistans, á eftir
Sampras. Þessi 24 ára gamli
tennisleikari frá Las Vegas tapaði
fyrsta settinu 4-6 en sigraði siðan
6-1, 7-6 og 6-4.
Agassi, sem hlaut tæplega 25
milljónir fyrir sigurinn, hefur sigr-
að á slemmumótunum á mismun-
andi völlum og hann á nú aðeins
eftir að sigra á Opná franska, eins
og reyndar Sampras. Eini maður-
inn sem hefur sigrað á öllum fjór-
um er Ástralinn Rod Laver.
Agassi hafði áhyggjur af Samp-
ras vegna veikinda þjálfara hans.
„Við höfum séð marga góða
tennisleikara um ævina en það
sem ég hef séð Pete gera hér
undanfamar vikur er einstakt og
sýnir hvers vegna hann er best-
ur,“ sagði Agassi eftir sigurinn.
Sampras lék vel og það var
ekki fyrr en í síðasta settinu að
það fór að sjást á leik hans að
hann hafði leikið 14 sett í síðustu
þremur leikjum á meðan Agassi
hafði leikið níu, en hann tapaði
ekki setti fyrr en í úrslitaleiknum.
„Ég vil óska Andre til hamingju
með hvemig hann hefur leikið und-
anfamar vikur. Hann var einfald-
lega betri en allir hinir,“ sagði
Sampras sem fékk 28 ása gegn tíu
ásum Agassi en Sampras gerði 50
mistök í leiknum sjálfum en Ag-
assi aðeins 26, og það gerði gæfu-
muninn.
„Erfiðir leikir hjá mér sögðu til
sín en það er engin afsökun. Andre
var einfaldlega miklu betri en ég
og ef hann heldur svona áfram
þá er hann líklegur til að sigra á
öllum mótum ársins,“ sagði Samp-
ras.
ENGLAND: 2X1 X11 1X1 X211 ITALIA: 2X1 X11 1X1 X211