Morgunblaðið - 01.02.1995, Page 1
Regnboginn
FLESTIR krakkar vita svarið við
gátunni, sem er svo skemmtilega
sett frám í þessari vísu:
Hver er sá veggur,
víður og hár,
veglega settur röndum,
gulur, rauður, grænn og blár
gerður af meistara höndum?
Hér er að sjálfsögðu vísað til lita
regnbogans. Vísan á vel við þessa
teikningu af regnboganum. Á mynd-
inni sjást líka þrumur og blossar af
eldingu. Eftirfarandi bréf fylgdi með
teikningunni:
Kæra Barnablað Moggans;
ég heiti Berglind Ásta Olafsdóttir,
er 10 ára og á heima að Heiðar-
gerði 45. Ég málaði þessa mynd og
ætla að verða myndlistarkona þegar
ég verð stór.
MUNIÐ ALDURINIM!
|AKKA
' ar og
ykkur fyrir, krakkar, hvað þið eruð dugleg að senda inn skemmtilegar teikning-
sögur. En sum ykkar gleyma að senda upplýsingar. Allir krakkar, sem senda
inn til Barnablaðsins, verða að láta fylgja með: Nafn og heimilisfang og gleymið ekki að
segja hvað þið eruð gömul, krakkar.
GOÐIR VINIR
HÆ, hæ, Myndasögur Mogg-
ans.
Ég heiti Brynja Eyþórsdóttir
og bý í Grindavík. Ég er fimm
ára. Besti vinur minn heitir Óskar
Geir. Hann er líka fimm ára. Við
höfum þekkst frá fæðingu, því
að mömmur okkar eru vinkonur.
Þær kynntust þegar þær voru
fjögurra ára og hafa verið vinkon-
ur síðan. Við Óskar erum saman
á leikjanámskeiði. Svo förum við
oft í skjaldbökuleik. Mamma segir
að við séum eilífðar skjaldböku-
aðdáendur! Við eigum bæði kettl-
inga sem heita Loppa og Doppa.
Svo eigum við líka litla bræður.
Bróðir minn er sex mánaða, en
bróðir Óskars er tíu mánaða. Þeir
eru líka vinir. Ég sendi ykkur
mynd af okkur öllum.
Bryi\ja, Oskar, Sigurbjörn og
Eyþór,
Selsvöllum 15, 240 Grindavík.
§
<
(/>
3
O
:0
(/>
(3
O
EINU sinni var prins, sem þótti svo gaman að ganga um í skóginui
rétt hjá höllinni þar sem hann bjó. Dýrin í skóginum voru góðir vinir
hans. Prinsinn átti þann draum að verða einn af þeim, því að honum leiddist
svo að vera prins.
Einn daginn, þegar hann var á rölti, settist hann hjá tjöm í skóginum. Hann
hugsaði með sér, hve gaman væri að vera froskur. Allt í einu stóð álfadrottning fyr-
ir framan hann. Prinsinn spurði, hvort hún gæti látið óskir sínar rætast. Þá rétti álfa-
drottningin honum grænan froskaís og sagði: „Ef þú borðar þenn-
an ís, rætist ósk þín.“ Þetta gerði prinsinn og nú er hann
hamingjusamur froskur með kórónu.
Vigdís Marianne Glad, 7 ára, Malarási 3, 110
Reykjavík, skrifar þessa ágætu sögu.
Kæra Brynja.
Þakka þér fyrir ágætt bréf. Við
biðjumst velvirðingar á, hve lengi
hefur dregist að birta það. Bræður
ykkar Óskars eru trúlega báðir
orðnir eins árs. Gaman væri að
heyra meira um skjaldbökuleikinn.
Kær kveðja frá Barnablaðinu.
KÁTUR
FROSKUR
OFT er gaman að sjá
froska að leik,
þegar þeir hoppa á
milli steina í tjörnum
og lækjum. Margir
krakkar leika sér að
því að veiða þá í krukk-
ur, skoða þá, en sleppa
þeim síðan aftur. Þessa
ágætu mynd af hopp-
andi kátum froski
sendir Sigurður Kjart-
an Kristinsson, Frosta-
skjóli 115,107 Reykja-
vík.
Prinsinn sem
breyttist í f rosk