Morgunblaðið - 09.02.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.02.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR BLAÐ KNATTSPYRNA „Guðni fyrsti valkostur" Sven Dahlkvist, þjálfari sænska félagsins Örebro, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði meiri áhuga á að fá Guðna Bergsson til félagsins en Hlyn Birgisson. „Við ákváðum að gefa Guðna frest á að gefa okkur svar þar til næsta mánudag og vonandi gefur Tottenham honum grænt ljós. Ég var engu að síð- ur mjög ánægður með Hlyn [sem æfði með félag- inu í síðustu viku] og ef Guðni gefur þetta frá sér gerum við tveggja ára samning við Hlyn Birgis- son,“ sagði Dahlkvist. Þjálfarinn sagði að það kæmu þijár stöður til greina í liðinu fyrir Hlyn ef hann komi; að hann leiki sem bakvörður, mið- vörður eða jafnvel hægra megin á miðjunni. ■ ÓLAFUR Stefánsson kom inná í fyrsta sinn hjá Val í vetur, í leikn- um gegn Aftureldingu í 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi, en hann meiddist skömmu áður en mótið hófst í haust. Hann kom inná þegar 12,45 mín. voru liðnar af leiknum og þá í stöðu leikstjórnanda. Ólafur reyndi skot 20 sekúndum síðar, í sinni fyrstu sókn — og skoraði með glæsilegu skoti. ■ ALFREÐ Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, tók sér hvíld í gær- kvöldi eftir glæsta frammistöðu í bikarúrslitaleiknum gegn Val um helgina— var ekki í leikmannahópn- um gegn ÍH. ■ ERLINGUR Krisljánsson, fyr- irliði KA, og Sigmar Þröstur Ósk- arsson, markvörður, sátu á vara- mannabekknum allan tímann í gær- kvöldi. ■ PATREKUR Jóhannesson fékk rautt spjald eftir 22 mínútur og lék því ekki meira með — skaut í höfuð Alexanders Revine, markvarðar, úr vítakasti. Þess má geta að Pat- rekur hafði þá gert 7 af 11 mörkum KA. ■ STEFÁN Carlsson læknir Valsliðsins var allt annað en hress með framkomu Gunnars Andrés- sonar leikmanns UMFA í upphafi síðari hálfleiks í gær. Dæmdur var ruðningur á Gunnar en hann lá eft- ir í teignum. Stefáni fannst aðstoð- armenn af bekk gestanna eitthvað seinir til hjálpar og hljóp inná til að athuga hvort eitthvað alvarlegt hefði gerst en Gunnar tók þá á móti hon- um með skömmum. ■ ALVÖRUMENN, stuðnings- manaklúbbur Vals gefur út leikskrá fyrir hvern leik. Davíð B. Sigurðs- son liðsstjóri UMFA var ekki ánægður með skrána í gær því þar var hann sagður heita Daníel. „Mað- ur ætti að vera búinn að vera lengur í þessu,“ sagði Davíð, sem hefur verið viðloðandi handboltahreyfing- una svo áratugum skiptir! ■ HILMAR Þórlindsson lék með KR liðinu að nýju í gærkvöldi gegn ÍR , en hann hefur verið úr leik frá því í lok nóvember vegna meiðsla í ökla. Hilmar kom inn á þegar tals- vert var liðið á fyrri hálfleik og lék leikinn til enda og skoraði þijú mörk. ■ PÁLL Beck leikmaður KR varð að hætta að leika undir lok fyrri hálfleiks í gærkvöldi vegna veikinda. ■ HELGI Sigvrðsson er í æfínga- búðum með Stuttgart í Portúgal. Hann kom inná sem varamaður á 72. mín. þegar Stuttgart lék þar gegn Bayem MUnchen og mátti þola tap, 0:1. \ HANDKNATTLEIKUR KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Línudans... LÍNUMENNIRNIR Gelr Svelnsson úr Val og Róbert Slghvatsson úr Aftureldingu áttust oft vló er lið þelrra mættust að Hlíðarenda í gærkvöldl í 1. delldinnl í handknattlelk. Hér nær Gelr landsllðs- fyrlrllðl að stöðva Róbert en þegar upp var staðið sklldu llð þeirra Jöfn, 23:23. ■ Leikirnir í gærkvöldi / D2 AC Milan meistari meistar- anna í þriðja sinn ZVONIMIR Boban og Daniele Massaro tryggðu AC Milan 2:0 sigur gegn Arsenal á San Siro leikvanginum í Mílanó í gær- kvöldi. Þetta var seinni leikur liðanna í meistarakeppni Evrópu en fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli og er AC Milan því meistari meistaranna í þriðja sinn. Forráðamenn ítalska liðsins óttuðust óspektir hjá áhorfend- um en færri mættu en gert var ráð fyrir og var almenn ánægja með framkomu þeirra. „Við lék- um mjög vel en ég er ánægður með áhorfendurna sem höguðu sér sérstaklega vel og vonandi verða þeir eins í hverri viku,“ sagði Fabio Capello, þjálfari AC Milan. AC Milan sigraði í keppninni 1989 og 1990 og er fyrsta liðið til að verða meistari meistaranna þrisvar sinnum. Boban fékk tvö góð tækifæri til að skora áður en hann kom liði sínu á bragðið skömmu fyrir hlé eftir sendingu frá Massaro og Massaro gerði út um leikinn um miðjan seinni hálfleik. Heimamenn léku vel og virðast vera að ná sér á strik á ný en gestirnir hafa átt í erfiðleikum að undanförnu og náðu ekki að rétta úr kútnum. KNATTSPYRNA Guðmundur í Stjömuna Guðmundur Steinsson, fram- heijinn gamalreyndi, hefur ákveðið að ganga til liðs við 2. deildarlið Stjörnunnar í Garðabæ fyrir næsta keppnistímabil knatt- spymumanna. Guðmundur gekk frá eins árs samningi við liðið í gær. Guðmundur var með Fram sl. sumar, þar sem hann tók þátt í tólf leikjum í 1. deildinni — þar af var hann sjö sinnum í byijunar- liði. Guðmundur hefur alls spilað 227 leiki í 1. deild og gert 101 mark í þeim. Þess má geta að hann skoraði ekki í deildinni í sumar, sem er óvenjulegt þegar þessi marksækni leikmaður á í hlut. Bjarni Sigurðsson, fyrrum landsliðsmarkvörður, hefur einnig gengið til liðs við Stjömuna. Bjarni, sem lék með Brann í Nor- egi í fyrra, hefur samið við félag- ið til tveggja ára. NBA-DEILDIN: „MAGIC“ OG JABBAR EKKIÁNÆGÐIR MED STJÖRNURNAR / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.