Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 5

Morgunblaðið - 18.02.1995, Síða 5
4 C LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ IAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 C 5 Karólína Eiríksdóttir tónskáld Morgunblaðið/Kristinn Er innblásin af öllu lífinu í kringum mig KARÓLÍNA Eiríksdóttir tón- skáld hefur nýlokið við að semja klarinettukonsert fyrir Sinfó- niuhljómsveitina í Álaborg í Dan- mörku og verður verkið frumflutt í 27. apríl. Karólína hefur samið hátt í 40 verk frá því hún kom frá námi í University of Michigan í Ann Arbor í Michigan 1979 og er hún nú að semja einleiksverk fyrir selló. Nýlega var flutt eftir hana verkið Spil á Myrkum músíkdögum. Karólína lauk námi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík í píanókenn- aradeild 1974 og hélt að námi loknu til Bandaríkjanna. í University of Michigan tók hún tvær masters- gráður, þá fyrri í tónvísindum og tónlistarsögu og þá seinni í tón- smíðum. „Eg var líka í píanónámi allan tímann og lagði aukalega stund á teóríu,“ sagði Karólína. Einn af aðalkennurum Karólínu í Michigan var William Albright sem er þekkt tónskáid vestan hafs. Liður í náminu í tónsmíðum var að semja tónlist og þar urðu fyrstu tónverk Karólínu til. Þar samdi hún hljómsveitarverk, kammerverk og fleiri gerðir tónlistar. Brot Að loknu fimm ára námi í Banda- ríkjunum sneri Karólína aftur til íslands og hóf kennslu og þátttöku í félagsmálum tónskálda. Hún sat m.a. í stjómum Tónskáldafélagsins og Tónverkamiðstöðvarinnar. „Ég dró mig út úr öllu félagsmálastarfi fyrír þremur árum og helga mig nú tónsmíðum." Fyrsta verkið sem Karólína samdi að námi loknu var verk sem Kammersveit Reykjavíkur pantaði 1980 fyrir Myrka músíkdaga. Verk- ið nefnist Brot og er fyrir tíu hljóð- færaleikara. Eins og fyrr segir hef- ur hún samið nálægt 40 verk á sín- um tónsmíðaferli, þar af sex hljóm- sveitarverk, óperu og mörg ein- leiks- og kammerverk. „Mér fínnst erfitt að tala um innblástur viðvíkjandi tónsmíðum mínum. Ég er bara innblásin af öllu lífínu í kringum mig. Ég sæki ekki innblástur í einstaka atburði sem verða. Hugmyndirnar að verk- inu eru eingöngu tónlistarlegar hugmyndir," sagði Karólína. I aprílmánuði verður frumfluttur klarinettukonsert eftir Karólínu í Álaborg í Danmörku. „Sinfóníu- hljómsveitin í Álaborg pantaði þennan konsert og Einar Jóhannes- son flytur hann með hljómsveitinni. Konsertinn er í tveimur þáttum og einleiksparturinn er stór og viða- mikill og erfiður. Ég hafði Einar í huga þegar ég byijaði að skrifa hann. Ég lauk við konsertinn fyrir nokkrum mánuðum en vinna við hann hafði staðið yfír í 7-8 mán- uði,“ sagði Karólína. Þá hefur Karólína nýlega hafið samningu á einleiksverki fyrir selló- leikarann Gunnar Kvaran. Karólína segir að það hafí orðið að samkomu- lagi milli sín og Gunnars að hún semdi fyrir hann þetta verk. Vinnudagurinn hjá Karólínu er afar misjafn. Hún kveðst reyna að setjast við skriftir á morgnana en suma daga kenni hún í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. „Þetta kem- ur svólítið í bylgjum. Þegar ég er að byija á verki þá gengur vinnan yfírleitt hægt en svo koma tamir þar sem hún gengur hraðar. Fyrir mig er þetta mjög sveiflukennd vinna og ég get ekki sest niður á hveijum morgni og unnið frá 9-5.“ Hún segir að það sé afar fátítt tónskáld setjist niður og fari að semja án þess að flutningur á verk- inu sé í sjónmáli. „Sem betur fer er það þannig hér á landi að yfír- leitt er flutningur í sjónmáli,“ sagði Karólína. Kynning í skólakerfinu Hún segir að þó sé ekki stór grundvöllur fyrir flutningi á nýrri tónlist á íslandi. Þá skipti sam- skipti við útlönd tónskáldin miklu máli og tengsl við Norðurlönd séu einna sterkust. „Það er samvinna milli Norðurlandanna sem kemur íslenskri tónlist út fyrir landstein- ana á stundum. í Svíþjóð þar sem ég þekki allvel til hefur verið unnið markvisst að því í nokkra áratugi að kynna nýja tónlist í skólunum. Þetta skilar sér í auknum áhuga fyrir samtímatónlist. Á nútímafesti- völum í Stokkhólmi og Gautaborg, sem ég hef sótt, undraðist ég mjög hina miklu aðsókn. Mörg hundruð manns sóttu miðnæturtónleika og hádegistónleika, og slík kynning skilar sér, kannski ekki á morgun, en til næstu kynslóða sem hafa kynnst nýrri músík í skólakerfinu," sagði Karólína. Hún segir að flestir séu sammála um að ekki sé staðið nægilega vel að tónlistarmenntun í skólakerfínu á íslandi. Víða vanti kennara og jafnvel engin kennsla sums staðar og lítil annars staðar. „Nútímatón- list er ekki sá hluti af þjóðfélaginu sem hún ætti að vera. Henni er ekki dreift markvisst út eins og gert er með stórum fjárfúlgum í nágrannalöndunum," sagði Karó- lína. Guðjón Guðmundsson UNGUR sjómaður stendur á tog- aradekki á Halamiðum og horfír dreyminn á ísrekið. Nú, árum seinna, gengur hann á undan mér upp stiga í húsi við Köldukinn í Hafnarfírði og þar á vegg innan um ótal myndir aðrar, hangir ein af hans fyrstu myndum af ísrekinu á Halamiðum. Sjálfur er hann sam- tóna þessum litum sem smugu inn í sál hans unga, blá augun er hafs og himins og hár og skegg bera hvíta birtu sjávarskaflsins. Skapið fer í hrævareldum, alveg eins og þeim sem hann sá stíga upp af skips- félögum sínum forðum. Þannig séð hefur Sveinn Björns- son ekkert breytzt frá því hann kom úr sinni fyrstu sjóferð og nágranna- konur móður hans spurðu andagt- ugar eftir að hafa séð hann slaga heim: Er hann Sveinn þinn virkilega farinn að drekka svona ungur. Þá hló hún og sagði: Þetta er bara sjó- riðan. Hún gladdist, þegar Sveinn tók vatnsliti með sér í næsta túr og enn meir, þegar listin fangaði hann í vörpu sína. Það tók hana hins veg- ar tíu daga að herða upp hugann og mæta á fyrstu sýningu sonarins, sem hafði í einum rammanum sett sætleika kvenholdsins ofar náttúru Halans. „Ég fínn oft fyrir einhveijum hjá mér, þegar ég er að mála. Ég sé ekkert, en þetta er mér hins vegar þægileg návist. Ég hef alltaf hugsað um hana móður mína í þessu sambandi. Ég þoli ekki aðra nálægt mér, þegar ég er að vinna í málverkinu. Ég mála einn. Hlusta á Jón Leifs og Grieg og veit af mömmu fyrir aftan mig. Ég trúi á drauma og eitt og ann- að í náttúrunni sem hefur geymzt og orðið hluti af sjálfum mér. Þessir hlutir blasa ekki alltaf við augum. Þeir bara eru. Og trúin kem- ur víða fram í myndum mínum. Ég er svo sem ekkert alltaf að hugsa um hana, hún bara er þarna og laumar sér inn í málverkið án þess að ég viti af því.“ En hafí Sveinn ekkert breytzt, þá hafa málverkin breytzt, ísrek og hrævareldar, sjómenn og þorskar, þríhyrndar konur með geislabauga. Og fantasían. Fantasían fæddist Það er líka líf hjá skósólunum honum í draumi. Hann segist hafa verið staddur á hafsbotni og sótt þar tvær sýningar, önnur var af fisk- um og hafmeyjar á hinni. Svo mál- aði hann magnaðar myndir, sjávar- heima og hélt tvær sýningar í Boga- salnum, sem enginn kom á. Þá söðl- aði Sveinn um, hélt upp á land með fantasíuna og fór að mála landslag. „En mér fannst vanta eitthvað í Myndlistarmaðurinn og lögregluþjónninn Sveinn Björnsson stend- ur á sjötugu - lögreglumaðurinn læt- ur nú af störfum en list- málarinn helduráfram og verður einn um Svein þetta svo ég bætti inn á myndimar huldufólki, sem ég sá ungur að Skál- um á Langanesi." Og sjötugur kemur Sveinn Bjömsson fram með nýtt ævintýri í málverkinu. „Þetta eru litirnir í Krísuvík. Ég var farinn að endurtaka sjálfan mig í fantasíunni. Það er dauði lista- manns að endurtaka sig. Krísuvík gaf mér nýtt líf í litunum. Ég var bara svona að labba þama um og horfa niður í jörðina. Og þá sá ég þessa liti. Maður þarf svo sem ekki alltaf að glápa til himins og láta rigna upp í nasirnar á sér. Það er líka líf hjá skósólunum. Þessir litir smugu inn í mig eins og ísrekið á Halanum forðum. Ég gerði ramma í snjóinn utan um rauðan stein og svo helltist þetta yfir mig eins og hland úr fötu. Fantasían er ekki dauð. Olían hentar henni ekki lengur. En fantas- ían er í mér ennþá og ég reikna ekki með því að losna nokkurn tím- ann við hana. Hef reyndar ekki áhuga á því. Nú held ég í hana í teikningum og klippimyndum. Þótt yfirbragð þeirra sumra sé meira abstrakt en áður, þá sinni ég minni fantasíu áfram. Þessi nýju litamálverk sækja óhemju sterkt að mér. Ég sef stund- um ekki fyrir þeim. Þau vekja mig á nóttunni og lokka mig til sín. Það er einhvern veginn meira mál að vinna eins og ég geri núna. Hand- bragðið og áferðin eru svo krefj- andi, skipta svo miklu máli. Og ég vil geta málað strax eins og myndin á að vera. Það er í mér mikið óþol. Ég vil gera eitthvað í myndlistinni á hverjum degi.“ Til þess ætti hann nú að fá meiri tíma. „Það er sagt að málarar verði góðir með aldrinum og von- andi fer það nú að rætast á mér. Ekki seinna vænna, þegar ég þarf nú að lifa af listinni einni saman.“ Það sem Sveinn á við er, að sunnudag- inn 19. febrúar stend- ur hann á sjötugu og verður að láta af starfí rannsóknarlög- regluþjóns í Hafnarfirði. „Ég hugsa að lögreglustarfið hafi bætt mig sem málara. Ef ég hefði ekki haft það við hend- ina, þá hefði ég bara málað meira, meðan ég var ekki tilbúinn til þess. Það hefði nú orðið ljótan! Ég er óhræddur við breytingar. Málið er að láta þær ekki breyta sjálfum mér. Mörgum hættir til að gleyma manneskjunni í sér og láta breytingamar ná tökum á sér í stað þess að njóta þeirra. Það hryggir mig oft, bæði sem lögreglumann og listamann, hvað okkur hættir til að vera blindir á manneskjuna. Ég gleymi því aldrei, þegar ég stóð fyrir framan stærsta striga landsins. Hann var upp á tvisvar sinnum sex metra. Þetta varð stærsta málverk á íslandi og það var óskaplega gaman að mála það. OkÁLDSAGNAGERÐ 1994 var óvenju blómleg miðað við mörg undanfarin ár. Ekki eingöngu voru sögumar margar heldur verður að telja þær flestar með þeim betri sem komið hafa út seinustu ár. Þegar bókmenntasköpun undanfar- inna ára er lýst seilast menn oft til orðsins „f|ölbreytileiki“. Oftar en ekki hefur lýsing af þessu tagi ver- ið heldur tuggukennd og innihald- slítil. Það má því heita heldur hlá- legt að þeim sem hér lætur fingur nema við lykla koma ekki önnur betri orð í hug þegar hugsað er til skáldsagna seinasta árs. Þær eru einfaldlega fjölbreytilegar að efni og stíl. í samræmi við þetta era rithöf- undamir á ólíku róli. Sumar sögurn- ar era skrifaðar af sálfræðilegri innsýn, aðrar era að springa af frá- sagnargleði og fyndni. Sögusviðið er mjög misjafnt. Nútímavandi setur sinn svip á nokkrar sögur; hjónaeij- ur, drykkjusýki og óhóf telst þar til tíðinda. I öðrum er söguefnið sótt í löngu liðna tíð: Sögulega skáldsag- an lifir sem sagt góðu lífi. Oftast hefur það verið talið ís- lenskum bókmenntum til tekna hve lýsingum á tilfínningum persóna er jafnan stillt í hóf. í íslendingasögun- um er dreyrrauður vangi og ákveðið augnatillit látið nægja til að gefa í skyn kenndir og ástarhug persóna. í skáldsögum 1994 kveður við ann- an tón og er því einna líkast að hér sé verið að svara eftirspurn eftir erótík í íslenskum bókmenntum sem bergmálað hefur undanfarin ár. í Höfuðskepnum Þórannar Valdi- marsdóttur er Ieitast við að lýsa holdlegum samskiptum með nýjum Blómleg hætti. Siðprýðinni er gefíð langt nef án þess að slakað sé á kröfum um vandað málfar. Mælskan og lostinn haldast í hendur og nánast valta yfir kröfuna um út- hilgsaða byggingu. Erótískur orðaforði er misjafn milli tungumála og hefðin.fyrir því að rita tungutak ástarlífsins mis- sterk. Þótt við eigum Bósa sögu og Herrauðs virðast lýsingar á ástar- innar glímutökum lítt hafa átt er- indi í bókmenntimar á seinustu ára- tugum. Erfítt er um að dæma hvort því hafí ráðið siðprýði, tepraskapur eða einfaldlega áhugaleysi um þessa hluti. Tundur dufl er safn þrettán erót- ískra sagna eftir jafn marga höf- unda. Fæstir höfundanna era þekkt- ir fyrir að ríta jafn ástleitnar sögur og raunin er hér. Útkoman er for- vitnileg því að höfundamir rífa hver með sínum hætti glufu í þetta frá- ságnarhaft í íslenskum bókmennt- um. Margar eru sögurnar natúral- ískar, fullar með góðlátlegu spaugi. Aðrar era á mörkum draums og veraleika. Sameiginlegt þeim flest- um er alvarleg og yfírleitt vel heppn- uð viðleitni höfundanna til að um- Yfirlit um skáldsagnagerð á liðnu ári skapa erótískt and- rúmsloft. m KKRAR sögu- egar skáldsög- ur era meðal athygl- isverðustu sagna seinasta árs. Þær sem hér era nefndar era ólíkar um flest. Þær gerast á mismunandi tím- um og meginefni þeirra misjafnt. Megas sendir frá sér fyrstu skáld- sögu sína, Björn og Svein. Hún er nefnd hér sem undantekningin sem sannar þá reglu að sl. ár var auð- ugt skáldsagnaár. Aðalpersónumar era nútímaútgáfur af Axlar-Birni og Sveini skotta sem sjást ekki fyr- ir í ofbeldi og nauðgunum. Þessi saga er undarlega tilgangslaus, hálfgerður hroði sem er jafn leiðin- leg og hún er löng. Einkennilegast er að hún skuli vera gefín út af rótgrónu bókaútgáfufyrirtæki. _ Ferðalagið í skáldsögu Árna Bergmann, Þorvaldur víðförli, virð- ist hafa meiri tilgang en flandur Axlar-Bjöms og Sveins skotta. Sögusviðið er Evrópa á dögum hraðfara umbreytinga, ekki á 20. öld heldur þeirri 10., á þeim tíma þegar nýr siður var að bijóta sér leið í Evrópu. Hér er fortíðinni samt greinilega ætlað að vera kastljós á þá umbrotatíma sem við nú lifum. Menn skyldu vita að ekkert er nýtt undir sólinni. Nýstárlegasta sögulega skáld- sagan er Letrað í vindinn eftir Helga Ingólfsson. Höfundurinn er nýr og sögusviðið frumlegt: Rómaborg á síðustu öld fyrir Krists burð. Greini- lega hefur höfundur lagt sig fram um að öðlast sagnfræðilega yfirsýn yfir efniviðinn enda skín í gegn væntumþykja og mikill áhugi á efn- inu. Stíllinn í tveim síðastnefndu sög- unum er yfirleitt lipur en á það til að verða uppskrúfaður. Höfundar falla ekki í það fen að fella frásögn- ina í fornt eða klassískt málfar held- ur segja blygðunarlaust frá á nútíð- armáli. Þetta þarf samt ekki að þykja algott. Veikleiki sögulegra skáldsagna birtist nefnilega oft í þeirri þversögn að reynt er að segja frá horfnum heimi með tungutaki dagsins í dag. Hér er um ákveðna skekkju að ræða sem verður þeim mun bersýniiegri eftir því sem höf- undur lætur sig hana minna varða. GUÐBERGUR Bergsson er á kunnugum miðum í sögu sinni Ævinlega. Hér segir frá manni sem er í leit að ást og hamingju. Allt er með stóísku yfirbragði í sög- unni, frásögnin dálítið ljúfsár því að yfir sambandi elskendanna vofir sú hætta að allt gott taki enda. Leitin að ástinni í þessari sögu er leitin að því sem aldrei næst endan- lega. Eða eins og Vífill gullsmiður segir: „Það er aðeins hægt að vera með einu móti hvarvetna, með því að vera ævinlega ástfanginn." Svipuð meginkennd setur mark sitt á bók Thors Vilhjálmssonar, Tvílýsi, þó með öfugum formerkj- um. Hér er fjallað um hugleikið efni sem er einsemd mannsins og óhamingja. Það er sama hvort menn era einir eða margir saman, ætíð skín í gegn einsemd þeirra og hjálp- arleysi. Persónurnar, sem sam- kvæmt reglu Thors eru nafnlausar, bera í bijósti væntingar hver til annarrar, væntingar sem farast hjá. Skiptir þá ekki máli hvort persón- umar eru hluti af mergðinni, í hams- lausum ástarleik eða ganga einar til hvílu. Misskilningur, tortryggni og jafnvel eigingimi gegnsýra sam- skiptin. Pétur Gunnarsson er á nýjum miðum í sögu sinni Efstu dagar þótt bygging og persónuflóran sé kunnugleg. Eins og í öðrum sögum sínum gengur hann út frá fjölskyld- unni en aðalpersónan, Símon Flóki, er annarrar gerðar en í öðrum sög- um Péturs. Hann er prestur, trúr köllun sinni og guði. Afstaða Flóka til lífsins er heilsteypt en einfaldar varla tilveru hans né þeirra sem hann umgengst. Hann svignar ekki eftir kröfu samtíðarinnar heldur á hann það á hættu að brotna vegna þunga eigin siðferðiskrafna. Þótt persóna Símonar Flóka sé athyglis- verð má setja spurningarmerki við trúverðugleika hennar. Eru til prestar eins og Símon Flóki? Þetta er allt að koma nefnist önnur skáldsaga Hallgríms Helga- sonar. Hér er sagt frá listakonunni Ragnheiði Birnu, ástum hennar og ævintýrum. Sagan einkennist öðra fremur af mikilli frásagnargleði, orðaleikjum og miklu ímyndunar- afli. Sagan er á köflum drepfyndin, brandararnir renna fram áreynslu- laust. Stundum kemur þó fyrir að úr atriðum teygist meira en góðu hófí gegnir. Höfundur hefði að ósekju mátt skera niður eitt og ann- að í þessari stóra sögu. Samt sem áður má fullyrða að Hallgrímur hefur margt að segja sem hlustandi er á. Við bíðum eftir fleiri sögum frá honum. Vesturfarinn eftir Pál Pálsson er varla með átakamestu sögum höf- undarins. Vettvangur sögunnar er bæði austan hafs og vestan og frá- sögnin full af mannlegum harmleik sem þó nær ekki að snerta mann nógu djúpt. Það hefur einmitt verið styrkleiki í sögum Páls að hvers- dagslegur og afslappaður stíllinn hefur ýmist gefið lesandanum högg á réttu augnabliki eða veitt honum innsýn í tilfinningar á nýstárlegan hátt. Hérna vantar eitthvað. VIGDÍS Grímsdóttir sýnir með Grandavegi 7 að hún kann þá list að segja sögur með ótrúlega ólíku sniði. Hún hefur öðram höf- undum frekar sinnt þeirri kröfu (hvaðan sem hún kemur) að skipta gersamlega um frásagnarefni og stíl milli sagna. Hversu langur veg- ur er ekki t.d. milli Kaldaljóss og Ég heiti ísbjörg, ég er ljón? Vigdís klappar aldrei lengi sama steininn. Grandavegur 7 er fjölskyldusaga, mikil saga sem gerist þó á einum degi. Sögumaður, fimmtán ára stúlka, segir sögu fjölskyldu sinnar og tekur gjarnan fyrir eina persónu í einu. Persónurnar sækja á stúlk- una, sem skilja má að sé skyggn, og hver og ein þeirra geymir frá- sagnir sem hver um sig er efni í alvanalegum atburðum á óvenjuleg- an hátt. Aðalsöguhetjan, Tómas, er kominn nálægt fimmtugu og við honum blasa flest þau vandræðj sem hijáð geta miðaldra mann. Á ör- skömmum tíma breytist hann úr ábyrgum fjölskyldumanni og tryggri fyrirvinnu í einstakling sem flest er flogið frá. Hann lendir vilj- andi eða óviljandi í aðstæðum ^em krefja hann um ákvarðanir og ábyrgð. En eins og svo oft áður er betra að ýta vandanum á undan sér. Enn sýnir Fríða á sér nýja hlið. Bygging sögunnar er klassískari og einfaldari en í síðustu skáldsögu hennar, Meðan nóttin líður. Dijúgur hluti sögunnar era samtöl, sem mörg hver era býsna leikræn. Að manni læðist grunur um að auðvelt sé að snúa þessari sögu í leikrit. Einar Kárason heldur áfram að segja frá kynlegum kvistum í nýj- ustu skáldsögu sinni, Kvikasilfri. Hér er um að ræða beint framhald skáldsögunnar Heimskra manna ráð sem kom út eftir hann í fyrra. Fram- kvæmdagleði Killians-fjölskyldunn- ar er söm við sig, hver atburðurinn er öðrum ýkjukenndari og fyndnari. Það er álitamál hversu stórar álykt- anir leyfist að draga af þessari sögu. Eins og oft áður einkennist frásögn Einars af því að ekki eru kveðnir áfellisdómar yfir persónum þótt breyskar séu. Samt skín í gegn boðskapur þess efnis að mönnum sé ekki allt gagnlegt þótt þeim leyf- ist flest. Með árunum hefur mér fundist það vera einn helsti styrkur í sögum Einars, hvernig söguhöf- undur setur söguefnið fordómalaust fram og nánast af væntumþykju um persónur. Á hinn bóginn jaðrar „SUMAR sögurnar eru skrifaöur af sálfreeói- legri innsýn, aórar eru aó springa af f rásagn- argleói og fyndni." Morgunblaðið/Sverrir heila skáldsögu. Sagnagnóttin ein sér væri lítils virði ef hún væri ekki ofin í jafnlistilegan vef og hér er gert. Sniglaveisla Ólafs Jóhanns Ólafssonar er fremur nóvella en skáldsaga, ef það á annað borð seg- ir einhveijum eitthvað. Sagan er stutt enda leyfir formið ekki að þráðurinn hlaupi út um holt og móa. Þetta er lýsing á heimi Gils Thordesens, manns sem hefur vígg- irt tilveru sína sýnilegum táknum: réttum húsgögnum, réttum mál- verkum og sjálfur er hann hold- gerving réttrar lífsafstöðu. En á bak við öryggið glittir í ósagða fortíð sem getur hvenær sem er feykt burt öllum víggirðingum Gils Thor- desens. Saman við þessa sögu sem jaðrar við að vera dæmisaga bland- ar Ólafur Jóhann haganlega göml- um þjóðsagna- og ævintýraminnum. En slíkt undirstrikar einmitt hve frásögnin er raunverulega knöpp og tilskorin. í skáldsögu Fríðu Á. Sigurðar- dóttur, I luktum heimi, er sagt frá En ég stækkaði ekkert sjálfur við þetta. Notaði sömu skóna áfram. Ég bara naut þess að mála svona stórt. Blessaður vertu. Ég heyri það alltaf öðra hveiju að ég hljóti að vera geggjaður að gera sumt sem ég hef gert. Það fínnst mér í góðu lagi. Ég hugsa bara að mér myndi líða afleitlega, ef einhver hefði orð á því, að ég væri normal. Og ég á mér draum um lítið lista- safn. Ég var búinn að fá vilyrði fyr- ir lóð við Kaldárselsveg, fyrir ofan kirkjugarð. Vinur minn einn er byijaður að teikna einfalt hús. Safn á einni hæð og þægileg kaffístofa ofan á með útsýn til allra átta. Ég á um fimmtíu myndir eftir aðra málara og svo auðvitað mín eigin verk, keramik og ýmislegt annað. Þegar lóðin verður klár, flyt ég í Krísuvík, sel húsið hér í Köldu- kinn, og byija á granninum. Ég átti hesthús þarna uppfrá, sem hét Sveinsstaðir. Það nafn fylgir mínum draum. Listasafnið Sveinsstaðir. Þú sérð á þessu, að það er bara löggan, sem sezt í helgan stein um helgina. Listamaðurinn heldur áfram. Reyndar var afmælissýningin í fyrra. Þeir vildu fá svona yfírlitssýn- ingu í Hafnarborg. En ég sagði nei. Ég hef aldrei skammast mín fyrir eldri myndir mínar. Það var ekki það. Ég var bara kominn með splunkunýjan hlut í list minni og sagði, að ef menn vildu sýna eitt- hvað eftir mig, þá væru nýju mynd- irnar það sem stæði til boða. Og það varð. í sumar ætla ég svo að sýna Dönum þessar myndir. Danir hafa alltaf verið mér góðir. Þeir tóku mér opnum örmum og hældu mér á prenti, þegar dómar um málverk mín hér heima vora famir í verra. Og þessir góðu dómar Dananna hresstu upp á aksíur mínar. Meira að segja Júlla frænka sá mig betur í þessu danska skini. Sjálfur hef ég aldrei séð mig í öðra ljósi en Svein Bjömsson, sjó- mann, lögreglu- og listamann. Það er sú manneskja sem ég hef reynt að varðveita gegnum þykkt og þunnt.“ - ÍJ. stundum við að frásagnargleðin teymi höfund í ógöngur. Ekki er unnið úr jafn merkilegu og áhuga- verðu efni og efni standa til. SNÖGGSOÐNU yfírliti um ís- lenskar skáldsögur síðastliðins árs lýkur með endurtekinni fullyrð- ingu: skáldsagnagerðin 1994 var blómleg. Ekki einasta komu út margar skáldsögur heldur margar góðar skáldsögur. Það er freistandi fyrir þann sem hefur að undanförnu eytt tíma í að lesa bestu skáldsögur liðins árs að flokka þær eftir gæð- um. í sannleika sagt er slíkt harla erfítt en að öðram góðum sögum ólöstuðum komu Grandavegur 7, Þetta er allt að koma og Letrað í vindinn þægilegast á óvart. Ein- staka sögur komu hins vegar óþægi- lega á óvart - og skulu ekki höfð fleiri orð um þær. Raunveralegur markaður er fyrir þessa sagnaflóra og bendir það til þess að skáldsagan sé býsna sterkur miðill. Þetta er sérstaklega ánægju- legt þegar haft er í huga að sá texti sem daglega ber fyrir augu og glym- ur í eyram er oft fremur til þess fallinn að æra óstöðugan en að uppfræða og gleðja. Þrátt fyrir allan orðavaðalinn í prentmiðlum, ljós- vakamiðlum og bráðum „margmiðl- um“ er enn til fólk sem er nógu sérsinna til áð njóta forsendu þessa alls, sem er vel sagður og skrifaður texti. Meðan skrifaðar era jafn góð- ar sögur og gert var 1994 geta aðrir miðlar haft eitthvað gott að leiðarljósi. Þannig hafa bókmennt- imar tækifæri til að lifa í okkur og við í þeim. Ingi Bogi Bogason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.