Morgunblaðið - 18.02.1995, Page 6
6 C LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Myndir Kjarvals úr eigu safiisins.
Ásmundarsafn
Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss.
og Jóhannesar S. Kjarval til 14. maí.
Norræna húsið
Sýn. 3x Nielsen, arkitektúr til 20. febr-
úar og í anddyri málverkasýn. Sven
Wiig Hansen til 5. mars.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitam. Ásgrfms til marsloka.
Galleri Úmbra
Gestur Þorgrimss. sýnir höggmyndir og ljóð
til 22. feb.
Gerðuberg
Jessie Kieemann sýnir til 19. mars.
Gallerí Sævars Karls
Erlingur P. Ingvarsson sýnir til 23. feb.
Listasafn íslands
Sýningin Ný aðföng 11 til 19. mars.
Gallerí Greip
Berglind Sigurðardóttir sýnir.
Mokka
Peter Halley sýnir til 1. mars.
Hafnarborg
Grafikverk Gunnars Á. Hjaltasonar til
20. feb., einnig sýnir Auður Vésteins-
dóttir myndvefnað til 20. feb.
Nýlistasafnið
Sólgin; samsýn. fjögurra norrænna
myndlistarmanna til 5. mars
Listasafn ASÍ
Hallsteinn Sigurðss. myndhöggvari sýn-
ir jámmyndir til 19. feb.
Gallerí Sólon íslandus
Lísbet Sveinsdóttir sýnir til 20. feb.
H hæð, Laugavegi 37
Eoger Ackling sýnir til febrúarloka.
Slunkaríki, Isafirði
Sólgin; Peter Hagdahl sýnir til 12. mars.
TONLIST
Laugardagur 18. febrúar
Myrkir músíkdagar; Gradualekór Lang-
holtskirkju og Skólakór Kársness í Di-
graneskirkju kl. 14. Afrisk tónlist í
Norræna húsinu kl. 14.
Sunnudagur 19. febrúar
Tónsmiðjan — klassiskir tónleikar í
Gerðubergi kl. 15, tónlistardagskrá ætluð
bömum undir stjóm Guðna Franzsonar.
Sönghljómleikar í Hveragerðiskirkju kl.
17. Myrkir músíkdagar; Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands í íslensku óperanni kl.
16. Skólakór Kársness, Graduelakór
Langholtskirkju og Kór Öldutúnsskóla í
Digraneskirlqu kl. 20.30.
Mánudagur 20. febrúar
Myrkir músíkdagar; Rascher Saxophone
Quartet í Listasafni íslands kl. 20.
Þriðjudagur 21. febrúar
Myrkir músíkdagar; Laufey Sig. og El-
ísabet Waage, fiðla og harpa í Gerð-
arsafni kl. 20., Einar Kristján Einarsson
gítarleikari i Gerðarsafni kl. 21.30.
Miðvikudagur 22. febrúar
Myrkir músíkdagar, Multi media-tón-
leikar i Borgarleikhúsinu kl. 20. Há-
skólakórinn á Háskólatðnleikum kl.
12.30 í Norræna húsinu.
Finuntudagur 23. febrúar
Myrkir músíkdagar; Sinfóníuhljómsveit
íslands í Háskólabíó kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Taktu lagið, Lóa! lau. 18. feb., þri.,
mið. fös.
Oleanna lau. 18. feb., fös.
Fávitinn lau. 18. feb., fös.
Snædrottningin sun. 19. feb., lau.
Gauragangur sun. 19. feb., fim., lau.
Borgarleikhúsið
Söngleikurinn Kabarett lau. 18. feb.,
fös.
Leynimelur 13 lau. 25. feb.
Ófælna stúlkan lau. 18. feb., sun., lau.
Framtíðardraugar lau. 18. feb., sun.,
þri., fim., fös. lau.
Islenska óperan
La Traviata lau. 18. feb., fös.
Frú Emilía
Kirsubeijagarðurinn sun. 19. feb.
Sólstafir, Mahnovitsina fim. 23. feb.,
fös. 24. feb.
Kaffileikhúsið
Leggur og skel lau. 18. feb. kl. 15.
Skilaboð til Dimmu lau. 18. feb. kl. 21.
Nemendaleikhúsið
Tangó, lau. 19. feb., sun., mið.
Leikfélag Akureyrar
Óvænt heimsókn lau. 18. feb., fim., fös.
Á 8vörtum Qörðum sun. 19. feb.
Leikfélagið Snúður og Snælda
„Reimleikar í Risinu" sun. 19. feb. kl.
18., þri., fim., lau. kl. 16.
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarínn
Bellmann 200 ára ártíð kl. 20.30.
KVIKMYNDIR
MÍR
Kósakkamir kl. 16.
Norræna húsið
Emil Lönneberge, sænsk bama- og fjöl-
skyldumynd kl. 14.
Umsjónarmenn listastofnana og sýn-
ingarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega fyrir kl.
16. á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvk. Myndsendin 91-691181.
AÐ SÖGN Guðmundar Óla
Gunnarssonar, stjórnanda
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,
er hljómsveitin arftaki Kammer-
hljómsveitar Akureyrar sem hafði
starfað frá haustinu 1986 og hald-
ið alls 30 tónleika. Kjami hljóm-
sveitarinnar hefur frá upphafí ver-
ið kennarar við Tónlistarskólann á
Akureyri auk nemenda skólans,
en auk þess teljast nokkrir tónlist-
armenn á svæðinu Borgarnes -
Vopnafjörður til fastra hljóðfæra-
leikara. Að jafnaði eru í hljóm-
sveitinni 25 til 50 hljóðfæraleikar-
ar.
Nýtt íslenskt tónverk
við ljóð Davíðs
„Á tónleikunum verður flutt
nýtt íslenskt verk eftir Hróðmar
I. Sigurbjömsson, Næturregn. Það
er sérstaklega skrifað fyrir Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands," sagði
Guðmundur Óli í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins. „Vegna
þess að 21. janúar sl. voru liðin
100 ár frá fæðingu Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi var
Hróðmar fenginn til að skrifa verk
fyrir hljómsveitina við ljóð Davíðs.
Hróðmar valdi ljóðið Næturregn.
Verk hans er um tíu mínútur í
flutningi, þetta er hægferðugt
verk og rómantískt, samið fyrir
barytonrödd og hljómsveit. Það er
Michael Jón Clarke sem syngur. í
þessu sambandi má geta þess að
það er stefna Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands að láta skrifa fyrir
sig nýtt íslenskt verk árlega.
Hitt verkið sem Michael syngur
heitir Of love and death, eftir Jón
Þórarinsson. Þetta em þrír söngv-
ar við texta eftir Rossetti.
Við hefjum tónleikana á Hátíð-
armarsi eftir Pál ísólfsson, sem
er elsta verkið á efnisskránni. Það
tengist Davíð Stefánssyni líka, það
er að miklu leyti byggt á sönglagi
eftir Pál ísólfsson, sem hann samdi
við ljóð Davíðs, Ur útsæ rísa ís-
lands fjöll.
Þá flytjum við á þessum tónleik-
GUDMUNDUR Óli Gunnarsaon, Michael Jón Clarke og HróAmar I. Sigurbiörnsson.
Næturregn og
Hátíðarmars
þessara tónleika, sem verða eins
og fyrr sagði í kyöld í Akureyrar-
kirkju klukkan 20.30 og á morgun
í íslensku óperanni klukkan 16.00.
Þess má geta að þetta er í fyrsta
skipti sem Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands leikur í Reykjavík, en
hún hefur hins vegar víða spilað
á Norðurlandi.
Guðrun Guðlaugsdóttir
um Forna dansa eftir Jón Ásgeirs-
son. Þetta era fjórir dansþættir
sem Jón byggir að mestu á ýmsum
alþekktum íslenskum þjóðlögum.
Síðasta verkið á efnisskránni
er eftir Þorkel Sigurbjörnsson og
er það frá árinu 1993. Það heitir
Hljómsveitartröll. Hann samdi
þetta verk að beiðni Orkestra
Norden, sem er hljómsveit skipuð
tónlistamemendum frá öllum
Norðurlöndunum."
Eingöngu
- íslensk verk
Guðmundur Óli Gunnarsson gat
þess einnig að í tilefni af 50 ára
afmæli Tónskáldafélags íslands
hefðu eingöngu verið valin verk
eftir íslensk tónskáld á efnisskrá
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í kvöld
í Akureyrarkirkju og á morgun í Islensku óperunni
Ekki bara englar
leikaáhörpu
LAUFEY sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins
að þær vinkonurnar ætluðu að leika
-tvö íslensk og hollensk verk á fyrir-
huguðum tónleikum í Gerðarsafni.
Öll verkin era skrifuð fyrir fiðlu
og hörpu. Fyrra hollenska verkið
heitir Duetto eftir Lex van Delden
en hitt heitir Due Canzone di Don
Chisciotte og er eftir Jurriaan
Andriessen. Islensku verkin eru
aftur á móti Haustlauf eftir Mist
Þorkelsdóttur og Serena eftir Leif
Þórarinsson.
„Verk Mistar er alveg nýtt, hún
gaf okkur Elísabetu eiginlega þetta
verk í jólagjöf, þetta er framflutn-
ingur á því,“ sagði Laufey Sig-
urðardóttir í samtali við blaða-
mann. Haustlauf Mistar Þorkels-
dóttur er að sögn Laufeyjar rólegt
verk. „Mist býr í Nýja Englandi í
Bandaríkjunum, þar era haustin
mjög „stemmningsfull" og falleg,“
sagði Laufey. „Eg ímynda mér að
sú staðreynd hafí haft áhrif á Mist
þegar hún var að semja umrætt
verk. Litbrigðin í laufunum eru al-
Klukkan átta á
þriðjudagskvöld
halda þær Laufey
Sigurðardóttir og
Elísabet Waage tón-
leika í Gerðarsaf ni
veg stórkostleg á haustin þarna
vestra."
Laufey sagði ennfremur að verk
Leifs Þórarinssonar væri sömuleið-
is alveg nýtt. „Ég var að fá það allt
í hendurnar í morgun," sagði hún
og hampaði framan í blaðamann
nótunum að Serenu, hinu glænýja
verki Leifs Þórarinssonar. „Það er
enn rólegra í flutningi en verk
Mistar. Leifur segir sjálfur að það
reyni mjög mikið á þolinmæði bæði
flytjenda og áheyrenda, sé mjög
sérkennilegt. Honum fínnst að fólk
eigi jafnvel að fara með æðruleysis-
bænina, bæði flytjendur og hlust-
Laufey
Siguróardóttir
Elisabet
Waage
endur og á undan flutningi og á
eftir honum. Bænin er á þessa leið:
Guð gefi mér æðruleysi til að
sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt, kjark til að breyta því sem
ég get breytt og vit til að greina
þar á milli.
Leifur sagði við mig að hann
hafi haft í huga við samningu
umrædds verks að það yrði að vera
í sem mestri mótsögn við flytjand-
ann. Hann hlýtur að eiga þar við
mig því Elísabet Waage hörpuleik-
ari er afar yflrveguð og þolinmóð
kona samkvæmt minni viðkynn-
ingu af henni. Við Elísabet höfum
leikið saman annað slagið undanf-
arin ár. Það er nú reynar ekki úr
miklu að moða fyrir fiðlu og hörpu.
Við eigum þó talsvert mörg verk
eftir sem við höfum ekki enn flutt.
Fiðla og harpa era
falleg hljóðfærasam-
setning og æ fleiri
tónskáld eru að upp-
götva möguleika
hörpunnar. Æ fleiri
úr þeim hópi eru að
gera sér ljóst að það
eru ekki bara englar
sem leika á hörpu
heldur líka venjulegt
fólk.
Hollendingar hafa
löngum átt góða
hörpuleikara og þar
er rótgróin og mikil
„ hörpumenning“.
Þess vegna er ekki
einkennilegt að við
Elísabet skulum setja
hollensk verk á efnisskrá okkar á
fyrirhuguðum tónleikum. Elísabet
er búsett í Hollandi og þar hefur
mikið verið skrifað af tónlist fyrir
hörpu. Hollensku verkin sem við
leikum saman á þriðjudagskvöldið
kemurera bæði samin 1985,“ sagði
Laufey að lokum.
Guðrún Guðlaugsdóttir