Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANWA
1995
■ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR
BLAD
Ovissa um framhaldið
hjá Sigurði Sveinssyni
Sigurður Sveinsson,
landsliðskytta í Vík-
ingi, er meiddur á vinstri
olnboga og er óvíst hvort
hann geti leikið með Vík-
ingum í byrjun úrslita-
keppninnar í 1. deild karla
í handknattleik, sem hefst
í næstu viku. „Ég hef
verið í hvíld en var að
koma úr sprautumeðferð
og við sjáum til hvernig
staðan verður í lok vik-
unnar,“ sagði Sigurður
við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Sigurður sagðist hafa
fundið fyrir verkjum fyrir
nokkru síðan og þeir hefðu
ágerst. Hann var deyfður
fyrir deildarleikinn gegn
Val í næst síðustu umferð
og lék þá ekkert í seinni
hálfleik en sat á bekknum
allan tímann gegn Hauk-
um um helgina. „Ég vona
að þetta verði ekki lang-
varandi, ég nenni því ekki
og vona að ég þurfi ekki
að fara í uppskurð," sagði
hann.
KNATTSPYRNA
KR og Valur með í
Lltlu bikarkeppninni
Reykjavíkurliðin KR og Val-
ur hafa formlega óskað
eftir að fá að taka þátt í Látlu
bikarkeppninni í knattspyrnu
og hafa fengið jákvagð við-
brögð. „Við höfum tekið já-
kvætt í umsóknimar og ég á
von á að þessi lið verði tekin
inn,“ sagði Gunnar Sigurðsson,
formaður Knattspyrnufélags
ÍA, við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Auk Skagamanna eru
félög á Suðurnesjum, Hafnar-
firði, Kópavogi, Selfossi og
Vestmannaeyjum með í Litlu
bikarkeppninni en lið úr
Reykjavík hafa til þessa ekki
verið þar á meðal.
Guðjón Þórðarson, þjálfari
KR, og Hörður Hilmarsson,
þjálfari Vals, sögðu að félögin
yrðu áfram með í Reykjavíkur-
mótinu en Litla bikarkeppnin
væri miklu betri undirbúningur
fyrir íslandsmótið og því hefði
verið sótt um að fá að vera með.
Með KR og Val verða átta
fyrstu deildar félög í Litlu bik-
arkeppninni og verður leikið í
fjórum íjögurra liða riðlum en
sigurvegarar riðlanna mætast
síðan í undanúrslitum.
„Þetta er miklu meiri keppni
en Reykjavíkurmótið og félögin
utan Reykjavíkur búa við miklu
betri æfíngaaðstæður,“ sagði
Guðjón. „Sum þeirra byija að
æfa á grasi í apríl og spila jafn-
vel á grasi í Litlu bikarkeppn-
inni og í það emm við að
sækja.“
Hann sagði ennfremur að
ekkert væri gert fyrir malar-
vellina í Reykjavík og gervi-
grasið í Laugardal væri ekki
boðlegt en vegna þessa æfðu
KR-ingar á sandgrasvellinum í
Kópavogi. Hörður tók í sama
streng varðandi aðstöðuna en
Valsmenn æfa einu sinni í viku
á gervigrasi Leiknis og á gervi-
grasi Hauka í Hafnarfirði.
Magnús æfir á
Spáni í hálft ár
MAGNÚS Már Ólafsson, sundmaðurinn
landskunni, fékk styrk frá Olympíusamlyálp-
inni vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleik-
ana í Atlanta á næsta ári eins og fram kom
í blaðinu á dögunum. Nú er frágengið að
hann fær æfingaaðstöðu á Spáni — æfir með
spænska landsliðinu í Barcelona næstu sex
mánuði.
Bonnie Blair tvöfald-
ur heimsmeistari
BANDARÍSKA stúlkan Bonnie Blair sigraði
í bæði 500 og 1.000 metra skautahlupi, á
heimsmeistaramótinu í sprettskautahlaupi í
Milwaukee í Bandaríkjunum um helgina.
Þetta var síðasta keppni Blair í heimaland-
inu, en hún hyggst leggja skautana á hiiluna
eftir heimsmeistai amótið í Kanada í næsta
mánuði.
Linford Christie
virðist vera í
frábærri æfingu
LINFORD Christie, heims- og ólympíumeist-
ari í 100 m hlaupi, byfyar árið vel og hyggur
greinilega á stóra hluti á heimsmeistaramóts-
ári. Hann setti tvö met á innanhússmóti I
Lievin í Frakklandi á smmudag: bætti heims-
metið í 200 m hlaupi — sem er fyrsta heims-
metið sem hann setur á löngum og glæsileg-
um ferli — en fyrr um daginn hafði hann
bætt eigið Evrópumet í 60 m hlaupi. Christie
hjjóp 200 m á 20,25 sek. en gamla metið,
20,36 sek., átti Frakkinn Bruno Marie-Rose,
sem hann setti á sömu braut 1987. Christie
fór 60 m á 6,47 sek. en gamla metið, sem
hann átti sjálfur, var 6,48, sett í fyrra.
Frankie Fredericks
hljóp líka hratt
FRANKIE Fredericks frá Namibiu lýsti því
yfir fyrir 200 m hlaupið á ofangreindu móti
að hann ætlaði sér að bæta heimsmet Marie-
Rose. Hann gerði það raunar, hjjóp á 20,26
sek. en varð að játa sig sigraðan. „Þetta kom
mér ekki á óvart vegna þess að við höfum
æft saman og ég vissi að hann væri í góðri
æfingu,“ sagði Fredericks um hinn 34 ára
Christie.
EBU borgar 4,8
milljarða fyrir OL
SAMBAND sjónvarpsstöðva í Evrópu, EBU,
hefur greitt sem samsvarar tplega 4,8 miHj-
örðum króna fyrir einkarétt á sjónvarpsend-
ingum í Evrópu, Norður-Afríku og stórum
hluta miðausturlanda frá Vetrarólympíuleik-
unum I Nagano í Japan 1998. Þetta er þrisv-
ar sinnum hærri upphæð en EBU greiddi
fyrir réttinn frá leikunum í Liliehammer í
fyrra.
Kennsl borin á
40 fótboltabullur
MIKE Parry, blaðafulltrúi Knattspyrnusam-
bands Englands, sagði í gær að von væri á
sendinefnd írsku lögreglunnar til London
með myndir af 40 bullum, sem talið er að séu
ábyrgar fyrir ólátunum á landsleik írlands
og Englands í sfðustu viku. Hann sagði að
tæplega 900 manns hefðu hringt inn upplýs-
ingar um óeirðaseggina og þegar búið væri
að raða brotunum saman ættu bullurnar von
á opinberum kærum. Parry sagði að sum
nöfnin hefðu komið fram hjá mörgum og
sérstaklega hefðu tvö verið áberandi en í
hópnum væru þekktar bullur frá fyrri tíð.
„Við vitum hveijir þetta eru og írska lögregl-
an veit það lika,“ sagði hann.
HANDKNATTLEIKUR: VALUR DEILDARMEISTARIKARLA / B4-B5