Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Úrslitakeppnin í handknattleik
1. deild karla
Lið þarf að sigra
i 2 leikjum til að
komast áfram:
1. deild kvenna
Liðþarfað sigra
i 2 leikjum til að
komast áfram:
8 liða úrslit
Valur - Haukar
Lelka 26/2, 28/2 og 2/3 efþarf.
Afturelding - FH
Leika 26/2, 28/2 og 2/3 ef þarf.
Víkingur - ÍR
Lelka 27/2,1/3 og 3/3 efþarf.
Stjarnan - KA
Leika 27/2, 1/3 og 3/3 efþarf.
Undanúrslit
Valur/Haukar -
Afturelding/FH
Leika 7/3, 9/3 og 11/3 etþarf.
Stjarnan/KA -
Víkingur/ÍR
Leika 8/3, 10/3 og 12/3 efþarf.
Undanúrslit
Stjarnan/Armann -
KR/ÍBV
Lelka 10/3,12/3 og 14/3 efþarf.
Fram/Haukar -
Víkingur/FH
Leika 11/3, 13/3 og 15/3 etþari.
8 liða úrslit
Stjarnan - Ármann
Leika 1/3, 3/3 og 5/3 etþarf. .
KR-ÍBV
Leika 1/3, 3/3 og 5/3 efþart.
Fram - Haukar
Leika 2/3, 4/3 og 6/3 etþarf.
Víkingur -FH
Leika 2/3, 4/3 og 6/3 etþarf.
■ ARNAR Grétarsson, landsliðs-
maður í knattspymu, sem var í við-
ræðum við Fram, verður áfram hjá
Breiðabliki — skrifaði undir tveggja
ára samning við félagið um helgina.
■ ÞÓRHALLUR Hinriksson,
unglingalandsliðsmaður í knatt-
spymu úr KA, er genginn til liðs við
Breiðablik. Faðir hans, Hinrik Þór-
hallsson, lék með Kópavogsliðinu
áður en hann flutti norður og fór í
KA.
■ IRINA Privalova frá Rússlandi,
sprettharðasta kona heims, stóð und-
ir nafni um helgina er hún náði glæsi-
legum árangri í 60 og 200 m hlaupi
á innanhússmóti í Lievin í Frakk-
landi. Hún fór 60 m á 6,97 sek. —
aðeins 0,05 sek. frá heimsmetinu sem
hún setti í síðasta mánuði — óg í
200 m gerði hún enn betur; bætti
eigið Evrópumet er hún hljóp á 22,10
sek. Gamla metið var 22,15.
■ SERGEJ Bubka frá Úkraínu
gerði þtjár tilraunir til að bæta
heimsmet sitt í stangarstökki inn-
anhúss á sama móti í Frakklandi,
en mistókst. Metið er 6,15. „Ég veit
að ég er fær um að bæta metið,“
sagði Bubka, sem hefur sett 35
heimsmet á ferlinum, — „ég verð
bara að vera þolinmóður."
■ BRESKI hnefaleikakappinn
Frank Bruno var ekki lengi að af-
greiða andstæðing sinn í þungavigt-
arbardaga í hringnum um helgina.
Hann mætti Rodolfo Marin frá
Puerto Rico á laugardaginn, og rot-
aði hann eftir 60 sekúndur.
■ BRUNO, sem er 33 ára, hefur
þrívegis keppt um heimsmeistaratit-
il, en aldrei sigrað. Meistaraslag hef-
ur hann tapað fyrir Bandaríkjamönn-
unum Tim Witherspoon og Mike
Tyson og landa sínum Lennox Lew-
is. Nú er talið líklegt að hann fái
fjórða tækifærið til að keppa um
heimsmeistaratitil — mæti sigurveg-
aranum úr viðureign Olivers
McCall, heimsmeistara WBC, og
Larry Holmes, en þeir eigast við í
apríl.
■ MARK Warnecke frá Þýska-
landi, sem lenti í vélhjólaslysi í fyrra
og missti af heimsmeistaramótinu
vegna meiðsla, mætti til leiks á ný
um helgina, á síðasta heimsbikar-
móti keppnistímabilsins í 25 m laug,
í Gelsenkirchen í Þýskalandi og
setti strax heimsmet í 50 m bringu-
sundi — synti á 27,00 sek.
■ ÁSTRALSKA stúlkan Angela
Kennedy setti einnig heimsmet um
helgina. Kennedy, sem setti heims-
met í 50 flugsundi um fyrri helgi,
lét ekki deigan síga í Gelsenkirchen
og bætti nú metið í 100 m flugsundi
— synti á 58,77 sek. og bætti þar
með eitt elsta sundheimsmetið, 58,91
sek. sem bandaríska stúlkan Mary
Meagher setti í janúar 1981.
■ UNGVERSKA stúlkan Kriszt-
ina Egerszegi setti Evrópumet í 200
m baksundi á mótinu, synti á 2.06,98
mín, en gamla metið, 2.07,30 átti
Lorenza Vigarini frá Ítalíu.
■ VLADIMIR Selkov frá Rúss-
landi bætti Evrópumetið í 25 m laug
í 50 m baksundi karla á heimsbikar-
mótinu, fór á 24,56 sek. en Frakkinn
Franck Schott átti gamla metið,
24,60^ sek.
■ ÞÝSKA stúlkan Sandra Voelker
setti einnig Evrópumet í Gelsenkirc-
hen; í 100 m baksundi er hún fór
vegalengdina á 59,51 sek. sem er
0,24 sek. betri tími en metið sem
hún setti sjálf á heimsbikarmóti í
Sheffield á Englandi viku áður.
Mikil átök eru nú framund-
an þjá handknattleiks-
mönnum — úrslitakeppnin um
íslandsmeistaratitilinn er að
he§ast. Það verður hart barist
á mörgum vígstöðvum; spenna
og barátta upp á líf og dauða
ekki á hættu að verða fyrir
meiðslum.
Dómarar leika stórt hlutverk
í leikjunum sem framundan eru
— þeir verða að mæta vel upp-
lagðir til ieiks, sýna yfírvegun
og rökfestu. Þeir verða að hafa
verður háð. Fors-
mekkurinn að því
sem koma skal sást
að Hlíðarenda, þar
sem Valsmenn og
Stjörnumenn kepptu
um deildarmeistara-
titilinn og ekki var
baráttan minni á Akureyri, þar
sem KA og Afturelding áttust
I keppni verða menn
að sætta sig við tap
og kunna að taka því
• við. Ljóst er að það verður ekk-
ert gefið eftir og þau lið sem
ná að sýna bestan vamarleik
standa uppi sem sigurvegarar.
Taugaspennan verður mikil og
mun baráttan eflaust koma nið-
ur á gæðum handknattleiksins,
sem verður þá ekki augnayndi.
Stuðningsmenn liðanna sem
leika eiga eftir að setja sinn
svip á leikina, eins og áður —
og þeir geta verið miskunar-
lausir; bæði gagnvart mótheij-
um og dómurum. Að Hlíðarenda
var bjórdós kastað inn á völlinn,
sem betur fer hafnaði hún ekki
á leikmönnum eða dómurum.
Þetta sýnir að það þarf að hafa
góða öryggisgæslu í íþróttahús-
unum, þannig að áhorfendur
geti ekki valsað um með hættu-
lega hluti, sem þeir kasta frá
sér í hita leiksins. Það eru for-
ráðamenn félaganna sem bera
ábyrgð á því ef slys verða á
heimavöllum þeirra. Fyllsta ör-
yggís verður að gæta, þannig
að leikmenn og dómarar eigi
vakandi augu fyrir brotum og
að ieikmenn hagnist ekki á leik
sínum; til dæmis með því að
stíga niður inn í vítateig áður
en þeir kasta knettinum að
marki. Homamenn liða hafa
tamið sér þetta undanfarin ár —
þegar þeir hafa svifið inn úr
hornum, þannig að þeir hafa
getað unnið sér tíma til að sjá
út hvað markverðir gera, sem
koma út gegn þeim. Umræður
um þetta urðu háværar í úrslita-
keppninni sl. keppnistímabil og
þá sást greinilega á sjónvarps-
myndum, að leikmennimir vom
'lentir áður en þeir losuðu sig
við knöttinn.
Það veltur allt á hegðun
áhorfenda, leikmanna, þjálfara
og dómara, að leikimir verði
drengilega leiknir. Ef menn fara
með réttu hugarfari til leiks,
þarf ekkert að óttast. Það kem-
ur ekki í hlut allra að fagna
sigri; í keppni verða menn einn-
ig að sætta sig við tap og kunna
að taka því.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
Afhverju var SIGURÐUR GYLFASOIM nær ósigrandi á heimavelli norðanmanna?
Eigum að keppa
fyrir ánægjuna
SIGURÐUR Gylfasson vélsleðaökumaður vann þrjú gull og
eitt silfur í fyrsta vélsleðamóti ársins, á Akureyri um helgina.
Þessi 24 ára Garðbæingur er ekki óvanur gullinu. í fyrra tók
hann 14 sinnum þátt f einstökum keppnisgreinum í mismun-
andi flokkum, vann 8 gull, 3 silfur, 2 brons og varð einu sinni
fjórði. Á sínu fyrsta keppnisári á vélsleðum, 1993, vann hann
tvö gull og sló reyndari menn útaf laginu. Sigurður vinnur sem
bílstjóri á malarflutningabíl og ekur einnig stórvirkum vinnu-
tækjum. Hann beitir því aksturstækni sinni öllum stundum, í
vinnu og leik. Hann hefur lítið stundað aðrar íþróttir, en keppti
þó á yngri árum í skútusiglingum og sfðar í kvartmílu á mótor-
hjóli, þar sem hann varð bikarmeistari.
Ífyrra ók Sigurður Ski-Doo, en
mun í ár aka nýjum Polaris á
Islandsmótinu og hugsanlega
einnig á Ski-Doo í
einhveijum flokk-
Gunnlaug um. Hann skiptist
Rögnvaldsson á að aka slíkum
sleðum um helg-
ina. Venjulega halda menn sig við
eitt merki, en af hveiju ekki Sig-
urður?
„Polaris er aðal sleðinn minn í
vetur, en Ski-Doo sleðinn var til
staðar í minni vélarflokknum og
til að fá sem mesta æfíngu útúr
fyrsta mótinu þá ákvað ég að
keppa í öllum flokkum. Það var
óneitanlega sætt að vinna alla
nýju sleðana á ársgömlum Ski-
Doo. Þá sakaði ekki að leggja
norðanmenn að velli á heimavelli
þeirra", sagði Sigurður við Morg-
unblaðið.
Er mikill rígur milli norðan- og
sunnanmanna í vélsleðamótum?
„Það sýnist mér. Það héfur allt-
af verið einhver metingur á milli
manna, en mér finnst það slæmt
þegar metingur snýst upp í hrein
leiðindi. Þá er betra að sitja
heima.“
Telur þú að þú hafir verið
keyrður visvítandi útúr brautinni
í undanrásunum?
„Já. Mér finnst menn farnir að
taka þessa íþrótt of alvarlega,
þegar svona brögðum er beitt.
Við eigum að keppa fyrir ánægj-
una og það að gera hlutina eins
vel og við getum. Hugsa um sjálfa
okkur og aksturinn, ekki hvað
andstæðingurinn er að gera. Ann-
að kemur mönnum í koll, eins og
hefur oft sýnt sig. Það er sama
um hvaða íþrótt er að ræða. “
Þú virtist hafa ótrúlegt úthald,
kepptir í öllum flokkum. Hvaðan
kemur þessi styrkur?
„Hann er bara náttúrulegur,
ég hef ekki æft líkamsrækt sér-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigurður Gylfason vann þrjú gull og eltt sllfur á Akureyri.
Hann hefur elnnlg keppt í slgllngum og á mótorhjóli í kvartmílu.
staklega vel. Ég keyrði mikið í
fyrra, en vantar góðan æfingafé-
laga á heimaslóðum, sem nennir
að keyra mikið. Því æfi ég mun
minna núna.“
Verður keppnin harðari í vetur
en í fyrra?
„Já. Tíu fremstu ökumennirnir
keppa allir í flokki stærri sleða,
til dæmis í snjókrossinu, þar sem
lætin eru me_st. Menn eru búnir
að útbúa geysilega öfluga sleða,
með 120-140 hestafla vélar og
sérstaklega útbúna íjöðrun. Ég
hef skoðað menn mikið á mynd-
böndum og sjálfan mig í akstri,
til að sjá hvað betur mætti fara
og finna betri ökulínur."
Hverjir verða þínir helstu and-
stæðingar?
„Ég hef trú á að Vilhelm Vil-
helmsson verði geysilega sterkur.
Ég tapaði núna fyrir honum í ein-
um flokki eftir harða og skemmti-
lega keppni. Hann er gríðarlega
góður og ég verð að einbeita mér
vel til að vinna hann, snúa á hann.
Þá verður Guðlaugur Halldórsson
sleipur og Islandsmeistarinn í
snjókrossi, Gunnar Hákonarson
sem komst að vísu ekki í úrslit
núna. Það verður hörð keppni í
vetur og vonandi drengileg, þó
atgangurinn sé oft mikill."
Áttu íslandsmeistaratitilinn
vísan, miðað við árangur helgar-
innar?
„Hugurinn leitar sigurs. Ég er
ákveðinn í að vinna í hvert skipti
sem ég legg af stað í keppni.
Annað kemst ekki að og annað
skilar ekki árangri. Hver veit hvað
gerist, en hart verður barist um
titilinn. Vonandi á réttlátan
hátt...“