Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGAR 8. APRÍL
NÝ LÖG um málefni fatlaðra
staðfesta réttindi fatlaðra á við
aðra þjóðfélagsþegna. Það verður
fróðlegt að fylgjast með hvernig
þessum lögum verður framfylgt í
verki þegar á reynir. Með aukinni
þátttöku fatlaðra á hinum ýmsum
sviðum þjóðlífsins verða auknar
kröfur gerðar til atvinnuveitenda
uní að ráða fatlað fólk í vinnu.
Síaukinn áhugi fatlaðra nemenda á
framhaldsnámi krefst þess að fram-
haldsskólar marki skýra stefnu
varðandi inntöku þessara nemenda.
Aðgengismál eru víða í miklum
ólestri og hafa í nokkrum tilvikum
orðið þess valdandi að hreyfihaml-
aðir námsmenn hafa horfið úr skóla.
Fatlað fólk án nokkurrar menntun-
ar er illa í stakk búið til þess að
keppa á hinum almenna vinnumark-
aði. Því er góð menntun brýnt hags-
munamál í lífsbaráttu þessa hóps
auk þess sem slíkt skilar þjóðfélag-
inu sjálfstæðari og hæfari þjóðfé-
lagsþegnum.
A Islandi sem í mörgum öðrum
löndum fer hagsmunabarátta fatl-
aðra fram á vegum sérhagsmuna-
samtaka fatlaðra með mismiklum
stuðningi stjórnvalda. Árið 1993
settu Sameinuðu þjóðirnar á fót
sérstakan sjóð undir forsæti Javier
Perez de Cuellar, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Hlutverk þessa
sjóð á að vera að
styrkja fijáls félaga-
samtök um allan heim
sem vinna að málefn-
um fatlaðra. Forsvars-
menn sjóðsins telja slík
samtök best til þess
fallin að bæta aðstæð-
ur fatlaðra þar sem
sérþekkingin er til
staðar innan þeirra.
Talið er að 1 á móti 10
í heiminum í dag búi
við einhvers konar fötl-
un. Reiknað er með því
að ijöldi fatlaðra í
heiminum muni aukast
gífurlega á næstu
árum og áratugum. Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin, WHO, hefur hvatt
þjóðir heims til þess að vinna eftir
kjörorðinu „heilbrigði allra árið
2000“. Samkvæmt upplýsingum
landlæknis eru á íslandi tvöfalt
fleiri einstaklingar á örorkubótum
á aldrinum 16-29 ára en á hinum
Norðurlöndunum. Þetta eru athygl-
isverðar upplýsingar. Samtök fatl-
aðra þurfa að vera vakandi fyrir
öllum þeim atriðum sem skipt geta
máli fýrir þennan hóp sem og aðra
fatlaða hér á landi. Samvinna við
aðrar þjóðir er mjög brýn og ekk-
ert tækifæri má láta ónotað til þess
að gefa ungu fötluðu
fólki trú á framtíð sína
og þá möguleika sem
í boði eru, ekki aðeins
hér á íslandi heldur
einnig í öðrum löndum.
Fulltrúar Evrópu-
sambandsins kynntu
stefnu ESB í málefnum
fatlaðra á fundi sem
boðað var til í Sollefta
í Svíþjóð 26. febrúar
sl. Aðildarlöndum Evr-
ópusambandsins bjóð-
ast nú fjölmörg sam-
starfsverkefni sem
varða stóraukin tæki-
færi fyrir fatlaða á
ýmsum sviðum. Margt
athyglisvert kom fram á þessum
fundi sem sóttur var af fulltrúum
allra Norðurlandanna. Fulltrúar ís-
lartds og Noregs reyndu að fá skýr
svör varðandi rétt þjóða sinna til
þátttöku í þessum mikilvægu sam-
starfsverkefnum. Svo virðist sem
ákvæði í EES-samningnum muni
gera íslandi kieift að taka þátt í
nokkrum þessara samstarfsverk-
efna en ljóst er að áhrif Islands og
Noregs á stefnu og framgang þess-
ara mála í Evrópu verða mjög tak-
mörkuð. Þama er um að ræða fjöl-
mörg ný tækifæri í samstarfi Evr-
ópuþjóða sem varða sérstaklega
fatlaða og framtíðarmöguleika
þeirra. Þessi verkefni eru m.a.
HELIOS; Fjölbreytt verkefni sem
varðar ýmis brýn hagsmuna- og
félagsmál fatlaðra. HANDYNET;
Sérútfært tölvunet sem hefur að
geyma ótæmandi upplýsingabanka
sem sérhæfður er í að veita upplýs-
ingar um og kynna vörur og þjón-
ustu sem tengist fötlun. Slíkur upp-
lýsingabanki gefur t.d. nákvæmar
upplýsingar um hin ýmsu hjálpar-
tæki fyrir fatlaða sem framleidd eru
í Evrópu, samstarfsverkefni sem í
boði eru í hverju landanna varðandi
menntunar og atvinnumöguleika
mismunandi fötlunarhópa o.s.frv.
HORIZON; varðar menntun og
atvinnumál fatlaðra.
Það stríðir gegn réttlæt-
iskennd minni, segir
Anna Karólína Vil-
hjálmsdóttir, að flokk-
arnir neiti okkur að
kynnast kostum og göll-
um ESB-aðildar.
TIDE; varðar þróun á útfærslu
á aðgengi og tækni sem léttir dag-
legt líf fatlaðra og aldraðra;
ÍÞRÓTTANEFND ESB; varðar
íþróttamálefni fatlaðra í Evrópu.
EDUCATION TRAINING YO-
UTH; varðar möguleika ungs fólks
til náms og atvinnu í aðildarlöndum
Evrópusambandsins.
Það stríðir mjög gegn minni rétt-
lætiskennd að stjómmálaflokkar á
íslandi geti neitað mér og öðrum
Islendingum um að kynna okkur
kosti og galla aðildar að Evrópu:
sambandinu. Ég trúi ekki að spá-'
dómsgáfa stjórnmálaforingja hér á
íslandi sé slík að þeir þurfi ekki að
láta reyna á með viðræðum hvort
samningur náist um fullan yfirráða-
rétt yfir sjávarauðlindinni sem er
forsenda aðildar að ESB. Aðeins
einn stjómmálaforingi á íslandi
hefur staðfastlega efast um spá-
dómsgáfu sína í þessu máli og talið
nauðsynlegt, að til þess að raunhæf
niðurstaða um kosti og galla aðildar
að ESB liggi fyrir, þurfi að kanna
málið fyrst. Er það eðlilegt í stjórn-
málum að kanna ekki málin áður
en ákvarðanir eru teknar? Kannski!
Með fullri virðingu fyrir hinum
sjálfskipuðu spámönnum íslands.
Hvernig geta stjórnmálamenn sem
valdir em til forystu í þjóðmálum
komið fram af slíku virðingarleysi
við hinn almenna borgara. Það eru
einfaldlega lágmarksmannréttindi
að fá að vita um hvað þetta mikil-
væga mál snýst. ESB er ekki fjar-
læg skammstöfun sem kemur ís-
lendingum ekki við. Það staðfesta
hin fjölbreyttu samstarfsverkefni
aðildarlanda ESB í mennta- og fé-
lagsmálum.
Framtíðin er of dýrmæt til þess
að mál sem varða framtíðarhags-
muni sjálfstæðrar eyþjóðar og íbúa
hennar verði afgreitt með svo
óábyrgum hætti. Því hljóta allir að
vera sammála.
Höfundur erfrkvslj. hjá
íþróttasambandi fatlaðra og
skipar 2. sæti á lista
Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Ný tækifæri fyrir
fatlaða Islendinga
Anna Karólína
Vilhjálmsdóttir
Efnahagslegur
stöðugleiki - áfram!
ÞEGAR ríkisstjóm
Davíðs Oddssonar tók
við völdum árið 1991
var mikið uppnám í
íslenskum efnahags-
málum. Óhætt er að
segja að enginn hafí
verið öfundsverður af
því að taka við stjóm
landsins við þær að-
stæður sem ríktu fýrir
fjórum ámm. Ekki var
aðeins um að kenna
neikvæðum ytri að-
stæðum heldur einnig,
og ekki síst, slæmri
efnahagsstjóm ríkis-
stjómar Steingríms
Hermannssonar og Ólafs Ragnars
Grímssonar. Minna má á að hinn
síðamefndi, sem var fjármáiaráð-
herra síðustu vinstri stjómar, ber nú
tmmbur og lyftir upp skiltum í sjón-
varpsútsendingu frá eldhúsdagsum-
ræðu Alþingis fýrir tveimur vikum
eða svo.
Ríkisstjómin, undir forystu sjálf-
stæðismanna, tók þegar til við um-
fangsmiklar aðgerðir til þess að
draga úr vaxandi atvinnuleysi, sem
hafði verið nánast óþekkt á undan-
fömum áratugum, og til að stuðla
að stöðugleika á vinnumarkaði og í
verðlagsmálum. Ýmislegt var gert,
m.a. vom atvinnuskapandi fram-
kvæmdir og reynt var að vemda
kaupmátt launa, t.d. með því að
lækka virðisaukaskatt á matvælum.
Verðlag á matvælum hefur reyndar
verið það stöðugt að velta má því
fyrir sér hvort dæmi séu um slíkt
áður hér á landi. Lágt verðbólgustig
hefur að sjálfsögðu sitt að segja í
þessum efnum en hér hefur verð-
bólga verið með því lægsta sem ger-
ist í heiminum. I fyrsta sinn í sögu
lýðveldisins er verðbólga undir 5%
fjögur ár í röð, þ.e.a.s. frá árinu
1992 þegar aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar fóm að sýna þann árangur sem
við sjáum nú í meiri efnahagslegum
stöðugleika en kynslóð undirritaðrar
þekkir. Minnkandi ríkisafskipti í við-
skiptum hafa sannarlega sýnt það
og sannað að fijáls sam-
keppni leiðir til lægra
verðlags.
Ríkisstjóm Davíðs
Oddssonar hefur lagt
ríka áherslu á að rétta
þjóðarskútuna við eftir
stormsveipi ríkisstjómar
Steingríms Hermanns-
sonar og Ólafs Ragnars
og frá upphafí kjörtíma-
bilsins hefur stefíian ver-
ið á þann efnahagslega
bata sem við emm nú
að byrja að sjá. Mikil-
vægt er að þeim ávinn-
ingi og stöðugleika verði
ekki fómað því þótt já-
kvæð merki séu á lofti á ýmsum
sviðum þjóðfélagsins emm við enn
að vinna okkur út úr þeim vanda,
sem glímt hefur verið við, og forðast
verður kollsteypur í efnahagsmálum
Við megum ekki gera
neitt núna sem stefnir
árangri ríkisstjómar-
innar í tvísýnu, segir
Ellen Ingvadóttir - við
höfum hreinlega ekki
efni á því!
þjóðarinnar. Ekki má stefna árangri
ríkistjómarinnar í tvisýnu. En hver
er árangurinn?
1. Eins og fyrr greinir er verð-
bólga með því lægsta sem gerist í
heiminum, þ.e. hún hefur verið lægri
en 5% í tæp tjögur ár.
2. Afgangur er á viðskiptajöfnuði,
þriðja árið í röð, en slíkt hefur ekki
gerst áður í sögu lýðveldsins.
3. Erlend skuldasöfnun hefur ver-
ið stöðvuð og nú greiðum við erlend-
ar skuldir okkar niður í stað þess
að auka við þær. ,
4. Atvinnuleysi, sá ógæfudraugur,
fer minnkandi á árinu 1995 enda
verða um 1.300 ný störf sköpuð.
Einnig er raunhæft að álykta að
fyrirtæki, sem njóta betri rekstr-
arskilyrða en áður, komist í þá að-
stöðu að geta fjölgað starfsmönnum
í takt við vaxandi umsvif.
5. Útflutningur eykst vegna betri
rekstrarskilyrða og einnig vegna
efnahagsbata í nágrannaríkjunum.
6. Hagvöxtur glæðist en hann er
áætlaður um 2% á þessi ári.
Ýmislegt fleira er unnt að telja
til, svo sem verulegur árangur í
lækkun vaxta, sem er auðvitað bein
kjarabót fyrir ijölskyldurnar. Einn
er sá þáttur sem ekki hefur verið
undirstrikaður nægjanlega í þessari
grein, en það er sú nauðsyn að við-
halda efnahagslegum stöðugleika til
þess að tryggja rekstrargrundvöll
fyrirtækja. Baráttan við atvinnuleysi
er harla ólíkleg til árangurs ef fyrir-
tækjum er ekki gert kleift að stækka
með bættum rekstrarskilyrðum. Ef
fyrirtæki eiga erfítt uppdráttar, t.d.
vegna þess að að þeim er sótt af
ríkinu, em ekki miklar líkur á því
að þau sjái sér hag í því að fjölga
starfsfólki.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
verið við stjómvölinn í fjögur ár og
lagt hart að sér við að koma íslensk-
um efnahag upp úr þeim öldudal sem
hann var í. Sumum fínnst kannski
batinn koma seint í ljós en þegar
ofangreind atriði eru skoðuð þarf
vart frekari vitna við. Tekist hefur
að snúa varnarleik í sókn og atvinnu-
lífið er farið að sýna vaxtarbrodda
sem eiga eftir að blómgast, en að-
eins ef rétt er haldið á spöðunum.
Við megum ekki gera neitt núna sem
stefnir árangri ríkisstjómarinnar í
tvísýnu — við höfum hreinlega ekki
efni á þvf. Árangur þessi gefur okk-
ur íslendingum fyllstu ástæðu til
bjartsýni um framtíðina, framtíð
grósku í atvinnulífí og efnahagslegs
stöðugleika sem vel hefur verið unn-
ið að sl. fjögur ár.
Höfundur er löggiltur dómtúlkur
og skjalaþýðandi ogskipar 16.
sæti & lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Ellen Ingvadóttir
Okkarframtíð
AF HVERJU ætti
ungt fólk að taka af-
stöðu í stjórnmálum og
taka þátt í stjómmála-
starfi? Ástæðan er
mjög einföld, stjórnmál
snúast um okkar fram-
tíð. Eðlilega hefur ungt
fólk ekki sömu reynslu
og þeir sem eldri em
og oft og tíðum, þó að
það sé ekki algilt,
jafnmikla þekkingu. Á
móti kemur að ungt
fólk hugsar um fram-
tíðina og nálgast
stjórnmálin meira út
frá hugmyndum og
hugsjónum heldur en
þeir sem eldri eru. Það er nauðsyn-
legt að í stjórnmálum heyrist rödd
þeirra sem hugsa til framtíðar. Því
sterkari sem sú rödd er þeim mun
meiri líkur eru á að vel fari fyrir
okkar þjóð. Að hugsa til framtíðar
er að hafa þor til að horfast í augu
við raunveruleikann og gera áætl-
anir út frá því. Það er hlutverk og
hagur ungs fólks að sjá til þess að
það verði gert.
Ríkissjóðshallinn bitnar
á ungu kynslóðinni, seg-
ir Guðlaugnr Þór
Þórðarson, sem borgar
skuldir samfélagsins.
Stutt er í kosningar og vafalaust
kvíða því margir sem eru að kjósa
í eitt af fyrstu skiptunum að gera
upp hug sinn. Ungu fólki fínnst oft
og tíðum það ekki hafa fylgst nægj-
anlega vel með til að taka afstöðu.
Afskaplega fáir ein-
staklingar hafa tæki-
færi til þess að fylgjast
gaumgæfilega með
stjórnmálum. Það eru'
helst aðilar sem hafa
slíkt að atvinnu eins
og t.d blaðamenn, aðrir
verða að móta sér:
skoðun með minni fyr-
irhöfn ef svo má að
orði komast. Það er
hins vegar mjög nauð-
synlegt að það sé gert.
Kosningarétturinn er
tæki okkar til að hafa
áhrif. Vegna hans ,
verða stjórnmálamenn
að taka tillit til ungs ,
fólks.
Ég vil hvetja þig til þess að kynna
þér málin. Spurðu stjórnmálamann-
inn, sem kemur hlaðinn loforðum á
þinn fund, hvernig hann ætlar að!
fjármagna þau, því að þú þarft að * 1 2 3 4
borga með einum eða öðrum hætti.11
Ríkissjóðshalli í dag kemur niður á
ungu kynslóðinni, sem eftir nokkur
ár mun verða að borga hærri skatta
eða sætta sig við harkalegan niður-
skurð á opinberri þjónustu, sem
hefur verið byggð upp án þess að
þjóðin hefði efni á henni.
Á þessu kjörtímabili hefur í
fyrsta skipti í tvo áratugi verið snú-
ið af braut sívaxandi ríkisútgjalda
og skuldasöfnunar þjóðarinnar. Það
er hagur ungs fólks. Eina af ástæð-
um þess tel ég vera málflutning
ungs fólks innan Sjálfstæðisflokks-0
ins. Taktu þátt, þetta er okkar;
framtíð.
Höfundur er fornmður Snmbands
ungra sjálfstæðismanna og skipar
3. sæti lista Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
xwrevf/iz/ 5 88 55 22