Morgunblaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 4
Urðum
að vinna
Eiríksson
skrífar frá
Akureyri
„ÞAÐ var mjög gott að vinna
og í raun nauðsynlegt," sagði
Erlingur Kristjánsson fyrirliði
KA eftir leikinn. „Þetta var
■■■■■■ mjög erfiður leik-
Reynir B. ur og jafn allan
tímann. Það var
mikil spenna í
leikmönnum og
talsvert af mistökum sem ég tel
að megi rekja til þess. Nú er
stutt hvíld framundan áður en
við höldum á Hlíðarenda og
mikilsvert að nýta þennan tíma
vel til þess að safna kröftum
því það verður örugglega erfið-
ur leikur þar sem ekkert verður
gefið eftir frekar en í kvöld.“
Ætlum að
brjóta hefð KA
„LEIKURINN í kvöld var mjög
erfiður og við vorum klaufar
að klára þetta ekki í venjulegum
leiktíma, við vorum yfir þegar
stutt var eftir og töpuðum því
niður í jafntefli,“ sagði Þor-
björn Jensson þjálfari Vals.
„Við komum með því hugarfari
að vinna í kvöld en það gekk
ekki eftir og þá er bara að taka
fyrir næsta leik á Hlíðarenda.
Það hefur skapast hefð hjá KA
í úrslitakeppninni að vinna ann-
an útileikinn og við verðum að
gjöra svo vel að bijóta þá hefð
á bak aftur.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
PATREKUR Jóhannesson var skæður í KA-liðinu í gærkvöldi og gerði fimm mörk. Hér er hann
á lelðlnni í gegnum Valsvörnina, framhjá Finni, Jóni og Geir fyrirliða.
Óvinnandi vígi?
KA-menn sigruðu Val eftir framlengingu, 23:22, í annari viður-
eign liðanna um íslandsbikarinn í handknattleik, á Akureyri í
gærkvöldi. Þar með er staðan í keppninni um titilinn orðin
jöfn, hvort lið hefur sigrað einu sinni, en þrjá sigra þarf til að
fagna meistaratitli. KA-menn halda því uppteknum hætti í úr-
slitakeppninni; bæði íátta liða og undanúrslitum byrjuðu þeir
á að tapa á útivelli, sigruðu síðan heima og aftur úti. Nú er
spurning hvort þeim tekst að ná þeim árangri enn einu sinni.
Er það nánast óvinnandi vígi að sigra KA á heimavelli liðsins?
Að vanda Að vanda var stemmn-
ingin gríðarleg í KA-heimilinu
og spennan mögnuð, enda jafnræði
■■■■■ mikið með liðunum;
Stefán Þór allt var í jámum nán-
Sæmundsson ast allan tímann.
skrífar frá Leikurinn hófst
Akureyri með mikilli baráttu
og kraftmiklum varnarleik beggja
liða. Staðan var jöfn, 5:5, eftir 14
mínútna leik og hafði Geir Sveinsson
gert fjögur af mörkum Vals þegar
þar var komið sögu — öll af línu.
Valdimar Grímsson lék framarlega í
KA-vörninni og hafði þannig góðar
gætur á Jóni Kristjánssyni, sem var
KA-mönnum erfiður í leiknum að
Hlíðarenda á laugardag, og hinum
megin var Ingi Rafn Jónsson í sama
hlutverki gegn Patreki Jóhannessyni.
KA-menn komust yfir er líða tók
á hálfleikinn; náðu þriggja marka
forskoti, 11:8, eftir að Valdimar hafði
skorað tvö mörk í röð eftir hraðaupp-
hlaup. Dramatíkin var svo mikil í lok
hálfleiksins — staðan 12:9 fyrir KA
og örfáar sekúndur eftir þegar línu-
maðurinn Finnur Jóhannsson lyfti
sér upp talsvert aftan punktalínunn-
ar og þrumaði í netið. Þetta fór í
skapið á Sigmari Þresti markverði,
sem stympaðist eitthvað við Geir
Sveinsson og var rekinn út af. Arni
Stefánsson, liðsstjóri KA, var óhress
með þessa ákvörðun dómaranna og
leyndi þeirri skoðun sinni ekki — og
enduðu viðskipti hans við bræðurna
svartklæddu, Egil Má og Örn, með
því að honum var sýnt rauða spjaldið.
KA-menn hófu seinni hálfleikinn
tveimur færri, þar sem einn leik-
manna liðsins, varð að fara útaf í
tvær mínútur vegna brottreksturs
Árna. En þeir höfðu tveggja marka
forskot, 12:10, og byijuðu með bolt-
ann. Fjórir gegn sex Valsmönnum
tókst leikmönnum KA að fá víta-
kast, en Valdimar mistókst að koma
liðinu þremur mörkum yfir þvi Guð-
mundur varði frá honum. KA-menn
náðu hins vegar boltanum og Valdi-
mar bætti fyrir mistökin með því að
skora með langskoti og þar með
höfðu heimamenn náð þriggja for-
ystu á ný. Þeir héldu henni um tíma,
en þegar staðan var 15:12 kom
hornamaðurinn Davíð Ólafsson
sterkur inn hjá Val og gerði þrjú
mörk með skömmu millibili og jafn-
aði 15:15.
Grimmileg barátta þessara
tveggja sterkustu varna landsins,
sem tóku á öllu sínu, hélt áfram;
KA-menn gerðust of bráðlátir í sókn-
inni og Valsmenn náðu forystunni,
komust -í 19:17 er átta mín. voru
eftir af ieiknum. Þá tóku við langar
sóknir, harkan söm, en Alfreð og
Valdimar jöfnuðu 20:20. Valdimar
gerði síðasta markið er 1 mín. og
50 sek. var eftir en KA-vörnin hélt
það sem eftir var og því þurfti að
framlengja.
Erlingur Kristjánsson var rekinn
út af á lokasekúndum leiksins og
KA-menn voru því færri er framleng-
ing hófst. Valsmenn byijuðu með
boltann en KA gerði samt fýrsta —
og eina — mark fyrri hálfleiks. í
seinni hálfleik framlengingar brá
Valdimar sér inn á línu eftir hálfrar
mínútu leik og skoraði, 22:20, Dagur
minnkaði muninn er 2,14 mín. voru
eftir, Patrekur hringsnérist í gegnum
vörn Vals er 1,40 mín. var eftir og
skoraði á glæsilegan hátt, 23:21 og
Ólafur Stefánsson skoraði úr víti er
1,17 mín. var eftir, 23:22. KA-menn
klúðruðu næstu sókn en Sigmar
Þröstur tryggði þeim sigurinn í lok-
in; varði glæsilega frá Ólafi Stefáns-
syni á lokasekúndunum, eftir að Ól-
afur hafði brotist í gegn. KA-menn
fengu boltann en röf var reyndar
dæmd á liðið á síðustu sekúndunni.
Valur fékk þar með aukakast, á eig-
in vallarhelmingi, sem ekkert varð
úr og heimamenn fögnuðu.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÁRNI Stefánsson, liðsstjóri KA,
var spurður að því í viðtali við út-
varp Norðurlands í gærmorgun,
hvort hann réði í leikjum eða Alfreð
Gíslason, þjálfari. Arni svaraði á
þá leið að þeir ynnu þetta í samein-
ingu en í undanförum leikjum hefði
hann þó messað yfir strákunum að
mestu í hálfleik þar sem Alfreð
væri yfirleitt orðinn svo þreyttur að
hann gæti ekki talað.
■ MIKIL hjátrú er á meðal leik-
manna og eitt að því sem ailtaf er
í búningatösku KA er bleikur hár-
bursti sem lenti þar fyrir sigurleik
um daginn og er nú ómissandi.
■ TROÐFULLT var í KA heimil-
inu í gærkveldi og komu þeir fyrstu
um einni og hálfri klukkustund fyrir
leik til þess að taka þátt í stemmning-
unni og fá góð stæði.
■ ÞAÐ er mál manna á Akureyri
að margir sem lítinn áhuga hafa
sýnt íþróttum sæki nú leiki KA stíft
því vart sé hægt að hugsa sér betri
skemmtun.
■ HEIMAMENN nota einnig tæki-
færið þegar gesti í öðrum erinda-
gjörðum ber að garði og í gærkvöldi
höfðu Bandaríkjamenn, sem höfðu
ekki fyrr séð handbolta, að þeir hefðu
aldrei kynnst annarri eins stemmn-
ingu.
KA sigraði Val eftirframlengingu í annarri úrslitaviðureigninni
SuKNARNYTING
m
KA v
Mörk Sóknir %
Valur
Mörk Sóknir %
Annar eikur
liðanna i urslitum
íslandsmótsins,
þriðjudaginn
21. mars 1995.
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Víti
Urslitakeppmn i
handknattleik 1995
Þannig vörðu
þeir
Sigmar Þröstur Óskarsson
KA 10 (þar af 3 til mót-
herja): 4 (1) gegnumbrot, 3
langskot, , 2 (2) horn, 1 víti.
Guðmundur Hrafnkelsson
Val 10 (þar af 2 til mót-
heija): 5 langskot, 2 (1)
gegnumbrot, 1 horn, 1 (1) víti.
Axel Stefánsson, KA 2 (bæði
til mótheija): 2 (2) langskot.
HANDKNATTLEIKUR