Morgunblaðið - 06.04.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
Jftú rjjjtttftlaííiíi
■ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL
BLAD
KNATTSPYRNA
OlgaíKR
Olga Færseth, körfubolta- og knattspymukona,
hefur ákveðið, samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Morgunblaðsins, að leika með KR-ing-
um í 1. deild kvenna í knattspymu í sumar. Olga,
sem er 19 ára, hefur leikið með Breiðabliki undanf-
arin þrjú sumur og varð íslands- og bikarmeistari
með félaginu í fyrrasumar og varð auk þess marka-
hæst í deildinni í fyrra. Þess má geta til gamans
að hún varð einnig íslands- og bikarmeistari með
liði Keflavíkur í körfuknattleik í fyrra og í fyrra-
kvöld varð hún svo íslandsmeistari í körfuknatt-
leik með Breiðabliki.
Olga nær ekki að leika alla leiki KR í sumar
því um miðjan ágúst fer hún til Atlanta í Banda-
ríkjunum þar sem hún verður næsta vetur í skóla
auk þess sem hún mun leika körfuknattleik.
HANDKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Bjarki Sigurðsson til
liðs við Aftureldingu
Bjarki Sigurðsson, landsliðsmað-
ur úr Víkingi, hefur ákveðið
að leika með 1. deildarliði Aftureld-
ingar úr Mosfellsbæ á næsta leik-
tímabili. Samkvæmt öruggum
heimildum Morgunblaðsins verður
gengið frá samningum þar um í
dag. Bjarki hefur alla tíð leikið með
Víkingi en hefur nú ákveðið að
breyta til.
Bjarki, sem er 28 ára, leikur í
hægra hominu með landsliðinu en
hefur bæði leikið þar og sem skytta
fyrir utan hægra megin með Vík-
ingi. Hann mun því væntanlega
fylla skarð það sem Jason Ólafsson
skildi eftir sig en hann gerði á dög-
unum samning við Brixen á Ítalíu.
Bjarki er einn þeirra íslensku
handknattleiksmanna sem valinn
hefur verið í heimsliðið. Hann var
valinn í úrvalslið heimsmeistara-
keppninnar í Svíþjóð 1992 og lék
með liðinu í Kairó — gegn landsliði
Egyptaleik, leik sem settur var í í
tilefni afmælis egypska handknatt-
leikssambandsins.
Fyrsta landsleikinn lék Bjarki
árið 1987 gegn Dönum hér heima
og tapaðist sá leikur 17:21. Hann
hélt síðar með landsliðinu til Banda-
ríkjanna í æfingaferð og gerði þar
sitt fyrsta landsliðsmark. Alls hefur
hann leikið 152 landsleiki.
Rúnar einnig burt
Ljóst er að Rúnar Sigtryggsson,
sem lék með Víkingsliðinu í vetur
og þar áður með Val og Þór á
Akureyri, verður heldur ekki áfram
í herbúðum félagsins. Rúnar hygg-
ur á nám í Danmörku næsta vetur,
og talsverðar líkur eru á að hann
leiki með Ribe. Þá er ljóst að Gunn-
ar Gunnarsson verður ekki áfram
þjálfari Víkings.
Schumacher
nær drukkn-
aður við köfun
Michael Schumacher, þýski
heimsmeistarinn í kapp-
akstri, skýrði frá því í gær að
hann hefði nærri drukknað í síð-
ustu viku þegar hann var að kafa,
ásamt nokkrum öðrum, skammt
utan við strendur Brasilíu þar sem
hann var í fríi.
Schumacher fór á báti ásamt
kærustu sinni og fjórum öðrum
talsvert langt frá ströndinni til að
kafa. Þar vörpuðu þau ankerum
og heimsmeistarinn, ásamt þremur
öðrum, fór að kafa en kærasta
Schumachers og þjálfari hans urðu
eftir á bátnum þar sem þau fundu
fyrir sjóveiki og treystu sér ekki
til að kafa. „Það hefur verið um
40 metra dýpi þarna og ég tók
eftir því að ankerið færðist, en
hélt að það væri svo lítið að allt
væri í lagi,“ sagði Schumacher.
Eftir að kapparnir höfðu kafað í
45 mínútur komu þeir upp á yfir-
borðið á ný, en þá var báturinn
horfínn. „Við sáum bátinn ekki
fyrst en eftir að við höfðum synt
smá stund rétt grillti í hann. Hinir
þrír gáfust fljótlega upp og ég
synti einn að honum. Fólkið um
borð varð okkar ekki vart. Það var
erfiðasta klukkustund sem ég hef
upplifað,“ sagði hinn 26 ára gamli
Þjóðveiji.
„í fyrsta sinn hugsaði ég af al-
vöru um dauðann. Þetta var mar-
tröð,“ sagði Schumacher, sem náði
til bátsins og gat þannig bjargað
þremur félögum sínum sem lágu
máttlitlir á yfirborðinu þegar
Schumacher kom til baka á bátn-
um.
BJARKI Sigurðsson í kunnuglegrl stelllngu í Vfklngsbúningn-
um. Hann leikur með Aftureldlngu næsta vetur.
Guðni í
byrjunarliði
Bolton
GUÐNI Bergsson var í fyrsta
skipti í byrjunarliði Bolton
Wanderers í gærkvöldi, er liðið
sigraði Swindon 1:0 á útivelli í
ensku 1. deildinni. Það var Andy
Thompson sem gerði eina mark
leiksins á 88. minútu, en hann
gerði einnig mark Bolton gegn
Liverpool á Wembley um helg-
ina.
Guðni kom nokkuð við sögu í
leiknum, sem var fast leikinn.
Hann var einn sex leikmanna sem
fékk að líta gula spjaldið. Með
sigrinum komst Bolton í annað
til þriðja sætið ásamt Tranmera,
liðin eru með 68 stig en Midd-
lesbrough, sem er í efsta sæti er
með 72 stig.
Oldham vann Middlesbrough
1:0 í 1. deildinni í gærkvöldi og
Millwall tapaði 1:3 fyrir Port
Vale.
KORFUBOLTI
Tómasz
fær bolta
frá Orlando
TÓMASZ Lupinski, pólski dreng-
urinn sem bjargaðist úr snjóflóð-
inu í Súðavík í febrúar, fær í
kvöld afhentan að gjöf körfu-
bolta sem áritaður hefur verið
af öllum leikmönnum bandaríska
NBA-körfuboltaliðsins Orlando
Magic. Tómasz hefur mikinn
áhuga á bandaríska NBA-körfu-
boltanum og eitt það fyrsta sem
hann spurði um er hann fannst
í snjóflóðinu var hvernig leikur
Orlando og Philadelphia hefði
farið.
Eftir að starfsmenn Menning-
arstofnunar Bandaríkjanna lásu
um áhuga Tómaszar á banda-
ríska körfuboltanum í íslenskum
fjölmiðlum ákváðu þeir að beita
sér fyrir því að útvega honum
áritaðan bolta frá Orlando og
eins áritaðar myndir af leik-
mönnum Philadelphia. Nú hefur
það tekist og mun Parker Borg,
sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi, afhenda Tómaszi boltann
og myndirnar í leikhléi úrslita-
leiks Njarðvíkinga og Grindvík-
inga í Njarðvík í kvöld.
AC MILAN FYRST TIL AÐ SIGRA PARÍS SG í EVRÓPUKEPPIMIIMIMI í VETUR / C4