Morgunblaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 1
KORFUKNATTLEIKUR Margir sérfræð- ingar vilja ekki viðurkenna að hann er bestur 1995 MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL BLAÐ „ÞAÐ var mjög gott að þjálfa Rondey. Hann er rosalega samviskusamur og duglegur, leggur. sig hundrað prósent fram á öllum æfingum og svo rúmlega það i leikjum. Alveg eins og hugur manns,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, er Morgunblaðið leitaði álits hann á Rondey Robinson, leikmanni íslandsmeistaral- iðs Njarðvíkur, sem blaðið útnefndi í gær sem besta leikmann úrvalsdeildarinnar í vetur. Frið- rik tók einmitt við þjálfun UMFN fyrir fimm árum af Rondey, sem var upphaflega ráðinn sem þjálfari og leikmaður, en hætti fljótlega sem þjálfari. „Því miður er ekki hægt að segja þetta um alla atvinnumennina sem hingað koma, sumir eru full latir. Ég nota Rondey oft sem viðmið því hann er mikil fyrirmynd á þessu sviði. Hann er auk þess mjög sterkur, harður af sér, mikill dugnað- arforkur og í raun einstök persóna. Það eru margir körfuboltasérfræð- ingarnir sem sætta sig alls ekki við að hann er bestur. Hvernig stendur á því að hann leikur alltaf vel og skil- ar sínu? Málið er að Rondey gerir sér grein fyrir þvi sem hann getur og vinnur upp galla sína með vinnu og viðhorfi til leiksins. Hann hittir frekar illa af vítalínunni, og það er stundum sagt að hann gæti staðið á bryggj- unni og myndi samt ekki hitta sjóinn. Samt stendur hann oftast uppi sem sigurvegari. Þó hann sé ekki hávaxinn þá er hann mjög sterkur og bætir það þannig upp,“ segir Friðrik. ÍSIeikurviðHK í bikarúrslitum ÍS leikur til úrslita við HK f bikar- keppni karla 22. apríl. Eins og kunn- ugt er mætti ÍS liði Stjörnunnar í undanúrslitum keppninnar og tapaði. Síðan kærði ÍS lið Stjörnunnar fyrir að tefla fram ólöglegu liði í umrædd- um leik til dómstóls UMSK. Dómstóll UMSK dæmdi í málinu og var niður- staðan sú að liði ÍS var dæmdur sigur 3:0. Stjarnan áfrýjaði síðan þessu úr- skurði til dómstóls Blaksambands ís- lands, sem tók málið fyrir og stað- festi í gær úrskurð dómstóls UMSK. GUÐMUNDUR og Rondey. Veit sín takmörk „RONDEY er mjög sterkur inni í teignum og hans helsti kostur er hversu Iíkamlega sterkur hann er. Maður má aldrei slappa af gegn hon- um, ekki eitt augnablik," segir Guð- mundur Bragason leikmaður Grind- víkinga, sem hefur þurft að fást við Rondey hin síðari ár. „Rondey skorar ekki mikið af færi, enda er það sjálfsagt ekki hans hlut- verk, en hann er alveg eitraður undir körfunni. Það er slæmt fyrir mann eins og hann, sem mikið er brotið á, að vera ekki með betri vítanýtingu. Annar mikill kostur við Rondey er að hann virðist nákvæmlega vita sín takmörk," sagði Guðmundur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Robinson leikmaður Islandsmótsins RONDEY Roblnson, leikmaður íslandsmeistaraliðs Njarðvíkur, var í gær útnefndur lelkmaður íslandsmótsins í vetur af Morgunblaðlnu. Af því tilefni tók hann við vlðurkenningunni sem hann hampar á myndinni. Eðlislægt að leggja mig alltaf elns vel fram og ég get / B2 KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ Rúnar í sviðsljósinu Glæsileg frammistaða Rúnars Kristins- sonar í fyrsta leiknum með liði sínu, Örgryte, í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra- kvöld, hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og ■■■■■ fá íslensk knattspyrna og knatt- Grétar Þór spyrnumenn mikla umfjöllun á Eyþórsson síðum blaðanna í gær. Express- skrifar frá en, stærsta dagblað Svíþjóðar, Sviþjóð segir; „Fyrst var það Teitur Þórðarson, síðan Arnór Guðjohnsen og hér er nýja íslenska stjarnan, Rúnar Kristinsson" segir í texta undir mynd af Rúnari undir hálfrar síðu stórri mynd í blaðinu. Þá segir einnig; „Það þarf næstum eitt- hvað yfímáttúrulegt til þess að maðnr með IFK Gautaborg greypt í hjartað, standi upp og öskri ÁFRAM ÖRGRYTE! af öllum kröft- um, en þetta gerði þó P-0 Johansson vallar- stjóri á Ullevi í gær. Hann sagði: „Það er óratími síðan ég hef séð jafnfallegt mark,“ og átti hann þar við einleiksmark Rúnars gegn Norrköping á mánudagskvöldið. Aftonbladet segir í fyrirsögn; „Afsakiði í Örebro, en Rúnar er besti íslendingurinn!" Arnór Guðjohnsen, sem kjörinn var leikmað- ur ársins í fyrra eftir frábært tímabil, leikur sem kunnugt er með Örebro. iDAG segir: „Rúnar er heitasti hverinn í Örgryte." Sigurinn var Rúnari að þakka, segir blaðið og í spjalli við Rúnar eftir leik lýsir hann marki sínu þannig, að hann hafi sett boltann inn með stóru tánni, en þannig var það skrifað í blaðinu. Jan Hansson hjá Göteborgs Posten fjallar um íslenska knattspyrnumenn og telur það hafa sýnt sig að bestu kaup á knattspyrnu- mönnum séu í þeim íslensku. Sænskir þjálfar- ar hafí þá reynslu að Islendingar séu dugleg- ir harðjaxlar, ósérhlífnir og láti vel að stjórn þjálfaranna auk þess að vera öðrum fremur fljótari að aðlagast nýjum aðstæðum og leik- aðferðum. Öll blöðin gefa Rúnari 4 stjörnur af 5, einum leikmanna enda er hann útnefndur maður leiksins í öllum blöðunum. SKKM: ASTA HALLDORSDOTTiR VANN ÞÆR NORSKU / B4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.