Morgunblaðið - 12.04.1995, Side 4

Morgunblaðið - 12.04.1995, Side 4
KORFUBOLTI SKIÐI / ALÞJOÐLEGT MOT A AKUREYRI Ásta skaut norsku stúlkunum ref fyrir rass „Ssett að vinna þær“ ÁSTA S. Halldórsdóttir, skíðadrottning íslands frá ísafirði, beið spennt eftir að Trude Gimle kæmi í mark og fagnaði vel þegar sú norska fékk lakari og varð að sætta sig við silfurverðlaun í stórsviginu á Icelandair Cup. „Jú, það var virkilega sætt að vinna þær,“ sagði Ásta um sigurinn yfir hinum sterku skíðakonum frá Noregi. „Þetta var rosalega erfitt. Færið var þannig að skíðin límdust við brautina og létu illa að stjórn. Ég keyrði eins og ég gat í seinni ferðinni, það var ekki um annað að ræða. En þetta var mjög gaman og við vorum heppnar að lenda ekki í þokunni eins og strákarnir. Svo er svigið eftir og auðvitað reyni ég að gera mitt besta,“ sagði Ásta sem sér fram á enn eina baráttuna við þær norsku í dag. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson ÁSTA S. Halldórsdóttlr slappar af ó milli ferða. ALÞJÓÐA skíðamótinu lcelandair Cup var framhaldið í Hlíðar- fjalli ofan Akureyrar í gær. Þá var keppt í svigi karla og stór- svigi kvenna. Ásta S. Halldórsdóttir sigraði glæsilega í stórsvig- inu og skaut norsku keppinautunum, sem reyndust henni erfið- ar á ísafirði, ref fyrir rass. Erlendir keppendur röðuðu sér í þrjú efstu sætin í svigi karla og varð Uros Pavlovicic frá Slóve- niu hlutskarpastur. Aðstæður til keppni í Hlíðarfj alli voru dálítið köflóttar. Þoka gerði keppendum nokkra skráveifu, sérstaklega körlun- Stefán Þór um, og færið hefur Sæmundsson oft verið betra. Mik- skrifar frá j| afföll voru í svigi Akuæyn karla og féllu sterk- ustu skíðamenn íslands úr keppni með margvíslegum tilþrifum. Akureyringurinn Vilhelm Þor- steinsson hafði góða forystu eftir fyrri ferðina í sviginu og átti ríflega sekúndu á Pavlovicic. Amór Gunn- - -arsson fylgdi fast á eftir og síðan komu Matjaz Stare frá Slóveníu, Aslak Ottar frá Noregi og Gunn- laugur Magnússon frá Akureyri. Skíðakóngurinn Kristinn Björnsson frá Ólafsfírði datt í fyrri ferðinni og svipaða sögu er að segja af Hauki Arnórssyni og fleiri keppend- um. Seinni ferðin var söguleg. Vil- helm, Amór og Gunnlaugur féllu allir úr keppni og eftirleikurinn var auðveldur fyrir erlendu skíðamenn- ina. Pavlovicic sigraði örugglega og fékk 37,49 FlS-stig, landi hans Stare varð annar og Óttar þriðji. Sigurður M. Sigurðsson frá Reykja- vík varð fjórði og Eggert Óskarsson frá Ólafsfirði fimmti. Stúlkumar voru duglegri að standa niður brekkuna en hins veg- ar mætti um helmingur keppenda ekki til leiks í stórsviginu. Þijár stúlkur vom afgerandi fremstar eftir fyrri ferðina. Trude Gimle frá Noregi var fyrst, Ásta S. Halldórs- dóttir önnur og Trine Bakke þriðja. Það ríkti töluverð spenna þegar seinni ferðin hófst. Bakke var með besta tímann þegar Ásta var í brautinni. Hún gerði betur og beið síðan með öndina í hálsinum eftir Gimle. Sú norska keyrði vel en náði ekki eins góðum tíma og Ásta og varð samanlagt 15 sekúndubrot- um á eftir henni. Þar með var ís- lenskur sigur í höfn. Gimle varð önnur, Bakke þriðja og síðan komu Theodóra Matthiesen, Brynja Þor- steinsdóttir og Hrefna Óladóttir. í dag verður keppt í stórsvigi karla og svigi kvenna og má búast við skemmtilegri baráttu skíða- fólksins sem hefur verið að etja kappi saman í þessari alþjóðlegu mótaröð. Morgunbiaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson UROS Pavlovielc Hri Slóveniu slgraM í svlglnu á Akurayri f gaer. Margt býr í þokunni Slóvensku keppendumir Uros Pavlovicic og Matjaz Stare mættu ekki til að taka við gulí- og silfurverðlaunum sínum fyrir svig karla við verðlaunaafhendingu eftir mótið. Norðmaðurinn Aslak Ottar hampaði hins vegar bronsinu með ánægju. Eftir verðlaunaafhendinguna var ■keppend- um og starfsmönnum boðið til veislu í Skíðastöðum. Sigurður M. Sigurðsson sló öðrum ís- lendingum við og náði fjórða sæti. Sigurður keppir fyrir Reykjavík en hann er sonur Sigurðar Sigurðssonar sem rak Sjallann á Akureyri hér á árum áður og kannast því hugsanlega við brekkurnar í Hlíðarfjalli. Vilhelm Þorsteinsson var svekktur þegar Morgunblaðið tók hann tali eftir svigmótið. Hann var með góða forystu eftir fyrri ferð- ina en krækti í þeirri seinni og draumurinn um gullið var fyrir bí. Vilhelm missti líka af gulli í sviginu á ísafirði þegar hann var dæmdur úr leik fyrir að sleppa hliði. Sann- arlega vonbrigði fyrir þennan snjalla skíða- mann. Gunnlaugur Magnússon sló hins vegar á létta strengi eftir að hafa verið dæmdur úr keppni fyrir að sleppa hliði í seinni ferð svigkeppninnar. „Það var svo mikil þoka að ég vonaði að enginn tæki eftir því,“ sagði Gunnlaugur glottuleitur. Charlotte batt enda á sigurtjöngu Boston Charlotte Homets batt enda á fimm leikja sigurgöngu Bos- ton Celtics í fyrri nótt, 119:95. Al- onzo Mourning gerði 25 stig og tók 11 fráköst fyrir Hornets. Hersey Hawkins kom næstur með 23 stig og Larry Johnson gerði 15 og átti auk þess 11 stoðsendingar sem er persónulegt met hjá honum. Sher- man Douglas var stigahæstur í liði Boston með 21 stig. Þetta var fjórði sigur Hornets í síðustu fimm leikj- um. „Vörnin var góð hjá okkur all- an tímann og það gerði gæfumun- inn,“ sagði Allan Bristow, þjálfari Hornets. Dikembe Mutombo rétt missti af þrefaldri tvennu er Denver lagði Minnesota á útivelli, 107:114. Hann gerði 14 stig, tók 15 fráköst og varði níu skot. Mahmoud Abdul- Rauf og Reggie Williams gerðu 20 stig hvor fyrir Denver. Tom Gugli- otta gerði 30 stig og setti persónu- legt met í vetur og tók auk þess 11 fráköst fyrir Minnesota, sem hefur tapað átta leikjum af síðustu níu. Chris Mullin gerði 26 stig og þar af 13. í þriðja leikhluta er Golden State vann Dallas á útivelli, 112:123. Latrell Sprewell var með 30 stig og Clifford Rozier 20 stig. Jamal Mashburn var stigahæstur í liði heimamanna með 29 stig og Popeye Jones gerði 21 stig og tók 11 fráköst. 750. sigur- inn hjá Pat Riley PAT Riley þjálfari New York Knicks stjórnaði liði til sigurs í 750. skipti í NBA-deildinni er lið hans sigraði Detroit aðfararnótt sunnudagsins. Riley er nú í niunda sæti yfir sigursælustu þjálfara allra tima, hefur sigrað í 750 leilgum en tapað 297 í þau þrettán ár sem hann hefur verið þjálfari. Hann vantar ennþá 36 sigra til að skjótst upp fyrir Gene Shue í áttunda sætið. KNATTSPYRNA Klinsmann var hetja Tottenham Jurgen Klinsmann var hetja Tott- enham með því að skora sigur- markið gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þjóðverjinn Uwe Rosler kom City yfir í upphafi síðari hálfleiks en Howells jafnaði á 53. mínútu. Klins- mann skoraði síðan sigurmarkið þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir og var það 26. mark hans á tímabilinu. Hann skallaði knöttinn í netið eftir aukaspyrnu Darrens Antertons. Klinsmann, sem átti mjög góðan leik, átti stóran þátt í fyrra markinu. Les Ferdinand gerði sigurmark Q.P.R. í 1:0 sigri gegn Ipswich á 68. mínútu eftir sendingu frá Trevo- er Sinclair. Q.P.R. var betra liðið og sigurinn verðskuldaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.