Morgunblaðið - 17.05.1995, Page 1
KÆRU Myndasögur.
Mig langar að eignast
pennavinkonu á aldrinum
8-10 ára, sjálf er ég 8 ára.
Ahugamál: Frímerki,
servíettur og nælur.
Sigurbjörg Ruthoffritz
Artúni 12
800 Selfoss
Hæ, hæ, Moggi.
Ég óska eftir pennavini,
sem er á aldrinum 11-13
ára. Sjálfur er ég að verða
12 ára.
Áhugamál mín eru frí-
merki, fjallgöngur og margt
fleira.
Baldvin Vigfússon
Hlíðartúni 6
270 Mosfellsbær
endalaust ef þið viljið og
gaman - mjög gaman væri
að fá eitthvað af því sem
þið eruð að hugsa sett á
blað og við birtum það fyr-
ir fleiri þúsund forvitna,
fróðleiksfúsa lesendur
gamla góða Moggans, þeim
til gagns og gamans.
Krakkar, það sem þið
eruð að gera á hverjum
einasta degi, í hverri ein-
ustu viku, á hverju ári er
ekki bara eitthvað sem
enginn kærir sig um að
vita. Þið, ég, við og allir
aðrir skipta máli! Og þess
vegna skiptir máli hvað þú
ert að gera, hvernig þér
líður, hvað þú ert að hugsa.
Tjáið ykkur með blýanti,
penna eðatölvu, teiknið,
skrifið. Það er ótrúlega
gott og gefur mikið.
Gangi ykkur vel og leyf-
ið öðrum (okkur) að njóta
þess með ykkur.
Prinsessan sem svaf í heila öld
EINU sinni var kóngur.
Hann átti stóra höll. Hann
átti dóttur sem hét Lísa.
Lísa missti málið fyrir tveim
árum. Þá spurði kóngurinn
læknana. Þeir sögðu að hún
þyrfti að sofa í heila öld. Þá
royndi hún fá málið aftur.
En ef það gengur ekki, þá
sko fáið þið á baukinn.
Og eftir eina öld kom málið
aftur.
Lena Snorradóttir, 7 ára,
Kvisthaga 10, 107 Reykjavík,
kærar þakkir fyrir frábæra
sögu og mynd.
Prinsessan er alsæl af
myndinni að dæma. Hver ætli
þetta sé annars á myndinni í
hægra horninu? Draumaprins-
inn? Hver veit!
ÁRÍÐANDIATHUGASEMD
KRAKKAR!
Það kom ekki fram í síð-
ustu Myndasögum hver skila-
fresturinn er í litaleiknum
Afmælisveisla með LEGO og
Kjörís.
Skilafrestur er til 24. maí
næstkomandi. Athugið það,
tuttugasta og fjórða maí.
Það er eitt annað. Þegar
þið sendið okkur myndir í
litaleikjunum stingið þið
stundum öðru efni með í
umslagið, ósk um pennavini,
efni í Skiptimarkaðinn, teikn-
ingum eftir ykkur og fleira.
EKKI setja annað efni en það
er varðar viðkomandi litaleik
i umslag merkt litaleiknum.
Ef þið setjið annað efni með
í umslagið, er hætta á að það
efni fari forgörðum. Setjið
annað efni í sér umslag
merkt Myndasögunum.
Ef þið munið ekki heimilis-
fang okkar er það alltaf að
finna á forsíðu Myndasagna
Moggans, efst til vinstri.
Innilegar þakkir fyrir
sýndan skilning.
Halló!
M
EG HEITI Anna Katrín.
Ég les alltaf Mynda-
sögurnar, sem mér finnst
mjög skemmtUegar. Ég er
4 ára og leikskólinn minn
heitir Kópasteinn. Deildin
mín heitir Steinholt og ég
á afmæli 18. ágúst. Mér
finnst skemmtilegast að
lita, hjóla á nýja tvíhjólinu
mínu og að fara í barbí.
Anna Katrín Guðdísar-
dóttir, Slqólbraut 10,200
Kópavogi.
Kærar þakkir, Anna
Katrín mín, fyrir bréfið og
myndina sem fylgdi með.
Það er alltaf gaman að
fá fréttir af ykkur, krakk-
ar mínir, hvað þið eruð að
gera dags daglega.
Nú þegar sumarið er
komið, eruð þið væntan-
lega meira á ferð og flugi.
Gaman væri að fá t.d.
ferðasögur frá ykkur.
Ferðin þarf ekki að vera
löng til þess að hún sé
fréttnæm. Það getur verið
stórt ævintýri að fara út í
guðs græna náttúruna,
sem er öll að vakna til lífs-
ins eftir vetrardvalann.
Þið þurfið ekki að leita
langt yfír skammt. Hvað
er til dæihis að gerast úti
í garðinum heima hjá ykk-
ur?
Nú þegar skólunum er
að ljúka er ekki vanþörf á
að halda skrifhendinni
(þeirri vinstri eða hægri)
við og skrifa nokkrar línur
á blað á milli þess sem þið
hoppið og skoppið um víð-
an völl.
Þá er sagan öll! sagði
einhver - en það þarf nú
ekki að vera þannig. Þið
getið búið til sögur alveg