Morgunblaðið - 03.06.1995, Síða 1
• London - nafli leiklistar/2-3
• Stíllinn í list Ásmundar/á
• „Þér eruð fölur, meistari/A
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
MENNING
LISTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 BLAÐ'
Kirkjulistahátíð 1995
sett í Hallgrímskirkju
VIÐ SETNINGARATHOFN
Kirkjulistahátíðar 1995 í Hall-
grímskirkju í dag kl. 14 verða
frumfluttir níu sálmar um ljósið
og lífið og opnaðar tvær mynd-
listarsýningar. Kirkjulisthátíð
stendur til 18. júní og verður þar
m.a. frumflutt nýtt íslenskt leik-
verk og frumsýndur dans við
Sálumessu Mozarts. Kunnir er-
lendir gestir sækja hátíðina.
Sigurbjörn Einarsson biskup
og Þóra Kristjánsdóttir formaður
Listvinafélags Hallgrímskirkju
flytja ávörp við setningu Kirkju-
listahátíðar. Skólakór kársness
og Gradualekór Hallgrímskirkju
flytja Te Deum eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson. Þá munu bamakór-
ar úr Reykjavíkurjjrófastsdæm-
um og karlaraddir úr Mótettukór
Hallgrímskirkju frumflytja níu
sálma um Ijósið og lifið eftir krist-
ján Val Ingólfsson ásamt textum
úr ritningunni við tónlist Hjálm-
ars H. Ragnarssonar.
Séra Ragnar Fjalar Iárusson
prófastur opnar að lokinni setn-
ingarathfön tvær sýningar í and-
dyri og nýjum safnaðarsal Hall-
grímskirkju.
Hátíðamessa er í Hallgríms-
kirkju kl. 11.00 á hvítasunnudag
og kl. 20.00 eru fyrstu orgeltón-
leikar Kirkjulistahátíðar 1995,
en þá leikur Francois-Henri Bou-
bart organisti Madelaine kirlq-
unnar í París franska orgeltónl-
ist frá fjórum öldum.
Að kvöldi annars dags hvíta-
sunnu verður frumflutt í Hall-
grímskirkju nýtt islenskt leik-
verk eftir Steinunni Jóhannes-
dóttur sem nefnist: „Síðasta
heimsókn Guðríðar Símonardótt-
ur í kirkju Hallgríms." Þriðju-
daginn 6. júní kl. 20.00 verða
tónleikar Samkórs Reykjavíkur-
prófastsdæmis eystra og Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna þar
sem verður flutt Messa í G-dúr
eftir Schubert og norræn kór-
tónlist.
Fimmtudag 15. júní ogföstu-
dag 16. júní kl. 20.00 flylja Mót-
ettukór Hallgrímskirkju, Sinfón-
íuhljómsveit Islands og íslenski
dansflokkurinn Requiem og Lita-
níu K V 243 eftir W.A. Mozart.
Sljórnandi er Hörður Áskelsson
og danshöfundur Nanna Ólafs-
dóttir. Einsöngvarar eru Sólrún
Bragadóttir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Gunnar Guðbjörns-
son og Magnús Baldvinsson.
Á Kirkjulisthátið 1995 komu
erlendir gestir, svo hver orgel-
leikaramir Edgar Krapp frá
Þýskalandi og Gillian Weir frá
Englandi. Frá Noregi koma
óperusöngkonan Anna-Lise
Bertsen og tónlskáldið Nils Hen-
rik Asheim til þess að flytja Örv-
ar englanna sem er rómuð dag-
skrá með gömlum alþýðusálmum.
Óratoríukór Gustav Vasa og Kon-
unglega hirðhljómsveitin ljúka
hátíðinni meðtónleikum 18. júní.
Stríðið gert upp á bók
Að undanfömu hafa
komið út fjölmargar
bækur sem fjalla á einn
eða annan hátt um
heimsstyrjöldina síðari
r'ILEFNI þess að í maí var hálf
öld liðin frá stríðslokum í Evr-
ópu hefur fjöldi bóka verið gef-
inn út þar sem litið er á heimsstyij-
öldina síðari frá ýmsum og oft ný-
stárlegum sjónarhomum. Að mati
The Economist eru margar þeirra
vel þess virði að líta í.
Fyrsta má telja „The World at
Arms“ eftir Gerhard Weinberg, sem
er 1.178 blaðsíður og gefin út hjá
Cambridge University Press. í henni
lítur Weinberg á stríðið í heild, allt
frá því að Þjóðveijar réðust inn í
Pólland í september 1939 og fram
að uppgjöf Jaþana 2. september
1945. Hann tekur hernaðartæknina
fyrir, fjailar um styrk og veikleika
Þýskalands, bandamenn þess og
óteljandi fjandmenn. Bókin er sögð
skýr og skorinorð og að höfundur
hafi haft fyrir því að leita sjálfur
heimilda í skjalasöfnum í stað þess
að vitna í og treysta á verk annarra.
Hermenn segja sögu sína
Það gustar þó ekki eins um verk
Weinbergs og „Total War“, 1.360
síðna doðrant eftir Peter Calvocor-
essi, sem var nýlega endurútgefínn
hjá Penguin. Birt er 50 síðna frásögn
Calvocoressis frá þeim tíma sem
hann starfaði hjá bresku leyniþjón-
EIN af myndum Bills Mauld-
ins: „Segðu honum að horfa
á björtu hliðarnar, Villi. Það
er búið að snyrta trén hans,
plægja akrana og húsið hans
er nú loftkælt."
ustunni. Honum var gert að sleppa
kaflanum þegar bókin kom út árið
1972 þar sem hann var talinn inni-
halda hemaðarleyndarmál. í báðum
bókum lýsa höfundamir stríðsrekstri
æðstu leiðtoga og embættismanna,
þó að þeir reyni einnig að nálgast
þá hlið stríðsins sem sneri að óbreytt-
um borgumm og hermönnum.
Robin Neillands lítur hins vegar ein-
göngu á stríðið út frá sjónarhóli hinna
síðamefndu í bók sinni „The Conquest
of the Reich", sem Weidenfeld & Nicol-
son gefa út en hún er 352 blaðsíður.
Neillands hefur safnað lýsingum sjó-
manna, hermanna og flugmanna á
síðustu fjórum mánuðum heimsstyij-
aldarinnar og fléttar inn í lýsingar
þýsks almennings á því hvemig það
var að verða fyrir sprengjuárásum og
játa sig svo sigraðan.
David Reynolds fjallar um stríðið
sem háð var í lofti í „Rich Relations"
sem HarperCollins og Random House
gefa út. Undirtitill bókarinnar er
„Hemám Bandaríkjamanna í Bret-
landi 1942-1945“ en Reynolds tekur
einnig fyrir þau áhrif sem vera V/2
milljónar bandarískra hermanna hafði
á breskar konur og dregur fram í
dagsljósið muninn á bandarískum og
kandadískum hermönnum í Bretlandi.
Hann þykir skrifa af næmri tilfinningu
og trúverðugleika en Reynolds er pró-
fessor í sagnfærði við Cambridge.
Martin Gilbert gerir tilraun til að
fanga andrúmsloftið í Evrópu á friðar-
daginn í bók sinni „The Day the War
Ended", 473 bls. sem HarperCollins
gefur út. Að mati The Economist
tekst það með ágætum. Gilbert lýsir
einnig aðdragandanum að endalokun-
um og ágreiningi Stalíns annars veg-
ar og Churchills og Trumans hins
vegar þegar þeir reyndu að sættast
á einn ákveðinn stríðsiokadag og þeim
erfiðleikum sem urðu til þess að styij-
öldin varð að köldu stríði.
Listin lifir sagnfræðina
The Economist telur þó að þau
verk um heimsstyijöldina sem lifa
muni lengst séu skáldsögur, ljóð og
teikningar. Eru skopteikningar Bills
Mauldins nefndar sem dæmi en „Up
front“ er safn teikninga hans sem
Norton-forlagið gefur út. Af nýjum
bókum er að síðustu ótalið 320 bls.
ljóðasafn Chatto & Windus „Poetry
of the Second World War“. Ljóðin í
bókinni koma frá öllum heimshomum
og eiga það eitt sameiginlegt að vera
samin á stríðasárunum.
Nýr geisladiskur munkanna frá Silos
Sögðu skilið við
EMI-útgáfuna
LÍF munkanna frá Silos hefur
ekki verið samt frá því að
þeir lögðu heiminn að fótum
sér með geisladiskinum „Chant“, þar
sem þeir syngja gregoríanska kirkju-
tónlist. Á síðasta ári sló diskurinn
sölumet og fór í 3. sæti vinsældalist-
ans en við það var friðurinn úti, því
ferðamenn og aðdáendur streymdu
að Silos-klaustrinu á Norður-Spáni.
Og það sem verra var, munkunum
þótti þeir hafa farið flatt á samningn-
um við útgefanda sinn.
Þrátt fyrir að „Chant“ seldist í 6
milljónum eintaka og færði EMI-
útgáfunni yfir 50 milljónir dala, seg-
ist kórstjórinn, Laurentino de Buru-
aga, munkana ekki hafa haft nema
40.000 dali upp úr krafsinu, sem
dugi varla til að greiða fyrir viðgerð
á hripleku þakinu í miðaldaklaustrinu,
að því er segir í nýjasta hefti Tirne.
Munkarnir hafa því sagt skilið við
EMI-útgáfuna og freista gæfunnar
hjá Milan-útgáfunni, sem gaf nýlega
út „The Soul of Chant“, nýjan geisla-
disk munkanna frá Silos.
Að sögn Buruagas þótti munkun-
um tilstandið í kringum útgáfu fyrri
disksins afar óþægilegt, löngu áður
en hann lagði leið sína á vinsældalist-
ana. í fyrsta lagi setti EMI-útgáfan
mynd af Fransiskusar-munkum í
brúnum kuflum á umslag geisla-
disksins í stað hinna svartklæddu
Benediktusarmunka. í öðru lagi kom
það illa við munkana er salan jóskt
á geisladiskinum, að háttsettur
starfsmaður útgáfunnar skyldi
skyndilega birtast við klausturhliðið
á þyrlu, sem höfð var í gangi á
meðan hann bankaði upp á með
samning um áframhaldandi útgáfu
upp á vasann. Munkamir, fullir tor-
tryggni, neituðu að hleypa mannin-
um inn og ræddu við hann í gegnum
gægjugat.
Það sem gekk þó endanlega fram
af þeim var sú krafa EMI að munk-
amir stæðu við samning sem reglan
hafði undirritað 30 ámm áður við
Hispavox-útgáfuna er EMI hafði yf-
irtekið. í honum var munkunum
áskilinn 1.500 dala heildargreiðsla
fyrir hveija útgáfu. EMI vísar öllum
þessum ásökunum á bug, segir
.... nnnVii 1..M1111T1HIn■ m'ii'i ■■ j ' , , .
BURUAGA segir EMI-útgáf-
una hafa hlunnfarið munkana
frá Silos.
munkana hafa þegið „mun hærri
upphæð" en 40.000 dalina.
Þrátt fyrir þetta mótlæti heldur
frægðarsól þeirra áfram að stíga, þó
hægar en fyrr, en nýi geisladiskurinn
situr nú í 10. sæti bandaríska vin-
sældalistans.