Morgunblaðið - 03.06.1995, Side 4

Morgunblaðið - 03.06.1995, Side 4
4 C LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ I í list Ásmundar Stíllinn í tilefni sýningarínnar Stíllinn í list Ásmundar Sveinssonar í Ás- mundarsafni hefur Gunnar B. Kvaran listfræðingur og for- stöðumaður Kjarvalsstaða skrif- að samnefnda ritgerð. Brot úr ritgerðinni eru birt hér á eftir. OFT OG iðulega hafði Ásmundur Sveins- l son það á orði að hann gæti skipt um ' stíl líkt og ljóðskáldið um rím. Það sýndi einfaldlega fram á tæknilega hæfileika listamannsins og kæmi engan veginn í veg fyrir persónulega tjáningu. Og víst er að þegar litið er yfir listrænan feril Ásmundar hljóta menn að undrast hinn formræna margbreytileika í verkum hans. Á árunum 1935-1936 dvaldi Ásmundur um skeið í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma gerði hann sextán verk sem marka greinileg straumhvörf á listferli hans. í þessum verkum fjarlægist hann enn frekar viðmiðun raunsæisins og skapar verk þar sem hann einfaldar ekki aðeins formskriftina heldur ummyndar verulega hina hefðbundnu skólasýn. Víst er að finna má í þessum verkum fjarlæga vísun í formskrift súrrealismans, en Ásmundur sá einmitt stóru súrrealistasýninguna í Kaupmannahöfn 1935 og varðveitti sýningar- skrána allar götur síðan. Þetta er meðal annars athyglisvert í ljósi þess að ekki er vitað um að Ásmundur hafi haft nein kynni af súrrealisman- um á Parísarárunum. Í Vatnsberanum frá 1936 - 1937 heldur myndhöggvarinn sig við steinaríkið og náttúni- legar tilvísanir. Þetta verk, eitt meginverk Ás- mundar, minnir óneitanlega á klettadranga. Myndbygging Vatnsberans er í fullkomnu jafn- vægi: föturnar og hendur konunnar mynda sam- hverfu, vinstri fóturinn fram inn á milli fatnanna Ljósm./Ásmundar3afn VATNSBERINN eftir Ásmund Sveinsson. en sá hægri aftur, þannig að grunnflöturinn er þríhyrndur. Kraftlínur Vatnsberans mynda því nánast pýramída frá öllum hliðum, en í listasög- unni hefur sú tegund myndbyggingar iðulega verið nýtt til að skapa festu og stöðugleika. Það eina sem brýtur upp þessa kyrrstöðu er staða höfuðsins, líkt og í fleiri verkum Ásmundar. Það hallar ögn til hliðar, mýkir myndbygginguna og gefur í skyn hreyfingu. Á fjórða áratugnum myndar listsköpun Ás- mundar Sveinssonar að formi og inntaki nokkuð samstæða heild. Að námi loknu leggur listamað- urinn sig fram um að einfalda vísanir í raunveur- leikann. Maðurinn er einfaldaður í frumdrætti sína og mótaður í heillegan massa, afmarkaður með sterkri línuáherslu, sléttu og hörðu yfír- borði. Þessari formskrift er ætlað að túlka kyrr- stæðan kraft. Uppruna þessarar formskriftar er eflaust að finna í verkum Maillol. Þau hafa einmitt til að bera þessa formrænu og efnislegu einföldun sem markar ákveðna íjarlægð á veru- leikann og tilvísanir í mannleg einkenni eru þar fremur en annað skynjuð sem form skilgreind af efninu. List Ásmundar Sveinssonar á fimmta áratugn- um er frábrugðin fyrri áratugum að því leyti að nú setur hann til hliðar viðfangsefni sem tengjast vinnunni og velur þess í stað myndefni sem hann sækir í táknfræðilegar vísanir og vís- anir í sagna- og bókmenntaarfínn. Á sjötta og sjöunda áratugnum þróast högg- myndir Ásmundar Sveinssonar æ meir í átt til hreinnar abstraklistar. í fyrstu heldur listamað- urinn áfram að vinna út frá náttúrunni, en árið 1955 uppgötvar Ásmundur nýtt efni fyrir lsit- sköpun sína, - járnið. Þetta efni átti eftir að hafa veruleg áhrif á vinnuaðferðir og formskrift listamannsins, og með þessari uppgötvun er í raun hægt að tala um raunveruleg kaflaskil í list hans. Undir lok ferils síns sagði Ásmundur skilið við jámið og fór að vinna bejnt í steininn líkt og hann hafði gert forðum daga. Oftast valdi hann minni steina sem hann slípaði og pússaði, dró fram náttúruleg form þeirra og breytti þeim þannig í listaverk. í raun fylgdi hann í þessum verkum eftir formskrift náttúrunnar og samsam- aðist henni. Ásmundur Sveinsson vildi vera fijáls gagn- vart öllum „ismum“ og óttaðist ekki að skipta um stíl ef svo bar undir. Hann var sannfærður um að listamðurinn þyrfti í sífellu að endur- skoða hug sinn, vinnuaðferðir og formskriftir til þess að lenda ekki inni í blindgötu. Því er eðlilegt að spyija hvort þetta viðhorf sé merki um ósamkvæmni og samhengisleysi. Því er til að svara að þegar listsköpun Ásmundar er fylgt eftir sést glögglega að það er hvergi um að ræða algert rof á ferlinum, heldur hægar breyt- ingar, skref fyrir skref, þar sem tilteknar form- rannsóknir og viðfangsefni leiða af sér nýjar uppgötvanir. „Þér eruð fölur, meistari“ HAROLD Pinter er lengst til vinstri. í miðið fyrir ofan er Wilhelm Furtwángler og Ronald Harwood fyrir neðan. Lengst til hægri þakk- ar Adolf Hitler þakkar Furtwángler fyrir í lok tónleika ári 1935. Sýningar um helgina Postulín í Kaffi Mílanó KOLFINNA Ketilsdóttir opnar í dag, laugardag, sýningu í Kaffí Mílanó, Faxafeni 11. Myndímar á sýningunni em unn- ar með palletthnífi á postulínsflísar. Myndefnið er aðallega íslenskt landslag með áherslu á fallegar ár og fossa, auk þess em nokkrar blómamyndir. Myndimar em allar til sölu. Jón sýnir í Kaffi Lefoli JÓN Ingi Sigurmundsson opnar sýningu á vatnslitamyndum í Kaffi Lefoli á Eyrarbakka, laugardaginn 3. júní. Þetta er 10. einkasýning Jóns Inga, en hann hefur tekið þátt í mörgum samsýningum hjá mynd- listarfélagi Ámessýslu. „Hús velúrsálarinnar" I Gallerí Greip SÝNING á nýjum verkum Svans Kristbergssonar og Barkar Amar- sonar undir yfirskriftinni „Hús velúrsálarinnar" verður opnuð í dag laugardag í Gallerí Greip, Hverfis- götu 82. Þetta er þriðja sýning þeirra í Reykjavík, en þeir hafa tekið þátt í nokkrum samsýningum erlendis. Galleríið er opið alla daga frá kl. 14-18 meðan á sýninguni stendur, eða til 13. júní. Skúlptúrsýningn að ljúka UNDANFARIÐ hefur staðið yfír í Gallerí Fold við Rauðarárstíg sýn- ing á skúlptúmm Guðbjargar Hlífar Pálsdóttur. Sýningunni lýkur mánudaginn 5. júní. Verk hennar em unnin úr kross- viði og jámi. Opið er í Gallerí Fold daglega frá kl. 10-18, lokað á hvíta- sunnudag 4. júní, en opið annan í hvítasunnu 5. júní kl. 14-18. Leikskáldinu Ronald Harwood bárust hót- anabréf er hann ákvað að skrif a leikrit um þýska hljómsveitarstjór- ann Wilhelm Furtwán- gler. Verkið hefur verið sýnt í vikunni á leiklist- arhátíðinni í Chichester. IMMTÍU árum eftir stríðs- lok hefur einn af mestu hfjómsveitarstjórum sem uppi hefur verið, Wilhelm Furtwangler, enn á ný verið sak- aður um hollustu við nasista. Furtwfingler var stjórnandi Ber- línarfílharmóníunnar í valdatíð Adolfs Hitlers og hefur hart verið deilt um hvort hann hafi tengst stjórnvöldum eða hvort hann hafi gætt hlutleysis síns og einungis haldiö þýskri tónlistarhefð á lofti. Ástæða þess að Furtwfingler er á milli tannanna á fólki, er nýtt leikrit eftir Ronald Harwood, höf- und „The Dresser“. Verkið var sett upp á mikilli leiklistarhátið í Chichester og leikstjórinn var enginn annar en Harold Pinter sem er betur þekktur sem leik- skáld. Titill verksins er, „Taking Si- des“ (Afstaða tekin) og ljóst er að mjög skiptar skoðanir eru um ágæti efnisvalsins. Hafði Harwood ekki fyrr sagt frá efni verksins er honum tóku að berast nafnlaus hótanabréf. Það er ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist i tengslum við Furtwfingler. Að sögn Harwoods skrifaði breski rithöfundurinn Bernard Levin eitt sinn grein þar sem hann bar lof á tónlistar- og sljómunarhæfileika Furtwfin- glers en fordæmdi jafnframt tengsl hans við nasista. Levin var hótað lífláti fyrir vikið. Fiðluleikarinn Yehudi Menuhin studdi Furtwfingler í lok stríðsins, lék með honum á tónleikum, m.a. í ísrael en hlaut einungis skömm fyrir, að því er segir í The Europe- an. Glæpur Furtwanglers var sá að hverfa ekki úr stól stjórnanda Berlínarfílharmóníunnar þegar nasistar komust til valda. Hélt hann þvi fram að sem listamaður hefði hann rétt til að vera ópólit- iskur. Harwood segir hann hafa verið greindan mann en bamaleg- an. Enginn vafi leiki á því að hann hafi hjálpað hundruðum gyðinga að flýja og að margir áhrifamiklir nasistar, svo sem Himmler, hafi lagt hatur á hann. Undir lok stríðsins hafi Gestapo verið á hælum hans. í janúar 1945, er Furtwfingler stjómaði hyómsveitinni í Berlín, gekk Albert Speer að honum í hléi og sagði: „Þér emð fölur, meist- ari. Þér ættuð að taka yður frí“. Furtwangler skildi hveiju Speer ýjaði að og flýði til Sviss. Eftir stríð gekk hann í tvígang í gegnum yfirheyrslur um tengsl sín við nas- ista og var lýstur saklaus af þeim í bæði skiptin. Engu að síður hefur nafn hans hvað eftir annað verið nefnt í tengslum við nasista. Er hann lést árið 1954, niðurbrotinn maður, fordæmdi The New York Times hann í minningargrein. Harwood bendir á að hvorki Karl Böhm eða Herbert von Karajan, sem báðir vom meðlimir í nasista- flokknum, hafi hlotið viðlíka með- ferð og Furtwfingler. í verki sínu setur Harwood upp yfirheyrslur Breta og Bandaríkja- manna yfir Furtwfingler. „Eg kalla það „Afstaða tekin" af þeirri einföldu ástæðu að ég tek ekki afstöðu," segir Harwood. „Ég hef reynt að draga upp hlutlausa mynd af því sem gerðist vegna þess að hin siðferðilegu rök era svo vandmeðfarin. Ein af spura- ingunum sem upp koma hlýtur að vera sú hvort við myndum bregð- ast eins við og Furtwfingler? Lista- menn gegna sérkennilegri stöðu í samfélaginu, gerðir þeirra hafa táknræna merkingu. Það reyndist Furtwfingler svo örlagaríkt. Það kann að hjjóma öfugsnúið en ein af ástæðunum fyrir þvi að hann er enn svo umdeildur, er sú hversu frábær stjórnandi hann var.“ MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Kjarvalsstaðir Verk Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, Bjami Hinriksson og Krist- ján Steingrímur Jónsson fram í miðj- an júní. Safn Ásgrims Jónssonar Vormenn í íslenskri myndlist til 31. ágúst. Ásmundarsafn Stfllinn f list Ásmundar fram á haust Listasafn Siguijóns Ólafssonar Sýn. Þessir kollóttu fram eftir sumri. Gallerí Sævars Karls Viktor G. Cilia sýnir. Gerðarsafn Grímur Marinó Steindórsson sýnir til 18. júní. Verk Gerðar Helgadóttur til 16. júlí. Gallerí Stöðlakot Soffia Sæmundsdóttir sýnir til 20. júní. Galleri Úmbra Ulla-Maija Vikman sýnir til 21. júní. Listhús 39 Margrét Guðmundsdóttir sýnir til 26. júní. Við Hamarinn Þóra Þórisdóttir sýnir til 18. júní. Nýlistasafnið 10 myndlistarmenn sýna til 25. júnf. Snegla Listhús Slæðudagar til 16. júní. Hafnarborg „Stefnumót listar og trúar" til 26. júní. Mokka Harpa Ámadóttir sýnir til 20. júní. Norræna húsið Sérvalin verk nemenda MHÍ til 5. júní. Gallerí Greip Börkur Amarson og Svanur Krist- bergsson sýna til 13. júní. Gallerí Fold Guðbjörg Hlff sýnir til 4. júní. TONLIST Laugardagur 3. júni Kirkjulistahátíð 1995; Frumfluttir níu sálmar um ljósið og lífið í Hall- grímskirkju kl. 14. Þórarinn Stefáns- son og Emil Friðfinnsson efna til tónleika í Tónlistarskólanum á Akur- eyri kl. 17. Sunnudagur 4. júní Franski orgelleikarinn Franqois- Henri Houbart á tónleikum Kirkju- listahátíðar kl. 20 í Hallgrímskirkju. Mánudagur 5. júni Þórarinn Stefánsson og Emil Friðf- innsson efna til tónleika í Norræna húsinu kl. 17. Vox Feminae f Sel- tjamarneskirkju kl. 20.30. Þriðjudagur 6. júní Hljómsveit konunglegu dönsku líf- varðarsveitarinnar í Ráðhúsinu kl. 17, einnig í Listasafni Kópavogs kl. 20.30. Fimmtudagur 8. júní Hljómsveit konunglegu dönsku líf- varðarsveitarinnar í Norræna húsinu kl. 20.30. Karlakórinn Heimir í Logalandi, Borgarfirði, kl. 21. Föstudagur 9. júni Karlakórinn Heimir í safnaðarheim- ili Landakirkju í Vestmannaeyjum kl. 20.30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið West Side Story mán. 5. júní, fös., lau. Taktu lagið, Lóa! fim. 8. júní, fös., lau. Kaffileikhúsið Sápa tvö fim. 8. júnf. Herbergi Veroniku lau. 3. júní, fös. Leikfélag Akureyrar Djöflaeyjan lau. 3. júní. Möguleikhúsið Mitt bælda líf lau. 3. júní, sun., þri. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þess- um dálki verða að hafa borist bréf- lega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menn- ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 91-691181. Umsjónarmenn listastofn- ana og sýningarsala! Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16. á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvk. Myndsendir: 91-691181.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.