Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995 B 3 Valur lékk fyrsta stig sitt í deildinni EFTIR að hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á ís- landsmótinu kræktu Vals- menn í sitt fyrsta stig gegn daufu Keflavíkurliði í rislitlum og markalausum leik á Hlíðar- enda í gærkvöldi. Keflavíkurliðið byrjaði af mikl- um krafti og strax á fyrstu mínútum gerðu þeir usla í vörn Vals. Útlit var fyrir að Valsmenn ■■■■■■ myndu eiga undir ívar högg að sækja, en Benediktsson fljótlega datt allur skn,ar botn úr leik gest- anna og Valsdrengir komust inn í leikinn. Mikil barátta var úti á vell- inum og fátt um tækifæri á báða bóga. A 21. mínútu fékk Kjartan Einarsson gott færi er hann fékk boltann þar sem hann var staddur inni í miðjum vítateig Vals, en Lárus Sigursson gerði vel að vetja. Valsmenn sóttu aðeins í sig veðrið þegar á leið hálfleikinn og áttu meira í leiknum. Keflavíkurvömin virtist óörugg og Sigþór Júlíusson fékk tvö góð færi sem Ólafur gerði vel í að verja. Ekki rættist úr leiknum í síðari hálfleik. Nokkuð var um baráttu á vellinum en það var alfarið á kostn- að gæðanna og fátt var um mark- tækifæri. Þó komu nokkur á tíu mínútna kafla um miðjan leikhlut- ann en markverðir beggja liða voru vel á verði. Eftir að skot Kristins Lárussonar af 25 metra færi fór framhjá Keflavíkurmarkinu á 71. mínútu gerðist fátt markvert og leikurinn leystist smátt og smátt upp í ekki neitt. Morgunblaðið/Golli LÍTIÐ fór fyrlr glæsileikanum að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar Valsmenn kræktu í sitt fyrsta stig. Hér reynir Keflvíkingurlnn Róbert Sigurðsson (númer 5) að stöðva Hllmar Sighvatsson Valsmann og Hjálmar Hallgrímsson (númer 7) býður tærnar sínar til aðstoðar. ■ VALSMENN léku með sorgar- bönd gegn Keflavík í gærkvöldi og höfð var mínútu þögn fyrir leik- inn til minningar um Jóhönnu Smith er lést á mánudaginn en hún var í unglingaráði knattspymu- deildar Vals. ■ AUÐUR Skúladóttir lék með Stjörnunni gegn KR í 1. deild kvenna í gærkvöldi og var það fyrsti leikur hennar með liðinu í sumar. Auður lék í Danmörku og hefur æft í viku með liðinu. ■ ÚLFAR Daníelsson þjálfari KR sagði að nú fyrst gæti liðið farið að æfa saman. Átti hann við að Sara Smart, Olga Færseth og Inga Dóra Magnúsdóttir, allt landsliðskonur í körfuknattleik, væru loks farnar. að snúa sér alfar- ið að fótboltanum en þær kepptu á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í síðustu viku. ■ ÁÐUR en leikur ÍBV og Breiðabliks í 1. deild karla hófst á mánudaginn afhjúpuðu Jón Bragi Arnarson og Friðrik Frið- riksson, leikmenn ÍBV, andlits- mynd af Lárusi Jakobssyni fyrr- verandi framkvæmdastjóra IBV og upphafsmanni Tommamótanna. Lárus lést í fyrra langt um aldur fram. Myndinni var valinn staður fyrir neðan markatöfluna á leikvell- inum við Hásteinsvöll. Hún er 150x120 sm og var máluð af Jó- hanni Jónssyni. ■ EKKERT verður af flutningi Niall Quinn frá Manchester City til Sporting Lissabon og er ástæð- an sögð sú að samningar hafí ekki verið tryggir án þessa að félögin hafi farið nánar út í þá sálma. Það var portúgalska liðið sem sleit samningum og óopinber skýringin er sú að enska liðið vildi ekki greiða Quinn um 30 milljónir þar sem hann ætlaði í félag erlendis. Verðið á kappanum er talið vera um 200 milljónir. Herbert áfram í ÍR HERBERT Arn- arson körfuknatt- leiksmaður verð- ur að öllum líkind- um áfram í her- búðum ÍR-inga. „Það er ekkert ljóst og lítið hægt að segja. Að vísu hefur ekki verið gengið frá neinu en ég vona að lín- ur fari að ský- Rhodes samningum sínum við ÍR áður en hann fór til Bandaríkjanna í sumar en lið frá Argentínu hafa hinsvegar verið í sambandi við hann. Forsvar- menn ÍR sögðu honum að ef til kæmi myndu þeir ekki leggja stein í götu hans og möguleiki væri á samning Rhodes við félagslið það- an. rast, sagoi tier- Herbert bert við Morgun- blaðið í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa forsvarsmenn annarra liða ekki haft samband við Herbert og ÍR-ingar segja að ekki hafí gefist tími til að setjast niður og klára samninga. John RhodeSj sem lék með körfu- knattleiksliðið IR í vetur, gekk frá Hrannartekur við Njarðvíkingum HRANNAR Hólin, sem þjálfað hefur Þórsara í tvö ár, er á förum til Njarðvíkur en gengið verður frá tveggja ára samningi síðar í vikunni. „Mér líst vel á að þjálfa þetta lið sem verið hefur eitt besta félagslið landsins i áratug og storfið því krefjandi," sagði Hrannar í gærkvöldi. „Annars er eftirsjá að hverfa frá Akureyri og ég vona að uppsveiflan haldi áfram þar. Sanmingurinu var útrunninn og gott að tokasto á við nýtt verkefni." Hann tekur við Njarðvíkur liðinu af Vali Ingimundarsyni sem fer til Danmerkur £ haust. KORFUKNATTLEIKUR 1. DEILD KVENNA Breiðablik og Valur með fulK hús stiga BREIÐABLIK og Valur eru með fullt hús stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í 1. deild kvenna. Blikastúlkur unnu ÍBV10:0 á Kópavogsvelli og hafa þær nú markatöluna 15:1 eftirtvær umferðir. Stjarnan vann KR 1:0 á KR-velli og ÍAvann Hauka 2:0 á Skipaskaga. Valur sótti ÍBA heim í gærkveldi og flaug suður með þijú stig eftir góðan og verðskuldaðan sigur 1:4. Leikurinn fór fram á malarvelli KA og bar þess merki því leikmönn- um gekk fremur illa að hemja boltann á hörðum vellin- ReynirB. Eiríksson skrifar frá Akureyri um. Fyrri hálfleikurinn var fremur tíðindalítill og fór hann að mestu fram á milli vítateiga liðanna. Valur var þó með frumkvæðið í byijun en ÍBA kom meira inn í leikinn eftir miðjan hálfleik. Stúlkurnar komu mjög ákveðnar til leiks í síðari hálfleik og sóttu Valsarar strax að marki ÍBA. Það var hinsvegar gegn gangi leiksins sem ÍBA gerði sitt eina mark og var þar að verki Lillý Viðarsdóttir á 50. mínútu, sem skoraði með skalla. Varla hafði fagnaðarlátum heimamanna linnt þegar Valur jafn- aði og var þar að verki Erla Sigur- björnsdóttir. Á 60. mín. kom svo Kristbjörg Ingdóttir Val yfir með marki af stuttu færi. Sex mínútum síðar var svo Ólöf Helgadóttir með þrumuskot af 20 metra færi sem hafnaði í markinu og staðan orðin 3:1. Litlu fyrir lok leiksins innsigl- aði svo Kristbjörg sigur Vals, er hún komst innfyrir vörn ÍBA og skoraði að öryggi. Valsstúlkurnar stóðu sig ágæt- lega í leiknum og var liðið mjög jafnt en engin skaraði framúr. Ákveðni virtist vanta hjá ÍBA en liðið var mjög jafnt í þessum leik. ■ Úrsllt / BIO Afspymuslakt í Vesturbænum Stjömustúlkur lögðu KR-inga að velli, 0:1, í Frostaskjólinu f gærkvöldi og var leikurinn hreint ■■■■■i út sagt afar lélegur, Sfefán spyrnurnar margar Stefánsson hveijar eitthvað út í skrifar loftið. „Við vorum með boltann megnið af leiknum en það skilaði sér ekki og þetta var afspyrnulélegt," sagði Úlfar Daníelsson þjálfari KR eftir leikinn. Vesturbæingar sóttu meira og sóknin þyngdist stöðugt en hugsun, þegar koma að vítateignum, vant- aði og Hanna Kjartansdóttir v.arði vel. Garðbæingar komust meira inní leikinn er á leið og nýttu annað færið sitt þegar Ragna Lóa Stefán- dóttir kom boltanum yfír línuna úr þvögu fyrir framan mark KR. Sara Smart og Ásdís Þorgilsdótt- ir voru bestar hjá KR en hjá Stjörn- unni reyndi mikið á Hönnu mark- vörð. í framlínunni sýndu Gréta Guðnadóttir og Guðný Guðnadóttir skemmtilegt spil þó að færin létu á sér standa og Áuður Skúladóttir og Ragna Lóa voru duglegar við að sparka boltann eitthvað frá markinu. „Fyrst og fremst var þetta barátta en mörkin telja og gefa stigin," sagði Jón Óttarr Karlsson þjálfari Stjömunnar. Öniggt hjá ÍA Skagastúlkur unnu öraggan og sanngjarnan 2:0 sigur gegn Haukum á Akranesi í gærkvöldi. Helga Lind Björg- vinsdóttir kom heimaliðinu á bragð- ið eftir hálftíma leik og innsiglaði síðan stundaríjórðungi fyrir Sigþór Eiríksson skrifar frá Akranesi sigurinn leikslok. Skagastúlkur vora mun sterkari en spiluðu ekki eins og þær geta. Haukar börðust vel og gerðu mun betur en síðast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.