Morgunblaðið - 07.06.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 07.06.1995, Síða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í LUXEMBORG Undrabarnið Guðmundur frá íslandi vakti athygli GUÐMUNDUR Stephensen, sem var yngstur keppanda á leikunum - aðeins 12 ára gam- all, var eini keppandinn sem vann lotu gegn Winterdorff frá Lúxemborg.'sem sigraði í einliðaleik og tvíliðaleik í borðtennis. Guðmundur mætti honum í undanúrslitum og vann fyrstu lotuna, 21:19. Þá fór um áhorfendur og Winterdorff var undrandi á frammistöðu þessa 12 ára _ „undrabarns" frá íslandi. í annarri lotunni komst Guð- mundur í 5:3 og Lúxemborg- arinn virtist vera að fara á taugum, en hann náði að snúa leiknum sér I hag og sigraði 9:21 ogsíðan8:21. „Þetta er besta lota sem ég hef séð Guðmund spila,“ sagði Pétur Stephensen, faðir hans sem er með honum hér í Lúx- emborg. „Það var gaman að fylgjast með augnaráði Wint- erdorffs og áhorfendur voru hissa efth’ fyrstu lotuna.“ Winterdorff er í 80. sæti á heimslistanum og spilar sem atvinnumaður I þýsku deild- inni. Sigurður og Ólafur voru með í kúluvarpi ÍSLENDINGAR fóru fram á það við framkvæmdanefnd leikana í Lúxemborg fyrir nokkrum mánuðum að hægt yrði að varpa kúlunni 20 metra en á Josy Barthel-Ieik- vanginum í Lúxemborg var aðeins gert ráð fyrir 18 metra kasti. En íslendingar sögðu að það væri ekki nóg því þeir ættu kúluvarpara sem köst- uðu 20 metra. Framkvæmda- nefndin fór að óskum íslend- iiiga og lengdi kastsvæðið. En um síðustu helgi kom síðan í ljós að Pétur Guðmundsson yrði ekki með vegna meiðsla og hinn kúluvarparinn, Egg- ert Bogason, forfallaðist rétt fyrir keppni. Það var því ákveðið að Sigurður Einars- son, spjótkastari, og Ólafur Guðmundsson, tugþrautar- maður, tækju þátt í kúluvarp- inu. Sigurður varpaði 14,25 metra og varð í þriðja sæti og Ólafur 12,91 metra og því hefði verið óþarfi að stækka kastsvæðið sérstaklega fyrir íslendinga! Einar í 14. sæti í hjól- reiðakeppni leikanna EIN AR Jóhannsson hjólreiða- kappi varð í 14. sæti í hjól- reiðakeppninni. Kapparnir hjóluðu 129 kílómetra í einu hverfí Lúxemborgar og voru keppendur 28 talsins. Einar kom í mark í öðrum hópi á 3.11,15 en sigurvegarinn var á 3.07,26. Heimamenn röðuðu sér í fimm efstu sætin. Þrír íslenskir keppendur luku ekki keppni, Sölvi Bergsveinsson, Ingþór Hrafnkelsson og Bjarni Már Svavarsson. Finnbogi kom mest á óvart Finnbogi Gylfason sigraði í 800 metra hlaupi karla og sagði Þráinn Hafsteinsson landsliðsþjálf- ari að þetta hefði komið sér einna þægilegast á óvart í keppni frjáls- íþróttafólksins. Hlaupið var mjög jafnt og spennandi. Finnbogi var lengstum í þriðja sæti, á eftir hlaup- urum frá San Marínó og Möltu, sem vitað var að væru sprettharðari en okkar maður. Finnbogi sá við þeim með því að hefja endassprettinn fyrr en þeir bjuggust við. Þegar um 150 metrar voru eftir í mark spretti Finnbogi heldur betur úr spori og náði nokkurra metra forskoti sem keppinautum hans tókst ekki að brúa. Vel útfært hlaup hjá Finn- boga. Einar nærri íslandsmeti Einar Kristjánsson hástökkvari var nærri því að setja íslandsmet á afmældisdaginn sinn, en Einar varð 26 ára á laugardaginn. Hann stökk 2,15 metra en felldi 2,18 í þremur tilraunum eins og keppinautur hans frá Lúxemborg og varð í öðru sæti. „Það hefði nú verið gaman að setja met á fyrsta móti sumarsins," sagði afmælisbarnið eftir mótið. Einar fór yfir 2,12 í þriðju tilraun en keppi- nautur hans i annarri og það var það sem réði úrslitum um gull og silfur. Báðir fóru yfir 2,15 í þriðju tilraun en felldu síðan 2,18. Einar var raunar mjög nærri því að fara yfir í fyrstu tilraun, en rétt felldi. „Ég átti möguleika í fyrstu tilraun- inni, en því miður mistókst það, en í hinum tveimur var maður orðinn svo þreyttur enda búinn að stökkva mikið um daginn,“ sagði Einar og var fyllilega sáttur við árangur sinn enda allt sumarið framundan og mjög líklegt að hann fari yfir 2,16 metra í sumar, en það er íslands- metið. Morgunblaðið/Skúli Unnar Sigurvegarar FINNBOGI Gylfason sigraði í 800 metra hlaupi og var ánægður á verðlaunapallin- um eins og sjá má hér að ofan en landslfðsþjálfarinn sagði að hann hefði komið þægilega á óvart. Sunna Gestsdóttir setti leikjamet í 200 m hlaupi er hún hljóp á 24,26 sekúndum og hún var einnig í sigursveit Islands í 4x100 metra boðhlaupinu. „Ég er mjög ánægð með þetta hlaup því ég átti best áður 24,54 sekúndur,“ sagði Sunna sem er í miðj- unni á myndinni til hliðar. Geirlaug Geirlaugsdóttir til hægri var þriðja í hlaupinu en Papaioannou frá Kýpur fékk bronsverðlaunin. Sunna bætti sig og setti leikjamet í200 m hlaupi Islenska frjálsfþróttafólkið stóð sig vel á síðasta keppnisdegi Smá- þjóðaleikanna í Lúxemborg, hlaut ■■■■■■■ fem gullverðlaun Skúli Unnar þrenn silfur og Sveinsson þrenn brons og sam- skrifarfrá j;a]s hlaut frjáls- Luxemborg íþróttafólkið 8 ^ 7 silfur og 10 brons. Sunna Gestsdóttir setti leikjamet f 200 m hlaupi er hún hljóp á 24,26 sekúndum og hún var einnig í sigur- sveit íslands í 4x100 metra boð- hlaupinu. „Ég er mjög ánægð með þetta hlaup því ég átti best áður 24,54 sekúndur. Ég átti reyndar von á að ég gæti náð að bæta mig, en ekki svona mikið. Einnig var ég ánægð með 100 metra hlaupið hjá mér fyrr í mótinu því þar komst ég loksins undir 12 sekúndurnar, hljóp á 11,96 sekúndum," sagði Sunna eftir sigurinn í 200 metrun- um. íslandsmet Guðrúnar Arnar- dóttur síðan í fyrra er 24,18 sek- úndur. Geirlaug Geirlaugsdóttir varð þriðja í hlaupinu. í boðhlaupssveitinni voru auk Sunnu þær Geirlaug, Helga Hall- dórsdóttir og Þórdís Gísladóttir og hlupu stelpurnar á 46,53 sekúnd- um. Helga hljóp fyrsta sprettinn og þegar hún skipti við Geirlaugu voru þær jafnar sveit heimamanna, en Geirlaug .náði góðri forystu sem Þórdís hélt nokkurn vegin og Sunna tryggði síðan sigurinn með góðum endaspretti. „Við vorum stutt frá Islandsmetinu og eigum að geta náð því á næstunni, því við höfðum ekkert æft skiptingarnar fyrir þetta hlaup,“ sagði Sunna, sem sagðist líklega sleppa Evrópubikarmóti á næstunni þar sem hún yrði í prófum í Menntaskólanum á Akureyri, en þar er hún í þriðja bekk á félags- fræðibraut. Gull og silfur í sleggju Guðmundur Karlsson var örugg- ur sigurvegari í sleggjukasti, kast- aði 62,22 metra strax í fyrstu um- ferðinni og dugði það honum til sig- urst þó kastið væri rúmum fjórum metrum styttra en hann á best. Jón Sigurjónsson varð annar með 61,92 sem er tæpum metra frá hans besta árangri og heimamaður i þriðja sæti með 60,84. Gull og silfur til íslands í sleggjunni. Helga Halldórsdóttir varð í þriðja sæti í 100 metra grindahlaupi, hljóp á 14,18 sekúndum og íslenska karlasveitin varð í þriðja sæti í 4x100 metra boðhlaupi. Þar hlupu Jóhannes Marteinsson, Ólafur Traustason, Hörður Gunnarsson og Haukur Sigurðsson. Hlaupið var ágætt hjá strákunum en Hörður, sem hljóp þriðja sprett, tognaði eft- ir 30 metra og hafði það auðvitað áhrif á hlaup hans næstu 70 metr- ana og skiptinguna við Hauk, sem hljóp síðasta sprett. Skiptingin mis- tókst hálfpartinn því Haukur geyst- ist af stað á sínum rétta tíma en Hörður var seinni vegna meiðslanna og því mistókst skiptingin. Tíminn samt þokkalegur, 42,12 en Kýpur sigraði á 40,32 sem er leikjamet. Jóhannes varð fjórði í 200 metra hlaupi, hljóp á 21,89 sem er besti tími sem hann hefur náð í 200 metrunum. Kýpurbúi sigraði á 20,64 sem er leikjamet en fékkst ekki staðfest þar sem meðvindur var 2,4 metrar á sekúndu en má aðeins vera 2 metrar. Sigmar Gunnarsson var fimmti í 5.000 metra hlaupinu á 14.46,13 en Kýpurbúi sigraði á nýju leikja- meti, 14.27,23. Sveinn Margeirs- son, ungur hlaupagarpur sem var að taka þátt í sínu fyrsta móti er- lendis, hélt í við keppendur fyrstu fjóra kílómetrana en sprakk þá og hætti keppni. Hann féll í þá gryfju að elta hópinn þrátt fyrir að hraða- inn í byijun hafi verið mikill, of mikill fyrir hann. Jón Óddsson varð í fjórða sæti í langstökkinu, stökk 7,12 metra en Ólafur Guðmundsson varð fimmti með 6,75 metra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.