Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 B 5
SMÁÞJÓÐALEIKARIMIR í LUXEMBORG
Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson
Gullkálfar
ARNAR Freyr Ólafsson og Eydís Konráðsdóttir voru fremst í flokki sundfólkslns á Smáþjóðaleikunum í Lúxem-
borg, unnu tll sjö gullverðlauna hvort af þelm 20 sem komu í hlut íslenska sundfólkslns. Arnar Freyr setti
íslandsmet í 200 metra skrlðsundi og 400 metra skriðsundi og var í boðsundssveit íslands sem setti þrjú
íslandsmet. Eydís keppti í sjö greinum og uppskeran var jafn mörg gullverðlaun.
Amar Freyr og Eydís
kóngur og drottning
sundsins í Lúxemborg
ÍSLENSKA sundfólkið stóð sig vel
í Smáþjóðaleikunum sem lauk í
Lúxemborg á laugardag. Arnar
Freyr Ólafsson og Eydis Konráðs-
dóttir voru þar fremst í flokki,
unnu til sjö gullverðlauna hvort
af þeim 20 sem komu í hlut ís-
lenska sundfólksins. Arnar Freyr
setti íslandsmet í 200 metra skrið-
sundi og 400 metra skriðsundi og
var í boðsundssveit íslands sem
setti þrjú íslandsmet, 4x200 m
skriðsundi, 4x100 m fjórsundi og
4x100 m skriðsundi.
Arnar Freyr sigraði í 400 metra fjór-
sundi á laugardaginn og setti
jafnframt mótsmet, 4.39,21 mín.
Magnús Konráðsson
ValurB. varð þriðji í sömu grein
Jónatansson á 4.45,44 mín. sem er
skrifarfrá besti árangur hans í
Lúxemborg greininni. Arnar Freyr
var síðan í sigursveit íslands í 4x100
metra skriðusundi á laugardag ásamt
bróður sínum, Magnús Má, Loga Jes
Kristjánssyni og Magnúsi Konráðssyni.
Tími sveitarinnar var 3.33,68 mín. sem
er þriggja sekúndna bæting á Islands-
metinu sem sett var á leikunum á
Möltu fyrir tveimur árum.
AIKaf jafn gaman
„Ég er hæst ánægður með árangur-
inn hér í Lúxemborg. Ég vonaðist eftir
að ná í sjö gullverðlaun áður en ég kom
hingað og það tókst. Ég vann sex gull-
verðlaun á Möltu fyrir tveimur árum
og náði því að bæta það met um ein
gullverðlaun. Ég hef nú tekið þátt í
þrennum Smáþjóðaleikum og það er
alltaf jafn gaman að keppa á þeim.
Þó svo að gullverðlaunin hafi verið sjö
þurfti ég að hafa fyrir þeim, það var
ekki auðveldur sigur í neinni grein og
ekkert hægt að bóka fyrirfram."
„Ég er ánægðastur með íslandsmet-
ið í 400 metra skirðsundinu því þar
bætti ég mig um rúma sekúndu.
Skemmtilegasta keppnin var hins veg-
ar í 200 metra fjórsundinu. Þar var ég
í öðru sæti á eftir Lúxemborgaranum
allt þar til tíu metrar voru eftir í mark.
Þá kom keppnisskapið sér vel. Ég er
mikili keppnismaður og á erfitt með
að taka ósigri,“ sagði Arnar Freyr.
Konungur Smájóðaleikanna sagðist
stefna að því að ná lágmarkinu fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta á næsta ári.
„Nú tekur við fimm mánaða æfinga-
tímabil. Ég æfi heima á Islandi með
sunfélaginu Ægi í tvo mánuði en síðan
fer ég aftur út til Bandaríkjanna til
æfinga og síðan mun ég gera atlögu
að ólympíulágmarkinu. Ég hef æft
millivegalengdirnar í nokkurn tíma og
tel mig eiga mestu möguleikana á að
ná lágmarkinu í 400 metra skrið-
sundi,“ sagði Arnar Freyr.
Eydís stakk sér sjö sinnum og kom
upp úr með jafn mörg gull
Eydís Konráðsdóttir er 17 ára og
æfir með sunddeild Keflayíkur. Þessi
unga sundkona á svo sannarlega fram-
tíðina fyrir sér í sundíþróttinni. Hún
státar sig ekki af afrekum sínum, er
mjög jarðbundin og skynsöm í öllum
tilsvörum. Hún keppti í sjö greinum í
Lúxemborg og uppskeran var jafn
mörg gullverðlaun. Hún sagðist mjög
ánægð með árangurinn og bjóst ekki
við því fyrirfram að sigra í öllum grein-
unum sem hún tók þátt í.
„Ég ætlaði að toppa hér í Lúxem-
borg, en bjóst aldrei við þessu gull-
regni fyrirfram. Það er gaman að feta
í fótspor Ragnheiðar Runólfsdóttur og
Bryndísar Ólafsdóttur, sem hafa verið
sigursælar á síðustu Smáþjóðaleikum.
Ég hef æft mjög vel, átta til níu sinn-
um í viku og synt 40 til 45 £m á viku
og það er að skila sér í betri árangri,"
sagði Eydís. Um framtíðaráformin í
sundinu sagði hún: „Við verðum bara
að sjá hvað setur. Ég ætla ekki að
fara að gefa neinar yfirlýsingar. En
auðvitað er stefna allra íþróttamanna
að komast á Ólympíuleika og það verð-
ur tíminn að leiða í ljós hvort mér tekst
það,“ sagði sunddrottningin unga.
Lára Hrund gefur þeim
eldri ekkerf eftir
Önnur upprennandi sundstjarna,
Lára Hrund Bjargardóttir, sigraði í 400
metra fjórsundi á laugardaginn. Þessi
14 ára sundkona sýndi að hún er á
réttri leið og gefur þeir eldri ekkert
eftir. Hún synti á sínum besta tíma,
5.17,23 mínútur. Margrét Bjarnadóttir
varð í 5. sæti í sömu grein á 5.30,60
mín.
Hildur Einarsdóttir varð önnur í 800
métra skriðsundi á 9.37,81 mín. sem
er besti tími hennar og Þorgerður
Benediktsdóttir varð 5. í sömu grein á
9.58,29 mín.
Sigurgeir Hreggviðsson varð annar
í 1.500 metra skriðsundi karla á
16.31,99 mín. og Richard Kristinsson
í 4; sæti á 16.52,84 mín.
Islenska sundliðið vann 20 gullverð-
laun, 8 silfurverðlaun og 11 bronsverð-
laun. Á síðustu leikum á Möltu unnust
23 gull, 9 silfur og 8 brons. Sundfólk-
ið íslenska setti sjö íslandsmet, tvö í
einstaklingsgreinum og fimm í boð-
sundum. Setti 11 mótsmet og 30 per-
sónuleg met í 30 sundgreinum af 54.
Á þessu má ráða að Islendingar eru
að kom upp með sterkt sundlandslið
og framtíðin björt. Það ætti að vera
kappsmál íþróttaforystunnar í landinu
að skapa þessum krökkum betri að-
stöðu og þá er brýnast að koma upp
50 metra innilaug, sem hefur reyndar
verið baráttumál sundforystunnar í
mörg ár — en því miður hefur verið
talað fyrir daufum eyrum ráðamanna
undanfarin ár.
Gullkálfarnir Arnar
Freyr og Eydís
EYDÍS Konráðsdóttir og Arnar Freyr Ólafsson
eru gullkálfar þessara leika því þau fengu flesta
gullpeninga allra keppenda, sigruðu í öllum sund-
unum sem þau tóku þátt í. Bæði kepptu þau í sjö
greinum og sigruðu í þeim öllum.
Sundkeppnin verður
stöðugt jafnari
KEPPNIN í sundi verður stöðugt jafnari með
hverjum Smáþjóðaleikunum og ástæðan er ein-
föld, teþ'a margir. Byggð var glæsileg sundlaug á
Kýpur fyrir leikana þar og sömu sögu er að segja
frá Möltu. SundhöIIin í Lúxemborg er glæsileg og
á sama tíma og sundfólk þessara þjóða hafa að-
stöðu eins og hún gerist best fer okkar sundfólk
i Laugardalslaugina.
Baráttumanneskjan
Birna Björnsdóttir
BIRNA Björnsdóttir sundkona er mikil baráttu-
manneskja. Hún fékk krampakast vegna asma sem
hún er með, eftir keppni á fimmtudaginn og var
gefið súrefni, en helsttil mikið þannig að flylja
varð hana á sjúkrahús. Hún mætti samt til keppni
á föstudgaginn og stóð sig vel, en eftir sundið
fékk hún krampakast og var toguð upp úr laug-
inni og gefið súrefni. Hún mætti samt við verð-
iaunaafhendingu skömmu síðar og tók við bron-
speningi sinum, en varð að sleppa boðsundinu sem
hún ætlaði að keppa í.
Reynir náði í brons
í leirdúfuskotfimi
REYNIR Reynisson varð í þriðja sæti í leirdúfu-
skotfimi, á eftir tveimur skyttum frá Kýpur. Reyn-
ir fékk aUs 127 stig og var ánægður með árangur-
inn. „Við ætluðum að gera betur en á síðustu leik-
um er við urðum í 7.-8. sæti og það tókst. Það er
í rauninni við ofurefli að etja því margir sem eru
að keppa hér eru atvinnumenn. Við höfðum afnot
af Theódóri Kjartanssyni þjálfara í viku fyrir
keppnina og hann á mikið í þessum árangri. Hefð-
um við fengið betri undirbúning hefði skorið orð-
ið hærra, og vonandi sætið líka,“ sagði Reynir.
Slakt hjá íslensku
blaklandsliðunum
BLAKFÓLKIÐ okkar reið ekki feitum hesti frá
Smáþjóðaleikunum og var það eina greinin þar
sem Islendingar fengu enga verðlaunapeninga.
Stúlkurnar töpuðu síðasta leik sínum fyrir Kýpur
3:0 (15:5,15:7,15:5) í leik sem tók aðeins 55 mínút-
ur. Stúlkurnar lentu í 4. sæti og strákarnir lentu
í 6. sæti.
Heimamenn sigr-
uðu í öllum greinum
HEIMAMENN sigruðu í öllum greinum tennisins
á Smáþjóðaleikunum. Úrslitaleikurinn í einliðaleik
karla var spennandi, Heimamaðurinn vann And-
orramann 6-4 og 7-5. í tviliðaleiknum unnu heima-
menn lið Möltu 6-4 og 6-2. Lúxemborg og Malta
léku til úrslita í kvennaflokki. Lúxemborg vann
6-2 og 6-2 í tvíliðaleik en í einliðaleiknum voru
miklar sveiflur, Lúxemborg vann 6-1,1-6 og 6-3.
Teitur Örlygsson
í miklum ham
TEITUR Örlygsson var í miklura ham í leiknum
um bronsið en þar mætti körfuboltaliðið San Mar-
ínó. Island vann 90:83 og gerði Teitur 40 stig leikn-
um og Guðmundur Bragason 22. Kýpur sigraði í
mótinu, vann Lúxemborg 77:75 í úrslitum og gerði
hinn smávaxni bakvörður Kýpur, Stylianides, 34
stig í leiknum.
• Júlíustókviðfána
Smáþjóðaleikanna
LOKAATHÖFN Smáþjóðaleikanna var haldin á
laugardeginum og þar fékk Júlíus Hafstein for-
seti íslensku Ólympíunefndarinnar aflientan fána
leikanna sem tákn fyrir að næstu Smáþjóðaleikar,
þeir sjöundu í röðinui, verða haldnir á Islandi árið
1997.