Morgunblaðið - 07.06.1995, Síða 7
6 B MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 B 7
KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Frískir Blikar slógu
Eyjamenn út af laginu
Aldrei spuming
hjá meisturum IA
, Morgunblaðið/Júlíus
KARI Stelnn Reynlsson gerir hér annað mark Skagamanna gegn FH á mánudaginn þegar tvö efstu lið deildarinnar fyrir 3. umferð áttust
við. FH-ingurinn Steven Toth reynir að komast fyrir skotið. IA vann 3:1 verðskuldað.
BREIÐABLIKSMENN komu
skipulagðir til leiks gegn Eyja-
peyjum í Eyjum á sunnudags-
kvöldið staðráðnir í að falia
ekki í sömu gryfjuna og Vals-
menn féllu í, ífyrstu umferð.
Þeir vörðust skipulega og
beittu skyndisóknum sem báru
árangur og þeir yfirgáfu Eyjar
í rjómablíðu með þrjú stig í
farteskinu eftir 2:3 sigur.
Fyrir utan skalla Tryggva Gunn-
arssonar rétt framhjá marki
Breiðabliks á 2. mínútu var um
stöðubaráttu að
jvar ræða fyrsta korterið
Benediktsson í leiknum allt þar til
skrifar Breiðabliksmenn
skoruðu fyrsta mark
leiksins í sínu fyrsta alvöru upp-
hlaupi á 15. mínútu. Eftir það sóttu
Eyjamenn stíft og Rútur Snorrason
átti tvö góð færi sem bæði fóru
forgörðum og Cardaclija markvörð-
ur Breiðabliks var vel á verði þegar
Leifur Geir komst einn inn fyrir
skömmu síðar.
Leikmenn ÍBV héldu uppteknum
hætti fram að hálfleik og áttu
mýgrút af færum en öll fóru þau
forgörðum. En þrátt fyrir að tæki-
færin hafi ekki vantað hjá Eyja-
mönnum þá vantaði alveg mörkin
og óþolinmæði gerði vart við sig
sem hjálpaði ekki til.
Blikar reyndu að veijast og stóðu
sig lengst af vel í því og náðu einni
og einni skyndiókn sem sköpuðu
ekki teljandi hættu. Vonbrigði Eyja-
manna voru nokkur að fara til leik-
hlés án þess að skora og þau áttu
eftir að segja til sín í upphafi síð-
ari hálfleiks. Þá tókst þeim ekki að
koma til baka af sama krafti og
þeir höfðu leikið á í fyrri hálfleik
og Breiðabliksmenn voru fljótir að
nýta sér það og skoruðu tvö mörk
á fyrstu átján mínútunum. í kjölfar
ÞAÐ er fremur ólíklegt að 1.
deildarliðin muni reita stig af
Skagamönnum á Akranesi í
sumar ef marka má frammi-
stöðu liðsins gegn FH-ingum á
mánudaginn, þegartvö efstu
lið deildarinnar mættust.
Skagamenn unnu 3:1 og unnu
fyrir mörkunum sínum en Hafn-
firðingar unnu líka fyrir sínu
marki.
ÆT
Eg er auðvitað svekktur yfir að
tapa enda komum við hingað
til að vinna,“ sagði Stefán Arnarson
■■■■■ markvörður FH eftir
Stefán leikinn. „Við ætluð-
Stefánsson um að liggja aftar-
skrifar lega í vöminni en
þeir eru erfiðir í
hornum og innköstum með sína
stóru menn. Okkur gekk ekki að
sigra núna en það er bjart framund-
an.“
Heimamenn byijuðu af krafti
með skallabolta í stöng FH-marks-
ins og þá varð strax ljóst hvort lið-
ið hefði alla háu boltana. Nokkrum
mínútum síðar kom fyrsta mark
Skagamanna, sem setti pressuna á
Hafnfirðinga og þeir urðu að koma
meira inní leikinn. Það gerðu þeir
og áttu ágætis kafla á meðan
Skagamenn slökuðu aðeins á en
komu síðan tvíefldir til baka og
tóku völdina á ný. Þeir fengu ágæt-
is færi á 38. mínútu þegar dæmd
var óbein aukaspyma á markteig
FH. Hafnfirðingarnir röðuðu sér
allir á línuna og skot Haraldar Ing-
ólfssonar fór í vegginn. Rétt fyrir
leikhlé bættu Skagamenn öðm
marki sínu við.
Skagamenn byijuðu á skora
glæsilegt skallamark í síðari hálf-
leik en eins og við fyrsta markið
slökuðu þeir á í kjölfarið. FH-ingar
voru síður en svo hættir, reyndu
hvað þeir gátu að koma boltann í
gegnum vörn Skagamanna eða há-
ar sendingar fyrir en þær strönduðu
á Ólafi Adolfssyni eða Zoran
Miljkovic. Engu að síður slapp ein
sending í gegn og hana afgreiddi
Hrafnkell Kristjánsson snyrtilega í
markið. Eftir það fór þreytan
greinilega að setja mörk sín á leik-
menn og talsvert dofnaði yfir leikn-
um nema hvað Stefán markvörður
þurfti að grípa inní og kom í veg
fyrir fleiri mörk ÍA. Undir lokin
skipti Logi Ólafson þjálfari ÍA
Bjarka Péturssyni og Theodóri Her-
varssyni inná fyrir Kára Stein
Reynisson og Sigurstein Gíslason
til að fríska uppá sóknarleikinn en
það gekk ekki eftir.
„Við höfðum leikinn alltaf í okk-
ar höndum og við spiluðum vel á
köflum þó að leikurinn hafi dottið
svolítið niður í síðari hálfleik. Eg
er ánægður með að við skyldum
gera þijú mörk þó við hefðum ætlað
að gera fleiri og getum betur,“ sagði
Haraldur sem átti ágætan leik fyrir
ÍA og virðist vera að koma til.
Vömin með Ólaf Adolfsson og Zor-
an var eins og akkeri. Ólafur Þórð-
arson var út um allt á vellinum og
gerði usla hjá gestunum, átti mjög
góðan leik. Sigurður Jónsson var
ágætur og í fremstu víglínu var
Dejan Stojic FH-ingum erfiður.
Kári Steinn var frískur til að bytja
með en krafturinn fjaraði út. Liðið
nær mjög vel saman og oft unun
að horfa á samspilið og hreyfanleg-
an varnarleikinn að ekki sé minnst
á snöggar þversendingar þegar
skipt er um kanta. Það munaði
ekki síst um hafa mikla yfirburði í
alla háa bolta.
Hafnfirðingar gáfust aldrei upp
og náðu góðum köflum inná milli
en það dugði ekki til. Þeir fengu
lítinn tíma úti á velli þar sem Skaga-
menn pressuðu stíft á þá og aðferð-
in að reyna að komast upp miðjuna
í gegnum vörn IA, sem þeir reyndu
sífellt, er ekki líkleg til að skila
árangri. En eins og fyrr segir stóð
liðið sig ágætlega en andstæðing-
arnir voru of sterkir í þetta sinn.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
EYJAMENN sóttu stíft að marki Breiðabliks síðustu mínútur
leiksins og fengu nokkur góð færi. Hér er Eyjamaðurinn
Rútur Snorrason í baráttu við Ásgeir Halldórsson (liggur)
og Wlllum Þór Þórsson og svo virðist sem þeim félögum
hafi teklst að stöðvar Rút í þetta skiptið.
þriðja marksins fengu Blikar gott
tækifæri til að bæta við fjórða
markinu, en Friðrik varði mjög vel
í þrígnag af stuttu færi, m.a. tvisv-
ar sinnum frá Arnari Grétarssyni.
Loks þegar staðan var orðin 0:3
var eins og leikmenn ÍBV fengju
vítamínsprautu og þeir áttu leikinn
síðustu 25 mínútnar og skoruðu tvö
mörk auk þess að eiga góð færi til
að jafna, hið minnsta, en án árang-
urs. Rútur Snorrason átti besta
tækifærið þegar skalli hans á mark-
ið á 86. mínútu var varinn af Kjart-
ani Antonssyni á marklínu. Þeir
sóttu alveg fram á síðustu sekúndu
en Blikar vörðust og héldu fengnum
hlut.
„Það hefur verið styrkleiki Eyja-
manna að koma grimmir til leiks
og gera andstæðingi sínum skrá-
veifu strax í byijun. Þetta höfðum
við í huga og ákváðum þvi að ein-
beita okkur vel í upphafi. Síðan kom
fyrsta markið á mjög heppilegum
tíma fyrir okkur,“ sagði Bjarni Jó-
hannasson, þjálfari Breiðabliks að
leikslokum, en eftir tap í fyrstu
umferð hafa haná menn unnið tvo«.
síðustu leiki. „Þegar við lenntum
undir greip um sig vonleysi en okk-
ur tókst að rífa okkur upp úr því
og við fengum færi til að jafna og
það hefði ekki verið ósanngjarnt
hefði það tekist,“ sagði Atli Eð-
valdsson, þjálfari ÍBV eftir að Eyja-
menn höfðu tapað sínum fyrsta
heimaleik í sumar.
—
Oa ■■ Gunnar Oddsson átti skot að
■ I marki Grindvíkinga á 24. mín-
útu. Boltinn hrökk af varnarmanni og út
fyrir vítateiginn þar sem Pétur B. Jóns-
son tók knöttinn niður á bijóstinu, lét
hann hoppa einu sinni og skaut síðan föstu
skoti yfir Hauk Bragason markvörð. Fal-
legt mark.
1a «fl Óli Stefán Flóventsson fór upp
■ I hægra megin á 37. mínútu og
sendi út á vítateigshornið á Zoran Ljubicic
sem gaf fasta og fallega sendingu á móts
við stöngina ijær á marki gestanna. Þar
kom Gunnar M. Gunnarsson á mikilli
siglingu og hamraði knöttinn í netið með
höfðinu.
1a^Gunnar Oddson sendi boltann
■ £á 55. mínútu af hægri kantin-
um á Pál Guðmundsson sem var rétt
utan við vítateig. Fáll tók knöttinn við-
stöðulaust og sendi hann neðst í vinstra
markhomið hjá heimamönnum.
2a *%Á 77. mínútu fengu Grindvík-
■ áCíiingar aukaspyrnu út í hægra
hominu. Boltinn var sendur að stönginni
nær og virtist lítil hætta á ferðum þvi
Leiftursmenn vom nokkuð fjölmennir
þama. Gunnar Már Másson hafði bmgð-
ið sér aftur til að aðstoða sína menn í
vörninni en ekki vildi betur til en svo að
hann sendi boltann í eigið mark þegar
hann ætlaði að sparka framhjá.
3a Leiftursmenn áttu skot að
B iCamarki á 89. mtnútu. Boltinn
hrökk rétt út fyrir vítateiginn þar sem
Ólafur Ingólfsson náði honum og brunaði
upp miðjuna. Hann lék á tvo Leiftursmenn
og allt í einu vom heimamenn tveir á
móti einum varnarmanni. Ólafur lék áfram
og þegar hann náglaðist vítateiginn renndi
hann boltanum út til hægri á Zoran
Ljubicic sern skoraði af öryggi.
Ég elska alla þessa stráka
„ÉG elska alla þessa stráka,"
sagði Luka Lúkas Kostic þjálf-
ari Grindvíkinga eftir að lið
hans hafði hlotið fyrstu stig sín
í 1. deildinni í knattspyrnu á
mánudaginn. Grindvíkingar
lögðu þá Leiftur 3:2 með marki
á síðustu mínútum leiksins.
Leikurinn byijaði með miklum
látum. Leiftur hefði hæglega
getað fengið vítaspyrnu strax á 2.
■■■1 mínútu leiksins en
Skúli Unnar ekkert var dæmt
Sveinsson þegar Sverrir Sverr-
skrifar isson var felldur í
teignum. Á næstu
mínútu komst Ljubicic einn gegn
Þorvaldi markverði Leifturs sem
varði skot hans. Ljubicic náði frá-
kastinu og skaut úr þröngu færi
rétt framhjá. Síðan áttu gestirnir
skot í innanverða stöngina áður en
þeir komust yfir á 24. mínútu með
marki Péturs B. Jónssonar. Gunnar
M. Gunnarsson jafnaði fyrir hlé
með fallegu skallamarki en hann
hafði haft sig mjög lítið í frammi.
Fyrri hálfleikur var þokkalega
leikinn, oft sáust ágætir kaflar en
þess á milli spörkuðu menn mikið
og hugsuðu lítið. Grindvíkingar
misstu Grétar Einarsson útaf eftir
tuttugu mínútna leik í síðari hálf-
leik og léku því einum færri og virð-
ast vera orðnir vanir því. „Strákarn-
ir sýndu mikinn karekter að leika
einum færri og vinna samt. Við
lékum tveimur færri á móti FH og
svo einum færri núna og ég held
að strákarnir hafi sýnt hvar íþrótta-
hjartað slær. Ég elska þessa
stráka," sagði Lúkas Kostic alsæll
með stigin þrjú.
Sigur á síðustu stundu
Það vantaði íjóra leikmenn úr
byijunarliði Grindvíkinga í gær.
Milan Jancovic og Tómas Ingi Tóm-
asson voru í leikbanni, Þórarinn
Ólafsson var meiddur og eins Ólaf-
ur Ingólfsson sem þó var á bekknum
og kom inná í síðari hálfleik og
lagði upp sigurmarkið sem kom á
síðustu stundu. Hjá Leiftri var einn-
ig nokkuð um forföll. Baldur Braga-
son var liðsstjóri en ekki leikmaður
eins og liann er þó vanari að vera
og Jón Þór Andrésson var á vara-
mannabekknum. Þegar blaðamaður
ætlaði að ræða þessa hluti og aðra
við Óskar Ingimundarson þjálfara
var svarið stutt og laggott; „No
comment!"
Það vantaði ekki baráttuna í
þennan leik, en bæði lið eiga að
geta spilað boltanum betur, þau
hafa mannskap til þess. Of mikið
var um langar marklausar sending-
ar eitthvað í átt að samheija. Þor-
steinn jónsson var besti maður vall-
arins, Ljubicic var mjög góður í
fyrri hálfleik en lét fara minna fyr-
ir sér í þeim síðari, Grétar lék vel
á meðan hans naut við og Þorsteinn
Guðjónsson lék vel í vörninni. Ekki
má gleyma Ólafi Ingólfssyni sem
lék vel eftir að hann kom inná í
síðari hálfleik.
Hjá Leiftri var Sigurbjörn Jak-
obsson ágætur í vörninni, Ragnar
Gíslasson og Páll Guðmundsson
börðust af krafti og Gunnar Odds-
son var traustur. Einnig átti Pétur
B.- Jónsson ágætan leik.
FERB
sim
VOR
*
LANDSYN
.
■
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvald$son
ZORAN Ljubicic skorar af öryggf og tryggir Grindavík sigur.
Oa rí| Breiðabliksmaðurinn Gunnlaugur Einarsson tók aukaspyrnu
■ I fimm metrum frá vítateigshomi vinstra megin á 15. mín-
útu, sendi yfir vamarvegg ÍBV og á nær stöng þar sem Anthony
Karl Gregory kom á ferðinni og nikkaði yfir Friðrik Friðriksson.
OU^þÁ 52. mínútu var brotið á Amari Grétarssyni innan vfta-
■ ■Sateigs. Ratislav Lazorik tók vítaspyrnuna og sendi ömgg-
lega framhjá Friðriki markverði sem fór f rangt hom.
Oa Aftur var brotið á Blika innan vítateigs á 63. mínútu og í
■ ’Wþetta sinn á Jóni Stefánssyni. Ratislav Lazorik tók víta-
spyrnuna og skoraði og aftur fór Friðrik í rangt hom.
1aOlngi Sigurðsson gaf lága sendingu utan frá hægi-i á 74.
■ '■Ipmín., inn í markteig Breiðabliks þar sem Sumarlidi Árna-
son stóð einn og óvaldaður og skoraði auðveldlega.
2a ^JflEftir nokkur klafs í vítateig Breiðabliks skaut Leifur Geir
■ ■^Hafsteinsson knettinum í Willum Þór Þórsson og af honum
barst hann til Sumarliða Árnasonar sem staddur var við markteigs-
hornið og skoraði auðveldlega á 77. mínútu.
1a^\Á 10. mínútu gaf Sigurður Jónsson sendingu upp hægri
■ \#kantinn á Kára Stein Reynisson, sem skaust áfram upp
kantinn og sendi boltann fyrir markið. Þar tók Haraldur Ingólfsson
á móti boltanum með vinstri fæti og sendi hann í markið viðstöðulaust.
2a^\Ólafur Þórðarson tók eitt af sínum löngu innköstum frá
■ \Jvinstri kanti rétt við hornfána á 41. mínútu. Boltinn barst
inní markteig en FH-ingum tókst að hreinsa frá út í vítateig. Þar
beið Kári Steinn Reynisson, skaut í gegnum hópinn og í markhornið.
3a J%Þriðja mark ÍA kom á 49. mínútu og var einkar glæsilegt.
■ \rSkagamenn voru með boltann á miðjum vallarheimingi FH,
þegar Ólafur Þórðarson sendi óvænt uppí vinstra hornið á Harald Ing-
ólfsson. Hann kom boltanum fyrir þar sem Dejan Stojic var búinn
að koma sér fyrir við markteig og skailaði glæsilega í hornið.
3:1
Þorsteinn Halldórsson sá glufu í vöm IA á 61. mínútu,
■ ■ sendi boltann inní hana frá miðjum vallarhelmingi Skaga-
manna og á Hrafnkell Kristjánsson við vítateig, sem rak hann nokkra
metra og lyfti síðan framhjá Þórði Þórðarsyni markverði.
„Aldrei kynnst öðrum
eins óheiðarleika“
- sagði -fyrirliði Fram. Vorum heiðarlegir sagði iyrirliði KR
Eg hef aldrei kynnst öðrum eins
óheiðarleika. Menn tala hér um
„fair play“ og svo er það þverbrotið.
Ég er eiginlega orð-
Stefán *aus ve‘1;
Eiríksson hvað er hægt að
skrifar segja um svona
framkomu,“ sagði
Birkir Kristinsson fyrirliði Fram eftir
umdeilt atvik í leik gegn KR í Frosta-
skjólinu í fyrrakvöld.
Hið umdeilda atvik átti sér stað á
58. mínútu. KR-ingar tóku innkast
eftir að Gauti Laxdal spyrnti knettin-
um út af þegar KR-ingur meiddist,
Framarar bjuggust við því að fá
Morgunblaðíð/Golli
Markahrókur
í góðu færi
MIHAJLO Bibercic gerði tvö
mörk fyrir KR gegn Fram á
mánudagskvöldið, og gerir
sig hér líklegan til afreka
fyrir framan mark Fram í
fyrri hálfleik. Pétur Mar-
teinsson reynir að bjarga
málunum. Biberclc skoraði
ekki í fyrsta leik sínum með
KR, gerði eitt í annarri um-
ferð og nú tvö mörk og virð-
ist vera að finna sig en þeg-
ar hann lék með Skaga-
mönnum var hann iðinn við
að skora.
Oa 4| Á 34. mínútu kom sending frá vinstri á Nökkva Sveinsson
a | sem var 1 miðjum teig KR. Salih Heimir Porca renndi sér
á Nökkva, hann náði skoti sem Kristján varði áður en hann féll við,
og dæmdi Guðmundur Stefán Maríasson umsvifalaust vítaspyrnu. Úr
henni skoraði Ríkharður Daðason með öruggu skoti í hægra hornið.
1a tM Hilmar Björnsson braust af harðfylgi í gegnum vörn Fram
■ I hægra megin á 51. mínútu og þegar hann var kominn inn
í vítateiginn,braut Atli Helgason á honum. Úr vítaspyrnunni skoraði
Mihajlo Bibercic með góðu skoti í markið hægra megin.
2a ■■ KR-ingar fengu innkast á miðjum vallarhelmingi Framara
■ | hægra megin á 58. mínútu. Þormóður Egilsson kastaði á
Mihajlo Bibercic sem lék í átt að vítateignum og gaf fyrir markið, á
Einar Þór Daníelsson sem skoraði úr vítateignum vinstra megin.
3a 4| Einar Þór Daníelsson lék meistaralega í gegnum vörn Fram
■ I á vinstri kantinum á 74. mínútu, inn í teig og átti hnitmið-
að skot í stöngina fjær. Knötturinn skoppaði út í teig þar sem Mi-
hajlo Bibercic var réttur maður á réttum stað og skilaði honum í netið.
knöttinn en KR-ingar voru ekki á
því, Þormóður Egilsson sendi á Bi-
bercic sem gaf fyrir markið á Einar
Þór Daníelsson sem skoraði.
„Við vorum alveg heiðarlegir. Ég
sá ekki betur en þeir hefðu verið að
hreinsa út af, og ég var ekkert að
hugsa um neitt annað en að koma
boltanum í leik aftur,“ sagði Þormóð-
ur Egilsson fyrirliði KR, sem tók hið
umdeilda innkast. Haukur Pálmason
leikmaður Fram fullyrti eftir leikinn
að Bibercic hefði sagt að hann fengi
boltann. „Komdu, þú færð boltann,“
sagði Bibercic við mig rétt fyrir innk-
astið. Eg var því ekkert að hugsa
um að dekka þá og þeir spiluðu síðan
í gegnum mig,“ sagði Haukur. Bi-
bercic sagði eftir leikinn að hann
hefði ekkert slíkt sagt.
Birkir Kristinsson var á því að
markið sem kom upp úr innkastinu
umdeilda hafi verið vendipunkturinn
í leiknum, en þá komust KR-ingar ’
yfir. Þrátt fyrir það er ekki hægt að
segja annað en sigur þeirra hafi ver-
ið sanngjarn. Þeir léku þó ekki sann-
færandi í fyrri hálfleik, leikurinn var
dauflegur til að byija með en um
miðjan hálfleikinn fyrri lifnaði ögn
yfir leiknum. KR-ingar voru meira
með boltann, en samt voru það Fram-
arar sem komust yfir á 34. mínútu.
Besta færi KR-inga í hálfleiknum
átti Ríkharður Daðason, sem átti
gullfallegan skalla í eigin slá á 40.
mínútu.
KR-ingar voru mun ákveðnari í
öllum sínum aðgerðum eftir hlé. Þeir
náðu að jafna snemma í hálfleiknum
með marki úr vítaspyrnu, og á 58.
mínútu komust þeir yfir eftir hið
umdeilda atvik. Nokkru síðar kom
þriðja markið eftir laglegt upphlaup
Einars Þórs Daníelssonar. Það var
einungis á síðustu tíu mínútum leiks-
ins sem Framarar sýndu einhvern
lit, fengu þá tvö, þijú góð færi, einu
sinni var bjargað á línu og í hin skipt-
in sá Kristján Finnbogason við Fröm-
urum.
KR-ingar gerðu marga góða hluti
í leiknum, náðu upp góðri baráttu í
síðari hálfleik og áttu allt spil á miðj-
unni lengst af. Heimir Guðjónsson
sýndi gamalkunna takta, Einar Þór
Daníelsson átti feikigóða spretti,
Óskar Hrafn var lengst af öruggur
í vörninni og fleiri mætti nefna. „Ég
er alltaf sáttur ef ég vinn. Við þurf-
um að bæta ákveðna hluti og eigum
töluvert í land. Það stendur uppúr
að við héldum haus og baráttan var
góð,“ sagði Guðjón Þórðarson þjálf-
ari KR.
„Það er augljóslega mikil vinna
framundan, við vorum að spila mjög
illa,“ sagði Magnús Jónsson nýráðinn
þjálfari Fram eftir fyrsta leik sinn
með liðinu. Framarar sýndu fátt ann-
að en slakan leik, ljósi punkturinn
var þó kannski sprækir sóknarmenn,
sem reyndar fóru ekki vel með þau
færi sem þeir fengu.