Morgunblaðið - 07.06.1995, Síða 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KÓRFUKNATTLEIKUR
Magic
ífyrsta
sinní
úrslK
Shaquille O’Neal skoraði 25 stig
og tók átta fráköst fyrir Or-
lando Magic í 105:81 sigri gegn
Indiana í sjöunda leik liðanna um
úrslitasæti í NBA-deildinni, sem fór
fram í fyrrinótt. Indinana jafnaði
metin, 3-3, aðfaramótt laugardags
þegar liðið vann 123:96 en Shaq
og félagar vom öryggið uppmálað
á heimavelli og tryggðu félaginu
úrslitasæti í fyrsta sinn. „Við töpuð-
um frekar illa í sjötta leiknum og
ég vildi gera allt sem ég gæti til
að tryggja okkur sigur að þessu
sinni,“ sagði Shaq.
Horace Grant, sem var þrisvar
meistari með Chicago Bulls, var
með 16 stig fyrir Orlando og tók
auk þess níu fráköst. Dennis Scott
gerði 19 stig og Hardaway 17 stig.
Reggie Miller gerði 36 stig í
sjöttu viðureign liðanna en aðeins
12 stig í fyrrinótt. Dale Davis var
stigahæstur með 15 stig og hann
tók 13 fráköst. „Þó við hefðum leik-
ið eins vel og við best getum held
ég að við hefðum tapað,“ sagði
Larry Brown, þjálfari Indiana.
„Betra liðið sigraði."
Leikurinn var jafn til að byrja
með en samt var Orlando yfirleitt
með undirtökin. Þegar sjö mínútur
og 40 sekúndur voru eftir í þriðja
leikhluta var staðan 60:54 en þá
komu 13 stig heimamanna gegn
einu gestanna og ljóst hvert
stefndi.
Sá hlær best...
Yfirburðir Indinana í sjötta leikn-
um voru miklir og undir lokin skor-
uðu leikmenn liðsins grimmt úr
þriggja stiga skotum en hefð er
fyrir því í NBA að reyna ekki
þriggja stiga skot á síðustu mínút-
unum þegar ljóst er hvert stefnir —
að strá ekki salti í sárin. Eftir leik-
inn tóku þeir sigurdans á vellinum
og þá var Horace Grant nóg boðið.
Hann dreif samheija sína hjá Or-
lando út á völlinn og sagði: „Horfið
á stigatöfluna og hugsið um fram
að næsta leik hvernig leikmenn
Indiana höguðu sér.“
Eftir sigurinn í sjöunda leiknum
sagði Shaq: „Við hugsuðum þeim
þegjandi þörfína og komum með
réttu hugarfari." „Við vildum sýna
þeim að það er vanmat að fagna
of snemma," sagði Hardaway.
Orlando mætir meisturum Hous-
ton Rockets í úrslitakeppninni sem
hefst í Orlando í nótt.
Reuter
ORLAIMDO, sem hefur verlA í NBA í sex ár, hafði ríka ástæðu tll að fagna
aðfararnótt mánudags en þá tryggði llðlð sér rétt til að lelka tll úrsllta í
delldlnnl í fyrsta slnn. Hér heldur Shaqullle O’Neal á þjálfaranum Brlan Hlll
og ánægja framherjans Dennls Scotts leynlr sér ekkl.
KNATTSPYRNA
THillinn er grunn-
ur framtíöarinnar
Gífurlegur fögnuður braust út í Madrid á
laugardag eftir að Real Madrid hafði
unnið Deportivo Coruna 2:1 og tryggt sér þar
með 26. meistaratitilinn í knattspyrnu á Spáni.
Jorge Valdano, þjálfari liðsins frá Argentínu,
hélt mönnum samt við efnið. „Sannir meistar-
ar eru aldrei ánægðir með allt, þeir verða allt-
af að setja sér ný markmið. Titillinn er grunn-
ur framtíðarinnar."
Árangur liðsins minnir á gömlu góðu dag-
ana þegar Real Madrid varð sex sinnum Evr-
ópumeistari en síðan eru liðin nær 30 ár.
„Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að öðl-
ast þátttökurétt í meistarakeppninni op nú
viljum við verða Evrópumeistarar í sjöunda
sinn,“ sagði Ramon Mendoza, forseti félags-
ins. Þá verður liðið reyndar að gera betur en
sl. haust þegar Óðinsvé frá Danmörku sló það
út úr Evrópukeppni félagsliða.
Erlendu leikmennirnir Michael Laudrup frá
Danmörku, Argentínumaðurinnn Fernando
Redondo og Ivan Zamorano frá Chile hafa
verið lykilmenn á tímabilinu. „Hópurinn er
mjög góður með framtíðina í huga,“ sagði
Valdano. „Sama lið, meiri árangur."
„Þessi meistaraititill er betri en hinir,“ sagði
Mendoza. „Hann er fyrir stuðningsmennina
en við höfum skuldað þeim þetta í mörg ár.“
Jose Amavisca og Ivan Zamorano gerðu
mörk heimamanna en Bebeto jafnaði 1:1 fyrir
Deportivo. Sigurmark Zamoranos, sem er
markahæstur á Spáni með 28 mörk, kom fjór-
um mínútum fyrir leikslok og réðu 105.000
áhorfendur sér ekki fyrir gleði enda fyrsti
Spánartitillinn I fimm ár í höfn þó tvær um-
ferðir séu eftir.
Barcelona var meistari undanfarin fjögur ár
en liðið vann Logrones 4:1 og tekur vænt-
anlega þátt í UEFA-keppninni í haust. Jordi
Cruyff var með tvö mörk en Aitor Beguiristain
og Josep Guardiola gerði sitt markið hvor.
Barcelona er í 3. sæti þremur stigum á eftir
Deportivo Coruna með 44 stig en Real
Zaragoza, Rea! Betis og Sevilla eru með 42 stig.
Inter í UEFA-keppnina
Miðheijinn Marco Ðelyecchio tryggði
Inter þátttökurétt í Evrópukeppni
félagsliða þegar hann skoraði á síðustu
mínútu og innsiglaði 2:1 sigur gegn
Padova í ítölsku deildinni á sunnudag.
Inter varð því í sjötta sæti en Padova
verður að leika við Genúa um áframhald-
andi veru í deildinni.
Sigurmarkið köm eftir hornspyrnu frá
Ruben Sosa; boltinn virtist á leið í netið
en miðheijinn ungi stökk upp og skall-
aði hann rétta leið. Padova, sem lék í
deildinni í fyrsta sinn í 32 ár, sat því
eftir með sárt ennið og ekki bætti úr
skák að miðheijinn Giuseppe Galderisi
fékk að sjá rauða spjaldið.
Filippo Maniero skoraði fyrir gestina
með skalla um miðjan fyrri hálfleik en
Pierluigi Orlandini jafnaði fyrir Inter um
miðjan seinni hálfleik. Hollendingarnir
Dennis Bergkamp og Wim Jonk léku
ekki með Inter vegna landsleiks.
Genúa vann Torino 1:0 og skoraði
Tékkinn Tomas Shuhravy skömmu fyrir
hlé.
Napoli vann Parma 1:0 og gerði mið-
heijinn Massiomo Agostini eina mark
leiksins úr vítaspyrnu um miðjan fyrri
hálfleik. Svíinn Tomas Brolin hafði þá
varið með hendi á línu og var vikið af
velli.,
Meistarar Juventus unnu Cagliari
3:1 með mörkum frá Alessandro Del
Piero, Gianluca Vialli og Fabrizio Ra-
vanelli.
Lazio vann Brescia 1:0 og skoraði
miðjumaðurinn Leonardo Colucci á 85.
mínútu en við sigurinn náði Lazio öðru
sæti.
AC Milan sem var meistari undanfar-
in þijú ár vann Fiorentina 2:1 og hafn-
aði í fjórða sæti. Gabriel Batistuta skor-
aði fyrir Fiorentina og varð markakóng-
ur deildarinnar með 26 mörk.
Roma vann Cremonese 5:2 og varð í
fímmta sæti en Abel Balbo, sem var
með þrennu, gerði alls 22 mörk í deild-
inni og var næstur Batistuta.
Parma og Juve leika tvo úrslitaleiki í
bikarkeppninni og hvernig sem fer leikur
Parma í Evrópukeppni bikarhafa og Juve
í meistarakeppninni. Lazio, AC Milan,
Roma og Inter verða hins vegar í UEFA-
keppninni.
Warren Barton
dýrasti varnar-
maður Englands
WÁRREN Barton undirrítaði fjögurra ára samn-
ing við Newcastle á mánudag. Kaupverðið var
fjórar miiy. pund (liðlega 400.000 kr.) og er
Barton þar með dýrasti varnarmaður Englands
en John Scales, fyrrum samherji hans hjá
Wimbledon, var sá dýrasti, var seldur til Liver-
pool fyrir 3,5 mil(j. pund. Barton, sem er 26
ára, er fjölhæfur leikmaður. „Ég held að ég sé
bestur sem hægri bakvörður en ég yrði ánægð-
ur með að leika á miðjunni og jafnvel í marki
fyrir Newcastle," sagði kappinn og bætti við að
hann hefði ekki hikað við að skipta eftir að
hafa talað við Kevin Keegan, yfirþjálfara New-
castle. „Warren styrkir okkur mikið hjá New-
castle," sagði Keegan. „Leikaðferð okkar hentar
honum og still hans hentar okkur. Hugarfar
hans á eftir að koma honum alla leið á toppinn
og það er engin spurning um að hann á heima
í enska Iandsliðinu.“
Paul Gascoigne
á leið til
Glasgow Rangers
ENSKI landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne staðfesti
um helgina að hann væri á förum frá Lazio á Ítalíu
til Glasgow Rangers í Skotlandi en umrætt kaup-
verð er fímm millj. pund. Hann lék á ný fyrir Eng-
land eftir 15 mánaða fjarveru vegna meiðsla — kom
inná sem varamaður í 2:1 sigri gegn Japan — en
hélt síðan til Glasgow til að hitta Walter Smith,
yfírþjálfara Rangers. „Ég hef ekki áhuga á neinu
öðru félagi, samkomulag hefur náðst um öll atriði
og ég kem til Rangers," sagði Gascoigne og bætti
við að hann gerði ráð fyrir að gengið yrði endan-
lega frá málum í byijun næsta mánaðar.
Giovanni Trapattoni
tekur við Cagliari
GIOVANNI Trapattoni, þjálfarí Bayem Miinc-
hen, sagði í viðtali við ítalska blaðið Corriere
dello Sportí fyrradag að hann væri á leiðinni
til Ítalíu til að taka við stjórninni hjá Cagliari
og engu breytti þó liðið hefði ekki náð að tryggja
sér rétt til að leika í Evrópukeppni í haust.
„ Auðvitað olli það mér vonbrigðum að Cagliari
komst ekki í UEFA-keppnina en það hefur ekki
áhrif á ákvörðun mína og ég fer til félagsins."
Hann tekur við af Oscar Tabarez frá Uruguay.
Launalækkun eða
brottför hjá
Roberto Baggio
ROBERTO Baggio gæti verið á förum frá Ju-
ventus. Samningur hans rennur út i lok mánaðar-
ins og hefur félagið boðið honum nýjan, sem
felur í sér um 30% launalækkun, eða um 80
miljjónir á árí. „Við viljum halda honum en það
er undir honum komið hvort hann tekur tilboði
okkar,“ sagði Giovanni Agnelli, eigandi félags-
ins. Inter hefur sýnt áhuga á að kaupa Baggio
en áætlað kaupverð er um 832 millj. kr.
Porto mótmælir
framkomu Arsenal
JORGE Pinto, forseti portúgalska knattspyrnu-
félagsins Porto sagði í fyrradag að Bobby Rob-
son væri samningsbundinn og samningnum yrði
ekki rift en til greina kæmi að mótmæla við
knattspyrnuyfirvöld vegna tilrauna Arsenal í
Englandi til að ráða þjálfarann. Pinto sagði að
Robson værí samningsbundinn næstu tvö árín
og ekki hefði verið rætt um að láta hann fara
en sér þætti miður að Arsenal, félag með langa
hefð, sem vissi að þjálfarinn væri samningsbund-
inn, reyndi samt að fá hann til að standa ekki
við sitt. „ Við erum að hugsa um að senda inn
mótmæli til UEFA og FIFA vegna framkomu
Arsenal,“ sagði forsetinn. Porto varð meistari
uridir stjórn Robsons en ensk dagblöð hafa sagt
að Arsenal hefði boðið honum tvær mil(j. pund
(um 130 millj. kr.) fyrir fimm ára samning og
jafnframt hefur komið fram að Stewart Hous-
ton, sem tók við stjórninni af George Graham,
yrði aðstoðarmaður Robsons.