Morgunblaðið - 07.06.1995, Side 12
Svisslendingurinn Tony Rominger sigraði í Ítalíu keppninni:
Við vorum
í lífshættu
íÞiám
TPony Rominger frá Sviss sigraði
■ í ítölsku hjólreiðakeppninni
sem lauk á sunnudag. Keppnin
stóð yfir í 22 daga og var Sviss-
lendingurinn í fyrsta sæti frá öðr-
um keppnisdegi en ítalinn Gio-
vanni Lombardi var fyrstur í mark
á síðustu leiðinni.
„Þessi keppni var of hættuleg,"
sagði sigurvegarinn sem er 34 ára.
„Við vorum í lífshættu," bætti
hann við og sagði að alltof lítil
áhersla hefði verið lögð á öryggi
keppenda einkum þegar þeir
þurftu að hjóla í gegnum óupplýst
göng.
38,26 km meðalhraði
Rominger var fjórum mínútum
og 13 sekúndum á undan Rússan-
um Evgeny Berzin, sem átti titil
að verja, en meðalhraði hans var
38,26 km á klukkustund og er það
besti meðalhraði í keppninni í 11
ár. Piotr Ugrumov frá Lettlandi
var þriðji í þessari rúmlega 3.800
km keppni.
Sviss fagnaði síðast sigri í
keppninni fyrir 41 ári þegar Carlo
Clerici náði besta tímanum og
Rominger er þriðji keppandinn í
sögu keppninnar sem sigrar á þess-
um aldri. Fiorenzo Magni er elsti
sigurvegari keppninnar en hann
var 35 ára þegar hann sigraði
1955. „Það var aðeins einn dagur.
erfiður hjá mér,“ sagði Rominger.
„Ég gæti ekki verið í betri æfingu
og verð að halda mér við fyrir
Frakklandskeppnina í næsta mán-
uði. Ég veit ekki hvort Miguel Ind-
urain er í sama formi og þegar
hann sigraði í fyrra en ég ætla að
veita honum keppni. Samt er eng-
in þráhyggja hjá mér að sigra hann
því hann er góður náungi og ég
lít ekki á hann sem óvin.“
Örn Amarsson sigraði á stigamótinu í Vestmannaeyjum
Reyni að koma
mér í landsliðið
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifar
Om Arnarsson úr GA sigraði á
Flugleiðamótinu í golfi, sem
er stigamót til landsliðs og fór fram
í Vestmannaeyjum
um helgina en þetta
er fjölmennasta
golfmót sem haldið
hefur verið í Eyjum.
Örn fór á 145 höggum, fimm yfir
pari, og var tveimur höggum á
undan Þorkeli S. Sigurðssyni úr
GR. Hjá konunum varð Ólöf M.
Jónsdóttir, GK, örugg í fyrsta sæti
á 155 höggum eða sjö höggum á
undan Ragnhildi Sigurðardóttur,
GR.
„Ég er bara nokkuð kátur með
þetta,“ sagði sigurvegarinn. „Ég
er að reyna að koma mér í landslið-
ið en ég hef leikið með unglingalið-
inu i gegnum tíðina og var í æfinga-
hópi sem fór til Portúgals í vor.
Stefnan er tekin á sigur í síðasta
stigamótinu um næstu helgi en með
sigri er ég pottþéttur inn í liðið.
Teighöggin voru góð hjá mér í þessu
móti og einnig var ég sáttur við
púttin en ég þrípúttaði aðeins einu
sinni á 36 holunum. Völlurinn hérna
er fínn, sérstaklega fyrri níu, en
seinni nýju eru náttúrulega nýjar
og þurfa því lengri tíma til að verða
góðar.“
Holukeppnin í Grafarholti um
næstu helgi er síðasta stigamótið
og þar ræðst hvaða tveir eru örugg-
ir inn í landsliðið. Tveir hæstu úr
stigamótunum eru sjálfvaldir en
Ragnar Ólafsson, landsliðsþjálfari,
velur síðan fjóra til viðbótar. „Skor-
ið mætti vera betra,“ sagði Ragn-
ar. „Menn eru að spila nokkuð jafnt
en enginn að’ ná neinu súperskori
sem við erum kannski að leita eft-
ir. Það er spurning hvað veldur.
Það getur verið að það sé spenna
í mönnum þar sem þetta er næst
síðasta stigamótið. Veðrið hefur
verið ágætt svo ekki er hægt að
kenna því um og völlurinn er ágæt-
ur þó ýmislegt þurfí að laga fyrir
230 manna landsmót sem er annað
og meira mál.“
Eyjamaðurinn Þorsteinn Hall-
grímsson hefur verið meiddur en lék
með. „Ég var búinn að hlakka lengi
til þessa móts svo það var ekki
annað hægt en að vera með þó
maður geti ekki beitt sér að fullu
vegna bakmeiðslanna. Það er gam-
an að hitta strákanna og ég fíflast
bara með en ég er mest hissa á
hvað þetta gekk vel þó sprengjur
hafi komið inn á milli. Tvær hoiur
seinni daginn gáfu mér átta högg
yfir en hinar 16 var ég á þremur
undir og ég er alls ekki ósáttu
rmeð það. Mér eru gefnar vonir ufn
að geta lagast í bakinu, er í sprautu-
meðferð og svo er bara að bíða og
vona að és komist sem fyrst á
skrið."
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
ÖRN Arnarsson úr GA sigraöl á stigamótinu í golfi sem fór
fram í Vestmannaeyjum um helgina og stefnir á landsliösæti.
Reuter
TONY Rominger frá Sviss sigraði í ítölsku hjólreiðakeppninni sem lauk á sunnudag. Hér er
kappinn, sem er 34 ára, á mlðri mynd á fullri ferA á síAustu leiðinni.
TENNIS
Stjömur
úr leik
Opna franska mótið í tennis hef-
ur reynst nokkrum af helstu
tennisstjörnum heims erfitt og þær
hafa helst úr lestinni hver af ann-
arri. í fyrstu umferð féllu Petr
Sampras og Coran Ivanisevic úr
leik fyrir minni spámönnum í íþrótt-
inni, um helgina urðu Boris Bec-
ker, Jim .Jlourier og Mary Pierce
játa sig sigruð og í gær mátti efsti
spilarinn á heimslistanum, Andre
Agassi, taka pokann sinn eftir að
hafa tapað 6:4, 6:3, 7:5 í átta
manna úrslitum fyrir Rússanum
Yevgeny Kafelnikov sem er í níunda
sæti á heimslistanum.
Keppnin í París fer fram á leir-
velli og í þau ellefu ár sem Boris
Becker hefur verið atvinnumaður í
tennis hefur honum aldrei tekist að
sigra á móti á leirvelli og honum
tókst ekki að breyta því nú. í þriðju
umferð lék hann gegn Adrian Vo-
inea frá Rúmeníu, sem fyrir mótið
var númer 128 á heimslistanum.
Rúmeninn sigraði í fjórum Iotum
6:3, 6:4, 3:6 og 7:5. Reyndar þurfti
að fresta leiknum í miðjum klíðum
á laugardaginn vegna rigningar en
veður var skárra þegar kapparnir
tóku upp þráðinn daginn eftir.
Mary Pierce, sem sigraði á Opna
ástralska, fékk mjög snögga af-
greiðslu hjá króatísku stúlkunni Iva
Majoli í leik þeirra í 3. umferð á
sunnudag, 6:2, 6:3. Pierce er í þriðja
sæti heimslistans og tapaði í úrslit-
leiknum á Opna franska mótinu í
fyrra fyrir spænsku konunni Ar-
antxa Sanches Vicario. Jim Courier
sem sigraði á mótinu 1991 og 1992,
lék til úrslita 1993 og komst í und-
anúrslit í fyrra varð að bíta í það
súra epli að tapa fyrir 19 ára göml-
um Spánverja Alberto Costa í leik
sem tók þrjá tíma. Spánverjinn vann
fyrstu lotuna 6:4, en Courier svar-
aði með 1:6 sigri í annarri. Costa
lék vel í þriðju og fjórðu lotu, vann
7:6 og 6:4 og gaf þar með amerísku
stjörnunni frí frá frekari keppni að
sinni.
HJOLREIÐAR
GOLF