Morgunblaðið - 09.06.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LAJDSMANNA
1995
■ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ
BLAÐ
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golll
JONATHAN Bow er komlnn aftur f raðlr KR-lnga. Hér stendur hann á mllll Sófusar GuAJónssonar, formanns
körfuknattlelksdeildar KR og Axels Nikulássonar, þjólfara.
Jonathan Bow aftur
í raðir KR-inga
Axel Nikulásson endurráðinn þjálfari félagsins
Jonathan James Bow hefur skrifað und-
ir tveggja ára samning við körfu-
knattleiksdeild KR. Hann kom hingað til
lands haustið 1989 á vegum KR, en lék
það ár með Haukum, en árið eftir með
KR. Hann hefur einnig leikið með Kefla-
víkurliðinu og síðast með Val sl. vetur
og var þá með hæsta meðalskor í leik í
deildinni.
Axel Nikulásson verður áfram þjálfari
meistara- og unglingaflokks KR og einnig
mun hann verða ráðgjafí um þjálfun ann-
arra flokka. Óskar Kristjánsson mun ann-
ast þjálfun meistara- og unglingaflokks
kvenna eins og síðasta keppnistímabil.
Helstu breytingarnar á leikmannahópi
KR fyrir næsta vetur, eru þær að Lárus
Ámason, sem lék með ÍS sl. vetur, hefur
gengið til liðs við félagið að nýju eftir
eins árs fjarveru, en Falur Harðarson
hefur gengið til Hðs við Keflvíkinga.
„Ég er mjög ánægður með að hafa
fengið Bow í okkar raðir,“ sagði Axel
Nikulásson, þjálfari KR. „Við lékum sam-
an með KR 1991 og því þekki ég hann
mjög vel. Hann hefur vaxið sem leikmað-
ur undanfarin ár og það er betra að hafa
hann með sér en á móti. Við verðum með
ungt lið í vetur og vonandi jafnara en
síðasta tímabil," sagði Axel.
Bow, sem er 29 ára, sagðist ánægður
með að vera kominn aftur „heim“ í KR,
en þetta er sjöunda keppnistímabij hans
á íslandi. „Það er gaman að vera kominn
aftur í KR. Ég þekki vel til hjá félaginu
og þá sérstaklega Axel þjálfara. Liðið er
ungt og efnilegt. Ég skipti yfir vegna
þess að ég hef trú á þessum strákum.
Við ættum alveg eins að geta komist alla
leið eins og hvert annað lið,“ sagði Bow,
sem hefur þegar sótt um að gerast íslensk-
ur ríkisborgari.
Þjálfarar Tyrklands
og Sviss mæta
FATIH Terím, þjálfarí Tyrklands, og Ray
Hodgson, þjáifarí Sviss, sem eiga eftir að koma
með iið sín til Reykjavíkur, mæta hingað til
að sjá leik íslands og Ungverjalands. Þeir
voru einnig staddir í Stokkhólmi á dögunum,
ásamt Kálmán Mészöly, þjálfara Ungverja-
lands — og voru þeir allir mjög ánægðir með
að íslendingar næðu jafntefli.
íslendingar geta
nálgast
TYRKLANDog Sviss eru efst í 3. riðli EM,
með tíu stig. ísland leikur tvo næstu leiki I
riðlinum — gegn Ungverjalandi og síðan gegn
Sviss. Með góðum úrsUtum í báðum þessum
leikjiun getur íslenska liðsins nálgast — náð
sjö stigum. Þá eru tveir leikir eftir — gegn
Tyrklandi i Reykjavfk og Ungveijalandi í
Búdapest.
Ungverjar koma
með leiguvél
UNGVERSKA landsUðið kemur ekki til
Reylgavikur fyrr en daginn fyrir leik. Liðið
kemur með leiguvél beint frá Búdapest kl. 12
á laugardaginn og æfír kl. 19 á Laugardalsvell-
inum. Liðið fer síðan aftur utan strax eftír
leikinn á sunnudagskvöldið, sem hefst kl. 20.
KR hefur titilvörn-
ina í Garðinum
KR-ingar hefja vörn sína á bikarmeistaratitlin-
um með því að leika gegn Viði í Garði í 32-
liða úrslitum. íslandsmeistararnir frá Akra-
nesi fara til Keflayíkur og leika gegn 23 ára
liði heimamanna. Öll 1. deildarliðin þurfa að
leika á útivöUum og þurfa Eyjamenn að fara
til Eskifjarðar og Valsmenn til Fáskrúðsfjarð-
ar, en annars var drátturinn þannig:
Akranes U23 - Víkingur, KVA - ÍBV, ÍBV U23
- Fram, Valur U23 - Breiðablik, Selfoss - Fylk-
ir, KR U23 - Leiftur, Breiðablik U23 - Kefla-
vík, Völsungur - FH, GG - Þróttur R., Víðir -
KR, Magni - Gríndavík, Keflavík U23 - Akra-
nes, KBS - Valur, Þór U23 - HK, Sindrí - Stjarn-
an, Leiknir - Þór Akureyri.
Leikið verður 18. og 19. júní.
Dregið í forkeppn-
inni Evrópukeppn-
innar 12.júní
DREGll) verður í forkeppni Evrópukeppninnar
í knattspyrnu 12. júní og fer drátturinn fram í
Genf í Sviss. Af íslensku liðunum eru í pottinum
Skagamenu, sem leika í meistarakeppninni, KR
í Evrópukeppni bikarhafa og FH í Evrópu-
keppni félagsliða. Fyrstu leikir verða 8. til 10.
ágúst og næstu 22. til 24. sama mánuð.
í fyrstu umferð verður síðan dregið 26. ágúst.
Ólympíufarar
Búlgaríu í pen-
ingavanda
BÚLGARSKIR Ólympíufarar gætu lent á óyfír-
stíganlegri hindrun á leið sinni á Ólympíuleik-
anna í Atlanta á næsta ári vegna fjárhags-
vanda. Liðið hefur þegar fengið rúmar 110
miiyónir til undirbúnings en þarf tæpar 100
miHjónir til viðbótar og þá bara fyrir yfirstand-
andi tfmabil en Búlgaría sendir 127 keppendur
til að taka þátt í 18 greinum.
Vaiulinn stafar meðal annars af því að áður
fyrr settu stjórnvöld ómælda peninga og vinnu
í íþróttir í áróðursskyni en eftir breytingarnar
1989 hafa þau frekar snúið sér að því að byggja
upp markaði sína.
VIÐTAL VIÐ JÓN ARNAR MAGNÚSSON, TUGÞRAUTARKAPPA / C2