Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LAJDSMANNA 1995 ■ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ BLAÐ KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Golll JONATHAN Bow er komlnn aftur f raðlr KR-lnga. Hér stendur hann á mllll Sófusar GuAJónssonar, formanns körfuknattlelksdeildar KR og Axels Nikulássonar, þjólfara. Jonathan Bow aftur í raðir KR-inga Axel Nikulásson endurráðinn þjálfari félagsins Jonathan James Bow hefur skrifað und- ir tveggja ára samning við körfu- knattleiksdeild KR. Hann kom hingað til lands haustið 1989 á vegum KR, en lék það ár með Haukum, en árið eftir með KR. Hann hefur einnig leikið með Kefla- víkurliðinu og síðast með Val sl. vetur og var þá með hæsta meðalskor í leik í deildinni. Axel Nikulásson verður áfram þjálfari meistara- og unglingaflokks KR og einnig mun hann verða ráðgjafí um þjálfun ann- arra flokka. Óskar Kristjánsson mun ann- ast þjálfun meistara- og unglingaflokks kvenna eins og síðasta keppnistímabil. Helstu breytingarnar á leikmannahópi KR fyrir næsta vetur, eru þær að Lárus Ámason, sem lék með ÍS sl. vetur, hefur gengið til liðs við félagið að nýju eftir eins árs fjarveru, en Falur Harðarson hefur gengið til Hðs við Keflvíkinga. „Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Bow í okkar raðir,“ sagði Axel Nikulásson, þjálfari KR. „Við lékum sam- an með KR 1991 og því þekki ég hann mjög vel. Hann hefur vaxið sem leikmað- ur undanfarin ár og það er betra að hafa hann með sér en á móti. Við verðum með ungt lið í vetur og vonandi jafnara en síðasta tímabil," sagði Axel. Bow, sem er 29 ára, sagðist ánægður með að vera kominn aftur „heim“ í KR, en þetta er sjöunda keppnistímabij hans á íslandi. „Það er gaman að vera kominn aftur í KR. Ég þekki vel til hjá félaginu og þá sérstaklega Axel þjálfara. Liðið er ungt og efnilegt. Ég skipti yfir vegna þess að ég hef trú á þessum strákum. Við ættum alveg eins að geta komist alla leið eins og hvert annað lið,“ sagði Bow, sem hefur þegar sótt um að gerast íslensk- ur ríkisborgari. Þjálfarar Tyrklands og Sviss mæta FATIH Terím, þjálfarí Tyrklands, og Ray Hodgson, þjáifarí Sviss, sem eiga eftir að koma með iið sín til Reykjavíkur, mæta hingað til að sjá leik íslands og Ungverjalands. Þeir voru einnig staddir í Stokkhólmi á dögunum, ásamt Kálmán Mészöly, þjálfara Ungverja- lands — og voru þeir allir mjög ánægðir með að íslendingar næðu jafntefli. íslendingar geta nálgast TYRKLANDog Sviss eru efst í 3. riðli EM, með tíu stig. ísland leikur tvo næstu leiki I riðlinum — gegn Ungverjalandi og síðan gegn Sviss. Með góðum úrsUtum í báðum þessum leikjiun getur íslenska liðsins nálgast — náð sjö stigum. Þá eru tveir leikir eftir — gegn Tyrklandi i Reykjavfk og Ungveijalandi í Búdapest. Ungverjar koma með leiguvél UNGVERSKA landsUðið kemur ekki til Reylgavikur fyrr en daginn fyrir leik. Liðið kemur með leiguvél beint frá Búdapest kl. 12 á laugardaginn og æfír kl. 19 á Laugardalsvell- inum. Liðið fer síðan aftur utan strax eftír leikinn á sunnudagskvöldið, sem hefst kl. 20. KR hefur titilvörn- ina í Garðinum KR-ingar hefja vörn sína á bikarmeistaratitlin- um með því að leika gegn Viði í Garði í 32- liða úrslitum. íslandsmeistararnir frá Akra- nesi fara til Keflayíkur og leika gegn 23 ára liði heimamanna. Öll 1. deildarliðin þurfa að leika á útivöUum og þurfa Eyjamenn að fara til Eskifjarðar og Valsmenn til Fáskrúðsfjarð- ar, en annars var drátturinn þannig: Akranes U23 - Víkingur, KVA - ÍBV, ÍBV U23 - Fram, Valur U23 - Breiðablik, Selfoss - Fylk- ir, KR U23 - Leiftur, Breiðablik U23 - Kefla- vík, Völsungur - FH, GG - Þróttur R., Víðir - KR, Magni - Gríndavík, Keflavík U23 - Akra- nes, KBS - Valur, Þór U23 - HK, Sindrí - Stjarn- an, Leiknir - Þór Akureyri. Leikið verður 18. og 19. júní. Dregið í forkeppn- inni Evrópukeppn- innar 12.júní DREGll) verður í forkeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu 12. júní og fer drátturinn fram í Genf í Sviss. Af íslensku liðunum eru í pottinum Skagamenu, sem leika í meistarakeppninni, KR í Evrópukeppni bikarhafa og FH í Evrópu- keppni félagsliða. Fyrstu leikir verða 8. til 10. ágúst og næstu 22. til 24. sama mánuð. í fyrstu umferð verður síðan dregið 26. ágúst. Ólympíufarar Búlgaríu í pen- ingavanda BÚLGARSKIR Ólympíufarar gætu lent á óyfír- stíganlegri hindrun á leið sinni á Ólympíuleik- anna í Atlanta á næsta ári vegna fjárhags- vanda. Liðið hefur þegar fengið rúmar 110 miiyónir til undirbúnings en þarf tæpar 100 miHjónir til viðbótar og þá bara fyrir yfirstand- andi tfmabil en Búlgaría sendir 127 keppendur til að taka þátt í 18 greinum. Vaiulinn stafar meðal annars af því að áður fyrr settu stjórnvöld ómælda peninga og vinnu í íþróttir í áróðursskyni en eftir breytingarnar 1989 hafa þau frekar snúið sér að því að byggja upp markaði sína. VIÐTAL VIÐ JÓN ARNAR MAGNÚSSON, TUGÞRAUTARKAPPA / C2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.