Morgunblaðið - 09.06.1995, Qupperneq 4
/þrúwr
wmmmm
KNATTSPYRNA
Bruce Rioch
tekurvið
Arsenal
BRUCE Rioch skrifaði í gær undir þriggja ára samning við
Arsenal og tekur við starfi George Graham fyrrum fram-
kvæmdastjóra, sem var rekinn frá liðinu ífebrúar í kjölfar
ásakanna um vafasamar greiðslur vegna umboðslauna. Stew-
art Houston, sem var aðstoðarmaður Graham, hefur séð um
liðið í millitíðinni og er ætlunin að hann verði áfram aðstoðar-
maður.
Rioch leiddi Bolton Wanderes
upp í úrvalsdeildina á síðasta
tímabili en vildi þá ekkert segja
til um framtíðarhorfur sínar hjá
því félagi, sem aftur ýtti undir
vangaveltur um hann væri á förum
frá Bolton.
„Við erum vissir um að hann
verði frábær hjá okkur. Hann er
með þriggja ára samning en ég
vona að við verðum komnir á
sigurbraut löngu fyrir þann tíma,“
sagði Peter Hill-Wood, formaður
Arsenal. Forráðamenn Arsenal
voru búnir að leita að nýjum fram-
kvæmdastjóra um tíma og gerðu
TonyAdams
æviráðinn
hjá Arsenal
TONY Adams, miðvörður
enska landsliðsins og fyrir-
liði Arsenal, hefur verið
æviráðinn hjá liðinu. Ad-
ams, sem er 28 ára, hóf
ungur að leika á Highbury
— hann hefur ákveðið að
ljúka keppnisferli sínum
þar.
meðal annars Bobby Robson, þjálf-
ara Porto, tilboð en hann var ekki
ánægður með það.
Rioch segir að ákvörðunin um
að fara til Arsenal sé byggð á
atvinnu- og fjölskylduástæðum.
„Ég er mjög ánægður með að fá
tækifæri til að stjórna þessu fé-
lagi, sem er eflaust eitt af þeim
stærstu í Englandi með miklar
hefðir og langa sögu. Þetta er
mikil áskorun, hér er ekki slegið
slöku við og ég ætla að ná ár-
angri eins fljótt og hægt er.“ Ri-
och á hús tíu km frá æfíngasvæði
Arsenal.
Arsenal hefur gefið út að þeir
muni leggja verulega fjármuni til
að styrkja liðið.
Þess má geta að Rioch er mjög
sterkur persónuleiki, eins og Gra-
ham. Hann vill að leikmenn sínir
séu alltaf nýrakaðir þegar þeir
mæta á æfingar á morgnana, að
þeir mæti í leiki í jökkum, pressuð-
um buxum, hvítri skyrtu með bindi
og í velpússuðum skóm, eða snyrti-
legir til fara. „Mínir leikmenn
muna ferðast á fyrsta farrími
hvert sem þeir fara, ekkert ann-
að,“ sagði Rioch, sem sagði alltaf
„The Arsenal" þegar hann ræddi
um liðið á fundi með fréttamönn-
um í gær.
Pele vill ekki
lengur Maradona
jEkkert verður af samningi
knattspyrnusnillingsins
Maradona við félagið Santos í
Brasilíu eftir að knattspymugoð-
ið Pele, sem er íþróttamálaráð-
herra Brasilíu og einnig í stjóm
Santos, tiikynnti að hann hefði
gefíst uppá að semja við kapp-
ann. Pele lék í 17 ár fyrir Santos.
Maradona er að reyna komast
á samning til að geta snúið aftur
í fótboltann þegar 15 mánaða
banni, sem hann fékk fyrir lyfja-
misnotkun á heimsmeistara-
keppninni á síðasta ári, verður
aflétt í september.
Tiikynning Pele kom eftir að
féiagið fékk símbréf frá fulltrú-
um Maradona þar sem segir að
hann vilji 960 milljónír fyrir 28
mánaða samning. Forseti Santos,
Samir Adbul Hack, var ekki kát-
ur og veifaði bréfínu framan í
sjónvarpsvéiar en hann sagðist
frekar hafa búist við borga um
256 milljónir. Að auki vildi Mara-
dona fá að spila með Boca Junior
í þijá mánuði eftir að banninu
yrði aflétt en koma síðan til Bras-
ilíu.
Vitað er að Maradona vill fara
til síns gamla félags, Boca Juni-
ors í Argentínu þar sem hann
hóf feril sinn. Þar vill hann bæði
spila og þjálfa en forráðamenn
félagsins taka það ekki í mál.
Maradona hefur áður reynt fyrir
sér sem þjálfari, fyrst hjá Depor-
tivo Mandiya og síðan Racing
Club, en í hvorugt skiptið gekk
það ekkí upp.
Bruce Rioch
Bruce Rioch er 37 ára Skoti
og var fyrirliði skoska lands-
liðsins um tíma. Hann fædd-
ist 1941 í Aldershot við Lond-
on, þar sem faðir hans var
foringi í breska hernum. Ri-
och var snjall miðvallarspil-
ari, sem lék með Luton, Aston
Villa, Derby og Everton.
Hann snéri sér að þjálfun
1984 og þá hjá Torquay.
Þaðan fór hann til Middles-
borough og kom liðinu úr 3.
deild í 1. deild áður en hann
fór til Millwall 1990. Rioch
gerðist framkvæmdastjóri
Bolton 1992 og undir hans
stjóm lék liðið til úrslita í
deildarbikarkeppninni á
Wembley í vetur — tapaði
fyrir Liverpool. Bolton vann
sér siðan rétt til að leika í
úrvalsdeildinni næsta keppn-
istímabil, með því að leggja
Reading að velli í sögulegum
leik, 4:3, á Wembley.
Reuter
BRUCE Rioch, hinn nýji framkvæmdastjórl Arsenal spókaðl sig um ð Highbury, heimavelll
Arsenal, í gær eftlr að hann skrlfaðl undir þrlggja ára samnlng við félagið. Að sjálfsögðu var
hann í hvítri skyrtu með Arsenal-blndl.
KORFUKNATTLEIKUR
Houston á réttu róli
Hakeem Olajuwon gerði sigurkörfuna íframlengdum leik
MEISTARARNIR í Houston Roc-
kets eru greinilega á réttu róli
á réttum tíma ef marka má leik
liðsins ífyrsta úrslitaleiknum
gegn Orlando Magic í Orlando
í fyrra kvöid. Houston sigraði í
hörkuleik sem þurfti að fram-
lengja 118:120 og gerði Hakeem
Olajuwon sigurkörfuna þegar
þrjár sekúndur voru eftir. Fyrr í
vetur höfðu margir spáð því að
Houston næði aldrei að verja
titilinn, en þær raddir hafa verið
að þagna smátt og smátt eftir
því sem liðið hefur á úrslita-
keppnina.
Clyde Drexlers átti skot frá hægri
vængnum yfir Shaquille O’Ne-
al þegar þijár sekúndur voru eftir
af framlengingunni og hoppaði bolt-
inn á körfuhringnum áður en hann
féll í hendur Hakeem Olajuwon sem
beið við körfuhringinn vinstra megin
og þakkaði fyrir sig með því að setja
boltann ofan í körfuna og tryggja
sigurinn. „Við unnum vel fyrir þess-
um sigri og vissum að sá stóri kæmi
á réttum tíma,“ sagði Drexler. En
Oljauwon sagði aðeins; „ég var á
réttum stað á réttum tíma.“
Houston var undir lengst af í leikn-
um og_ mest 20 stig í öðrum leik-
hluta. í þriðja leikhluta gerðu meist-
aramir 37 stig gegn 19 og var Kenny
Smith þar fremstur í flokki, gerði
15 stig úr fímm þriggja stiga skotum
og hann jafnaði leikinn með þriggja
stiga körfu í lok venjulegs leiktíma
og tryggði framlengingu.
Olajuwon var stigahæstur í liði
Houston með 31 stig, Drexler og
Smith komu næstir með 23 stig,
Robert Horry var með 19 og Mario
Elie 18 stig og þar með gerðu allir
Reuter
ANFERNEE Haraway, lelkmaður Orlando, rennlr sór hér fram-
hjá Kenny Smlth, sem átti stóran þátt í slgrl Houston, geröl
meöal annars fimm þrlggja stlga körfur í þrlöja lelkhluta.
úr byijunarliðinu meira en 18 stig.
O’Neal og Anfemee Hardaway gerðu
26 stig hvor og auk þess tók O’Neil
16 fráköst fyrir Orlando. Nick Ander-
son gerði 22 stig og Horace Grant
15 stig.
Orlando átti alla möguleika á því
að vinna leikinn áður en kom til fram-
lengingar, en Nick Anderson hitti
ekki úr fjórum vítaskotum í röð þeg-
ar 10,5 sekúndur og 6,1 sekúnda var
eftir af venjulegum leiktíma og Or-
lando var yfir 110:107. „Þetta var
ekki minn dagur. Ég hef aldrei áður
misnotað fíögur vítaskot í röð,“ sagði
Anderson.
„Við vorum heppnir að vinna þenn-
an leik, en það var fyrst og fremst
góð liðsheild sem skóp sigurinn. Við
gáfumst aldrei upp,“ sagði Rudy
Tomjanovich, þjálfari Houston.
„I þessum leik gerðum við einfald-
lega allt of mörg mistök, sérstaklega
á mikilvægum augnablikum í lokin.
Þeir hreinlega stálu af okkur sigrin-
um. Það er mjög slæmt að tapa leik
sem við erum með allt að 20 stiga
forskot í,“ sagði Anfernee
Hardaway, leikmaður Orlando.
Annar leikur liðanna fer fram í
Orlando í kvöld. En það lið sem fyrr
vinnur fjóra leiki verður meistari.