Morgunblaðið - 11.06.1995, Síða 1
SUZUKIVITARA LANGUR í REYNSL UAKSTRI - NÝIR BÍLAR
Á BÍLASÝNINGUNNIíSEOUL - TÍURÁÐ TIL KA UPENDA
* * * *
NOTAÐRA BTLA - BENSINVERÐIEVROPU
SJOVAOPALMENNAR
Kringlunni 5 - sími 569-2500
5dyra
er kominn og kostar
aðeins 2.389.000 kr.
<3£> TOYOTA
Tákn um gceði
Ger.eral Motors
Ford\2
Toyota
Volkswagen
Nissan
Chrysler
Fiat
Peugeot-Citroen
Mitsubishi
Renault
Honda
Mazda
4.560.000
__3.042.383
2.617.294
2.400.000
_2.300.000
1.989.800
1.913.053
1.851.257
1.730.000
1.255.311
Fjöldi
framieiddra
ökutækja
Samkeppni leitt til
15 mill j. sparnaóar
GUNNAR Svavarsson hjá Aðalskoð-
un hf. segir að samkeppni á sviði
bifreiðaskoðunar hafi leitt til 15
milljóna kr. sparnaðar í skoðunar-
kostnaði á ársgrundvelli. Annað eins
megi spari ef samkeppni yrði inn-
leidd í bifreiðaskráningum og núm-
erameðhöndlun en þar hefur Bif-
reiðaskoðun íslands einkaleyfí.
Gunnar segir að með samkeppni
í skoðunum hafi ýmislegt breyst
sem snýr að neytendum, t.a.m. séu
skoðunartímar orðnir ábyggilegri,
opnunartímar lengst, biðlistar
þekkist ekki lengur og öll umgjörð
í kringum þjónustuna hafi breyst.
„Verðið hefur einnig lækkað. Með
afslætti sem fyrirtæki og starfs-
mannafélög fá, auk þess sem 12%
lækkun hefur orðið á skoðunar-
gjaldi, tel ég að sparast hafi 15
milljónir kr. í skoðunarkostnað.
Sparnaðurinn skilar sér beint til
ökutækjaeigenda. Verði farið út í
samkeppni á skráningaskoðun,
breytingaskoðun, sérskoðun og fleiri
atriðum má lúta að umsýslu öku-
tækja megi ná svipuðum þjónustu-
gæðum upp og lækkuðu verði,“
sagði Gunnar. ■
Stærstu bflaframleiðendurnir 1994
36 milljónir bíla
f ramleiddar í fyrra
FRAMLEIDDIR voru 36 milljónir bíla í heiminum 1994, sem er 5%
fleiri bílar en árið 1993 en hæst fór framleiðslan árið 1989 í 36,6
milljónir bíla. General Motors er enn sem fyrr stærsti framleiðandinn
og markaðshlutdeildin er 16,1% en í næsta sæti kemur Ford með
12,5% ogþá Toyota með 9,8%. ■
Ssangyong Musso
frá Kóreu og Benz
SSANGYONG Musso er ódýr jeppi en er
umboðsmannalaus á íslandi.
SSANGYONG
Musso er kóreskur
jeppi sem hefur
vakið töluverða at-
hygli víða fyrir
skemmtilega hönn-
un og lágt verð.
Mikið samstarf er
með Ssangyong og
Mercedes-Benz og
jeppinn er m.a.
með fimm strokka,
2,3 og 2,9 lítra dís-
elvél frá Mercedes
og sjálfskiptingin
kemur einnig úr
vopnabúri Þjóð-
verja. Ssangyong
er umboðslaus á íslandi en hefur
selst í töluverðum mæli í Evrópu,
þ.á.m. í Noregi og Bretlandi. Þar
kostar ódýrasta útfærslan 16 þúsund
sterlingspund, um 1.600 þúsund ÍSK
en flaggskipið, Musso GSE með fjög-
urra þrepa sjálfskiptingu og loft-
ræstikerfi um 22.500 sterlingspund,
um 2,3 milljónir ÍSK.
Musso er afturhjóladrifinn þegar
ekki er þörf á fjórhjóladrifinu en
það er tengt með því að snúa litlum
hnappi í mælaborðinu og það er
hægt að gera þótt ekið sé á allt að
70 km hraða á klst. Bíllinn er því
sem næst fólksbílalegur í akstri á
bundnu slitlagi en þar sem hann
er hvorki með forþjöppu né milli-
kæli er upptakið aðeins rétt þolan-
legt.
Eyðslugrannur
Það sem vekur hvað mesta at-
hygli við Musso er rennileg hönnun-
in enda er loftstuðullinn aðeins
0,424. Bíllinn er með sjálfstæðri
framfjöðrun með gasdempurum en
að aftan er gormafjöðrun. Hann er
rúmgóður að innan
og með tveimur
aukasætum aftur í
komast sjö manns
fyrir í honum. Hægt
er að fella niður
aftursætisbök til að
stækka farangurs-
rýmið. Mælaborðið
er fremur einfalt í
sniðum með auðles-
anlegum mælum.
Meðal aukabúnaðar
má nefna sjálfskipt-
ingu frá Mercedes-
Benz, fjarstýrðar
samlæsingar, loft-
ræstikerfi, ABS-
hemlalæsivörn og sóllúgu en staðal-
búnaður er vökva- og veltistýri, raf-
stýrðir gluggar og hliðarspeglar.
Bíllinn vegur rétt um 1.800 kg,
er 4.640 sm á lengd og hjólhafið er
2.630 sm. Vélin er eins og fyrr seg-
ir framleidd af Mercedes-Benz og
skilar 2,3 lítra vélin 78 hestöflum
og eyðslan innanbæjar er nálægt 10
lítrum en 7,2 lítrum á jöfnum 90
km hraða. Stærri vélin, 2,9 lítra er
94 hestöfl með 11,6 lítra meðal-
eyðslu innanbæjar og 8 lítra á jöfn-
um 90 km hraða á klst. ■
Nýr BMW 328i með
nýrri gerð vélar
NÝR BMW 328i var frumsýndur
fyrir skemmstu á bílasýningunni í
Barcelona. Helstu nýjungar við bíl-
inn er ný sex strokka, 2,8 lítra vél
með blokk úr áli sem vegur 17%
minna, er 31 Vi kg léttari, en 2,5 lítra
vélin sem 328i var áður boðinn með.
328i er flaggskipið í 3-línunni frá
BMW en auk stallbaks er bíllinn
smíðaður sem tveggja hurða sport-
bíll, blæjubíll og langbakur.
Þrátt fyrir stærra slagrými segir
BMW að vélin sé þremur prósentum
sparneytnari en 2,5 lítra vélin og
eyði 8,5 lítrum á jöfnum 100 km
hraða. Vélin er með fjögurra ventla
tækni, þ.e.a.s. 24 ventlum, og skilar
sama hestaflafjölda og eldri vélin,
193 hestöflum, en 15% meira togi,
eða 280 Nm við 3.950 snúninga á
mínútu. Hröðun úr kyrrstöðu í 100
km hraða á klst er sögð taka 7,3
sekúndur og hámarkshraðinn sagður
vera 236 km á klst.
Meiri staðalbúnaður
Með nýrri vél bætist einnig við
staðalbúnaðinn í 328i því nú er bíll-
inn búinn þjófavörn í lykli. Annar
staðalbúnaður er rafstýrðar rúður
og speglar, upphækkanleg fram-
sæti, vökvastýri og innbyggt loftnet
í afturrúðu. Meðal öryggisbúnaðar
sem er staðalbúnaður má nefna líkn-
arbelg í stýri og fyrir framsætisfar-
þega, styrktarbitar í hliðum, sætis-
beltastrekkjarar og ABS-hemlalæsi-
vörn.
Nýi langbakurinn er af annarri
kynslóð og er hann stærri en fyrir-
rennarinn. Farangursrými aftan við
aftursæti er 40 lítrum meira, eða
BMW 328i langbakur er med
stærri, sex strokka vél sem
engu að síður vegur 17%
minna en eldri og stærri vélin.
370 lítrar, og 115 lítrum meira sé
aftursætisbökum hallað fram og er
þá 810 lítrar. Heildarrýmisaukningin
upp að þaktoppi er 133 lítrar og er
rýmið samtals 1.320 lítrar. Lang-
bakurinn var fyrst settur á markað
1988 og hafa 126 þúsund bílar ver-
ið seldir í Evrópu síðan. Árleg sölu-
aukning í þessum flokki bíla er 12%.