Morgunblaðið - 21.06.1995, Qupperneq 1
KNATTSPYRNA
pior0Mt#tóiíii>
1995
MIDVIKUDAGUR 21. JUNI
BLAD
STÓRSIGRAR HJÁ TOPPLIÐUNUM í KVENNAKNATTSPYRNUIMNI / C4
Blackbum
hefur
vömina
gegn QPR
ENGLANDSMEISTARAR
Blackburn hefja vörn sína á
meistaratitlinum 19. ágúst,
þegar þeir frá QPR í heimsókn.
I gær var dregið um töfluröð í
og kom þá fram hvaða lið
mætast í fyrstu umferð.
Manchester United, sem náði
ekki að verða meistari þriðja
árið í röð, leikur fyrst gegn Aston
Villa á Villa Park í Birmingham.
Stan Collymore, dýrasti leikmaður
Englands, sem Liverpool keypti frá
Nottingham Forest á 8,5 millj. pund,
mun leika fyrsta deildarleikinn á
Anfield Road, gegn Sheffield Wed-
nesday. Hollendingurinn Dennis
Bergkamp, sem er kominn í raðir
Arsenal, leikur fyrst á Highbury —
gegn nýliðunum frá Middlesbrough.
Bruce Rioch, nýi framkvæmdastjór-
inn hjá Arsenal, var á árum áður
„stjóri" hjá Middlesbrough. Þess má
geta að „Boro“ leikur sinn fyrsta
heimaleik á hinum nýja velli sínum,
Riverside Stadium, gegn Southamp-
ton 22. ágúst.
Annar Hollendingur sem er kom-
inn til Englands, Ruud Gullit, leikur
sinn fyrsta leik með Chelsea á
heimavelli, Stamford Bridge, gegn
bikarmeisturum Everton.
Chris Armstrong, sem Tottenham
keypti í gær, leikur fyrsta deildar-
leik sinn gegn Manchester City á
Maine Road í Manchester.
Les Ferdinand og Warren Barton,
sem kostuðu Newcastle 10 millj.
pund frá QPR og Wimbledon leika
á heimavelli, St. James Park, gegn
Coventry.
Manchester United mun heima-
sækja Blackbum 29. ágúst. Áður
mun United leika gegn Aston Villa
úti og heima gegn West Ham og
Wimbledon.
Guðni Bergsson og félagar hjá
Bolton leika sinn fyrsta leik úti gegn
Wimbledon, en annars eru fyrstu leik-
imir þessir 19. ágúst: Arsenal -
Middlesbrough, Aston Villa - Manc-
hester United, Blackburn - QPR,
Chelsea - Everton, Liverpool - Sheffi-
eld Wednesday, Manchester City -
Tottenham, Newcastle - Coventry,
Southampton - Nottingham Forest,
West Ham - Leeds, Wimbledon -
Bolton. Keppnistímabilið í Eng-
landi hefst formlega með ágóðaleik
meistara Blackbum og bikarmeistara
Everton á Wembley 12. ágúst.
- segir Dennis Bergkamp, sem gekk til liðs við Arsenal í gær. Tottenham keypti Chris Armstrong
Við erum fhjög ánægðir með að
Dennis Bergkamp hefur geng-
ið til liðs við Arsenal,“ sagði Peter
Hill-Wood, forseti félagsins, eftir
að búið var að ganga frá kaupum
á hollenska landsliðsmanninum frá
Inter Mílanó í gær á 7,5 millj. pund.
Bergkamp, sem er 26 ára, leikur
sinn fyrsta leik með Arsenal gegn
Inter, vináttuleik á Highbury í
London 10. ágúst.
Bergkamp sagði, að þegar hann
vissi að Arsenal vildi fá sig, hefði
hann ekki hugsað um annað félag.
„Það hefur alltaf verið draumur
minn að leika í Englandi. Meiri
áhersla er lögð á sóknarleik í ensku
knattspyrnunni og hún hentar
mér,“ sagði Bergkamp, sem gerðist
aðdáandi Glenn Hoddle hjá Totten-
ham, eftir að hann fór með föður
sínum til London til að horfa á leik
með Tottenham 1980, þegar hann
var tólf ára. Nú hefur Bergkamp
gengið til liðs við aðalkeppinauta
Tottenham í Norður-London.
Stuðningsmenn Arsenal vonast
til að Bergkamp komi til með að
leika sama hlutverk og Jiirgen
Klinsmann gerði hjá Tottenham sl.
keppnistímabil, að lyfta leik liðsins
upp á hærra plan.
Armstrong til Tottenham
Tottenham tryggði sér einnig
nýjan leikmann í gær, til að taka
við hlutverki Jurgen Klinsmanns,
sem er farinn til Bayem Munchen.
Það er Chris Armstrong, miðherji
Crystal Palace, sem kostaði Totten-
ham 4,5 millj. pund. Joe Royle
reyndi að fá Armstrong til Everton
í sl. viku, en Armstrong sagði hon-
um þá, að hann vildi ekki fara frá
London.
Armstrong kostaði Wrexham
ekkert þegar hann gekk til liðs við
liðið 1989, en welska liðið seldi
hann til Millwall tveimur árum
seinna á 50 þús. pund. Crystal
Palace keypti hann 1992 á 1,6 millj.
pund. Nú hefur félagið selt hann á
metupphæð, en fyrra metið var 2,5
millj. pund, sem Arsenal borgaði
fyrir Ian Wright.
Reuter
CHRIS Armstrong á að taka vlð hlutverki Jiirgen Klinsmanns hjá Totten'
ham, sem keyptl hann á 4,5 mlllj. pund frá Crystal Palace í gær.
Allt er fertugum fært
KARL Þórðarson, fyrrum landsliðsmaður á Akra-
nesi, er ekki búinn að leggja skóna á hilluna.
Karl, sem var fertugur á dögunum, er leikmaður
með 23 ára liði Skagamanna. Hann kom heldur
betur við sögu þegar Skagamenn lögðu 2. deildar-
lið Víkings að velli á Akranesi — einlék upp kant-
inn, eins og hann var þekktur fyrir á árum áður,
á síðustu min. leiksins og sendi knöttinu fyrir
mai'k Víkinga, þar sem Jóhannes Harðarson var
á réttum stað og skoraði sigpirmarkið, 2:1, með
skalla. Þess má geta til gamans, að með 23 ára
liði Skagamanna lék Bjarni Guðjónsson, sonur
Guðjóns Þórðarsonar, sem er aðeins 15 ára. Karl
var 25 ára þegar Bjarni fæddist.
Framarar fá Skaga-
menn í heimsókn
STÓRLEIKURINN í 16-liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ verður á Laugardalsvellinum, þar sem Fram-
arar taka á móti lslandsmeisturunum frá Akra-
nesi miðvikudaginn 28. júní. Sama dag leikur ÍBV
og Þór i Eyjum og Keflvíkingar taka á móti 23
ára liði Valsmanna. Daginn eftir verður annar
slagur 1. deildarliða — FH mætir Grindavik í
Hafnarfirði. Sama dag fær Sljaman bikarmeist-
ara KR í heimsókn, IA U23 leikur gegn Þór U23,
Valur mætir Þrótti R. og Leiftur tekur á móti
Fylki. Allt um bikardráttinn C2,C3.
Herbert verður
áfram hjá ÍR
HERBERT Amarson, körfuknattleikmaður, hefur
gert upp hug sinn og ætlar að vera áfram hjá
félögum sínum í Breiðholtinu. „Það er spennandi
verkefni í gangi hér, bæði lið og starf sem verið
er að byggja upp og vonandi heldur það starf
áfram i vetur. Mig langar að taka þátt í þessari
uppbyggingu og hálfnað er verk þá hafið er. Það
spilar lika mikið inní að hinir ætla allir að vera
áfram, til dæmis Jón Örn Guðmundsson og John
Rhodes, en svo er ég líka ÍR-ingur og það er allt-
af gaman að spila í Hellinum," sagði Herbert í
gær og átti þá við fþróttahús Seljaskóla. „Ég sá
heldur engan kost við það að breyta til, þar sem
ég er búinn að fá vinnu hér.“
Kuzenkova og
Bartova bættu
heimsmet sín
OLG A Kuzenkova frá Rússlandi bætti heimsmet
sitt í sleggjukasti á meistaramóti Rússlands í
fijálsíþróttum i Moskvu í fyrradag þegar hún
kastaði sleggjunni 68,16 metra. Fyrra met hennar
siðan 5. júní var 68,14 metrar. Sleggjukast kvenna
er tiltölulega ný keppnisgrein og verður tekin
upp á Evrópumótinu 1998.
Daniela Bartova frá Tékklandi tók þátt í frjáls-
íþróttamóti i Duisburg i Þýskalandi um helgina
og setti heimsmet í stangarstökki, sveif yfir 4,12
metra en fyrra met hennar frá 20. maí var 4,10
metrar.
„Knattspyman í Eng-
landi hentar mér“