Morgunblaðið - 22.07.1995, Blaðsíða 3
2 C LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÍÞRÓTTIR
Því fylgja skyldur
að vera í landsliði
VEGNA greinar
Bryndísar Ólafsdóttur,
sem birtist í Morgun-
blaðinu 15. júlí sl., vill
stjóm og landsliðs-
nefnd Sundsambands
íslands (SSÍ) leiðrétta
og svara ýmsu sem í
greininni kemur fram.
Bryndís byrjar á að
rifja upp viðtal sem
Stöð 2 tók við hana
snemma árs 1993.
Þáverandi stjórn SSÍ
hafði ekkert við skoð-
anir Bryndísar að at-
huga. Gagnrýni SSÍ
beindist að vinnubröð-
um fréttamanns
Stöðvar 2, j).e. að leyfa ekki sjónar-
miðum SSI að komast að.
Bryndís er ekki sú fyrsta sem
vísað er úr landsliði, af þeim sem
ekki hafa uppfyllt kröfur landsliðs-
nefndar hvað varðar þátttöku í
þeim verkefnum sem fylgja vali í
landslið. Það fylgja því einnig
skyldur að vera í landsliði í íþótt-
um. Flestir gera sér grein fyrir því
og eru tilbúnir að axla þá ábyrgð.
Deilur Bryndísar við núverandi
landsliðsnefnd og stjóm SSÍ eiga
sér langan aðdranganda. Bryndís
hefur mjög oft átt í erfiðleikum
með að hlíta sömu reglum og ann-
að sundfólk í landsliðum í sundi á
sl. árum.
Á Ólympíuárinu 1992 samþykkti
þáverandi Iandsliðsnefnd SSÍ að
vísa Bryndís úr landsliðinu vegna
agabrota í keppnisferð. Ákvörðunin
byggðist m.a. á skýrslu þáverandi
félagsþjálfara hennar, sem var
þjálfari í umræddri ferð. Meirihluti
stjómar SSÍ hnekkti úrskurði
nefndarinnar og samþykkti að leyfa
Bryndísi að keppa aftur með lands-
liðinu að uppfylltum ströngum skil-
yrðum, sem hún varð að undir-
skrifa. Þetta varð til þess að tveir
af þremur landsliðnefndarmönnum
sögðu sig úr nefndinni þ.á m. for-
maðurinn, náfrændi Bryndísar.
í æfingabúðum landsliðsins fyrir
Smáþjóðaleikana á Möltu 1993,
taldi Bryndís sig ekki þurfa að fara
eftir sömu reglum og aðrir liðs-
menn, varðandi viðvem í æfinga-
búðunum. Skjóta þurfti á neyðar-
fundi þjálfara, fararstjóra og lands-
liðsnefndar til þess að leysa þau
mál. Frá því 1992 hefur Bryndís
lent upp á kant við þrjár landslið-
nefndir.
Þann 17. júlí 1994 var verkefna-
skrá landsliðsnefndar SSÍ, fyrir
yfirstandandi keppnistímabil,
ákveðin. Hún var þá send öllum
þjálfurum. í september 1994 var
skráin kynnt á formannafundi SSI
og síðan send út til formanna og
þjálfara allra sundfélaga. í skránni
kom skýrt fram hvaða verkefni
vom skylduverkefni. Þar á meðal
vom æfingabúðir í dymbilvikunni.
Öllu sundfólki var því ljóst með
a.m.k. 7- 8 mánaða fyrirvara að
æfingabúðir yrðu á þessum tíma.
Vegna kennaraverkfalls þurfti að
færa búðimar aftur um þrjá daga.
Á Bikarkeppni SSÍ i nóvember
1994 nær Bryndís þeim árangri að
synda sig inn í Afrekshóp SSÍ (A-
hóp). Formaður landsliðsnefndar
ræddi þá við Bryndísi, varðandi
þátttöku hennar í verkefnum A-
hópsins. Bryndís kvaðst ekki gefa
kost á sér í verkefnin, vegna þess
að hún væri hætt að æfa sund með
keppni í huga. Í viðtali í Morgun-
blaðinu 29. nóvember 1994, undir
fyrirsögninni „Syndi mér til heilsu-
bótar,“ segir Bryndís orðrétt. „Ég
er hætt að æfa og núna syndi ég
bara mér til heilsubótar"... „ég hef
haldið mér við með því 'að synda
um það bil þrjá kílómetra á viku
frá því í október“.
Þegar nálgast tók Innanhúss-
meistaramót íslands
(IMÍ), sem haldið var
um miðjan marz 1995,
fór að heyrast orðróm-
ur um að Bryndís ætl-
aði að reyna að komast
í landsliðið sem keppa
átti á Smáþjóðaleikun-
um. Nokkur kurr var
innan sundhreyfingar-
innar og töldu margir
að hún ætti ekki að fá
tækifæri til þess að
komast í liðið, vegna
þess að hún æfði lítið,
mun minna en allir
aðrir landsliðsmenn.
Landsliðsnefnd sá
hinsvegar engan mein-
bug á að Bryndís yrði valin í Smá-
þjóðaliðið, enda væri valið í liðið
eftir árangri á IMÍ. Bryndís var
valin til að synda 50, 100, 200m
skriðsund og lOOm flugsund, auk
boðsunda. A fundi með landsliðinu
strax eftir valið var rætt um fyrir-
huguð verkefni liðsins. Þá spurði
Bryndís hvort skyldumæting væri
í æfmgabúðirnar um páskana. Var
henni tjáð að svo væri.
Sundfólk er ekki valið í landslið
eða sett út úr landsliði vegna skoð-
ana sinna á stjóm SSÍ. Sú staðhæf-
ing Bryndísar að landsliðsnefnd sé
í einhveiju „einkastríði“ við hana
er röng. Flestir sem til þekkja
mundu segja að Bryndís væri í
„einkastríði“ við SSÍ og landsliðs-
nefnd og hafi verið það lengi, óháð
því hverjir sitja í þessum stjórnum.
Ástæður fyrir því að Bryndísi
var vikið úr landsliðinu voru tvær
þ.e. fjarvera hennar frá æfinga-
búðunum og sannanlega ófullnægj-
andi æfingasókn.
Þegar æfingabúðir eru undir-
búnar þarf að panta hótel, mat og
skipuleggja akstur til og frá æf-
ingastað o.m.fl. Einnig þurfa þjálf-
arar að undirbúa sig með tilliti til
þess hveijir verða í búðunum.
Byndís hafði samband við for-
mann landsliðsnefndar, minna en
12 klst. áður en þær hófust. Þar
var fallist á það að hún þyrfti ekki
að mæta á allar æfingar liðsins
vegna anna við próflestur. Jafn-
framt að hún yrði að mæta á æfíng-
ar á laugardegi og sunnudegi þ.e.
þijár æfingar af sjö sem liðið æfði
saman. Henni var einnig tilkynnt
að hún yrði að gera grein fyrir fjar-
veru sinni til landsliðsnefndar.
Bryndís mætti hins vegar á eina
æfíngu á sunnudeginum. Hún sýndi
enga viðleitni til þess að samhæfa
próflestur og sundæfingar, sem
auðveldlega hefði mátt gera t.d. á
laugardeginum ef vilji af hennar
hálfu hafí verið til staðar. Landslið-
nefnd hefði t.d. verið fús að veita
Bryndís undanþágu frá því að gista
með liðinu eða taka þátt í athöfnum
þess á milli æfinga, svo hún mætti
nota tímann til próflesturs. Stað-
reyndin er hinsvegar sú að Bryndís
ætlaði að hafa hlutina eins og henni
sjálfri þóknaðist, eins og svo oft
áður, sama hvað landsliðsnefnd
segði.
I grein Bryndísar kemur fram
að landsliðsnefnd hafi engan rök-
stuðning fyrir því að hún hafi æft
illa, heldur sé um að ræða illgirni
og öfund í hennar garð. Hún full-
yrðir einnig að nefndin hafí ekki
leitað upplýsinga hjá þjálfara sínum
og aðilum á Laugarvatni um æf-
ingasókn.
Þessu er til að svara að nefndin
spurðist fyrir um æfíngar Bryndís-
ar hjá þjálfara hennar. Hann tjáði
nefndarmönnum að hann gæti ekki
staðfest neitt um hvernig hún hefði
æft, þar sem hann vissi það ekki.
Einnig var leitað eftir upplýsingum
hjá aðilum á Laugarvatni um þetta
atriði. Þær upplýsingar fullvissuðu
nefndina um að Bryndís hafi ekki
Ástæður fyrir því að
Bryndísi Ólafsdóttur var
vikið úr landsliðinu voru
tvær, segir Guðfinnur
Ólafsson, formaður
SSÍ, fjarvera hennar frá
æfingabúðunum og
sannanlega ófullnægj-
andi æfingasókn.
verið að undirbúa sig, eins og til
er ætlast, til þátttöku í erfiðu al-
þjóðlegu sundmóti. í svarbréfi
Bryndísar við bréfi SSÍ, dagsettu
25.4.1995, um þetta mál kom ekk-
ert fram um æfingasókn hennar,
nema hennar eigin fullyrðingar.
Hún hafði því tækifæri á því að
bera fram sannanir um æfíngasókn
sína, en það gerði hún ekki.
Bryndís fullyrðir, að tveimur vik-
um fyrir brottför landsliðsins til
Luxemborgar, hafi hún synt á betri
tíma í 50 m skriðsundi en greinin
vannst á í Luxemborg. Þetta tekur
hún sem dæmi um í hve góðri þjálf-
un hún hafi verið. Allir sem þekkja
til sundíþróttarinnar vita hins vegar
að mun betri tímar nást í 25m Iaug,
eins og er á Laugarvatni, heldur
en í 50m laugum. Munurinn er allt
að 1 sek. Einnig næst alltaf betri
tími þegar um hándtímatöku er að
ræða. Munur á sjálfvirkri tímatöku
og handtímatöku er 2/10 -4/10 úr
sek. Tími í einu 50m sundi segir
lítið um æfingaástand viðkomandi,
þegar þátttaka í fjögra daga alþjóð-
legu sundmóti, þar sem syntar eru
undarrásir og úrslit, er framundan.
Fullyrðing Bryndísar um að hún
hafi verið rekin fyrir það sem öðr-
um leyfist er algjörlega úr lausu
lofti gripin. Staðreyndin er sú að
þessir sundmenn, þeir Logi Jes
Kristjánsson og bræður Bryndísar,
Magnús Már og Arnar Freyr, æfðu
við bestu hugsanlegu aðstæður
undir handleiðslu góðra þjálfara.
Það hefði verið mun óhagstæðara
fyrir piltana að koma heim og eyða
þar með dýrmætum tíma í ferðalög
og það að jafna sig vegna tímamis-
munar. Sundmennirnir að norðan
áttu að mæta í próf á þriðjudegin-
um eftir páska og vegna sam-
gönguörðugleika urðu þeir að fara
norður á. laugardagskvöldið þegar
ein æfing var eftir af æfingabúðun-
um. Þessi ákvörðun var tekin af
landsliðsnefnd í samvinnu við sund-
fólkið með góðum fyrirvara.
Þess ber að geta að félag Bryn-
dísar, Sundfélagið Ægir, hefur ekki
gert neinar athugasemdir við brott-
vísun hennar. Ekki hafa borist
mótmæli frá öðrum en sunddeild
Þórs í Þorlákshöfn.
Aðrar ávirðingar í garð einstaka
nefndarmanna tel ég ekki svara-
verðar, enda vinna nefndin og
stjórn SSÍ eftir málefnum, en ekki
eftir því hvaða einstaklingur á í
hlut.
Af framansögðu má það vera
ljóst að stjórn SSI og landsliðsnefnd
telja sig hafa brugðist rétt við í
þessu máli. Það er að sjálfsögðu
engum ljúft að þurfa víkja fólki úr
landsliði.
Landsliðsnefnd og stjórn SSÍ
munu ekki tjá sig frekar um þessi
mál opinberlega, heldur snúa sér
að því að vinna að áframhaldandi
uppbyggingu sundhreyfíngarinnar
á Islandi.
Höfundur er formaður Sundsam-
bands íslands.
Guðfinnur
Ólafsson
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
BLIKASTÚLKUR stóðu slg vel gegn norsku meisturunum á Norður-
landamótlnu og gátu fagnað jafntefli, 2:2.
Blikastúlkur
náðu jöfnu gegn
norsku meisturunum
Islandsmeistarar Breiðabliks í kvenna-
knattspyrnu gerðu jafntefli, 2:2, í
fyrsta leik sínum gegn norsku meistur-
unum, SK Örn frá Þrándheimi, á Norður-
landamóti meistaraliða í Þrándheimi í
fyrrakvöld. Þessi árangur íslensku
stúlknanna er athyglisverður því í norska
liðinu voru sex stúlkur sem léku með
landsliði Norðmanna sem varð heims-
meistari fyrir nokkrum vikum síðan.
Kristrún Daðadóttir skoraði fyrsta
mark leiksins eftir skyndisókn á 30.
mínútu, en norska liðið jafnaði á loka-
mínútu fyrri hálfleiks. Sigrún Óttarsdótt-
ir kom Blikum aftur yfir í upphafi síðari
hálfleiks með þrumuskoti frá vítateig.
Það var síðan Tone Haugen, sem spilar
sem atvinnumaður í Japan, sem bjargaði
heiðri gestgjafanna er hún jafnaði tíu
mínútum síðar og þar við sat.
í gær keppti Breiðablik síðan við
dönsku meistarana, Fortuna Hjörring,
og tapaði 4:1. Jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik og var hann markalaus.
Ásthildur Helgadóttir skoraði mark Blika
á þriðju mínútu síðari hálfleiks, eftir
góðan undirbúning Margrétar Ólafsdótt-
ur, en síðan komu fjögur mörk frá þeim
dönsku, þar af tvö á síðustu 10 mínútun-
um. Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari
Breiðabliks, sagðist ánægð með frammi-
stöðu liðsins og sagði að árangurinn
gegn Norðmönnum hafi komið öllum
mjög á óvart. „Það var sagt frá því hér
í norsku blöðunum að það eina sem
hægt væri að læra af leiknum, væri það
að íslenskar konur væru góðar í fót-
bolta, eitthvað sem fáir vissu áður. Við
lékum vel gegn Norðmönnum og áttum
einnig ágæta möguleika gegn Dönum,
sem eru líklega með sterkasta liðið á
mótinu, en í því eru sjö landsliðskonur.
Við ætlum að að standa okkur gegn
sænska og finnska liðinu og halda áfram
að koma á óvart,“ sagði Vanda.
Fimm lið taka þátt í mótinu; SK Örn
frá Þrándheimi, Malmö FF frá Svíþjóð,
Malmin Palloseura frá Finnlandi, Fort-
una Hjörring frá Danmörku auk Breiða-
bliks.
Úrslit á mótinu til þessa:
Fortuna Hjörring - Malmö FF.................5:0
Malmin Palloseura - Öm......................0:4
Breiðablik - Örn............................2:2
Fortuna Hjörring - Malmin...................7:0
Malmin - Malmö FF...........................0:2
Breiðablik - Hjörring.......................1:4
■ GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
markvörður, hefur verið ráðinn að-
stoðarþjálfari Bjarna Jóhannsson-
ar hjá 1. deildarliði Breiðabliks.
Hann tók við sem aðstoðarmaður
Bjarna af Magnúsi Jónssyni, sem
var ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Fram.
■ MARTIN Eyjólfsson, varamað-
urinn sem kallaður er bjargvættur-
inn í ÍBV, kom inná eftir árs hlé,
gegn IA í gærkvöldi. Einhveiju
hefur hann gleymt því hann hljóp
inná án legghlífa og dómarinn sendi
hann strax útaf til að klæða sig í
þær og það tók nokkrar mínútur.
■ SIGURJÓN Sigurðsson,
vinstrihandar skytta úr Haukum,
hefur ákveðið að leika með FH-ing-
um næsta vetur.
■ BANDARÍSKA, tennisdrottn-
ingin Chris Evert var á dögunum
tekin í raðir frægustu tennisleikara
sögunar er hún fékk inngöngu í
„Tennis Hall of Fame“. Evert sigr-
aði 18 sinnum á einhveiju af hinum
stóru mótum á nítján ára ferli sínum
og var í efsta sæti heimslistans í
sex ár.
■ MONICA Seles tennisstjarna
verður í fyrsta sæti heimslistans
þegar hún snýr til baka til keppni
á árinu. Þetta var tilkynnt nú í vik-
unni. Áður en Seles varð að draga
sig í hlé fyrir tveimur árum í kjöl-
far árásar sem hún varð fyrir var
hún í efsta sæti heimslistans.
■ SELES mun þó fyrst um sinn
deila efsta sætinu með Steffi Graf
sem nú er í efsta sæti heimslista
tenniskvenna.
■ FRANK Clark framkvæmda-
stjóri N’Forest vonast til þess að
geta gengið frá samningi við ít-
alska knattspyrnumanninn
Andrea Silenzi frá Torino í vik-
unni. Silenzi er 29 ára gamall og
hefur leikið fimm landsleiki fyrir
Ítalíu.
■ STEFKA Kostadinova heims-
methafi í hástökki kvenna frá Búlg-
aríu keppti í vikunni eftir ársleyfi,
en hún eignaðist dreng í janúar. Á
sínu fyrsta móti stökk hún 1,94 m
og lét hafa eftir sér að hún gerðis
ér vonir um að keppa á HM í Gauta-
borg í næsta mánuði.
■ VASILY Sokov frá Rússlandi
og bronshafi í þrístökki á Evrópu-
mótinu í fyrra hefur verið settur í
3 mánaða keppnisbann á meðan
frekari rannsókn fer fram vegna
þess að fannst í sýni frá honum
merki um að hann hefði notað örv-
andi lyf fyrir Evrópubikarkeppni
landsliða í júní sl.
Heimsmeistaramir í
basli med Bandaríkjamenn
Heimsmeistarar Brasilíu í knatt-
spyrnu átti í hinu mesta basli
með baráttuglaða leikmenn Bandaríkj-
ana í úndanúrslitum Ameríkukeppn-
innar í fyrrakvöld. Það var vamarmað-
urinn Aldair sem gerði eina mark leiks-
ins fyrir Brasilíumenn á 12. mínútu
leiksins eftir mistök Brads Friedel,
markvarðar Bandaríkjamanna. Þetta
eru sömu úrslit og í viðureign land-
anna í HM í fyrrasumar. Brasilíumenn
leika því til úrslita í keppninni við
gestgjafa keppinnar, Uruguay, á
sunnudaginn, en heimamenn lögðu lið
Kolumbíu í hinum undanúrslitaleiknum
með tveimur mörkum gegn engu.
Bandaríkjamenn og Kolumbíubúar
leika um þriðja sætið í dag.
Brasilíumenn byijuðu fjörlega í
leiknum gegn Bandaríkjamönnum og
skoruðu fljótlega mark, en eftir það
varðist bandaríska liðið vel, svo vel,
að mótherjarnir fengu ekki annað
marktækifæri í fyrri hálfleik. Hinn
sérstæði varnarmaður bandaríska liðs-
ins, Alexei Lalas stjómaði vörninni
eins og herforingi auk þess að leika
skínandi vel sjálfur.
í síðari hálfleik náðu Bandaríkja-
menn að setja meiri sóknarþunga í
leik sinn og áttu þeir nokkrar hættu-
legar fyrirgjafir inn í teig Brasilíu-
manna, en án árangurs.
Bandaríkjamenn geta vel við árang-
ur sinn unað í keppninni því fáir bjugg-
ust við að liðið næði svo langt. Þeir
sigruðu Chilemenn í keppninni 2:1 og
komu síðan öllum að óvörum með því
að leggja Argentínu 3:0. Eftir það sigr-
uðu þeir Mexíkó í átta liða úrslitum
að lokinni vítaspyrnukeppni. Þessi
árangur er mikil framför frá síðu stu
keppni sem haldin var fyrir tveimur
árum, þá unnu Bandaríkjamenn ekki
leik og urðu því að fara heim að lok-
inni riðlakeppninni. Landslið Brasilíu
hefur hins vegar ekki verið sannfær-
andi í keppninni þrátt fyrir að vera
komnir svona langt. Vafasamt jöfnun-
armark þeirra gegn Argentínu þegar
Tulio lagði boltann fyrir sig með hend-
inni áður en hann skaut í markið hef-
ur orðið til enn neikvæðari umræðu
um liðið en áður. Hafa jafnvel fjölmiðl-
ar viðurkennt að markið var ólöglegt
og kalla þeir ekki allt ömmu sína þeg-
ar landsliðið er annarsvegar og ekki
síst gegn Argentínu.
Brasilía: Taffarel - Jorginho, Aldair, Andre
Crúz, Roberto Carlos, Leandro (Beto 29.),
Dunga, Juninho, Zinho, Edmundo, Savio (Tulio,
75.).
Bandaríkin: Brad Friedel - Mike Burns, Alex-
ei Lalas, Paul Caligiuri, Thomas Dooley, Ernie
Stewart,' John Harkes, Joe-Max Moore, Tab
Ramos, Cobi Jones (Frank Klopas, 68.), Eric
Wynalda (Mike Sorber, 78.).
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 1995 C 3
IÞROTTIR
KVARTMILA
Staðan að skýrast
TVÖ kvartmílumót fóru fram
um síðustu helgi ítilefni af tutt-
ugu ára afmæli Kvartmílu-
klúbbsins. Það síðara gilti til
íslandsmeistara, en þrjú mót
gilda til meistara á keppnis-
tímabilinu. Keppt var í sex
flokkum og skýrðist staðan
nokkuð í íslandsmótinu en einu
móti er ólokið.
Gunnlaugur Emilsson vann
flokk útbúinna götubíla og
lagði rallkappann Steingrím Inga-
son að velli í úrslitum, vélin bilaði
í bíl Steingríms. Gunnlaugur hefur
nú 215 stig til meistara i sínum
flokki, næstur er Grétar Jónsson
með 152 og Brynjar Gylfason með
134.
í flokki götubíla er Jón Geir
Eysteinsson efstur að stigum, eftir
keppni síðustu helgar. Jón er með
108 stig, Agnar Arnarson 87 og
Ríkharður Rúnarsson 66. í flokki
með forgjör er Torfi Sigurbjörnsson
efstur með 110 stig, Edvard A.
Ernstson er með 80 og Halldór
Björnsson 70.
GOLF
URSLIT
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sá öflugasti
GUNNLAUGUR Emilsson ekur öflugasta keppnisbilnum í
kvartmílu í dag. Hann hefur forystu í íslandsmótlnu.
Mótorhjól hafa verið mörg á
kvartmílumótum ársins og um síð-
ustu helgi var ekið í þremur flokk-
um. Valgeir Pétursson vann Unnar
Má Magnússon í 600 cc flokki, en
Unnar leiðir meistaramótið með 205
stig á móti 195 stigum Valgeirs. í
flokki 750 cc mótorhjóla er Jóhann
Jóhannsson með 117 stig, en Arnar
Spennandi á St. Andrews
Reuter
ÞRIR kylflngar eru efstir eftlr fyrstu tvo dagana á opna
breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á St. Andrews-
vellinum í Skotlandi. Bandaríkjamaðurinn John Daly, sem hér
tekur kúluna upp eftlr gott pútt á 17. braut í gær, lék á 71
höggi í gær og er á samtals á 138 höggum, eða fimm högg-
um undlr parl, ásamt landa sínum, Brad Faxon og Katsuyos-
hl Tomori frá Japan.
Island aftur í 14. sæti
Aftur varð 14. sætið hlutskipti íslendinga á Evrópumóti unglinga í
golfi, sem fram fór í Woodhall á Englandi og aftur voru það Finnar
sem unnu íslendingana í leik um 13. sætið og til að kóróna það
unnu Finnarnir með sama mun og í fyrra, 2:3. Ómar Halidórsson
og Snorri Sigurðsson unnu tvo bestu menn Finna og fengu félagarn-
ir samtals 9 fugla en Örn Ævar Hjartarson, sem leikið hafði mjög vel
á mótinu, náði sér ekki á strik í síðasta leiknum og tapaði fyrir
pilti sem hann vann með 19 höggum í undankeppniimi. Úrslit urðu
sem hér segir: Friðbjörn Oddsson og Guðmundur Óskarsson töpuðu
4-3 í fjórmenningi, Þorkell Snorri Sigurðsson vann 2-1, Örn tapaði
3-1, Ómar vann 4-3 og Birgir tapaði 4-3.
Arnarson 87. í flokki mótorhjóla
upp að 1300 cc vann Hörður Lýðs-
son í fsinni fyrstu keppni ársins og
setti íslandsmet. Fórnarlamb hans
í úrslitum var Karl Gunnlaugsson,
sem fékk ekki rönd við reist, en
hann leiðir engu að síður íslands-
mótið á 195 stigum. Hörður er með
117 og Bjarni Valsson 110.
UM HELGINA
Knattspyrna
Laugardagur:
2. deild kvenna:
Djúpivogur: Neisti D - Enheiji.......14
Fáskruðsfjörður: KBS-Sindri..........14
Reyðarfjörður: KVA - Höttur..........14
4. deild karla:
Gervigrasið: Víkverji - Vík. Ó.......14
Grýluv.: Hamar - Framheijar..........14
Sindravöllur: Sindri - Einheqi.......14
Sunnudagur:
1. deild karla:
Laugard.völlur: Fram - Keflavík......20
2. deild karla:
Akureyri: Þór - Þróttur..............20
Borganes: Skallagrímur-Víðir.........20
ÍR-völlur: ÍR-Stjarnan...............20
Kópavogur: HK - Fylkir...............20
2. deild kvenna:
Sandgerði: Reynir S. - Fjölnir.......14
Mánudagur:
Víkingsvöllur: Víkingur-KA...........20
Frjálsíþróttir
Bikarkeppni FRÍ í 1. og 2. deild fer fram
í dag á Laugardalsvelli. Keppni í 2; deild
hefst kl 13, en í 1. deild kl. 15:30. Áætlað
er að keppni ljúki um kl. 18.
Torfæra
tslandsmótið í torfæruakstri verður haldið
við Akrafjall í dag og hefst keppni kl. 14.
FELAGSLIF
Nýr tennisvöllur
Tennisklúbbur Víkings í Traðarlandi opnar
um helgina tvo gervigrastennisvelli en klúb-
burinn hefur líka yfir að ráða tveimur völl-
um með gúmmíefni. Æfingamót Búnað-
arbankans fyrir böm og unglinga mun
standa yfir alla helgina. Einnig verður
skemmtimót fyrir alla sem vilja haldið milli
klukkan 11 og 14 í dag. Dagskránni lýkur
síðan klukkan 14 með sýningarleik tveggja
bestu tennisspilara landsins, Stefáns Páls-
sonar og Atla Þorbjörnssonar.
Hjólreiðar
Frakklandskeppnin
18. áfangi í Frakklandskeppninni var hjól-
aður í gær, alls 166 km. Urslit vora sem
hér segir:
klst.
Lance Armstrong (Bandar.) Motorola
.............................. 3.47,53
Andrea Ferrigato (Ítalíu) Telekom-ZG
.........................33 sek. á eftir
Vyacheslav Ekimov (Rússl.) Noveli....44
Jean-Cyril Robin (Frakkl.) Festina...44
Maarten Den Bakker (Holl.) TVM........4
Staðan eftir 18 áfanga:
Miguel Indurain (Spáni) Banesto....88.07,39
AlexZuelle(Sviss)ONCE...2,46 sek á eftir
Riis............................. 5,59
Laurent Jalabert (Frakkl.) ONCE....6,26
Ivan Gotti (Ítalíu) Gewiss Ballan..9,52
Melchor Mauri (Spáni) ONCE........13,02
Fernando Escartin (Spáni) Mapei GB ..14,03
Buenahora (Kolombíu) Kelme........14,07
Claudio Chiappucci Carrera........14,35
Richard Virenque (Frakkl.) Festina.14,54
Golf
íslandsmót öldunga
Mótið fer fram á Akureyri og að loknum
tveimur keppnisdögum er staðan þessi:
Konur, án forgjafar
Inga Magnúsdóttir, GK...............182
Kristín Pálsdóttir, GK..............186
Ágústa Guðmundsdóttir, GKG..........192
Rósa Gunnarsdóttir, GA..............192
Anna F. Eðvarðsdóttir, GA...........193
Gerða Halldórsdóttir, GS............196
Með forgjöf:
Anna F. Eðvarðsdóttir, GA............73
Patricia Ann Jónsdóttir, GA...........7
Karlar, án forgjafar:
Sigurður Albertsson, GS.............164
KarlHólm, GK........................165
Guðmundur Valdimarsson, GL..........166
ÓttarYngvason, GR...................167
Þorbjörn Kjærbo, GS.................168
Baldvin Jóhannsson, K...............169
Sigurjón R. Gíslason, GK............170
Pétur Antonsson, NK.................170
Kjartan L. Pálsson, NK..............171
Með forgjöf:
ÁsmundurBjarnason, GH................68
Friðrik Andrésson, GR................70
Viktor Sturlaugsson, GR..............70
Árni Bjöm Árnason, GA................72
Eyjólfur Jónsson, GR.................72
Guðmundur Sigurjónsson, GMS..........72
Jens Karlsson, GK....................72
Opna breska meistaramótið
Öðrum keppnisdegi á opna breska meistara-
mótinu lauk í gær og er staðan þessi:
138 -Brad Faxon (Bandar.) 71 67, Katsuy-
oshi Tomori (Japan) 70 68, John Daly
(Bandar.) 67 71
139 -Ben Crenshaw (Bandar.) 67 72, Cost-
antino Rocca (Italfu) 69 70, John Cook
(Bandar.) 69 70, Mark Brooks
(Bandar.) 70 69, Emie Els (S-Afríku)
71 68, Corey Pavin (Bandar.) 69 70
140 -Payne Stewart (Bandar.) 72 68, Just-
in Leonard (Bandar.) 73 67, Vijay
Singh (Fiji) 68 72
141 -Nick Faldo (Bretl.) 74 67, Steve Elk-
ington (Ástralíu) 72 69, David Gilford
69 72, Phil Mickleson (Bandar.) 70
71, Frank Nobilo (N-Sjál.) 70 71,
Gordon Sherry (Bretl.) 70 71, Sam
Torrance (Bretl.) 71 70
142 - Sandy Lyle (Bretl.) 71 71, Ross
Drummond (Bretl.) 74 68, Steve
Webster (Bretl.) 70 72, Gene Sauers
(Bandar.) 69 73, Wayne Riley (Ástral-
iu) 70 72, Jose Rivero (Spáni) 70 72,
Bill Glasson (Bandar.) 68 74, Bob
Estes (Bandar.) 72 70, Steven Bot-
tomley (Bretl.) 70 72, Brett Ogle
(Ástralíu) 73 69, Michael Campbell
(N-Sjál.) 71 71
Leiðrétting
■f frásögn af ÍBV og ÍA í 1. deild karla í
blaðinu gær var ranglega farið með föður-
nafn varamarkvarðar IÁ sem kom inn á í
leiknum og varði m.a. vítaspymu. Hann
heiti Ámi Gautur Arason og er beðist vel-
virðingar á mistökunum.
Leggur Guöni fleiri mörk
inn á markareikninginn?
Island - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst