Morgunblaðið - 22.07.1995, Blaðsíða 4
ítcíanp
^!
FRJALSIÞROTTIR /BIKARKEPPNI FRI
Allt lagt undir í dag
AÐ LOKNUM fyrri keppnisdegi í 1. deild í Bikarkeppni FRÍ leiðir
FH sveitin með einu stigi hefur hlotið 125 stig, en Armenningar
hafa hlotið 124 stig. Þessar sveitir hafa nokkra sérstöðu því
sveit HSK er í þriðja sæti með 93 stig og UMSS er í fjórða
sæti hefur hlotið 83 stig. Alls keppa átta sveitir í fyrstu deild.
Það stefnir því í æsispennandi keppni á seinni keppnisdegi í
dag, sem hefst klukkan hálf fjögurá Laugardalsvelli. ÍR—ingar
leiða í 2. deild með 67 stig en UMSB fylgir skammt á eftir með
58 stig, en þar keppa aðeins fjórar sveitir.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Eins og við var búist þá var
hörkukeppni í hverri grein og
barist hart um hvert stig. Armenn-
ingar tóku fljótlega
nauma forystu sem
þeir héldu allt fram
að síðustu grein
4x100 m boðhlaupi
karla, en þar krækti sveit FH í
annað sætið en Ármenningar urðu-
að bíta í það súra epli að ná einung-
is fimmta sætinu, einum hundrað-
asta úr sekúndu á eftir sveit HSK
sem hlaut fjórða sæti. UMSK sigr-
aði á 42,42 sek., FH í öðru á 43,09
sek., UMSS sveitin sem hafði for-
ystu framan af hlaupinu varð í
þriðja sæti á 43,28 sek., síðan HSK
á 44,60 sek. og þá Ármann á 44,61
sek.
Guðrún Amardóttir var mjög
áberandi á fyrri keppnisdeginum
URSLIT
Knattspyrna
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit:
ÍBA-Valur......................1:6
Lillý Viðarsdóttir - Bergþóra Laxdal 3, íris
Eysteinsdóttir, Hjördís Símonardóttir,
sjálfsmark
3. deild karla:
Haukar - Völsungur.............0:1
- Ásgeir Baldursson
Dalvík - BÍ....................5:2
Jón Örvar Eiríksson 2, Jón Þórir Jónsson,
Grétar Steindórsson, Gunnlaugur Gunn-
laugsson - Hálfdán Daðason, Stefán Am-
aldsson
Höttur - Fjölnir...............1:0
Eiríkur Björgvinsson
Þróttur N. - Leiknir...........2:1
Óli Flóventson, Geir Brynjólfsson - Róbert
Arnþórsson
Selfoss-Ægir...................0:1
F|. lelkja u i T Mörk Stig
VÖLSUNGUR 10 7 2 1 18: 7 23
LEIKNIR 10 6 1 3 22: 11 19
ÆGIR 10 6 1 3 18: 12 19
DALVÍK 10 4 6 0 18: 9 18
RRÓTTURN. 10 5 0 5 13: 13 15
SELFOSS 10 5 0 5 16: 20 15
FJÖLNIR 10 3 1 6 17: 16 10
Bl 10 2 3 5 11: 21 9
HÖTTUR 10 2 2 6 11: 15 8
HAUKAR 10 2 0 8 6: 26 6
4. deild:
Ármann - Léttir...................2:2
Stefán Sigtryggsson, sjálfsmark - Guð-
mundur Ó. Þórðarson 2
GG - Afturelding..................3:1
Bergur Hinriksson 2, Maréi Guðlaugsson -
Arnar Sigurbjömsson
Smástund - Grótta............... 3:3
Jóhann Benónýsson 2, Rúnar Vöggson -
Kristinn Kæmested, Óttar Eðvarðsson 2
Þrymur - Hvöt................... 0:4
KS - Tindastóll................. 2:1
Miza Hazead, Steingrímur Öm Eiðsson -
Guðbrandur Guðbrandsson
Neisti - Einheiji.................1:1
Huginn-KBS........................1:0
Bruni-Ökkli.......................2:4
SM - Magni........................1:5
IH - Njarðvtk.....................3:0
og náði mörg stig fyrir félag sitt,
Ármann. Hún sigraði í 400 m grind-
arhlaupi og 400 m hlaupi, varð
önnur í þrístökki og var í sigur-
sveit Ármanns í 4x100 metra boð-
hlaupi kvenna. Af karlmönnum var
Jón Arnar Magnússon, UMSS,
drjúgur fyrir sína sveit. Hann sigr-
aði í langstökki, stökk 7,79 m og
átti hárfínt ógilt stökk upp á tæpa
8 metra. Þá sigraði hann af öryggi
í 100 m hlaupi á 10,57 og tók síðan
þátt í spjótkasti þar sem ahnn hafn-
aði í þriðja sæti, kastaði 59 m slétta.
Að endingu tók hann lokasprettinn
fyrir sína sveit í 4 x 100 metra
boðhlaupi og tryggði henni þriðja
sætið.
Af öðrum greinum þá kastaði
Sigurður Einarsson 80,06 metra í
spjótkasti og sigraði með yfirburð-
um. Kaströð Sigurðar var mjög góð
og lofar góðu HM í næsta mánuði.
Pétur Guðmundsson sigraði í kúlu-
varpi með kast upp á 18,41 m.
„Þetta var fyrsta keppni mín síðan
í mars á Evrópumótinu. Ég er allur
að jafna mig og er bjartsýnn á fram-
haldið og Heimsmeistaramótið.
Núna kastaði ég bara úr lofanum,
lét ekkert reyna á fingurnar, en
þeir eru að skríða saman og að
óbreyttu vonast ég til að láta reyna
á þá á HM. Að öðru leyti er ég í
toppformi," sagði Pétur að keppni
lokinni.
„Það þýðir ekki annað en að vera
með og hala inn stig. Ég hef ekk-
ert keppt síðan í Bikarkeppninni í
fyrrasumar og fór ekki að æfa fyrr
en í vor þegar ég fékk minn árlega
vorfiðring og fór að hreyfa mig.
Það er enn seigla í mér,“ sagði hin
margreynda hlaupakona og þjálfari
FH—inga Ragnheiður Ólafsdóttirt,
eftir að hún hafði komið fyrst í
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UNNUR Sigurðardóttir, sterkasta kona íslands, keppti i
spjótkasti fyrlr FH. Hún hafnaði í öðru sæti, kastaði 39,52 m.
mark í 1500 m hlaupi á 4:38,21
mínútu eftir góðan endaspret þar
sem hún fór fram úr Fríðu Rún
Þórðardóttur, Ármanni, sem kom
önnur í mark á 4:42,21 mínútu.
Gerlaug B. Geirlaugsdóttir sigr-
aði í 100 metra hlaupi kvenna á
11,87 sek., þar sem vindurinn var
innan löglegra marka, Sunna Gests-
dóttir varð önnur á 11,95 sek. Þá
var Geiríaug einnig í 4x100 metra
boðhlaupssveit Ármanns. „Ég var
ánægð með hundrað metra hlaupið
því veðrið var ekki hagstætt, mjög
kalt í veðri og ég fann að ég stífn-
aði undir lokin. Þá hef ég átt mið
meiðsli að stríða síðan í vor, en er
að jafna mig núna. Keppnin í heild
er spennandi og úrslitin munu ráð-
ast á síðustu grein,“ sagði Geirlaug
eftir 100 m hlaupið.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir,
HSK sigraði örugglega í þrístökki
kvenna með 12,59 metra stökki.
Stalla hennar í HSK Þórdís Gísla-
dóttir sigrðai nítjánda árið í röð í
hástökki og lét 1,69 m nægja að
þessu sinni. „Það er alltaf jafngam-
an að taka þátt í Bikarkeppninni,"
sagði Þórdís að keppni lokinni.
Kiptanui nálægt
heimsmeti
|^joses Kiptanui frá Kenýa var
nálægt því að bæta eigið
heimsmet í 3.000 metra hlaupi á
Bislett leikunum í Osló í gærkvöldi.
Hann hljóp á 8.03,36 mín. en metið
er 8.02,08 mín. og setti hann það í
Rieti á Ítalíu í september 1992.
Þó Kiptanui hafi ekki náð heims-
metinu getur hann huggað sig við
að tími hans í gær var sá næst besti
sem nokkru sinni hefur náðst í þess-
ari erfíðu grein — sem er sjö og
hálfur hringur. Hann á reyndar þrjá
bestu timana á vegalengdinni. „Eg
tapaði í Stokkhólmi [fyrir ellefu dög-
um] en það var vegna þess að ég
var aumur í hásin,“ sagði þessi ken-
ýski heimsmeistari eftir hlaupið í
gærkvöldi.
Bretinn Linford Christie sigraði í
100 m hlaupi karla á 10,12 sek. Ein-
vígis hans og Kanadabúans Dono-
vans Baileys var beðið með óþreyju,
en Bailey fór vegalengdina á 9,91
sek. í síðustu viku, sem er besti
tíminn í ár. Þeir mættust hins vegar
ekki því Kandamaðurinn komst ekki
áfram úr riðlakeppnjnni. Sá íþrótta-
maður sem sigrar í grein sinni á öll-
um Gullmótunum- fjórum, í Osló,
Ziirich, Brussel og Berlín, fær að
launum tuttugu gullstangir, alls að
verðmæti 150.000 dollara — andvirði
níu og hálfrar milljónar króna — auk
þess sem greiddir eru 7.000 dollarar
fyrir sigur á hveiju móti fyrir sig í
hverri grein, um 450 þúsund krónur,
sem er óvenju mikið.
Hakeem í
bandaríska
landsliðið
HAKEEM Olajuwon, besti
köifuknattleiksmaður heims,
getur leikið með bandariska
landsliðinu á Ólympíuleikun-
um í Atlanta á næsta ári, sam-
kvæmt ákvörðun sem Alþjóða
körfuknattleikssamandsins,
FIBA, sendi frá sér í gær.
Hakeem, sijarna meistara
Houston í NBA-deildinni, er
fæddur í Nígeríu og lék með
unglingalandsliði Nígeríu í
Afríkukeppninni þegar hann
var 17 ára. Hann fékk síðan
bandarískan ríkisborgararétt
fyrir tveimur árum.
URSLIT
Frjálsíþróttir
Bislettleikarnir
Mótið fór fram á Beslett-leikvanginum í
Osló í gærkvöldi. Helstu úrslit:
Kringlukast kvenna: metrar
1. Ilke Wyludda (Þýskal.)..........68,54
2. Mette Bergman (Noregi).........68,24
3. Nicoleta Grasu (Rúmeníu).......62,56
5.000 m hlaup kvenna: min.
1. Lynn Jennings (Bandar.)......15:18.30
2. MarinaBastos (Portúgal).....15:18.76
3. Lydia Cheromei (Kenýa)......15:20.18
4. Delilah Asiago (Kenýa)......15:21.78
5. Gunhild Halle (Noregi)......15:22.62
6. Sally Barsosio (Kenýa)......15:25.32
7. Jill Hunter (Bretlandi).....15:28.46
8. Conceicao Ferreira (Portúgal)...15:29.45
Hástökk kvenna:
1. Alina Astafei (Þýskal.)..........1.96
2. Amy Acuff (Bandar.).............1.96
3. Hanne Haugland (Noregi).........1.93
100 m grindahlaup kvenna:
1. Lena Solli (Noregi).............13.17
2. Michelle Campbell (Bretlandi).13.24
3. Jane Flemming (Ástraliu).......13.56
3.000 metra hindrunarhlaup karla:
1. Moses Kiptanui (Kenýa)........8:03.36
2. Patrick Sang (Kenýa).........8:13.02
3. Bemard Barmasai (Kenýa)......8:14.70
110 m grindahlaup karla:
1. Tony Jarrett (Bretlandi).......13.31
2. Courtney Hawkins (Bandar.).....13.39
3. IgorKovac (Slóvakíu)...........13.43
4. Terry Reese (Bandar.)..........13.49
5. Kyle Vander-Kuyp (Ástralíu)....13.56
3.000 m hlaup kvenna:
1. Sonia O’Sullivan (írlandi)....8:34.31
2. Gina Procaccio (Bandar.).....8:45.17
3. Anna Brzezinska (Póllandi)...8:49.74
4. Angela Chalmers (Kanada).....8:52.26
5. Elena Fidatov (Rúmeniu)......8:55.32
6. Ruth Wysocki (Bandar.).......8:59.45
7. Kathy Franey (Bandar.).......9:00.86
8. J. Speights-Henner (Bandar.).9:04.62
Spjótkast kvenna:
1. Natalya Shikolenko (H-Rússl.).68.36
2. Trine Hattestad (Noregi).......65.44
3. Tanja Damaske (Þýskal.)........64.48
4. Felicia Tilea (Rúmeníu)........64.46
5. Joanna Stone (Ástralíu)........63.10
6. Louise McPaul (Ástralíu).......62.14
7. Silke Renk (Þýskal.)...........62.02
8. Claudia Isaila (Rútneníu)......60.38
400 m grindahlaup kvenna:
1. Marie-Jose Perec (Frakk.).......53.92
2. Deon Hemmings (Jamaíku)........54.53
3. Kim Batten (Bandar.)...........54.71
4. Tonja Buford (Bandar.).........54.94
5. Vera Ordina (Rússl.)...........56.01
100 m hlaup karla:
1. Linford Christie (Bretlandi)....10.12
2. Donovan Powell (Jamaiku).......10.15
3. Olapade Adeniken (Nígeríu).....10.19
4. Dennis Mitchell (Bandar.)......10.19
5. Bruny Surin (Kanada)...........10.27
6. Michael Green (Jamaíku)........10.29
200 m hlaup karla:
1. Geir Moen (Noregi)..............20.40
2. Solomon Wariso (Bretlandi).....20.58
3. Patrick Stevens (Belgíu).......20.60
4. Jeff Williams (Bandar.)........20.66
5. Steve Brimacombe (Ástralíu)....20.93
6. Damien Marsh (Ástralíu)........20.99
400 m hlaup karla:
1. Michael Johnson (Bandar.)....43.86
2. Harry Reynolds (Bandar.).......44.24
3. Mark Richardson (Bretlandi)....45.06
4. Samson Kitur (Kenýa)...........45.23
5. Sunday Bada (Nígeríu)..........45.43
6. Michael Joubert (Astralíu)...47.62
3.000 m hlaup karla:
1. Dieter Baumann (Þýskal.)...7:33.56
2. Paul Bitok (Kenýa).........7:34.50
3. Smail Shgir (Marokkó)......7:35.51
4. Eliud Barngetuny (Kenýa)...7:37.68
5. Hissou Salah (Marokkó).....7:38.12
5.000 m hlaup karla:
1. Shem Kororia (Kenýa)......13:05.72
2. William Sigei (Kenýa).....13:06.15
3. Josephat Machuka (Kenýa)..13:07.02
200 m hlaup kvenna:
1. Gwen Torrence (Bandar.).......22.36
2. Merlene Ottey (Jamaíku)......22.66
3. Melinda Gainsford (Ástralíu).22.79
Spjótkast karla:
1. Raymond Hecht (Þýskal.) ..92.60 metres
2. Jan Zelezny (Tékkl.) ........89.30
3. Steve Backley (Breti.).......86.46
4. Mike Hiil (Bretl.)...........84.14
5. Tom Pukstys (Bandar.)........80.74
6. Sergei Makarov (Rússl.)......78.20
7. Donald-Aik Siid (Eistlandi)..77.48
8. Paal Arne Fagernes (Noregi)..77.46
800 m hlaup karla:
1. Wilson Kipketer (Denmark)...1:43.98
2. Joseph Tengelei (Kenýa)....1:44.74
3. Vebjoem Rodal (Noregi).....1:44.78
Hástökk karla:
1. Javier Sotomayor (Kúbu).2.81 metres
2. Steve Smith (Bretlandi).......2.31
3. Tony Barton (Bandar.).........2.28
4. Troy Kemp (Bahama)........:...2.24
4. SteinarHoen (Noregi)..........2.24
6. Ray Doakes (Bandar.)........ 2.24
7. Lambros Papakostas (Grikkl.)..2.24
7. Haakon Saemblom (Noregi)......2.24
1.500 m hlaup karla:
1. Venuste Niyongabo (Burundi) ....3:30.78
2. Hicham E1 Guerrouj (Marokkó) ...3:81.53
3. Steve Holman (Bandar.).......3:32.04
Þrístökk kvenna:
1. Anna Biryukova (Rússl.)......14.38
2. Galina Chistyakova (Rússi.)..14.17
3. Virge Naeris (Eistlandi).....14.01