Morgunblaðið - 28.07.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Jóhannes nálgast
peningaverðlaun
JÓHANNES B. Jóhannesson er kominn í sjöttu
umferð á opna breska mótinu í atvinnumótum snó-
kerspilara í Blackpool í Englandi. Jóhannes sigraði
Simon Parker 5-3 í 4. umferð og Shan Mellish, sem
er mjög sterkur spilari, 5-4 í fimmtu umferð en ef
hann vinnur í næstu umferð er hann kominn í hóp
128 bestu spilarana og þar gefa sigrar oft góð pen-
ingaverðlaun.
„Þetta var tæpt en minn besti sigur og það lengsta
sem ég hef náð-á atvinnumannamóti," sagði Jóhann-
es eftir leikinn gegn Mellish en Jóhannes ætlar að
koma heim í millitíðinni þar sem næsta umferð verð-
ur ekki leikin fyrr en 19. ágúst, „ég er þegar kom-
inn lengra en nokkur íslendingur hefur náð.“
Kristján Helgason tapaði í 4. umferð á sama
móti fyrir Róbert Chatmann, 5-1. „Þetta var hrika-
lega erfitt og ég var alveg búinn að vera eftir leik-
inn,“ sagði Kristján eftir leikinn en hann er líka á
heimleið.
KNATTSPYRNA
Dómaraskýrsla um á-
horfendur í Kaplakrika
HAFNFIRÐINGAR í áhorfenda-
stúkunni á Kaplakrika á leik
FH og KR í fyrrakvöld, voru mjög
ósáttir við dómara leiksins. Þeir létu
það óspart í ljós þegar dómaratríóið
gekk af velli að leikslokum og rigndi
meðal annars smámynt og munn-
vatni yfir dómarann en einnig yfír
Guðjón Þórðarson þjálfara KR og
fleiri.
Eftirmálar gætu orðið af þessum
atburðum því dómari leiksins gaf
skýrslu um atvikið eftir leik. „Ég
sendi inn skýrslu. FH-ingar hafa
verið mjög rólegir eins og reyndar
flest önnur lið og ég hef ekki lent í
svona atvikum í langan tíma,“ sagði
Guðmundur Stefán Maríasson, dóm-
ari leiksins við Morgunblaðið í gær,
en vildi ekki að öðru leyti tjá sig
um málið.
Að sögn reynds dómara sem fylgd-
ist grannt með hefði hegðun áhorf-
enda, af því tagi sem sást í Kaplakrik-
anum í síðari hálfleik og að leik leikn-
um, getað reynst FH-ingum dýrkeypt
í Evrópukeppni og haft miklar sektir
í för með sér. Hann sagði líka að það
hefði verið furðulegt að horfa uppá
fullorðna menn og konur missa stjórn
á sér, þar sem mistökin í leiknum
hefðu ekki síst legið hjá leikmönnum
liðsins sjálfum.
Loks úti-
sigur ÍBV
EYJAMENN sigruðu Valsmenn í
gærkvöldi að Hlíðarenda í síðasta
leik tíundu umferðar 1. deildar karla,
með þremur mörkum gegn einu.
Þetta var fyrsti útisigur Eyjamanna
í fyrstu deildinni í tæp tvö ár, síðan
þeir sigruðu Víking í september 1993.
Á myndinni hér að ofan er fyrsta
mark Eyjamanna í uppsiglingu; há
sending kom frá miðju Eyjamanna,
Valur Valsson náði ekki til knattarins
en Steingrímur Jóhannesson náði að
pota knettinum framhjá honum og
skjótast einn innfyrir og skora.
■ Fyrsti sigur / C4
KIUATTSPYRNA: STJARNAN OG FYLKIR HALDA SÍNU STRIKI í 2. DEILD / C2
ÍÞRÓm
FOLX
■ OLEG Salenko, rússneski fram-
herjinn sem vann sér það til frægð-
ar að gera fimm mörk gegn Kamer-
ún á HM í Bandaríkjunum 1994,
er kominn til Glasgow Rangers.
Félagið keypti hann í vikunni frá
Valencia á Spáni fyrir 1,6 milljón
punda — um 160 milljónir króna.
■ RANGERS hefur einnig keypt
Gordan Petric frá Dundee Ún-
ited, fyrir 1,5 milljónir punda.
■ PAUL Gascoigne hefur skorað
i fjórum fyrstu leikjum sinum fyrir
Rangers, allt æfingaleikjum í Dan-
mörku. Síðast með glæsilegu skoti
beint úr aukaspymu af 30 m færi.
■ JÚRGEN Klinsmann, gerði tvö
mörk í gærkvöldi, þar af annað úr
víti, þegar Bayern Miinchen sigraði
Dortmund 3:2 í úrslitaleik árlegs
æfíngamóts fyrir deildarkeppnina í
Þýskalandi. Meistarar Dortmund
voru 2:0 yfir í hálfleik en Klins-
mann og félagar komu tvíefldir til
leiks eftir hlé og léku þá mjög vel.
■ MANCHESTER United hefur
samið við Sky sjónvarpsstöðina um
sýningar frá Evrópuleikjum félags-
ins í vetur. Samningurinn er sá
stærsti sem enskt félag hefur gert
vegna Evrópukeppni — United fær
um 500.000 pund, 50 milljónir
króna fyrir hvern heimaleik, og tal-
ið er að félagið gæti nælt í allt að
6 milljónum punda — 600 millj.
króna, ef það kemst alla leið í úr-
slit UEFA-keppninnar.
■ SÖGUR herma að Robbie
Fowler, markaskorainn mikli hjá
Liverpool, sé óánægður vegna þess
hve hann hefur miklu lægri laun
en Stan Collymore, sem var nýlega
keyptur til félagsins á 8,5 milljónir
punda frá Nottingham Forest.
■ FOWLER er aðeins 19 ára en
gerði 31 mark fyrir Liverpool í
fyrravetur, sem var fyrsta tímabilið
sem hann var fastur maður í liðinu.
Greint var frá því í einu ensku blað-
anna í gær að Manchester United
vissi af óánægju piltsins og væri
tilbúið að kaupa hann. Sagt var að
Alex Ferguson væri tilbúinn að
bjóða hvorki meira né minna en níu
milljónir punda í Fowler. Það yrði
met í Englandi — sá dýrasti til
þessi er áðurnefndur Collymore.
■ LIVERPOOL vann Birming-
ham 1:0 í æfingaleik í fyrrakvöld.
Ian Rush og Fowler byrjuðu í
framlínunni, en á 56. mín. kom
Collymore inná í stað Fowlers og
. það var eftir frábæran undirbúning
nýliðans sem Rush gerði eina mark-
ið.