Morgunblaðið - 03.08.1995, Blaðsíða 3
2 D FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1995 D 3
URSLIT
Golf
Landsmótið á Strandarvelli
MEISTARAFLOKKUR KVENNA.
Eftir 36 holur af 72.
Karen Sævarsdóttir, GS.....75 77 152
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR83 76 159
Þórdis.Geirsdáttii,.GK______81 78 159
Ólöf María Jónsdóttir, GK..78 83 161
Herborg Amarsdóttir, GR.....86 77 163
1. FLOKKUR KVENNA:
Staðan eftir 36 holur af 54.
Rut Þorsteinsdóttir, GS.....80 83 163
Erla Þorsteinsdótir, GS....84 82 166
Sigríður Mathiesen, GR.....85 85 170
Magdalena S. Þórisdóttir, GS ...85 87 172
Erla Adolfsdóttir, GA.......86 88 174
Kristín Pálsdóttir, GK......89 88 177
Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS...87 90 177
2. FLOKKUR KVENNA.
Staðan eftir 36 holur af 54.
Lilja Karlsdóttir, GK.......90 83 173
Auður Jóhannesdóttir, GK...90 96 186
Helga Svanbergsdóttir, GKj..96 91 187
Halldóra Halldórsdóttir, GK ...101 89 190
Guðrún Guðmundsdóttir, GK ...97 93 190
Hildur Rós Símonardóttir..100 91 191
Sigrún Sigurðardóttir, GG..98 99 197
MEISTARAFLOKKUR KARLA.
Staðarí eftir 36 holur af 72.
Björgvin Sigurbergsson, GK ....71 70 141
Helgi Þórisson, GS..........73 71 144
Þórður Ólafsson, GL.........73 72 145
Birgir L. Hafþórsson, G1...75 71 146
Öm Arnarson, GA.............74 72 146
Björn Knútsson, GK..........76 72 148
Kristinn G. Bjamason, GL...75 73 148
Öm Ævar Hjartarson, GS......79 70 149
Björgvin Þorsteinsson, GA..75 74 149
Hjalti Pálmason, GR.........76 74 150
Sveinn Sigurbergsson, GK...75 75 150
Tryggvi Pétursson, GR.......78 74 152
Jón Haukur Guðlaugsson, GKj75 77 152
HaUdór-Birgissa^GHH........81 72 153
Helgi Dan Steinsson, GL.....81 72 153
Sigurpáll Sveinsson, GA....76 77 153
Ásgeir Guðbjartsson, GK......75 78 153
Þorkell S. Sigurðsson, GR...79 75 154
Kristján Hansson, GK........77 77 154
Hjalti Atlason, GR..........75 79 154
Sæmundur Pálsson, GR........75 79 154
2. FLOKKUR KARLA.
Staðan eftir 36 holur af 54.
Davíð Friðriksson, GG.......76 80 156
Ingvi Ámason, GB............78 79 157
Jón Bjömsson, GK............83 75 158
Gunnar Páll Þórisson, GR....82 78 160
Ólafur Már Gunnlaugsson, GKj80 80 160
GLÁgúst.Guðmundsson,.GK.....83 78 161
Guðbrandur Sigurbergs., GK ...83 78 163
3. FLOKKUR KARLA.
Lokastaða.
Óttar Guðnason, GR......83 83 81 247
Páll Gunnarsson, GS.....85 83 81 249
Gunnar Gunnarsson, GKj ...83 84 80 252
RíkharðurHrafnk., GMS....86 83 83 252
Már Hinriksson, GR......86 84 86 256
Rafn Jóhannesson, GR....84 92 81 257
JensÞórisson, GK.........89 88 83 260
Óli Viðar Thorstens, GR.93 83 84 260
Haukur Gíslason, GOS....90 82 88 260
ValurSigurðsson, GR.....88 87 87 262
■Gunnar Gunnarsson sigraði Ríkharð
Hrafnkelsson eftir þriggja holu umspil í
keppni um 3. sætið, Gunnar lék á 13 högg-
um, en Ríkharður á 14.
Knattspyrna
2. deild karla
HK-Þór..............................6:0
Jón Þórðarson (29., 60., 67.), Tomislav Sivic
(3., 90.), Stefán Guðmundsson (77.).
KA - Víðir..........................2:1
Stefán Þórðarson (54.), Dean Martin (74.)
- Hlynur Jóhannsson (78.).
ÍR-Fylkir...........................1:4
Guðjón Þorvarðason, víti (75.) - Þórhallur
Dan Jóhannsson (25., 82.), Kristinn Tómas-
son (28.), Ólafur Stigsson (69.).
Víkingur - Stjarnari................2:2
Marteinn Guðgeirsson (25.), Júlfus St.
Kristjánsson (75.) - Goran Micic (53.), Birg-
ir Sigfússon (89.).
Fj. leikja U J T Mörk Stig
STJARNAN 12 9 2 1 29: 10 29
FYLKIR 12 9 2 1 29: 14 29
ÞÓRAk. 12 6 1 5 22: 23 19
KA 12 4 4 4 15: 17 16
SKALLAGR. 11 4 3 4 14: 14 15
VÍÐIR 12 4 3 5 13: 15 15
ÞRÓTTUR 11 3 3 5 14: 16 12
VÍKINGUR 12 3 2 7 14: 26 11
HK 12 3 1 8 23: 27 10
ÍR 12 3 1 8 17: 28 10
3. deild karla.
Dalvík - Höttur...............2:0
Bjarni Sveinbjömsson, 2
Fjölnir - Leiknir.............2:2
Steinar Ingimundarson, Magnús
Bjamason - Gústaf Amarson, Guðjón
Ingason.
BI-Ægir.......................0:1
Þróttur N.- Haukar............7:1
Óli Stefán Flóventsson 3, Zoran
Micovic, Kristján Svavarsson, Geir
Brynjólfsson, Vilberg Jónasson - Rób-
ert Stefánsson.
Selfoss - Völsungur...........1:1
Grétar Þórsson - Ásmundur Arnars-
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VÖLSUNGUR 12 8 3 1 22: 8 27
LEIKNIR 12 7 2 3 31: 16 23
DALVÍK 12 5 7 0 23: 12 22
ÆGIR 12 7 1 4 19: 14 22
ÞRÓTTURN. 12 6 0 6 20: 17 18
SELFOSS 12 5 1 6 20: 28 16
FJÖLNIR 12 4 2 6 21: 18 14
HÖTTUR 12 3 2 7 13: 18 11
BÍ 12 2 3 7 12: 24 9
HAUKAR 12 2 r 9 10: 36 7
4. deild karla
Neisti H. - Hvöt...................0:4
Þrymur - SM........................0:2
KS-Magni...........................0:0
NeistiD.-KBS......................1:1
KVA - Sindri.......................0:4
UMFL - Huginn................... 0:1
Framheiji - Vikveiji...............1:1
Smástund - Reynir S................0:6
Tennis
Opið mót kvenna í Kaliforníu í
Bandaríkjunum - 2. umferð
1- Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) vann
Patriciu Hy-Boulais (Kanada) 6-2, 2-6, 6-2.
2- Conchita Martinez (Spáni) vann Rein-
stadler (Austurríki) 4-6, 6-2, 6-3.
3- Mary Pierce (Frakklandi) vann Erika de
Lone (Bandaríkjunum) 6-0, 6-3.
Sandrine Testud (Frakklandi) vann 6-Nat-
asha Zvereva (Belarus) 6-3, 6-4.
Ai Sugiyama (Japan) vann 10-Amanda
Coetzer (Suður-Afríku) 7-5, 6-0.
11-Marianne Werdel Witmeyer (Bandaríkj-
unum) vann Jolene Wtanabe (Bandaríkjun-
um) 3-6, 6-4, 6-4.
Sandra Cacic (Bandaríkjunum) vann 14-
Angelica Gavaldon (Mexíkó) 6-3, 6-3.
16-Gigi Femandez (Bandaríkjunum) vann
Jana Nejedly (Kanada) 6-3, 6-1.
Kristie Boogert (Hollandi) vann Audra Kell-
er (Bandaríkjunum) 6-1, 6-1.
Rachel McQuillan (Ástralíu) vann Pam Shri-
ver (Bandaríkjunum) 6-3, 7-5.
Opið mót karla í Los Angeles í
Bandaríkjunum - 1. umferð
1- Goran Ivanisevic (Króatíu) vann Kenneth
Carlsen (Danmörku) 6-2, 6-4.
2- Michael Stich (Þýskalandi) vann Gianluca
Pozzi (Ítalíu) 6-4, 6-2.
3- Jim Courier (Bandaríkjunum) vann Alej-
andro Hemandez (Mexíkó) 6-3, 6-2.
5-Thomas Enqvist (Svíþjóð) vann Mauricio
Hadad (Kólombíu) 6-1, 6-2.
Shuzo Matsuoka (Japan) vann 6-Mark
Woodforde (Ástralíu) 6-2, 2-6, 6-2.
Cristiano Caratti (Ítalíu) vann Jimmy Con-
nors (Bandaríkjunum) 6-4, 6-4.
Mark Philippoussis (Ástralíu) vann Jim
Pugh (Bandaríkjunum) 7-6, (7-5), 6-7,
(4-7), 7-6, (9-7).
Jim Grabb (Bandaríkjunum) vann Mark
Petchey (Bretlandi) 6-2, 6-4.
Patrick Rafter (Ástralíu) vann Paul Kild-
erry (Ástralíu) 6-3, 5-7, 6-4.
Luis Herrera (Mexíkó) vann Ignacio Mart-
inez (Mexíkó) 4-6, 6-4, 6-3.
Ikvöld
Knattspyrna
1. deild karla:
Akranes: ÍA - Keflavík.....20
Grindavík: Grindavík - FH..20
Vestmannaeyjar: ÍBV - Fram.20
KR-völlur: KR - Leiftur....20
Valsvöllur: Valur - Breiðablik....20
Ottar fyrsti sigurveg-
arinn á landsmótinu
ÓTTAR Guðnason úr GR tryggði sér í gærkvöldi sigur í 3. flokki lands-
mótinu. Óttar, sem er tökumaður hjá Stöð 2 lék á 247 höggum, en þessi
efnilegi kylfíngur byrjaðí í golfí í júní í fyrra og var þá með 19 í forg-
jöf, hafði 17 þegar landsmótið byrjaði en er nú kominn niður í 13.
„Ég var mjög ánægður með að leika tvo fyrstu hringina í rokinu á
83 höggum og ídag var draumurinn að koma inn á 70 eða minna en
það tókst ekki. Ég var rosalega stressaður á síðustu brautinni og fékk
skramba á hana [tvo yfir par]. Það hefði verið gaman að klára hana á
pari og koma inná 79 höggum. Ég var líka farinn að líta dálítið upp í
restina og missa þannig högg, en þetta tókst,“ sagði Óttar.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
GOLF / LANDSMOTIÐ A STRANDARVELLI
Karen eykurforystuna jafnt og þétt
Væriekki
héref égteldi
þettabúið
- segir Ragnhildur Sigurðardóttir sem er
í öðru sæti ásamt Þórdísi Geirsdóttur
Skúll Unnar
Sveinsson
skrifar
VEÐRIÐ lék svo sannarlega við
kylfingana á landsmótinu á
Strandarvelli í gær, smá and-
vari, skýjað og völlurinn rakur
þannig að hann gerist ekki
mýkri. En góða skorið lét þó á
sér standa hjá meistaraflokki
kvenna þó svo stelpurnar hafi
ekki verið að leika neitt illa.
Ragnhildur Sigurðardóttir úr
GR lék best í gær, á 6 höggum
yfir pari, eða á 76 höggum.
Karen Sævarsdóttir, GS, lék á
77 höggum og jók forystu sína,
á nú sjö högg á Ragnhildi og
Þórdísi Geirsdóttur úr Keili
sem lék á 78 höggum í gær.
Ólöf María Jónsdóttir úr Keili
er í fjórða sæti, tveimur högg-
um á eftir, lék á 83 höggum í
gær og Herborg Arnarsdóttir
úr GR lék á 77 höggum og er
tveimur höggum á eftir Olöfu.
Ertu að spauga? sagði Ragnhild-
ur þegar hún var spurð hvort
keppninni um fyrsta sæti væri lok-
ið. „Ég veit auðvitað
að þetta verður erf-
itt en ef ég segði
að þetta bæri búið
þá væri ég ekki hér
— þá væri ég ekki að keppa í golfi.
Þetta er aldrei búið fyrr en það er
búið og við munum berjast til síð-
asta blóðdropa því þó við séum all-
ar vinkonur þá erum við allar hér
til að sigra,“ sagði Ragnhildur.
Hún sagðist nokkuð hress með
árangur dagins. „Þetta var furðu-
legur dagur. Mér fannst ekkert
ganga og ég var alltaf að ýta bolt-
anum í holurnar. Ég var kominn
sjö yfír eftir þrettán holur og útlit-
ið var alls ekki bjart en svo fékk
ég tvö pör, og síðan tvo fugla og
endaði loks á skolla. Ég er því
ánægð með lokin, en þetta leit ekki
vel út. Þetta sýnir manni bara að
það getur allt gerst í golfi og stefn-
an er auðvitað sett á sigur,“ sagði
Ragnhildur.
Forystan kemur á óvart
Sexfaldur íslandsmeistari, Kar-
en Sævarsdóttir, sagði í samtali við
Morgunblaðið að það kæmi henni
á óvart hversu mikil forysta hennar
væri. „Ég ætlaði auðvitað að
standa mig á þessu móti en ég
átti von á meiri keppni og þessi sjö
högga forysta kemur mér því á
óvart. Ólöf púttaði mjög illa í dag
og ég er hundóánægð með minn
leik. Það var eins og stutta spilið
ákvæði að fara að sofa og vera
ekki með,“ sagði Karen sem getur
þó verið ánægð með að hafa sjö
högga forystu þegar mótið er
hálfnað.
Ert þú í rauninni ekki búin að
sigra, er ekki formsatriði að klára
næstu tvo hringi?
„Nei, alls ekki. Ef mér tekst að
vinna sjö högg á tveimur dögum
þá hlýtur einhver að geta náð af
mér sjö höggum á tveimur dögum.
Þetta er alls ekki búið. Ég hef ekki
verið að spila vel í sumar og þvi
getur allt gerst,“ sagði Karen.
Virðist öruggt hjá Karenu
Þórdís Geirsdóttir skaust upp
fyrir stöllu sína í Keili, Ólöfu Mar-
íu í gær með því að leika á 78
höggum. Þórdís er mjög slæm í
vinstra hné og haltrar um völlinn
en ætlar að láta sig hafa það og
vonar að henni takist að halda út
næstu tvo hringi. „Hnéð verður
bara að halda, en ég þreytist eftir
því sem líður á. Það er búið að
taka eitthvað af liðþófanum en ég
þarf að láta skera mig aftur. En
það er ekki tími til þess fyrr en
eftir Bændaglímuna,“ sagði Þórdís
í gær.
Hún var tiltölulega sátt með
daginn. „Þetta er allt í lagi á með-
an skorið er niður á við og við
verðum að reyna að narta aðeins
í forystu Karenar en það þarf eitt-
hvað virkilega mikið að gerast ef
Karen vinnur þetta ekki. Hún hef-
ur verið dálítið villt en skorar engu
að síður vel og mér sýnist forysta
hennar vera orðin nokkuð örugg,
en við reynum okkar besta,“ sagði
Þórdís.
Margir töluðu um það fyrir mót-
ið að Ólöf María yrði sú sem myndi
veita Karenu mesta keppni. Víst
er að hún hefur mikla hæfileika
sem kylfingur en til að sigra á
landsmóti þarf ýmislegt fleira en
að geta slegið litla hvíta boltann
fallega. Svo virðist sem mikil
pressa sé á Ólöfu, hvaðan hún er
komin er ekki gott að segja en eins
og hún lék í gær þá er Ijóst að
pressan er of mikil. Olöf hefur sýnt
það í sumar að hún er frábær kylf-
ingur en það hefur ekki dugað
henni til þessa á landsmótinu.
Herborg lék mjög vel í gær, sér-
staklega síðari níu holurnar. Hún
var komin sex yfir mjög snemma
en lék síðan á einum yfír pari það
sem eftir var og virðist hafa náð
sér fyllilega eftir áfallið fyrsta dag-
inn, en þá lék þún á 86 höggum.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
BEÐIÐ eftir hinum! BJörgvln Sigurbergsson úr Kelll slakar á meðan elnn kepplnautanna slær
á landsmótinu á Strandarvelli. Björgvln lék á parl í gær og hefur þrlggja högga forystu.
Næturbrölt
þeirra bestu
Þ AÐ hefur vakið talsverða athygli að í
dag átti meistaraflokkur karla að hefja
leik klukkan 5.30 og það þýðir að síð-
asti ráshópur er að hefja leik um klukk-
an 7. Fyrir þá sem eru í baráttunni um
ísiandsmeistaratitil er þetta auðvitað
fyrir neðan allar hellur. Maður sem
þarf að hefja leik klukkan 7 og er til
dæmis í Reykjavík þarf að vakna í síð-
asta lagi klukkan 4 og það nær auðvitað
ekki nokkurri átt að baráttan um ís-
landsmeistaratitiiinn í golfí sé háð i
skjóli nætur.
Það sama á auðvitað sjálfsagt um
aðra flokka en landsmót á að vera há-
punkturinn á golfínu hér á landi og það
er aðeins keppt um íslandsmeistaratitil
í meistaraflokki.
„Það er sjálfsagt ekki hægt að hafa
þetta öðruvísi núna, en mér finnst ekki
rétt að láta baráttuna um titilinn fara
fram á þessum tíma," sagði Birgir Leif-
ur Hafþórsson í gær.
Björgvin Sigurbergsson tók í sama
streng. „Þetta er auðvitað bara bull, það
verða engir áhorfendur, en það er lang-
skemmtilegast að spila þegar áhorfend-
ur eru margir."
Morgunblaðið/Gunnlaugur
RAGNHILDUR Sigurðardóttir úr GR lék best í gær, á 6 höggum
yfir pari og er í öðru sætl ásamt Þórdísl Gelrsdóttur.
Mikil keppni í meistaraflokki karla
Björgvin með
þijúhögg
íforskot
Einn þriggja sem náði að leika á pari
í blíðunni á Strandarvelli í gær
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
BJÖRGVIN Sigurbergsson úr
Keili er með þriggja högga for-
ystu eftir tvo daga af fjórum á
landsmótinu í golfi. Björgvin
var einn þriggja sem náði að
leika á pari á Strandarvelli í
gær, en þá var hið besta veður
sem dugði kylfingum þó ekki
til stórafreka. Helgi Þórisson
úr GS er annar, lék á einu yfir
í gær og Þórður Emil Ólafsson
þriðji, höggi á eftir. Birgir Leif-
ur Hafþórsson úr Leyni og Örn
Arnarson úr GA koma næstir
einu höggi á eftir Þórði Emil.
Það sáust mörg falleg tilþrif á
Strandarvelli í gær, en þess á
milli gerðu menn talsverð mistök
sem urðu til þess að
skorið er ekki betra
en raun ber vitni.
Björgvin og þeir fé-
lagar úr GS, Örn
Ævar Hjartarson og Guðmundur
R. Hallgrímsson, voru þeir einu sem
léku á parinu í gær. Guðmundur
bætti sig um 15 högg frá þriðjudeg-
inum. En hvað segja meistara-
flokksmenn, eiga menn ekki að
skora betur þegar veðrið er eins og
það var í gær?
„Jú. Ég er til dæmis óánægður
með að vera ekki undir parinu í
dag. Völlurinn er það góður að við
eigum að geta skorað betur og ég
held þetta sé bara spuming um að
bijóta ísinn,“ sagði Björgvin og
Birgir Leifur tók í sama streng. „Ég
get endalaust talið upp afdrifarík
mistök sem ég geri ekki mjög oft,
þannig að maður á að geta komið
inn á betra skori.“
Björgvin byijaði vel í gær og var
kominn tvo undir eftir þijár holur
en fékk síðan skolla á íjórðu holu.
„Svo fékk ég hræðilega aumingja-
lega sexu á sjöttu braut. Þetta verð-
ur hörku keppni og þijú högg geta
farið mjög snaggaralega og ég held
að maður verði að leika í kringum
parið ætli maður sér að halda sæt-
inu.“
Ætlar þú að fara að leika varnar-
golf til að halda fengnum hlut?
„Nei, alls ekki. Ég lærði það í
EM í Belgíu um daginn að varnar-
golf er nokkuð sem ekki á að vera
til. Þannig var að ég var fýrstur
út af íslenska liðinu annan daginn
og eftir þijár holur var ég kominn
þijá undir og þá fór ég að hugsa
um að halda fengnum hlut, það
væri svo gott fyrir liðið. Við þetta
fór allt í vitleysu hjá mér,“ sagði
Björgvin.
Gott aö vera í
síðasta ráshóp
Birgir Leifur lék á 71 höggi í
gær og skaust upp í fjórða til
fimmta sæti þar sem hann er ásamt
Erni Arnarsyni frá Akureyri. Birgir
Leifur verður í síðasta ráshóp í dag
og var ánægður með það. „Það er
frábært að vera kominn í síðasta
ráshóp og þar ætla ég að vera. Ég
er tiltölulega sáttur við daginn og
það er fyrir öllu að þetta er allt á
uppleið hjá mér. Ég misreiknaði
samt völlinn í dag, taldi hann tals-
vert harðari en raunin var og þess
vegna sló ég oft aðeins of stutt við
flatirnar,“ sagði Birgir Leifur sem
býst við mikilli og harðri keppni um
íslandsmeistaratitilinn.
Helgi Þórisson úr GS lék á einum
yfir pari í gær og er einn í öðru
sæti með 144 högg. Hann lék mjög
stöðugt golf í gær, fékk ekki nema
einn fugl á öllum hringnum og þó
hann sé í sjálfu sér ekki ánægður
með það þá getur hann verið mjög
ánægður með lokatöluna á skor-
kortinu sínu.
Þórður Emil Olafsson úr Leyni
er í þriðja sæti með 145 högg, en
útlitið var ekki bjart í byijun því
hann lék fyrstu holuna á sex högg-
um en hún er par fjórir. „Ég húkk-
aði boltann út í læk og negldi síðan
inn í árbakkann, en tókst að ljúka
holunni á tveimur yfir pari. Þannig
að þetta bytjaði ekki vel,“ sagði
Þórður Emil. Hann bætti sig þó
heldur betur og er upp var staðið
hafði hann fengið fjóra fugla, en
fyrsta daginn sá hann engan slíkan.
FOLK
■ MARGIR hafa orð á því að það
verði að breyta fyrirkomulaginu á
landsmótinu og þá helst þannig að
byija einum degi fyrr. Þá þurfi menn
til dæmis ekki að leika að nætur-
lagi, en byijað er að ræsa út hér
kl. 5.30. Ónefndur kylfingur í 2.
flokki hóf leik um kl. 6 í gærmorgun
og gekk vel „framan af nóttu en
þegar fór að morgna fór mér að
ganga verr,“ sagði hann.
■ HELGI Þórísson meistaraflokk-
skylfíngur úr GS var með flesta fugla
— hola leikin á höggi undir pari —
eftir fyrsta hring meistaraflokks-
manna, fjóra talsins en meistara-
flokksmenn fengu 44 fugla alls. Tólf
kylfingar úr meistaraflokki karla
fengu engan fugl á fyrsta hring.
■ ÞAÐ voru einnig 12 kylfingar
sem náðu sér ekki í fugl í gær og
því eru fimm meistaraflokksmenn
enn án fugla.
■ EFTIR tvo keppnidaga í meist-
araflokki eru Björgvin Sigurbergs-
son, Birgir Leifur Hafþórsson og
Örn Ævar Hjartarson efstir í
fuglakeppninni, en hver um sig hef-
ur fengið 6 fugla.
■ DAVIÐ Jónsson úr GS var eini
meistaraflokksmaðurinn sem fékk
örn á fyrsta degi og það gerði hann
á 8. braut sem er 249 metra par
4. Davíð telst samt ekki hafa feng-
ið fugl samkvæmt tölulegum upplýs-
ingum sem mótsstjórn dreifir. Eng-
um meistaraflokksmanni tókst að fá
örn í gær.
■ KYLFINGAR í 1. flokki -karla
voru ekki öfundsverðir af veðrinu á
þriðjudaginn enda kemur það vel
fram í skorinu. Þeir 79 kylfingar sem
eru í flokknum náðu þó 40 fuglum
og einum erni, það gerði Bryi\jar
Geirsson úr GK á 8. braut.
■ TÍU úr 1. flokki lentu í því að
leika þriðju holuna á þremur eða
fleiri höggum yfír pari og á 13.
brautinni, „Flugbrautinni“ svoköll-
uðu, voru það átta sem náðu þessum
vafasama árangri.
■ STÚLKURNAR í meistaraflokki
náðu sér allar í einn fugl fyrsta dag-
inn, þijár á 8. braut, ein á 7. og ein
á 14. holu.
■ ÚLFAR Jónsson fyrrum íslands-
meistari fylgdist með meistaraflokki
karla í gær og sagði að óneitanlega
hefði hann fengið smá fiðring. „En
ég get ekki sagt að mig hafi langað
að spila á þriðjudaginn," bætti Úlfar
við.
■ LIUA Karlsdóttir úr Keili hefur
örugga forystu í 2. flokki kvenna en
hún hefur leikið á 173.höggum, fyrri
daginn á 90 en í gær lék hún á 83
höggum. Lilja hefur 13 högga for-
ystu á Auði Jóhannsdóttur úr Keili.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Stjaman jafnaði
á sídustu mínútu
EFSTA lið 2. deildar, Stjarnan,
lenti í basli með Víkinga, næstn-
eðsta lið deildarinnar, í bráð-
skemmtilegum leik á Valbjarn-
arvelli í gærkvöldi og náði að
bjarga sér f 2:2 jafntefli á síð-
ustu mfnútu.
Garðbæingar sóttu stíft í byijun
en eftir stundarfjórðung fóru
Víkingar að bíta frá sér og uppskáru
ríkulega á 34. mín-
Stefán útu með marki Mar-
Stefánsson teins Guðgeirssonar.
skrifar Eftir hlé sótti Stjarn-
an stíft og Goran
Micic jafnaði en Víkingar komust inn
í leikinn á ný og Júlíus St. Kristjáns-
son skoraði af löngu færi er boltinn
fór í varnarmai.n og breytti um
stefnu. Eftir það sóttu Stjörnumenn
af enn meiri krafti, skutu þrívegis
yfír úr opnum færum en Birgir Sig-
fússon náði að lokum að skora með
kollinum.
Víkingar léku einn af bestu leikj-
um sínum í sumar, börðust vel og
áttu skilið að minnsta kosti eitt stig.
Marteinn, Arnar Arnarson og Eirík-
ur Þorvarðarson voru bestir.
Stjörnumenn lentu í klípu því þeir
nýttu ekki færin þegar þeir sóttu
sem mest. Liðið lék ágætlega en
mótstaðan var mikil. Ingólfur Ing-
ólfsson var bestur og Baldur Bjarna-
son ágætur.
Fylkismenn betri
Guðmundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
Fylkismenn voru léttleikandi í
Mjóddinni í gærkvöldi og leik-
menn liðsins sýndu oft á tíðum mjög
góða tilburði með
knöttinn. ÍR-ingar
byijuðu þó leikinn af
krafti og virtust til
alls líklegir en leift-
ursóknir Fylkismanna voru sem köld
vatnsgusa framan í heimamenn,
þegar þeir fengu á sig tvö mörk á
3 mínútna kafla. Fyrra markið gerði
Þórhallur Dan Jóhannsson eftir góða
sendingu frá Kristni Tómassyni og
stuttu seinna lék Kristinn sama leik-
inn sjálfur eftir að hann náði að
snúa ÍR-vörnina laglega af sér.
Leikmenn Fylkis bökkuðu nokkuð
í seinni hálfleik og þá áttu ÍR-ingar
sinn besta kafla í leiknum en það
voru þó Fylkismenn sem skoraðu í
sinni fýrstu afgerandi sókn. Ólafur
Stígsson var þar að verki með ein-
staklega glæsilegt mark; smellhitti
knöttinn í miðjum markteig ÍR og
boltinn þaut viðstöðulaust upp í sam-
skeytin. Eftir því sem leið á leikinn ,
ágerðust sóknir IR-inga og þeirra
eina mark kom úr víti eftir að mark-
vörður Fylkis, Kjartan Sturluson reif
Alen Mulamuhic niður eftir að hafa
misst af knettinum fram hjá sér.
Guðjón Þorvarðarson skoraði úr vít-
inu fyrir ÍR en áður en yfír lauk
bætti Þórhallur Dan öðru marki inn
á markareikning sinn. Þórhallur Dan
lék vel en annars var allt lið Fylkis
mjög frískt og skemmtilegt. Fram-
línan hjá ÍR var hins vegar hálf bit-
laus og nýtti ekki færin sem gáfust.
KA-sigur í kraflaleik
Stefán Þór
Sæmundsson
skrífar frá
Akureyri
Harkan setti nokkurn svip á leik
KA og Víðis á Akureyri í
gær. Marinó Þorsteinsson dómari
þurfti að veifa gula
spjaldinu ótt og títt
og grófur leikur og
ljótur munnsöfnuður
var oft til ama og,
þar voru gestirnir meira áberandi.
KA-menn spiluðu betur og sigruðu
2:1.
Heimamenn byijuðu með látum
og áttu nokkur góð færi. Eftir miðj-
an hálfleikinn dofnaði smám saman
yfir leiknum, en besta færið kom á
'lokamínútunni þegar Sverrir Ragn-
arsson skaut yfír Víðismarkið.
Fyrsta markið kom á 54. mín.
Löng sending frá hægri rataði á
bijóstkassa Sverris sem lagði bolt-
ann fyrir Stefán Þórðarson og hann
þrumaði í netið með skoti rétt fyrir
utan miðjan vítateig. Víðir fékk tvö
þokkaleg færi skömmu síðar, t.d.
Ari Gylfason, en á 74. mín. lagði
Sverrir upp annað mark á svipuðum
stað og nú var það Dean Martin sem
afgreiddi knöttinn í netið frá víta-
teigslínu með örlítilli viðkomu í varn-
armanni. Staðan 2:0.
Barningurinn hélt áfram og gest-
irnir hresstust. Sigmar Scheving
hleypti strax blóði í leik Víðis þegar
hann kom inn á sem varamaður og
á 78. mín. átti hann gott skot í
þverslá. Félagi hans Hlynur Jó-
hannsson var fyrstur í boltann og
skallaði hann í slá og inn. Staðan
því 2:1 en lengra komust Víðismenn .
ekki og KA-menn áttu tvö síðustu
færin. Sigur heimamanna var sann-
gjarn. Þeir spiluðu vel í fyrri hálf-
ieik, byggðu upp sóknir frá báðum
vængjum meðan gestirnir spörkuðu
fram miðjuna. Eggert Sigmundsson,
Bjarni Jónsson og Dean Martin voru
einna traustastir í jöfnu liði KA en
Gísli markvörður, Hlynur marka-
skorari og Ólafur Jónsson létu mest
að sér kveða í liði Víðis.
Stúkumiðum fer fækkandi
Tryggðu þér miða núna!
Island • Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst