Morgunblaðið - 04.08.1995, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 4. ÁGLIST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1995 C 3
URSLIT
IA - Keflavík 8:2
Akranessvölur, 1. deild karla, 11. umferð,
fimmtudaginn 3. ágúst 1995.
Aðstæður: Suðaustan strekkingur og rign-
ing.
Mörk ÍA: Helgi Björgvinsson (21. sjálfs-
mark), Haraldur Ingólfsson (50. vsp., 65.),
Ólafur Þórðarson (56.), Arnar Gunnlaugs-
son (59., 73., 81.), Stefán Þórðarson (89.)
Mörk Keflavíkur: Óli Þór Magnússon (69.,
87.).
Gult spjald: Keflvíkingarnir Óli Þór Magn-
ússon (36.) og Sigurgeir Kristjánsson (71.)
báðir fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 800.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson dæmdi ágæt-
lega.
Línuverðir: Ari Sigurðsson og Pjetur Sig-
urðsson.
f A: Þórður Þórðarson - Sturlaugur Haralds-
son (Pálmi Haraldsson 70.), Alexander
Högnason, Ólafur Adolfsson, Sigursteinn
Gíslason - Bjarki Gunnlaugsson, Ólafur
Þórðarson, Sigurður Jónsson, Kári Steinn
Reynisson (Bjarki Pétursson 78.), Haraldur
Ingólfsson (Stefán Þórðarson 78.) - Arnar
Gunnlaugsson.
Keflavík: Ragnar Már Ragnarsson - Krist-
inn Guðbrandsson, Helgi Björgvinsson,
Karl Finnbogason (Róbert Ólafur Sigurðs-
son 17.) - Eysteinn Hauksson, Georg Birgis-
son (Sigurgeir Kristjánsson 68.), Ragnar
Steinarsson, Ámi Vilhjálmsson (Ragnar
Margeirsson 46.), Jóhann B. Guðmundsson
- Óli Þór Magnússon, Kjartan Einarsson.
Valur- Breiðablik 0:3
Hlíðarendi, 1. deild karla, 11. umferð,
fimmtudaginn 3. ágúst 1995.
Aðstæður: Gola og rigning öðru hveiju.
Mörk Breiðabliks: Rastislav Lazorik (35.,
45.), Willum Þór Þórsson (75.).
Gult spjald: Steward Beards (4. brot.),
Gústaf Omarsson (89. fyrir að spyma knett-
inum eftir að dæmt hafði verið.)
Rautt spjaid: Enginn.
Áhorfendur: 352.
Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson.
Ágætur.
Línuverðir: Kári Gunnlaugsson og Hjalti
Einarsson.
Valur: Tómas Ingason - Jón Grétar Jóns-
son, Bjarki Stefánsson, Gunnar Einarsson,
Kristján Halldórsson - fvar Ingimarsson,
Guðmundur Brynjólfsson (Sigurbjöm Hreið-
arsson 63.), Sigþór Júlíusson, Kristinn Lár-
usson 72.), Hörður Már Másson - Davíð
Garðarsson, Steward Beards (Halldór Hil-
misson 63.).
Breiðablik: Hajrudin Cardaklija - Úlfar
Óttarsson (Kristófer Sigurgeirsson 63.),
Arnaldur Loftsson, Kjartan Antonsson -
Willum Þór Þórsson, Gústaf Ómarsson,
Guðmundur Guðmundsson (Vilhjálmur Har-
aldsson 87.), Amar Grétarsson, Hákon
Sverrisson - Jón Þ. Stefánsson, Rastislav
Lazorik (Anthony Karl Gregory 82.).
UMFG-FH 2:1
Grindavíkurvöllur.
Aðstæður: Sunnan vindur og rigning. Völl-
urinn blautur og þungur.
Mörk Grindavíkur: Jón Freyr Magnússon
(76.), Þorsteinn Jónsson (88.).
Mark FH: Jón Erling Ragnarsson (65.).
Gult spjald: Þorsteinn Jónsson (37.)
Grindavík fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn
Dómari: Gylfi Orrason, hann dæmdi leikinn
vel og gaf sér tíma til að brosa öðru hveiju.
Línuverðir: Gylfi Björgvinsson og Einar
Sigurðsson.
Áhorfendur: Um 100.
Grindavík: Albert Sævarsson - Guðjón
Ásmundsson, (Vignir Helgason 71.), Þor-
steinn Guðjónsson, Milan Jankovic, Björn
Skúlason - Ólafur Örn Bjamason, Zoran
Ljubicic (Jón Freyr Magnússon 71.), Þor-
steinn Jónsson, Grétar Einarsson, Ólafur
Ingólfsson - Tómas Ingi Tómasson (Lúkas
Luka Kostic 71.).
FH: Stefán Amarson - Auðun Helgason,
Ólafur Kristjánsson, Amar Viðarsson, Peter
Mrazek - Hrafnkell Kristjánsson (Þorsteinn
Halldórsson 82.), Jón Sveinsson, Stefan
Toth, Hallsteinn Amarson - Jón Erling
Ragnarsson (Hlynur Eiríksson 84.), Hörður
Magnússon.
KR - Leiftur 2:0
KR - völlur:
Aðstæður: Hægur vindur, kalt og skúrir
með köflum. Völlurinn þungur og erfiður
auk þess sem pollur var sunnan megin við
miðjuna.
Mörk KR: Einar Þór Daníelsson (6.), Guð-
mundur Benediktsson (86.)
Gult spjald: Óskar Þorvaldsson (34.).
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 600.
Dómari: Ólafur Ragnarsson, lét of margt
framhjá sér fara.
Línuverðir: Jón Siguijónsson og Gísli Jó-
hannesson.
Lið KR: Kristján Finnbogason - Sigurður
Öm Jónsson, Óskar Þorvaldsson, Þormóður
Egilsson, Daði Dervic - Hilmar Bjömsson,
Heimir Guðjónsson, Heimir Porca, Einar Þór
Daníelsson (Ásmundur Haraldsson 87.) -
Mihajlo Bibercic, Guðmundur Benediktsson.
Mörk Leifturs: Þorvaldur Jónsson (Friðrik
Þorsteinsson 43.) - Sigurbjöm Jakobsson,
jöGskyldufiiðarhelgi
i Hvammsvík í Kjós
# Tjaldstæði, hlöðugrill, hestaleiga, golf, veiði og fjöruskoðun.
#Gæðingarviðallrahæfi.
Verðlaun fyrir merktan fisk.
í haust verður dregið úr númerum, utanlandsferð í vinning.
^ Utanlandsferð í vinning fyrir holu í höggi á 9. og 18. braut.
♦ Veitingarástaðnum.
* ‘V’erið veCkpmin.
Sími 566-7023.
Góða verslunarmannahelgt
Sjáumst á landsleiknum!
Sindri Bjarnason (Jón Þór Andrésson 78.),
Júlíus Tryggvason, Nebojsa Soravic - Bald-
ur Bragason, Gunnar Oddsson, Páll Guð-
mundsson, Ragnar Gíslason - Sverrir Sverr-
isson, Gunnar Már Másson.
Sigurður Jónsson, Bjarki Gunnlaugsson, ÍA.
Guðmundur Benediktsson, KR.
Þórður Þórðarson, Sturlaugur Haraldsson,
Ólafur Adolfsson, Alexander Högnason,
Sigursteinn Gíslason, Ólafur Þórðarson,
Kári Steinn Reynisson, Haraldur Ingolfs-
son, Arnar Gunnlaugsson, ÍA. Ragnar Már
Ragnarsson, Helgi Björgvinsson, Óli Þór
Magnússon, Keflavík. Hörður Már Másson,
Davíð Garðarsson, Val. Arnar Grétarsson,
Kjartan Antonsson, Willum Þór Þórsson,
Rastislav Lazorik, Breiðabliki.Ólafur Örn
Bjamason, Milan Jankovie, Þorsteinn Guð-
jónsson, Bjöm Skúlason, Þorsteinn Jónsson,
Grindavík. Arnar Viðarsson, Ólafur Krist-
jánsson, Stefan Toth, Hörður Magnússon,
Hallsteinn Arnarson, FH.Kristján Finn-
bogason, Þormóður Egilsson, Hilmar
Björnsson, Einar Þór Daníelsson, Mihajlo
Bibercic, Heimir Guðjónsson, KR. Gunnar
Oddsson, Sigurbjöm Jakobsson, Rúnar
Gíslason, Páll Guðmundsson, Júlíus
Tryggvason Leiftri.
1.DEILD KARLA
§ Fj. leikja u j T Mörk Stig
ÍA 11 11 0 0 28: 5 33
KR 11 7 1 3 15: 10 22
KEFLAVÍK 10 5 2 3 13: 14 17
LEIFTUR 10 5 1 4 18: 15 16
BREIÐABLIK 11 4 2 5 15: 14 14
GRINDAVÍK 11 4 2 5 14: 14 14
ÍBV 10 4 1 5 22: 15 13
FH 11 2 2 7 16: 27 8
FRAM 10 2 2 6 10: 22 8
VALUR 11 2 1 8 10: 25 7
Island - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst
Markahæstir
Rastislaw Lazorik, Breiðabliki........8
Ólafur Þórðarson, ÍA................ 7
Haraldur Ingólfsson, ÍA...............6
Mihajlo Bibercic, KR .................6
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV..............6
Höður Magnússon, FH...................5
Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram.........5
Rútur Snorrason, ÍB_V.................4
Sumarliði Árnason, ÍBV................4
Stefán Þórðarson, ÍA..................4
Golf
Landsmótið á Strandarvelli
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
Staðan eftir 54 holur af 72.
Karen Sævarsdóttir, GS....75 77 79 231
RagnhildurSigurðard.,GR ...83 76 79 238
Þórdís Geirsdóttir, GK....81 78 80 239
Herborg Arnardóttir, GR...86 77 79 232
Ólöf Maria Jónsdóttir, GK ....78 83 84 245
1. FLOKKUR KVENNA.
Lokastaðan.
Rut Þorsteinsdóttir, GS...83 80 85 248
Erla Þorsteinsdóttir, GS..84 82 83 249
Sigríður Mathiesen, GR....85 85 90 260
ÁsthildurM. Jóhannsd., GR .86 92 83 261
Magdalena Þórisdóttir, GS...85 87 89 261
Erla Adolfsdóttir, GA.....86 88 91 265
Kristln Pálsdóttir, GK....89 88 88 265
Guðfmna Sigurþórsd., GS ....87 90 93 270
Helga Gunnarsdóttir, GK...97 90 84 271
Björk Ingvarsdóttir, GK...94 87 90 271
Jóhanna Ingólfsdóttir, GR....94 85 92 271
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Staðan eftir 54 holur af 72.
Björgvin Sigurbergsson, GK71 70 69 210
Birgir.li.HafþórssoiirGl..75 71 69 215
Þórður E. Ólafsson, GL....73 72 75 220
Björn Knútsson, GK........76 72 73 221
Björgvin Þorsteinsson, GA ...75 74 73 222
Örn Ævar hjartarson, GS...79 70 73 222
Kristinn G. Bjamason, G1..75 73 76 224
Örn Arnarson, GA..........74 72 78 224
Helgi Þórisson, GS........73 71 80 224
Guðmundur Sveinbj., GK....81 77 68 226
Sveinn Sigurbergsson, GK ...75 75 77 227
Tryggvi Traustason, GK....82 74 73 229
Jón H. Guðlaugsson, GKj...75 77 77 229
Hjalti Pálmason, GR.......76 74 79 229
Helgi Dan Steinsson, GL...81 72 77 230
Tryggvi Pétursson, GR.....78 74 78 230
Halldór Birgisson, GHH....81 72 78 231
Sigurður Sigurðsson, GS...81 76 75 232
ÁsgeirGuðbjartsson, GK....75 78 79 232
Þorkell S. Sigurðsson, GR ....79 75 78 232
1. FLOKKUR KARLA
Staðan eftir 54 holur af 72.
Páll Ketilsson, GS........79 84 74 237
SveinnK.Ögmundss.,GR....83 81 75 239
Guðmundur J. Óskarss., GR77 84 79 240
Friðlgöm.Oddsson,.GK......84 78 79 241
Ingi RúnarGíslason, GKG....79 87 77 243
RósantF. Birgisson, GL....81 83 79 243
Jens Sigurðsson, GR.......84 79 80 243
Öm Gíslason, GK...........77 85 81 243
2. FLOKKUR KARLA
Lokastaðan.
Davið Friðriksson, GG.....76 80 78 234
Ingvi Árnason, GB.........78 79 79 236
G. ÁgústGuðmundss., GK....83 78 78 239
Gunnar Páll Þórisson, GR..82 78 81 241
2. FLOKKUR KVENNA
Lokastaðan.
Lilja Karlsdóttir, GK.... 90 83 89 262
Halldóra Halldórsd., GF.101 89 85 275
Helga R. Svanbergsd., GKJ 96 91 94 281
AuðurJóhannsdóltirrGR... 90 96 96 282
IÞROTTIR
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Skrautsýning
Skagamanna
Eiríksson
skrifar frá
Akranesi
Það er sannarlega ánægjulegt
að vera kominn aftur í gulu
treyjuna og það er vart hægt að
HBHaæ hugsa sér betri byrj-
Sigþór un en að gera
þrennu í fyrsta
leik,“ sagði Árnar
Gunnlaugsson eftir
að Akurnesingar höfðu sigrað Kefl-
víkinga 8:2 á Skipaskaga. „Það tók
mig nokkurn tíma að finna mig í
leiknum enda er ég ný stiginn upp
úr meiðslum. Skagaliðið er frábært
og það er ekki hægt annað en að
spila vel í svona liði,“ bætti Arnar
við.
Skagamenn unnu sinn stærsta
sigur á þessu keppnistímabili og
léku á köflum hreint frábærlega og
endurkoma tivburanna, Arnars og
Bjarka, virkaði sem vítamíns-
sprauta á allt liðið. í byrjun var
jafnræði með liðunum ogtvíburarn-
ir settu mark sitt á hann strax í
upphafi en Ragnar markvörður
Keflvíkinga varði vel frá þeim
snemma leiks. Keflvíkingar fengu
sitt fyrsta færi eftir stundarfjórð-
ung en Jóhann B. Guðmundsson
skaut föstu skoti rétt framhjá.
Skagamenn fengu aðstoð til að
bijóta ísinn á 21. mínútu með sjálfs-
marki og eftir það komst leikurinn
í jafnræði. Rétt fyrir leikhlé varði
Rangar tvívegis glæsilega. Síðari
hálfleik hófu heimamenn af miklum
krafti og gerðu út um leikinn fyrstu
14 mínúturnar með því að gera
þrjú mörk. Liðið sýndi snilldartilþrif
á þessum kafia.
Eftir þetta var aldrei spurning
um sigurinn því heimamenn sóttu
stíft en Ragnar, hinn ungi mark-
vörður Keflvíkinga, varði hvað eftir
annað mjög vel. Síðustu sjö mínút-
urnar opnuðust flóðgáttirnar að
nýju er fjögur mörk litu dagsins ljós.
Skagamenn léku sennilega sinn
besta leik í sumar á heimavelli. Þrátt
fýrir stórsigurinn hefði hann allt eins
getað orðið stærri ef ekki hefði kom-
ið til frábær markvarsla hins unga
markvarðar gestanna. Sigurður
Jónsson og Bjarki Gunnlaugsson
stóðu aðeins uppúr annars mjög
góðum leik liðsheildarinnar. Helgi
Björgvinsson og Oli Þór léku ágæt-
lega í liði Keflvíkinga og börðust vel.
Valsmenn em
heillum horfnir
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Þetta var mjög mikilvægur sigur
og nú erum við lausir við fall-
pakkann í bili. Við komum •'vel
stemmdir til leiks
enda fórum við illa
út úr bikarnum
hérna og ætluðum
ekki að láta það end-
urtaka sig,“ sagði Bjarni Jóhanns-
son þjálfari Blika eftir að lið hans
hafði lagt Val 0:3 að Hlíðarenda.
Fyrri hálfleikur slakur. Það mátti
þó búast við nokkrum mörkum því
liðin fengu færi og varnirnar voru
talsvert opnar, sérstaklega Vals-
megin. Lazorik fékk dauðafæri á
27. mínútu en Tómas verði en Lazo-
rik brást ekki bogalistin næst er
hann fékk færi og kom Blikum í
0:1 á 35. mínútu og bætti öðru við
á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.
Síðari hálfleikur var mun betur
leikinn og það sáust oft fallegir
kaflar hjá báðum liðum. Valsliðinu
var gjörsamlega fyrirmunað að
skora en Willum Þór gerði þriðja
markið fyrir Blika á 75. mínútu.
Vörn Vals var lengst af galopin
og miðjan alls ekki sannfærandi og
þar skorti sérstaklega útsjónarsemi
og fjöimargar sendingar voru tilvilj-
anakenndar. Hörður Már lék þó
ágætlega vinstra megin og frammi
barðist Davíð af krafti, nokkuð sem
allt of fáir Valsmenn gerðu. Það
er mjög illa komið fyrir þessu forn-
fræga félagi og fátt annað en fall
í 2. deild virðist blasa við.
Blikarnir voru slakir í fyrri hálf-
leiknum og þá voru það aðeins send-
ingar Arnars og hinn útsjónarsami
Lazorik sem glöddu augað. En leik-
menn tóku við sér í síðari hálfleik.
Góðu kaflarnir urðu bæði fleiri og
lengri og sigur Kópavogsliðsins var
sanngjarn. Kjartan stóð sig vel í
bakvarðarstöðunni og Willum barð-
ist gríðarlega vel og er mjög mikil-
vægur hlekkur í liðinu.
1m #fcSkagamenn fengu aukaspyrau
*l#hægra megin á 21. mfnútu.
Ólafur Þórðarsson gaf háa sendingu inn
í vítateiginn, Helgi Björgvinsson vamar-
maður Keflvíkinga stökk upp en ekki vildi
betur til en svo að hann skallaði boltann
yfír Ragnar í markinu. Sjálfsmark.
2b ^%Á 50. mínútu var Arnari Gunn-
■ ^Jlaugssyni brugðið innan víta-
teigs og úr vítaspyrnunni skoraði Harald-
ur Ingólfsson af öryggi.
B^\Sex mínútum síðar kom há fýr-
W»\#irgjöf frá hægri, Haraldur Ing-
ólfsson skallaði inn fyrir vörnina á Ólaf
ÞÓrðarson sem skoraði með föstu skoti
undir Ragnar.
4:0
Þremur mínútum síðar var
dæmd aukaspyrna á Keflvík-
laugsson skoraði með glæsiskoti beint úr
aukaspymunni. Ekki ólíkt markinu fræga
gegn Svíum á dögunum.
65. mínútu fengu heimamenn
■ ^#aftur aukaspymu á svipuðum
stað og nú var það Haraldur Ingólfsson
sem reyndi fyrir sér. Ragnar markvörður
kom við boltann en inn fór hann.
£* ■ Æ Keflvíkingar náðu
W ■ I á 69. mínútu og (
sókn
liÞór Magn-
ússon fékk boltann rétt utan vítateigs, lék
framhjá Alexander Högnasyni og skaut
góðu skoti framhjá Þórði sem kom út.
6a afl Stefán Þórðarson, nýkominn
■ | inná sem varamaður, óð upp
að endamörkum á 83. mínútu, sendi háa
var hínn varamaðurinn, Bjarki Pétursson,
sem skallaði til baka inn i markteiginn
þar sem Arnar Gunnlaugsson skoraði
auðveldlega með því að henda sér fram
og skalla knöttinn í netið.
b Aðeins tveimur mínútum síðar
m a I fengu heimamenn hom og eftir
mikinn barning í vítatig Iíeflvíkinga hrökk
boltinn til Arnars sem skoraði auðveldlega
af stuttu færi og fullkomnaði þar með
þrennuna í sínum fyrsta leik.
7m Keflvíkingar fengu homspyrnu
■ JEfá 87. rnlnútu og við fjærstöng-
ina náði Ólí Þór Magnússon að skalla í
netið.
8m d%Fallegasta mark leiksins kom á
■ áSm89. mfnútu. Bjarki sendi fyrir
frá hægri, Stefán Þórðarson tók knöttinn
á bijóstið, lagði sig til hliðar og „klippti"
knöttinn glæsilega. Þrumuskot hans hafn-
aði alveg upp undir þverslá.
Mikilvæg stig
Grindvíkinga
0:1
Arnar Grétarsson
gaf á Rastislav
Lazorik á miðjum eigin vallar-
helmingi á 35. mín. Lazorik tók
á rás, klafsaði sig í gegnum flata
vörn Vals í miðjuhringnum og
leiðin var greið að vítateig þaðan
sem hann skoraði af öryggi.
Om*%A síðustu sekúndum
■ dafyrrí hálfleiks kom
sending frá vinstri inn í mark-
teig Vals. Lazorik skallaði fyrir
fætur Willums Þórs sem náði
ekki vel til knattarins en eftir
að hann, Lazorik og tveir varn-
armenn Vals höfðu barist sitj-
andi víð stöngina náði Lazorik
að pota yfir línuna.
Om Eftir hornspyrnu frá
■ Wvinstri á 75. mín.
stökk Wilium Þór Þórsson
manna hæst og skallaði í hornið.
HANN var ekki rishár leikur Grindvík-
inga og FH-inga í rigningunni í
Grindavík í gærkvöldi. Fáir sáu sér
fært að koma á völlinn þrátt fyrir að
heimamenn séu að berjast hat-
rammri baráttu fyrir sæti sínu í deild-
inni. Leikmenn Grindavíkur hrósuðu
sigri að leikslokum með tveimur
mörkum gegn einu en öil mörkin
voru skoruð í síðari hálfleik.
Fátt var um færi í fyrri hálfleik. Það
skásta fékk Hallsteinn Arnarson á
28. mínútu þegar hann átti óvænt skot
■■■ sem Albert varði glæsi-
Frimann lega. Grindvíkingar komu
Ólafsson ákveðnir til leiks í seinni
skrifar frá hálfleik og gerðu harða
Grmdavik hríð að marR; pjj óvænt
mark FH sem kom nánast upp úr engu
hleypti aftur krafti í heimamenn en það
dugði ekki lengi og leikurinn koðnaði nið-
ur á ný. Lúkasi Luka Kostic þjálfara
Grindvíkinga hefur sjálfsagt þótt nóg um
deyfð sinna manna því hann skipti sjálfum
sér inn á ásamt tveimur öðrum á 71.
mínútu. Aðeins 5 mínútum seinna jöfnuðu
heimamenn.
Ólafur Kristjánsson átti góðan leik með
FH og var yfirferð hans mikil. Þá áttu
Om 4[ Jón Erling Ragnarsson
■ I fékk boltann á miðjum
vallarhelmingi Grindvíkinga á 65.
mín. og sá hvar Albert Sævarsson
markvörður var staddur utan víta-
teigs. Jón skaut boltanum í autt
markið.
1m afl Jón Freyr Magnússon
■ fl fékk boltann á vinstri
kanti á 76. mín. eftir sendingu frá
Þorsteini Guðjónssyni. Hann lék inn
í vítateig og skoraði hjá Stefáni Am-
arsyni.
2a ■■ Jón Freyr Magnússon
■ fl sendi boltann inn að miðj-
um vítateig til Þorsteins Jónssonar
sem náði að pota í boltann framhjá
úthlaupandi markverði FH á 88. mín-
útu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
GUÐMUNDUR Benediktsson lék mjög vel í gær. Hér virðist hann vera að hafa betur í baráttu
við Júlíus Tryggvason, fyrrum féiaga sinn í Þór frá Akureyri.
KR styrkti stöðu sína
KR-ingar treystu stöðu sína í
öðru sæti deildarinnar með 2:0
sigri á Leiftri í vesturbænum í
gærkvöldi, eftir að hafa leitt
með einu marki i leikhléi. Leik-
mönnum KR tókst oft vel til í
leiknum i gærkvöldi einkum í
fyrri hálfleik, þegar þeir réðu
lögum og iofum á vellinum.
Gestirnir áttu undir að högg
að sækja á þeim tíma en náðu
þó að rétta úr kútnum í síðari
hálfleik, en á þess þó að setja
mark sittá leikinn.
Leikmenn KR komu greinilega
mjög vel stemmdir til leiks á
heimavelli sínum í gærkvöldi og
gerðu strax harða
hríð að marki norð-
anmanna. Á 5. mín-
útu var Mihajlo Bi-
bercic nærri því að
opna markareikninginn þegar hann
fékk opið færi eftir fallega sendingu
frá Hilmari Björnsyni, en knöttur-
inn fór rétt framhjá. Fáum andar-
tökum síðar skoraði Einar Þór Daní-
elsson, sem var að leika sinn 100.
meistaraflokksleik fyrir KR, fyrsta
mark leiksins. Áfram héldu KR-ing-
KAPPROÐUR
ar að leika við hvern sinn fingur
og Leiftursmenh áttu í mesta basli
með að veijast áköfum sóknarleik
þeirra og snúa vörn í sókn. Leik-
menn KR pressuðu þá mjög stíft
og gáfu þeim lítinn tíma til að
byggja upp sóknir.
Leiftri tókst að ná tveimur góð-
um marktækifærum í fyrri hálfleik
eftir skyndisóknir en voru klaufar
i bæði skiptin að gera ekki betur
en raun bar vitni um. En áfram
héldu KR-ingar að sækja og m.a.
komst Guðmundur Benediktsson
einn inn fyrir en Þorvaldur bjargaði
í horn. Þrátt fyrir allt tókst þeim
ekki að bæta við í fyrri hálfleik þó
færin hafi ekki vantað.
Leiftursmenn hresstust í síðari
hálfleik og greinilegt var að þeir
höfðu fengið að heyra hressilega
ræðu frá þjálfara sínum, Óskari
Ingimundarsyni, í leikhléinu. Þeir
börðust af krafti og reyndu allt
hvað aftók að jafna leikinn en vant-
aði oft herslumininn að reka enda-
hnútinn á sóknir sínar. Leikmenn
KR voru ekki eins frískir í síðari
hálfleiknum og í þeim fyrri. Þeir
tóku rispur en voru þess á milli í
basli með baráttuglaða norðan-
menn, en náðu þó á lokakaflanum
að bæta við marki og gulltryggja
sigurinn. Hann verður að teljast
sanngjarn því KR ingar voru mikið
mun betri í fyrri hálfleik, en meira
jafnvægi var í baráttunni á vellinum
í síðari hlutanum.
Ivar
Benediktsson
skrifar
6. mínútu lék sendi Heimir Guðjónsson knöttinn frá
■ ^#hægra markteigshorni inn á vítateiginn vinstra megin þar
sem Einar Þór Danielsson var staddur. Hann tók knöttinn niður á
brjóstið og spyrnti síðan viðstöðulausu og föstu skoti ofarlega í hægra
markhomið.
O a^lEftir langt útspark Kristjáns Finnbogasonar á 86. minútu
mm m Ubarst knötturinn til Guðmundar Benediktssonar á miðjum
vallarhelmingi Leifturs. Guðmundur einlék upp að vítateigslinu hægra
megin og spyrnti þar knettinum með vinstri fæti í innanvert hægra
markhomið.
FOLK
■ ÞAÐ koma alltaf einhvetjar
skemmtilegar athugasemdir hjá
kylfingum þegar þeir era úti á velli
að leika. Helgi Þórisson meistara-
flokksmaður úr GS lenti alveg við
sjónvarpspall sem settur var upp
bak við 17. flötina á landsmótinu
á Strandarvelli í gær og hann kall-
aði á Björgvin Sigurbergsson úr
Keili til að athuga hvar hann >
mætti láta boltann falla. Björgvin
spurði þá Helga hvort hann væri
að reyna að komast í sjónvarpið.
■ FROSTI Eiðsson úr GHR átti
skrautlega hringi í 3. flokki og
setti tvö met. Hann lék 17. holuna
á 14 höggum einn daginn og því
náði enginn annar í flokknum. Síð-
asta daginn gerði hann sér lítið
fyrir og lék á 78 höggum sem var
besta skorið í flokknum. Frosti
lækkaði um þtjá heila í forgjöf á
mótinu.
■ RAFN Jóhannesson úr GR sem
er sonur Jóhannesar Atlasonar
knattspyrnukappa hér á árum áður,
varð í 6. sæti í 3. flokki, lék á 81
höggi síðasta daginn. Hann hefði ’
getað farið höggi betur en kallaði
á dómara til að láta dæma á sig
víti á einni flötinni. Hann var að
laga púttlínuna þar sem takkaför
voru í henni, en slíkt má ekki og
þegar hann uppgötvaði það kallaði
hann á dómarann.
■ BIRGIR Leifur Hafþórsson
úr Leyni er fuglakóngur meistara-
flokks eftir þrjá daga, hefur fengið
10 fugla en Björgvin Signrbergs-
son, Björn Knútsson og Guð-
mundur Sveinbjörnsson, allir úr
Keili eru með 9 fugla hver.
■ ÞAÐ eru 43 keppendur í meist-
araflokki karla og allir hafa fengið
að minnsta kosti einn fugl, nema
tveir kylfingar. Annar þeirra er
núverandi Islandsmeistari, Sigur-
páll Geir Sveinsson, frá Akur-
eyri, sem hefur engan vegin náð
sér á strik í þessu móti.
■ RÆST verður út í þriggja
manna ráshópum í meistaraflokki
í dag í stað fjögurra manna eins
og hina þrjá dagana. Meistara-
flokkur karla hefur leik kl. 10.14
og síðasti hópur fer út klukkan
11.58. Kvennahóparnir tveir fara á
undan körlunum en fyrstir til að t
he^’a leik í dag eru kylfíngar í 1.
flokki karla, sem hefja leik kl. 8.
Danir buðu íslenskri stúlku á heimsmeistaramót 18 ára og yngri
þeir Hallsteinn Arnarson og Jón Sveinsson
ágæta spretti á miðjunni. Hörður Magnús-
son var oft á tíðum einn frammi og mátti
ekki við margnum. Hjá Grindvíkingum var
vömin traust að vanda en miðjumönnun-
um gekk illa að byggja upp spil. Þorsteinn
Jónsson átti góðan fyrri hálfleik.
Anna Lára í
12 manna
úrslit á HM
ANNA Lára Steingrímsdóttir
þáði óvænt boð Dana um að
koma með þeim á heimsmeist-
aramót unglinga 18 ára og
yngri í kappróðri, strax eftir
að hafa staðið sig vel á móti í
Danmörku, og hefur heldur
betur komið á óvart á HM í
Póllandi. Sigraði þar í sínum
riðli og keppir í dag í undanúr-
slitum, en þangað komust 12
keppendur. Þátttökuþjóðir á
mótinu eru um 100.
Málavextir eru þeir að þrír
íslendingar kepptu á alþjóðlega
móti í Kaupmannahöfn í síðustu
viku. Róbert Orn Arnarson og
Ármann K. Jónsson á tvíæringi
og Anna Lára á einæringi.
Keppt var tvo daga í röð og
Anna Lára stóð sig frábærlega;
gerði sér lítið fyrir og sigraði
mjög örugglega í bæði skiptin.
Ekki hafði staðið til að Anna
Lára færi á heimsmeistaramót-
ið í Póliandi, aðallega vegna
fjárskorts kappróðramanna
hérlendis, en Danir hrifust svo
af frammistöðu íslensku stúlk-
unnar að þejr buðu henui að
koma með, Islendingum að
kostnaðarlausu — og þeir Ián-
uðu henni meira að segja bát.
Og í Póllandi hefur Anna Lára
heldur betur haldið áfram að
gera það gott. Hún sigraði í sín-
um riðli, þar sem hún atti keppi
við Rússa, Kínverja, Belga og
Dana. Úrslitakeppnin hefst í
dag.