Morgunblaðið - 04.08.1995, Blaðsíða 4
3H**£tuiÞIafeft
HEIMSMEISTARAMOTIÐ A ISLENSKUM HESTUM
Karly Zingsheim
sló Islendingum
við í fimmgangi
Það fór eins og margur átti von
á, íslendingum tókst ekki að
komast í fyrsta sæti í forkeppni
fímmgangs á heimsmeistaramóti á
íslenskum hestum í gær, heldur var
það Karly Zingsheim frá Þýskalandi
íslensku
dómaramir
mótmæltu
ÍSLENSKU kynbótadómaramir
Þorkell Bjarnason og Jón Vil-
mundarson settu „allt á annan
endann", svo notuð orð Þorkels,
þegar þeir neituðu að skrifa
undir dómskýrslur vegna fram-
komu þýska dómarans Horst
Hilsenbauer. Upphaf málsins
voru dómar á hryssunum Brynju
frá Hafsteinsstöðum sem kom
fram sem fulltrúi íslands og
Hnosslottu frá Wiesenhof sem
kom fram sem fulltrúi Þýska-
lands. Þótti auðsýnt að þýski
dómarinn reyndi að tryggja að
þýska hryssan stæði ofar.
Varð mikil rekistefna út af
neitun ráðunautanna en eftir
spennuþrangin fundarhöld
skrifuðu þeir undir þegar þeir
töldu tryggt að þessi uppákoma
þýska dómarans yrði tekin fyrir
á vettvangi FEIF. Þorkell sagði
í samtali við Morgunblaðið að
„svona fíflagangur" gengi ekki
lengur, að dómarar stæðu í
slíku. „Það er skammarlegt að
einn besti þýski dómarinn sem
völ er á skuli vera hafður í fóta-
skoðun, vegna samviskusemi og
heiðarleika."
Valdimar
Kristinsson
skrifar
frá Sviss
á Feyki frá Ringscheid sem vermir
það sæti með gott forskot og 7,0 í
einkunn. Næstur
kemur Sigurður V.
Matthíasson íslandi
á Hugin frá Kjart-
ansstöðum. Með
6,70. Fæst á hæla hans fylgja Sig-
urbjörn Bárðarson á Höfða með
6,67 og Einar Öder Magnússon á
Mekki frá Þóreyjarnúpi með 6,53.
Öllum á óvart kemur svo lítt
þekkt dönsk stúlka, Rikke Jensen,
á þeim aldna höfðinga Baldri frá
Sandhólum sem nú stendur á tví-
tugu. Aðalsteinn Aðalsteinsson
varð Evrópumeistari á Baldri á EM
í Roderath 1983.
Karly Zingsheim sýndi Feyki á
snilldarlegan hátt. Sérstaklega
vakti útfærsla hans á skeiðinu at-
hygli, þar sem hann hægði Feyki
alveg niður á fet eftir fyrri sprett-
inn og síðan leiftursnöggt upp á
stökk og þar eftir á skeið. Verður
fróðlegt að sjá hvernig íslendingun-
um gengur að fást við þennan
snjalla reiðmann og hans ágæta
hest. Hulda Gústafsdóttir hafnaði í
6. sæti en skeiðið mistókst hjá henni
og ætti hún þá að eiga góða mögu-
leika á ‘að vinna sig upp í A-úrslit-
in, þ.e.a.s. ef skeiðið mistekst ekki
í úrslitunum.
I dag hefst dagskráin með 250
metra skeið og fara þá línur að
skýrast með samanlagðan sigur-
vegara en þar ætti Sigurbjörn að
eiga góða möguleika. Sigurður
Marínusson á Erli og Hinrik Braga-
son á Eitli verða í toppbaráttunni
í skeiðinu og glíma þar að öllum
líkindum við Lothar Schengel,
Þýskalandi og Gamm, en einnig
gæti Sigurbjörn komið þar við sögu
en hann telur sig eiga eitthvað uppi
í erminni í þeim efnum.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGURÐUR Matthíasson og Huginn frá Kjartansstödum í for-
keppninni í fimmgangi í gær. Þelr eru í öðru sæti.
Vignir og Kolskeggur í A-úrslit fjórgangs
Schrenk líkleg til
að verja titilinn
Núverandi heimsmeistari í fjór-
gangi, Jolly Schrenk Þýska-
landi á Ófeigi, virðist á góðri leið
með að veija titil sinn en þau bára
höfuð og herðar yfir keppinautana
í forkeppni fjórgangs í gær. Hlutu
þau 7,57 í einkunn.
Næst komu Unn Kroghen Noregi
á Hrana frá Snartarstöðum með
7,17 og Gaby • Fuchtenschnieder
Þýskalandi á Mergi frá Wendalinus-
hof með 7,03. Vignir Jónasson ís-
landi á Kolskeggi frá Ásmundar-
stöðum varð jafn Bemd Vith Þýska-
landi á Þorra frá Fljótsdal í fjórða
og fimmta sæti með 6,80. Gísli
Geir Gylfason íslandi á Kappa frá
Álftagerði varð í sjötta sæti með
6,70 og á því góða möguleika á að
vinna sig upp í A-úrslit með því að
sigra í B-úrslitum. Báðir voru þeir
með góðar sýningar Gísli og Vignir
en líklega hafa smá hnökrar orðið
Gísla dýrkeyptir því Kappi kom
mjög vel fyrir að öðru leyti.
Ef vel tekst til hjá Unn Kroghen
á Hruna í úrslitunum gæti hún
velgt Jolly undir uggum því þótt
Ófeigur væri stórbrotinn í allri
framgöngu var sýning hans ekki
alveg hnökralaus. En Hruni er
mjög erfiður hestur og gerir það
árangurinn hjá Unn ekki minni.
Hins vegar fékkst ekki betur séð
en Gaby Fuchtenschnieder hafi
verið ofdæmd og virðast dómarar
ekki taka á skeiðtölti hjá hrossun-
um sem skyldi en Mergur virtist
vera meira og minna á skeiðtölti
bæði á hægu og greiðu tölti. Einn-
ig þótti mörgum sá snjalli knapi
Bernd Vith vandæmdur en hann
var frekar snemma inn í forkeppn-
inni sem þykir ekki gott því ein-
kunnir hækka gjarnan eftir því sem
á líður.
GOLF
Aftur sigraði
Rut í 1. flokki
RUT Þorsteinsdóttir úr Golf-
klúbbi Suðurnesja sigraði í 1.
flokki kvenna, lék á 248 höggum
en Erla Þorsteinsdóttir, einnig
úr GS, varð í öðru sæti á 249.
Þriðja varð Sigríður Mathiesen
úr GR á 260 höggum.
Keppnin var spennandi því
fyrir síðasta hring átti Rut þrjú
högg á Erlu en í gær náði Erla
að vinna tvö högg og munurinn
var því eitt högg er stúlkurnar
komu á síðasta teig. Erla lenti í
glompu en Rut sló yfir flötina
og báðar fengu stúlkurnar skolla
og sigur Rutar tryggður.
Lilja örugg
í 2. flokki
LILJA Karlsdóttir úr Keili hafði
nokkra yfirburði í 2. flokki
kvenna. I gær lék hún á 89 högg-
um og alls á 262 höggum, eða
13 höggum betur Halldóra Hall-
dórsdóttir úr GF. Þriðja varð
Helga Rut Svanbergsdóttir úr
GKj á 281 höggi. Lilja var með
forystu allt frá fyrsta degi nema
hvað Auður Jóhannesdóttir úr
Keili lék fyrsta daginn einnig á
90 höggum en hún endaði síðan
í fjórða sæti.
Davíð hélt
forystunni
DAVÍÐ Friðriksson úr Grindavík
hélt forystunni í 2. flokki karla
og sigraði með tveimur höggum,
lék á 234 höggum en Ingvi Arna-
son úr GB varð annar á 236 högg-
um og G. Ágúst Guðmundsson,
Keili í þriðja sæti á 239 höggum.
Páll á eitt
PÁLL Ketilsson úr GS á tvö högg
fyrir síðasta hring í 1. flokki
karla en efstu menn eru í einum
hnapp þannig að kepppin verður
hörð í dag. Sveinn K. Ögmunds-
son, GR, er annar á 239 höggum,
Guðmundur J. Óskarsson, GR er
á 240 og Friðbjörn Oddsson úr
GK fjórði á 241. Síðan eru fjórir
á 243 höggum, fjórir á 245 og
svo munar aðeins höggi alveg
niður í miðjan flokk þannig að
margir koma til greina og keppn-
in í dag 'verður hörku spennandi.
GOLF / LANDSMOTIÐ
Karen Sævarsdóttir hélt sínu striki í gær
„Þægileg staða“
Karen Sævarsdóttir íslands-
meistari úr Keflavík er svo
gott sem búin að tryggja sér sjö-
unda Islandsmeist-
Skúli Unnar aratitilinn í röð. í
Sveinsson gær hélt hún sjö
skrifar högga forystunni
sem hún hafði náð
eftir tvo hringi, lék á 79 höggum
eins og Ragnhildur Sigurðardóttir
úr GR sem er í öðra sæti og Her-
borg Arnarsdóttir, en hún er í fjórða
sæti og nagar sig öragglega í hand-
arbökin fyrir lélega spilamennsku
fyrsta daginn.
Hún gæti hæglega verið framar
hefði hún ekki leikið á 86 höggum
fyrsta dag mótsins. En það er svo
mörg ef í golfínu eins og öðrum
íþróttum.
„Þetta er óneitanlega óskaplega
þægileg staða fyrir mig, að eiga sjö
högg fyrir síðasta hring,“ sagði
Karen í gær. „En þetta er samt
ekki búið og nú er bara spurningin
að halda áfram síðasta hringinn
eins og síðustu þrjá og þá gæti
þetta gengið upp enn eitt skiptið.
Ég slæ frekar illa en skora samt
ágætlega og ég held það sé mikið
til vegna þess að ég held alltaf í
vonina um að geta náð pari og mér
hefur tekist að redda mér vel þegar
í ógöngur er komið. Dagurinn í dag
var köflóttur, ég átti nokkrar góðar
holur en svo fór allt í bakkgír og
nokkrar slæmar komu og svo koll
af kolli,“ sagði Karen.
Ragnhildur var tvo yfir pari eftir
fyrri níu en lék síðan 11. holuna,
sem er par fjórir, á sjö höggum.
„Kylfan snérist í höndunum á mér
í upphafshögginu og boltinn fór
rétt fram fyrir teiginn og svo spil-
aði ég illa við flötina. Annað .var
ég þokkalega ánægð með í dag,“
sagði Ragnhildur.
En er þetta ekki vonlaus barátta?
„Nei, ég held áfram að berjast
og ég neita alfarið að afskrifa neitt
fyrr en þetta er búið,“ sagði Ragn-
hildur en viðurkenndi að þetta yrði
erfiðara og erfiðara eftir því sem
holunum fækkaði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur
KAREN Sævarsdóttir, íslandsmeistari, hefur örugga forystu
í meistaraflokkl kvenna fyrlr síðasta dag. Hún er hér, tll
hægri, ásamt Ragnhildi Sigurðardóttur, sem er í öðru sæti.