Morgunblaðið - 09.08.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.08.1995, Qupperneq 1
4- Ljónsöskur URRR! Er eitthvað meira að segja um myndina af ljónynj- unni eftir stúlku sem heitir Sigrún Hreinsdóttir, 11 ára, Dalseli 40,109 Reykjavík? Jú, hún er mjög flott og við þökk- um fyrir okkur, bæði teikning- una og að þurfa ekki að verða á vegi Ijóna, tja svona dags- daglega í það minnsta. Æfing í þolinmæði INDÆLU börn, ef þið eruð þreytt í augunum skuluð þið ekki prófa þennan leik. Rýnið í myndina og reynið að fínna hvaða hlutir eru bara birtir einu sinni. Þið skuluð reyna á athygli ykkar og þolinmæði skuluð þið æfa - hún er ein þeirra dyggða sem hver manneskja ætti að til- einka sér. Margir hafa komið sér í vandræði og orðið sér til skamm- ar með því að gleyma þolinmæðinni. Engan langar að verða að at- hlægi fyrir þá sök eina. Ofreynið ekki í ykk- ur augun en reynið á þolinmæðina til hins ýtra. i. Lausnin er annars staðar í Mynda- sögunum. KR-Valur: 3-2 KR og Valur voru að keppa. Gummi Ben. skaut þrumuskoti í slána. Svo náði Brynjar Gunnarsson KR-ingur frákast- inu og skaut stöngin og inn. En eftir æsispennandi leik vann KR 3-2. Egill, 6 ára, Öldugötu 42, 101 Reykjavík, er Vesturbæ- ingur og þeir halda margir með KR í íþróttum. Ekki skrýt- ið, Hlíðabúar halda margir með Val, íbúar í Seljahverfi halda margir með ÍR og svona mætti halda áfram með íþróttafélögin og hverfi borg- arinnar. Egill minn, mikið hefði nú verið gaman að vita hvers son þú ert, en aðalatriðið í þessu öllu saman eru myndin þín og sagan. Hafðu kærár þakkir fyrir. Morgunstund gefur gull í mund STEFAN heitir piltur sem býr í Reykjavík og er annálaður fyrir glaðværð sína. Einn morgun í júlí síðastliðnum teiknaði mamma hans nokkrar myndir af honum frá því að hann opnaði augun og þar til h’ann var tilbúinn að takast á við daginn strokinn og fínn. Eitt- hvað hefur röð myndanna skolast til þjá móður hans Stebba eins og hann er kallaður og þætti honum og mömmu hans vænt um ef þið vilduð vera svo vinsamleg og raða myndunum í rétta tímaröð. Það er alveg pottþétt að þið getið þetta leikandi létt og þess vegna er svarið birt svona upp á grín í Lausnum á öðrum stað í Myndasögunum. Skemmtið ykkur! ÍL L lMa ðlot/M7/l n (/> i Avtc* ■%% <«> '■> T , U^jí, ÍÞV.,, , • <r-. i > u ^*^ ■-■ ■■■■■<*Ani; \tik- Pennavinir KÆRU Myndasögur. Mig langar að senda kveðjur til tveggja stráka sem voru í Galtalæk helgina 21.-23. júlí. Annar var alltaf með barna- húfu en hinn er ljóshærður með svolítið sítt hár og var alltaf að blása á það. Ársól, Selfossi. Kæri Moggi. Ég heiti Erla Björk Baldurs- dóttir og sendi bréf til ykkar og bað um að fá nafnið mitt í Pennavini. En nú stendur svo illa á, að ég fínn ekki bréf frá nokkrum stelpum og bið um að fá að birta smá- ræði. Hér kemur það: Ég vil biðja allar stelpurnar, sem sendu mér bréf, að skrifa mér aftur því ég týndi bréfunum þeirra, nema hennar Bjargar. Kveðja. Erla B. Baldursdóttir Reykjabyggð 39 270 Mosfellsbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.