Morgunblaðið - 20.08.1995, Qupperneq 3
2 C SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ ' MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1995 C 3
BMW vélin er 627 hestöfl og
hefur mikið snúningsvægi.
Bíllinn spólar, jafnvel þó tekið
sé af stað I sjötta gír! Vélin
er að stórum hluta úr áli.
F1 BÍLLINN er þriggja
manna og ökumaðurinn situr
í miðjum bílnum, en farþeg-
arnir til sitt hvorrar hliðar.
Guðbergur Guðbergsson ekur
sérsmíðuðum Porsche 911
Meistarabíllinn
REYKVÍKINGURINN Guðb'ergur
Guðbergsson varð ísl^ndsmeistari í
rally kross um síðustu helgi. Hann
ekur 220 hestafla Porsche 911. Hann
hefur ásamt félögum sínum eytt
meir en 3000 vinnstundum í að gera
bílinn kláran til keppni. Guðbergur
varð einnig meistari á bílnum í fyrra,
en tvö árin á undan varð eiginkona
hans, Kristín Birna Garðarsdóttir
meistari á sama bíl.
Porsche keppnisbíll Guðbergs var
keyptur frá Bretlandi, þar sem hann
hafði verið notaður í keppni. Bíllinn
var hinsvegar í mjög slæmu ástandi
þegar Guðbergur fékk hann í hend-
urnar fyrir fjórum árum. í dag er
hann í toppstandi, með fjóra meist-
aratitila því til vitnis. „Við höfum
lagt ómælda vinnu í bílinn tvö s.l.
ár og hann lætur mjög vel að stjórn.
Sá sem er óvanur hegðun Porsche á
hinsvegar erfítt með að stýra bílnum,
því það þarf sérstakt lag á þessa
sportbíla", sagði Guðbergur.
Snúningsvægið aðalkostur
vélarinnar
„Það er ekki hægt að keyra bílinn
eins og hefðbundinn afturdrifsbíl, þar
sem vélin er aftur í og þyngdin yfir
drifhjólunum. Ef þú missir afturend-
an út, þá er bíilinn fljótur að snarsnú-
ast. Það þarf því stíga varlega á
bensíngjöfina, aka jafnt og þétt.
Varlega í beygjum og hratt á beinu
köflunum."
Vélin í Porsche Guðbergs er
þriggja lítra. Búið er að porta hedd
og smíða beina innspýtingu á hana
eftir hugmyndum Guðbergs. Voru
notaðir nokkrir hlutir úr innspýtingu
úr 928 bíl. Þá er
knastásar úr 911 SC
bíl notaðir í stað upp-
haflegra knastása.
„Snúningsvægið er
aðal kostur vélarinn-
ar og þó hestöflin séu
ekki stjarnfræðileg,
þá er togkrafturinn
mikill. í einni keppni
ók ég í fjórða gír all-
an tímann, nema í
byrjun í rásmarkinu,
sem segir allt um
snúningsvægi vélar-
innar“, sagði Guð-
bergur.
Plast í húddl og
hurðum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
SÉRSMÍÐAÐUR Porsche 911 meistarabíllinn í rally
kross síðustu fjögur ár ekur hér i harðri keppni við
Guðmund Friðrik Pálsson, sem ekur 300 hestafla
Ford Escort.
Bíilinn er 900 kg,
en venjulegur 911
bíll er 350 kg þyngri.
Plast er í húddi, fram
og afturbrettum,
skottloki, farþegarhurð og stuðurum.
Bilstein gasdemparar eru allan
hringinn í fjöðruninni. Tvo síðastl-
iðna vetur hefur allt kram verið tek-
ið í gegn. Vél og drifbúnaður var
yfirfarinn og skipt um spyrnur, stýri-
senda og aðra slitfleti. Þá eru
bremsudælur nýlegar og sérstök
stýrismaskína, sem er tveir hringir
borð í borð auðveldar alla stjórnun
bílsins.
„Ég er ánægður með bílinn eins
og liann er, en á alla hluti til að
smíða fjórhjóladrif í hann. Það verð-
ur samt ekki gert fyrir næsta keppn-
istímabil. Bíllinn hefur dugað svona“,
sagði Guðbergur. ■
FRAMMI í bílnum er 28
lítra olíukerfi, bensínt-
ankur úr Trabant og
nítró búnaður, sem eyk-
ur afl vélarinnar í rás-
markinu.
HEIMASMIÐUÐ bein innspýting vélarinnar eykur vinnslu hennar
og snarminnkaði bensíneyðsluna. Innspýting frá verksmiðjunni
átti að kosta 600.000 og Guðbergur ákvað því að smiða hana sjálfur.
BMW 730i hefur síðustu vikurnar
verið til sýnis hjá BMW umboðinu
á íslandi sem er Bifreiðar og land-
búnaðarvélar í Reykjavík. Bílar í 7
línunni kosta frá rúmum sjö
milljónum króna og er hann þá
með ýmsum þægindum og marg-
háttuðum öryggisbúnaði en þessi
ákveðni bíll býður gott betur því
meðal sérbúnaðar sem hann hefur
að geyma má nefna leðurinnrétt-
ingu, aksturstölvu, sérstakt hljóm-
kerfí auk útvarps að sjálfsögðu,
rafdrifin framsæti með minni og
ýmislegt fleira. Verðið hækkar líka
nokkuð við þetta og er rúmlega
8,9 milljónir króna.
Vélin í þessum ofurbíl er þriggja
lítra, 8 strokka, 32 ventla og heil
218 hestöfl. Hámarkshraðinn er
234 km og hröðun í 100 km hraða
úr kyrrstöðu 9,7 sekúndur. Vélin
er búinn tölvustýrðri innsprautun
og billinn er með fimm þrepa sjálf-
skiptingu með tölvuvali. Þá er hann
með spólvörn og af öðrum búnaði
má nefna hemlalæsivörn, hraða-
tengt vökvastýri, fjarstýrðri sam-
læsingu með þjófavörn, loftkæl-
ingu, líknarbelg fyrir ökumann og
farþega í framsæti, rafdrifnum og
hituðum hliðarspeglum, rafdrifnir
höfuðpúðar, rafdrifnar rúður,
hleðslujöfnun, hraðfestingu og
GSM farsíma frá BMW.
Það er fljótsagt að þessi bíll eru
þægindin uppmáluð og ekkert nema
ánægjulegt að aka honum. Hægt
var að spretta dálítið úr spori við
framúrakstur á Hellisheiði á leið
austur fyrir Fjall frá Reykjavík og
þar kom vel í ljós að viðbragð á
svona tæki er með meira móti. Sjálf-
skiptingin skiptir sér liðlega og
mjúklega þrátt fýrir hranalega inn-
spýtingu og ekki þarf að bíða lengi
uns komið er að hraðatakmörkunum
okkar og mál að hægja ferðina. Að
Nær 375 km hroóa og er 3,5 sekúndur í 100 km hrada
því leyti verður að segja um þennan
bíl eins og marga aðra af svipuðum
flokki að það er í raun lítið gaman
að eiga þá hérlendis. Þeir eiga heima
á hraðbrautum og álíta vegakerfí í
útlandinu sem hæfír þeim því þótt
gaman sé að geta sýnt viðbragð og
góða vinnslu og þægilegt að með-
höndla þennan bfl á allan hátt næst
ekki nema hluti af ánægjunni út
úr honum þegar ekki er hægt að
koma honum á ærlegt skrið.
Það sem hugurlnn girnist
En hvað um það - hér er á ferð-
inni vandaður bíll og hlaðinn bún-
aði. Sumt er öryggisbúnaður sem
bæði er til þess fallinn að auka
öryggi og sjálfstraust ökumanns
við alla stjórn á bílnum svo sem
hemlalæsivörn og spólvörn og ann-
ar öryggisbúnaður dregur úr líkum
á meiðslum við árekstur eins og
líknarbelgirnir eða loftpokar eins
og umboðið nefnir það í upplýs-
ingabæklingi sínum. Þar fyrir utan
eru hin fjöl-
mörgu þægindi
og aukabúnað-
ur sem alls ekki
er nauðsynleg-
ur en afskap-
lega þægileg-
ur. Það er líka
ljóst að kaup-
endahópur bíls
sem kostar kr.
8.955.000 er
ekki stór og
jafnvel ekki
þótt þeir
myndu sleppa
BÍLLINN er hlaðinn aukabúnaði og kostar tæpar 9 milljónir króna.
Morgunblaðið/Kristinn
BMW 730i með tölvustýrðri fimm þrepa sjálf-
skiptingu, 8 strokka og 218 hestafla vél.
ýmsum auka
búnaði og ná
verðinu niður í rúma 7,1 milljón
en sá sem kaupir bíl sem þennan
hefur í höndunum vandaðan grip
og þægilegan. Hann fer allra sinna
MEÐAL sérbúnaðar má nefna leðurinnréttingu, aksturstölvu, sérstakt hljómkerfi
auk útvarps og bílsíma sem er haganlega fyrirkomið milli framsætanna.
ferða hávaðalaust, mjúklega, rösk-
lega og býr við öll þægindi við
akstur og allan aðbúnað og um-
gengni við bílinn. Þeir sem geta
tekið á sig þessa fjárfestingu verða
ekki fyrir vonbrigðum - þeir fá flest
það sem hugur ökumanns girnist.
Ný reglugeró um akstur á stórum flutningabilum
ðkumenn mega mest
aka 4 1/2 tíma í senn
í ÖKUMANNSKLEFANUM er handsmíðað
mælaborð og öryggjatafla.
ÞAÐ hefur lengi tíðkast hér á landi
að ýmsar starfsstéttir vinni störf sín
meðan vinnu er að fá og menn hugsa
ekki um hvíldartíma meðan vinnan
kallar. Þetta hefur m.a. átt við um
atvinnubílstjóra, suma hveija og vit-
að er að margir þeirra vinna langan
vinnudag og miklu lengri en eðlilegt
má teljast.
Sumir atvinnubílstjórar hafa ekið
langar leiðir milli landshluta eða
annarra fjarlægra áfangastaða og
sjálfír talað um að þeir hafí ekið
meðan þeir gátu haldið augunum
opnum. Hitt er reyndar einnig þekkt
að þeir hafi ekið lengur en þeir hafa
getað haldið augunum opnum og þá
með skelfílegum afleiðingum.
Oft heyrir maður frásagnir um
ótrúlega langan vinnutíma atvinnu-
bílstjóra sem aka öki im sem
vega fulllestuð á bilinu '9 tonn.
Ég hef t.d. undir höm ’rásögn
frá manni sem starfað hefur sem
bílstjóri á fískflutningabíl. Honum
var af vinnuveitanda falið að aka
milli landshluta að safna saman físki
fyrir fiskmarkað. Að meðaltali ók
þessi maður samfellt 18 klukku-
stundir á sólarhring en hvíldist í 6
sem þó var ekki einhlítt þar sem
stundum þurfti að vinna eitthvað í
kring um lestun og losun eða þá við
viðgerðir á þeim nauma tíma sem
var til hvíldar. Þetta þrælahald varði
í tæplega tvo mánuði sl. sumar.
Ökumaðurinn sagðist hafa ekið milli
landshluta úrvinda af þreytu og oft
ekki vitað hvernig í ósköpunum hann
komst á leiðarenda án þess að sofna
en oft mátti litlu muna sagði hann.
Reglugerð um hvíldartíma
Ég þekki sögu þar sem ökumaður
ók hvíldarlaust milli Akureyrar og
Reykjavíkur þrjár ferðir á stórum
flutningabíl og tók sú ferð samanlagt
eitthvað um 40 stundir, eða tæplega
eina vinnuviku, með þeim tíma sem
Hraðskreidasti
sportbíll heims
MCLAREN Fl. Nafnið eitt segir
nóg um hraðskreiðasta og dýrasta
fjöldaframleidda sportbíl heims. F1
er smíðaður eftir hugmyndum Gor-
don Murray, sem hefur mikla
reynslu úr Formula 1 kappakstri.
Úr heimi kappaksturs er flest í bíln-
um líka ættað. Hann er þriggja
sæta, með 627 hestafla BMW vél
og verðmiða, sem fær okkur Isiend-
inga til að hiksta. í Bretlandi, þar
sem bíllinn er framleiddur kostar
hann 54 milljónir íslenskra króna.
Ef hann yrði tollaður hérlendis, þá
má reikna með tugum milljóna í
viðbót. F1 nær 375 km hraða.
Markmið McLaren fyrirtækisins,
sem keppir einnig í Formula 1 kapp-
akstri á sérhönnjiðum Formula 1
bílum, var að smíða besta sportbíl
heims fýrir almenning, ekkert
minna. Það virðist hafa tekist og
þrátt fyrir hátt verð, þá er eftir-
spum eftir F1 bílnum meiri en
McLaren annar. Það sakar ekki að
bfllinn hefur unnið fjölmörg mót
fyrir fjöldaframleidda sportbíla á
árinu, þó verksmiðjan taki ekki
beinan þátt í keppni, heldur styðji
einkaðila til verksins. Murray, hug-
myndasmiðurinn á bakvið bílinn
valdi með sér nokkra af færstu
mönnum bílaiðnaðarins til að hanna
og smíða bílinn. Fyrsta skrefíð var
að finna vél, V 10 eða V 12 í bíl-
inn, sem er afturdrifinn. Vélar frá
Ferrari, Honda og BMW komu til
greina. I byijun átti vélin að vera
450_ hestöfl.
„í fyrstu var hugmyndin að nota
vél úr kappakstursbíl, en ég féll frá
því. Þær eru vandmeðfarnar. Ferr-
ari F40 og Porsche 959 sportbílam-
ir voru með hátt í 500 hestöfl, en
ég ætlaði að smíða mun léttari
sportbíl, þannig að aflið var ekki
aðal atriðið i fyrstu. Þá ákvað Jagu-
ar og Bugatti bílaverksmiðjumar
að smíða sportbíl með 550 hestafla
vél. Ég var því orðinn stressaður
og fyrir hreina tilviljun hitti ég
BMW menn á kappaksturskeppni.
Yfírmaður keppnisdeildar BMW
bauðst til að smíða V 12 vél, yfír
600 hestöfl. Þessi vél er nú hjarta
bílsins og slær þungt og kraftmik-
ið“, sagði Gordon Murray í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins,
■ sem skoðaði F1 bílinn á bílasýningu
í Englandi.
Spólar í sjötta gír
„Orkan er gífurleg. Þú þarft rétt
að snerta bensíngjöfina til að æða
áfram, jafnvel í sjötta gír. Hann
spólar í sjötta gír! Ég var strax stáð-
ráðinn í að smiða þriggja manna
bíl, þar sem ökumaðurinn situr í
miðjum bílnum og farþegarnir tveir
til sitthvorrar hliðar. Þannig næst
besta þyngdardreifíngin“, sagði
Murray.
„Það er ekkert aukapláss í far-
þegarýminu, enda er þetta aksturs-
bíll, ekki límmósín. En sérhannað
Kenwood hljóðkerfið sér til þess að
þú njótir akstursins til fullnustu,
ef þú vilt ekki aka í botni öllum
stundum.' Enda ráða ekki margir
við getu bílsins. Þess vegna höldum
við sérstök námskeið fyrir þá sem
kaupa F1 bílinn. Svo eru margir
bílar keyptir í einkasöfn manna,
sem keyra bílanna ekkert. Viija
bara eiga það besta og dýrasta",
sagði Murray.
Aðeins eru framleiddir þrír F1
bflar í mánuði sem stendur, enda
tekur 6000 vinnustundir að smíða
einn bfl. Yfírbygging F1 er að mestu
í sérhönnuðu trefjaharðplasti, sams-
konar og er notað í Formula 1 bfla.
Þess vegna er hann mun léttari en
margir sportbílar eða 1100 kg. Ferr-
ari F40 er t.d. 1235 kg, Lamborg-
hini Diablo 1575 kg. Vélin er 6 lítra,
627 hestöfl við 7,500 snúninga á
mínútu og hún tengist sex gíra gír-
kassa. Snúningsvægi vélarinnar er
479 lb.fet á bilinu 4,500 til 7, 500
snúningum. Bremsumar eru öflugar,
kældar diskabremsur eru allan
hringinn, 300 x 30 mm að stærð,
en magnesíum felgumar undir bíln-
um em 17x9 tommu og dekkin sér-
ökumaðurinn þurfti að nota til að
lesta og losa bíl sinn.
Umferðarlögin fjalla um akstur
sem þennan. Um hann er fjallað í
44. grein umferðarlaganna, þeirri
hinni sömu þar sem greint er frá því
að bannað sé að aka ölvaður. Þar
segir á þá leið að enginn megi stjóma
eða reyna að stjórna ökutæki ef hann
vegna ofreynslu, svefnleysis o.sv.frv.
getur ekki stjórnað því ömgglega.
Illa hefur gengið að framfýlgja þess-
um ákvæðum umferðarlaganna þar
sem ekki hefur verið í gildi reglugerð
fyrr en nú um hvað teljist hæfíleg
hvíld og hversu lengi megi aka. En
það er sem sagt búið að setja reglu-
gerð um hvíldartíma ökumanna þar
sem því er lýst hversu lengi megi
aka og hversu lengi eigi að hvflast
þegar menn aka atvinnuakstur á til-
teknum ökutækjum.
Akstur skráður með ökurita
Reglugerð þessi tók gildi í vor en
ákveðinn umþóttunartími er gefinn
fram til 31. ágúst nk. Frá og með
þeim tíma er ætlast til að menn taki
í notkun ökurita sem tiltekin stór
ökutæki eiga að vera búin. Ökuritinn
skráir sjálfvirkt ýmsar upplýsingar
s.s. hvenær lagt var af stað, hversu
hratt var ekið, hve löng hlé vom gerð
á akstri o.sv.frv. Umráðamenn stórra
ökutækja bera ábyrgð á því að öku-
riti sem virkar rétt og ömgglega sé
í ökutækjunum og ökumaðurinn ber
síðan ábyrgð á því að setja þar til
gerðar skífur í ökuritann þannig að
fá megi upplýsingar um undangeng-
inn akstur.
Lögreglan og sérstakir eftirlits-
MCLAREN F1
w sportbíllinn lætur lítið
yfir sér. Vænghurðir eru á
bílnum, sem lyftast upp fyrir
þakið, þegar bíllinn er opnaður.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
GULLHÚÐAÐIR hlutir eru í vélarrýminu ekki til skrauts,
heldur af því gull þolir hitann vel og tærist ekki.
Vélarrýmið er því ætið sem nýtt.
hönnuð Goodyear, 235/45ZR 17 að
framan en 315/45 ZR 17 að aftan.
Hámarkshraði bílsins er yfir 375 km
á klukkustund og hann er 3,5 sek-
úndur í 100 km hraða. McLaren
selur bílinn ekki út á kredikort,
greiða þarf 20% staðfestingagjald,
10 milljónir. Ári síðar er bfllinn kom-
inn í hendur kaupandans. ■
Gunnlaugur Rögnvaldsson
menn munu hafa eftirlit með því að
ökumenn aki ekki lengur en þeir
hafa heimild til skv. áðurnefndri
reglugerð. Samkvæmt henni þá má
ökumaður ekki aka lengur samfellt
en fjóra og hálfa klukkustund. Þá
skal hann hijóta 30 mínútna hvíld
hið minnsta. Hann má ekki aka leng-
ur en tíu klukkustundir á dag, þó
tólf klukkustundir tvo daga í viku
og á hveijum hálfum mánuði má
ökumaður ekki aka meira en 100
klukkustundur. Reglugerðin kveður
á um að ökumaður skuli hljóta 10
tíma samfellda hvíld að öllu jöfnu
en heimild er fyrir því að hann fái
aðeins 8 stunda samfellda hvíld
þrisvar í viku. Einu sinni í viku á
að tryggja ökumanni samfellda 36
stunda hvíld.
MÖrgum mun þykja þessi reglugerð
nokkuð ströng og að langur vegur
sé frá því sem hún hefur að geyma
og þess ástands sem sums staðar rík-
ir hér á landi hjá atvinnubílstjórum,
t.d. þeim sem aka í ákvæðisvinnu.
Hins vegar er reglugerðin nýútgefna
nokkuð sveigjanlegri en sambærilegar
reglugerðir í nágrannalöndunum og
hafa yfírvöld teygt sig eins langt og
heimilt er í þá átt að hafa ákvæðin
eins mild og unnt er. ■
Eiríkur Hreinn Helgason er
kennarí í Lögregluskóla ríkisins.
VW Golf CC '94. Ek. 27 þús. km.
Verð 1.050.000.
Chevy Blazer S-10 '87.
Ek. 100 þús. km. Verð 900.000
Nissan Patrol GR dfsel '91.
Ek. 95 þús. km. Verð 2.790.000.
Honda Civic GL '88.
Ek. 127 þús. km. Verð 450.000.
Nýja bílasalan, srssa,
Daihatsu Rocky, langur, bensfn, '90.
Ek. 170 þús. km. Verð 1.280.000.
Mazda 323F '92. Ek. 55 þús. km.
Verð 1.020.000.
Daihatsu Charade Sedan '90.
Ek. 50 þús. km. Verð 660.000.
Toyota Corolla XLI, '94, Ek. 3 þús.
km. Sjálfskiptur. Verð 1.190.000
NP VARAHLUT1R"
fyrir japanska bíla
Tímareimar - Viftureimar - Kúplingar - Bremsuhlutir - Þurrkur
Hljóllegusett - Bensíndælur - Vatnsdælur - Pakkningasett
Kertaþræðir - Olíurofar - Hitarofar - Framlugtir - Öxulliðir
Öxulhosur - Demparar - Aukahlutir - Sendum út á land
SMIÐJUVEGUR 24 C
200 Kópavogi
SÍMI 587 0240 — FAX 587 0250
Einn meö öllu
fró BMW
FAGMENNSKAN í FYRIRRÚMI
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Tímapantanir
í síma: 567 2811