Morgunblaðið - 25.08.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
fHtrgtuiÞlAfeUk
C
1995
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST
BLAÐ
Þjóðverjar koma
á 50 ára afmælið
KNATTSPYRNUSAMB AND íslands á 50 ára af-
mæli eftir tvö ár og er sambandið þegar farið að
undirbúa afmæli sitt. Eggert Magnússon formaður
KSÍ tilkynnti i gær að eftir langar og strangar
viðræður hefðu samningar tekist um að þýska
landsliðið i knattspyrnu spili hér á landi á afmæl-
inu og fer leikurinn fram 20. ágúst 1997. Sagði
Eggert að viðræður hefðu tekið langan tíma enda
um að ræða eftirsótt stórlið.
Tveir skelltu sér
holu í höggi ,
TVEIR ungir kylfingar náðu draumahöggum sinum
á íslandsmótinu í sveitakeppni í golfi unglinga sem
hófst á Akureyri i gær. Það merkilega við þetta var
að þeir voru saman í ráshópi og gerðu þetta á 18.
holunni. Fyrstur á teig var hinn 16 ára gamli Berg-
ur Sverrisson frá Selfossi og notaði hann járnkylfu
númer 6 og beint í. Næstur var Davíð Viðarsson,
16 ára kylfingur úr GS, og hann notaði járnkylfu
númer 4 og fór sömu leið. Engar sögur fara af
þriðja manninum í riðlinum, en hann getur varla
talist öfundsverður.
Eydísi gekk
ekki nógu vel
EYDÍS Konráðsdóttir keppir á Evrópumeistara-
mótinu í sundi og hefur þegar keppt í tveimur
greinum. í gær keppti hún í 100 metra baksundi
og synti á 1.07,60 sem er talsvert frá hennar besta
en íslandsmet hennar er 1.06,00. Hún varð í 25.
sæti af 27. keppendum. Á miðvikudaginn synti hún
200 metra skriðsund á 2.08,97, en íslandsmetið er
2.06,23. Hún varð í 31. sæti af 34 keppendum.
Nýr erlendur leik-
maðurtil Blika
BREIÐABLIK hefur fengið nýjan erlendan leik-
mann til að leika með fyrstu deildar liði kvenna þjá
félaginu, en Penny Peppas, sem lék með liðinu í
fyi-ra er gengin til liðs við Grindavíkurstúlkur. Hin
nýji leikmaður heitir Betsy Harris og er 23 ára, 179
sentimetrar og mikil langskytta. „Það voru von-
brigði að Penny skyldi stinga af en ég vænti mikils
af Betsy,“ sagði Sigurður Hjörleifsson þjálfari Blika
í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Blikum hefur borist meiri liðsstyrkur því Birna
Valgarðsdóttir frá Sauðárkróki hefur skipt í Kópa-
vogsliðið. Birna var landsliðsmanneskja áður en
hún flutti til Tyrklands þar sem hún var heimilis-
þjálp hjá Eyjólfi Sverrissyni knattspyrnukappa.
Skaginn fær
um 18 milljónir
Detta íslandsmeistararnir í lukkupottinn í dag?
Bærilegt eftir
slæma byrjun
Morgunblaðið/Golli
Átökin
eru hafin
ÁTÖKIN um verðlaunagrip bik-
armeistara KSÍ hófust í gær á
blaðamannafundi Knattspyrnu-
sambandsins, en þá tókust þjálf-
arar liðanna sem leika til úrslita
- Fram og KR - á um verðlaunin
sem afhent verða eftir úrslita-
leikinn á sunnudaginn eftir að
liðin hafa leitt saman hesta sína.
Magnús Jónsson þjálfari Fram
reynir hér að rífa bikarinn af
Guðjóni Þórðarsyni þjálfara nú-
verandi bikarmeistara, KR, en
Guðjón sagðist ekki láta hann
eftir frekar en á sunnudaginn.
Framarar hafa harma að
hefna gegn Vesturbæjarliðinu
því KR vann báða leikina í deild-
inni í sumar. KR-ingar í Vestur*
bænum eru hinsvegar ekki búnir
að gleyma því þegar liðin áttust
síðast við í úrslitum bikarkeppn-
innar, árið 1989, en þá vann Safa-
mýrarliðið 3:1.
SKAGAMENN gætu dottið í
lukkupottinn í dag þegar dregið
verður í fyrstu umferð UEFA
keppnínnar. Búið er að skipta þeim
64 liðum sem eftir eru í átta hópa
þannig að það er ljóst á móti hvaða
liðum Skagamenn geta hugsan-
lega lent.
Þau tvö lið sem koma beint inn
í keppnina án forkeppni í hópi ÍA
eru Mónakó frá Frakklandi og
Bröndby frá Danmörku. Önnur lið
sem Skaginn gæti lent á móti eru
Slavía Prag frá Tékklandi, Lille-
ström frá Noregi, Leeds United
frá Englandi, Freiburg frá Þýska-
landi og Raith Rovers frá Skot-
landi.
Það er þýðingarmikið fyrir liðin
að komast áfram, bæði peninga-
lega og ef til vill ekki síður að
vinna sér inn stig þannig að þau
tryggi sér rétt til að leika í keppn-
inni án þess að þurfa að taka þátt
í undankeppninni. Skagamenn
hafa þegar tryggt sér 17,7 milljón-
ir króna, KR-ingar eru öruggir
með 8,6 milljónir en FH-ingar
verða að láta sér nægja 4,3 millj-
ónir.
Liðin fá 4,3 milljónir frá UEFA
fyrir þátttöku í hverrri umferð
keppninnar og þar sem ÍA og KR
eru komin í 1. umferð hafa þau
tryggt sér 8,6 milljónir hvort og
Skagamenn fá auk þess 8,1 milljón
króna sem sárabætur fyrir að
komast ekki í meistaradeildina, en
þar leika aðeins 24 lið.
Það er mikið í húfí í dag þegar
dregið verður í 1. umferðina, bæði
fyrir KR og ÍA. Ef liðin verða hepp-
inn og fá fræg félög frá Frakk-
landi, Ítalíu, Spáni eða Þýskalandi
fá þau mjög líklega góðar tekjur
af sölu sjónvarpsréttarins.
Birgir Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur frá Akranesi, og Björg-
vin Sigurbergsson, íslandsmeistar-
inn úr Keili, hófu í gær keppni á
Evrópumóti áhugamanna sem fram
fer á E1 Prat golfvellinum við Barc-
elona á Spáni. Völlurinn er par 72
„skógarvöllur sem er fljótur að
refsa manni ef höggin eru ekki
nákvæm," sagði Birgir Leifur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Birgir Leifur lék á tveimur högg-
um yfir pari, kom inn á 74 höggum
og Björgvin á 77 og eru þeir rétt
um miðjan hóp þeirra 140 kylfinga
sem þarna keppa. „Ég byrjaði
hræðilega og var kominn fimm yfir
parið eftir sex holur. Þetta var bara
klaufaskapur, ég vippaði og þrípútt-
aði tvívegis og var eitthvað kæru-
laus, nokkuð sem ég er ekki vanur
að vera. Þannig fékk ég skramba
á tveimur brautum en síðan fugl á
þremur í röð og það bjargaði þessu.
Þetta var því bærilegt eftir slæma
byijun," sagði Birgir Leifur og
bætti því við að Björgvin hefði misst
mörg stutt pútt og hefði því vel
getað skorað miklu betur.
Mótið var tvívegis stöðvað í gær
vegna úrhellis rigningar. „Ég var
nýkominn inn þegar það var stöðv-
að í seinna skiptið og þeir sem voru
þá eftir úti verða að klára i fyrra-
málið,“ sagði Birgir Leifur. Besta
skorið í gær var 66 og var það
Walesmaður sem var í miklu stuði
og „grísaði sig máttlausan,“ eins
og Björgvin sagði, en þeir voru
saman í ráshóp. Eftir þriggja daga
keppni verður keppendum fækkað
þannig að þeir sem eru með 17
bestu skorin leika síðasta daginn.
Strákarnir verða því að halda vel á
spöðunum ætli þeir sér að vera með
alla dagana.
KNATTSPYRNA: UEFA SEGIR FIFA HAFA SOFIÐ Á VERÐINUM í MARKAÐSMÁLUM / C4