Morgunblaðið - 25.08.1995, Qupperneq 2
2 C FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
faúmR
FOLK
GOLF
ÞrefaK hjá Keili í sveH
HELGARGOLFIÐ
ÍTALSKI
BOLTINN
Handboltaskóli Breiðabliks
verður haldinn dagana 28. ágúst til 1. sept.
í íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum.
Skólinn er fyrir stráka og stelpur á öllum aldri.
Þátttaka tilkynnist í síma 564 1990.
Sveitakeppnin
Sveitakeppni öldunga fer fram í
Grafarholtinu á laugardag og
sunnudag. Sveitakeppni unglinga
fer fram á Akureyri og Sauðárkróki
og lýkur á sunnudag.
Hafnarfjörður
Opna Sparisjóðsmótð verður hjá Keili á
laugardag. 18 holur með og án forgjafar.
Mosfellsbær
Opna Top Flite mótið verður á laugardag.
18 holur með og án forgjafar.
Stykkishólmur
Hótel Stykkishólms mótið verður á laugar-
dag, 18 holur með og án forgjafar.
Selfoss
Opið mót, Útilíf-Mitushiba, verður á laugar-
dag. 18 holu flórleikur/ betri bolti.
Kefla-
ttifc Bláa lóns mótið, þriðji hluti, verður á
sunnudaginn. 18 hlur með og án forgjafar.
Blönduós
Opna Tryggingarmiðstöðvarmótið verður á
sunnudaginn. 18 holur með og án forgjafar.
Ólafsvík
Opna Hraðfrystimótið verður á
sunnudaginn. 18 holur með og án forgjafar.
Dalvík
Opið kvennamót verður laugardag og
sunnudag, 36 holur með og án forgjafar.
Handknattleiksmenn
Handknattleiksmenn verða með sitt árlega
golfmót á Hellu á sunnudaginn og hefst
mótið kl. 12. Upplýsingar gefa Halldór í
síma 5875348, Aðalsteinn (5546685 og
Haukur (5619941) í síðasta lagi i dag.
íþróttir fyrir alla
Samtökin íþróttir fyrir alla.stendur fyrir
hinu árlega Eurocard golfmóti fimmtudag-
inn 31. ágúst á golfvelli Oddfellowa f Heið-
mörk. Þetta er 18 holu sveitakeppni, punk-
takeppni með 7/8 forgjöf og hámarks forg-
jöf er 21. Upplýsingar og skráning hjá ÍFA
í síma 5813377.
■ MARCO Rossi, varnarleik-
maður hjá Sampdoría, er farinn
til Mexíkó, til að ræða við forráða-
menn America, sem vilja fá hann
til liðsins. Rossi, sem er 31 árs kom
til Sampdoría frá Brescia 1993,
eftir að hafa leikið allan sinn ferill
í liðum í neðri deildunum á Italíu.
■ DON King umboðsmaður hnef a-
leikarans Mikes Tysons sagði í vik-
unni að næsti bardagi Tysons yrði
gegn Buster Mathis þann 4. nóvem-
ber nk. Mathis er í fjórða sæti á
lista IBF en ekki á lista WBC.
Einnig gaf King það í skyn að
hugsanlega mættust Tyson og
George Forman í hringnum á
næsta ári.
■ JOE Bugner hnefaleikari sem
tapaði fyrir Muhammad AIi í bar-
daga í Kuala Lumpur á stigum
árið 1975 hefur lýst því yfir að
hann ætli sér að blása rykið af
hönskunum sínum og berjast að
nýju. Bugner er nú 45 ára og hefur
verið búsettur í Ástralíu síðustu
sjö ár. Hann ætlar að keppa um
meistaratitilinn í þungavigt þar í
Iandi í næsta mánuði. Hann hefur
ekki barist síðan 1987. Bugner
hefur mikinn áhuga á að fá tæki-
færi til að berjast við George
Forman, en fyrirhugaður slagur
þeirra árið 1977 datt upp fyrir
á síðustu stundu af pólitískum
ástæðum.
■ JOHN Carey fyrirliði Manc-
hester United þegar' liðið varð
Englandsmeistari árið 1948 lést í
gær 75 ára að aldri. Hann var einni
með liðinu sem sigraði árið 1952
undir stjóm Sir Matts Busby. Ca-
rey lék landsleiki bæði fyrir Ira
og N—íra.
Sigursælir Keilismenn
SIGURSVEITIR Keills í karlaflokki. í aftari röð frá vinstri
eru Loftur Eyjólfsson, liðsstjóri A-sveitarinnar, Björn
Knútsson, Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur Svein-
björnsson, Tryggvi Traustason og Björgvin Sigurbergs-
son. í B-sveitinni voru Ásgeir Guðbjartsson, Friðbjörn
Oddsson, Gunnsteinn Jónsson, Gunnar Þ. Halldórsson
og Kristján Hansson og Sváfnir Hreiðarsson var liðs-
stjóri hjá sigurvegurum 2. deildar.
f kvöld
íslandmótið í
knattspyrnu
2. deild karla kl. 18.30
Akureyrarvöllur...Þór - KA
Fylkisvöllur..Fylkir - Víðir
Borgames.....Skallag. - Vík.
Kópavogsvöllur.....HK - ÍR
3. deild kl. 18.30
Húsavík.....Völsu. - Höttur
Leiknisv....Leiknir - Ægir
Norðfjörður..Þróttur - Fjölnir
Ásvellir.......Haukar - BÍ
Körfuknattleikur
Hraðmót Vals í körfuknattleik
hefst í kvöld að Hlíðarenda
og stendur fram á sunnudags-
kvöld.
Hjólreiðar
Öskjuhlíðarkeppnin í fjalla-
hjólreiðum verður í kvöld og
hefst kl. 20. Skráning við
Perluna frá kl. 19.
Siglingar
íslandsmeistaramótið í sigl-
ingum kjölbáta heldur áfram
í dag á sundunum úti fyrir
Reykjavíkurhöfn og hefst kl.
10 árdegis. Keppninni lýkur
síðan á morgun.
KORFUKNATTLEIKUR
Hraðmót hjá Val
l^örfuknattleiksmenn eru farnir
* að huga að væntanlegum
vetri og um helgina gangast Vals-
menn fyrir hraðmóti í körfuknatt-
leik að Hlíðarenda, mótið byijar í
dag og því lýkur á sunnudaginn
með úrslitaleik sem hefst kl. 20.30.
Tíu lið taka þátt og er þeim skipt
í tvo riðla, í A-riðli leika Grinda-
vík, Keflavík, KR, Þór og Tinda-
stóll en í B-riðli ÍA, Valur, Skalla-
grímur, ÍR og Njarðvík. Hver leik-
ur er 2x15 mínútur og ekki má
taka leikhlé í riðlakeppninni en
eitt hlé verður leyft í úrslitunum
og þá vera leiknar 2x18 mínútur.
Þetta er fimmta árið í röð sem
mótið fer fram og er markmið
Valsmenna að vera með öll úrvals-
deildarliðin, en Breiðablik og
Haukar sáu sér ekki fært að vera
með að þessu sinni. Fullorðnir
greiða 500 krónur fyrir hvern dag
og börn 200 en hægt er að kaupa
helgarmiða og þá greiða fullorðnir
1.000 krónur en börn 500.
KYLFINGAR f Keili í Hafnarfirði
gátu svo sannarlega glaðst um
síðustu helgi þegar sveitir þeirra
sigruðu í 1. deild karla og kvenna
og B-sveit þeirra í 2. deild karla.
Sem sagt þrefaldur sigur hjá Keil-
isfólki og glæsilegur árangur.
Sveitakeppni Golfsambands íslands
fór fram um síðustu helgi og var
leikið víða um land. Fyrsta deildin var
leikinn í Leirunni hjá Golfklúbbi Suður-
nesja, 2. deildin í Mosfellsbæ hjá Kyli,
3. deildin á Eskifirði og 4. deildin í
Sandgerði. Átta lið voru í öllum deild-
um nema þeirri fjórðu þar sem 17 lið
mættu til leiks. Allir spila við alla, einn
fjórmenning og tvo tvímenninga, nema
í fjórðu deildinni þar sem höggleikur
var leikinn.
Fyrirfram bjuggust margir við að
hin unga og skemmtilega sveit Golf-
klúbbsins Leynis á Akranesi færi með
sigur í 1. deild karla enda frábærir
kylfingar þar á ferð, en Skagamennirn-
ir ungu byijuðu á því að tapa 3:0 fyr-
ir sveit Golfklúbbs Suðurnesja og kom
það mjög á óvart. Næst síðasti leikur
Keilis var við Leyni, á sunnudags-
morgninum í suð-austan roki og rign-
ingu. Keilir vann 2:1 og hafði þar með
tryggt sér sigur þó einn leikur væri
eftir.
FÁIR ef nokkrlr akstursíþrótta
stefnir ð sigur í bikai