Morgunblaðið - 26.08.1995, Side 4
4 C LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Geislaplötur eru
eins o g nafnspjald
Morgunblaðið/Golli
KRISTINN Örn Kristinsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Ólafur Elíasson bera saman bækur sínar í
Fella- og Hólakirkju þar sem upptökur hafa farið fram í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn
ÓLAFUR við klippikerfið sem hann festi kaup á í vor, en hann
annast allar klippingar sjálfur.
Ólafur Elíasson píanó-
leikari hefur komið á fót
útgáfufyrirtæki sem
standa mun að útgáfu
á níu geislaplötum með
ungum íslenskum tón-
listarmönnum síðar á
þessu ári. Orri Páll
Ormarsson ræddi við
Olaf í amstri upptöku-
vinnunnar, en hann hef-
ur meðal annars fest
kaup á hágæða hljóð-
upptökubúnaði og staf-
rænu klippikerfí.
ÆR leiðir sem famar hafa
verið í útgáfu á klassískri tón-
list á íslandi eru einfaldlega ekki
færar. Ef það kostar hálfa milljón
króna að búa til geislaplötu er úti-
lokað að listamaðurinn geti haft
hagnað af þeirri útgáfu,“ segir
ungur píanóleikari, Olafur Elías-
son, sem fest hefur kaup á full-
komnum hljóðupptökubúnaði og
ætlar að „hjálpa sér sjálfur" - og
nokkrum öðrum ungum tónlistar-
mönnum - við útgáfu á geislaplötu
síðar á árinu.
„Við teljum okkur hafa náð
kostnaðinum niður um tvo þriðju
miðað við það sem áður þekktist
og það sem meira er við höfum
ákveðið að selja geislaplöturnar,
sem verða níu talsins, á meira en
helmingi lægra verði en hefur tíð-
kast hingað til. Hugmyndin er sú
að hvetja fólk til að kynna sér
þetta unga tónlistarfólk enda tekur
það ekki mikla áhættu þegar það
kaupir geislaplötur á þessu lága
verði.“
Ólafur lauk burtfararprófi frá
Nýja tónlistarskólanum í Reykja-
vík árið 1989 en kennari hans þar
var Rögnvaldur Siguijónsson. Hélt
hann síðan rakleiðis til Parísar í
framhaldsnám en þar naut Ólafur
leiðsagnar hins nafntogaða píanó-
leikara Vlado Perlemuter. Síðan
flutti hann sig um set til Lundúna
og lauk prófi frá einleikaradeild
Konunglegu tónlistarakademíunn-
ar vorið 1994. Á liðnum vetri var
Ólafur undir handleiðslu Alexand-
ers Kelly í Lundúnum en hann
hyggur nú á frekara framhalds-
nám í Bandaríkjunum.
Möguleikarnir ekki fýsilegir
Hið nýja útgáfufyrirtæki á sér
ekki langan aðdraganda. Ólafur
hefur um tíma haft hug á að senda
frá sér geislaplötu og fyrr á þessu
ári fór hann að leita hófanna um
útgáfu. „Mér fundust möguleik-
arnir ekki fýsilegir. Þetta er bæði
dýrt og þungt í vöfum og mín nið-
urstaða var sú að það væri útilok-
að _að láta þetta þorga sig.“
Ólafur afréð því að láta slag
standa og annast útgáfuna sjálfur.
Lagði hann umtalsvert fé í tækja-
kaup og kveðst nú hafa yfir afar
vönduðum búnaði að ráða. „Búnað-
urinn var keyptur samkvæmt leið-
sögn hljóðmanna víðsvegar um
London. Ég hafði meðal annars
samband við hljóðmenn hins fræg^,
hljóðvers Abbey Road. Þá var
Tryggvi Tryggvason, sem rekur
stórt upptökufyrirtæki í London,
ákaflega hjálplegur."
Ólafi fannst tilvalið að bjóða
öðrum tónlistarmönnum að njóta
góðs af búnaðinum og í kjölfarið
var útgáfufyrirtæki sett á laggirn-
ar. „Ég ákvað að bjóða eingöngu
yngri kynslóð tónlistarmanna að
taka þátt. Þar á ég við fólk sem
á langt nám að baki og er að stíga
sín fyrstu skref í útgáfumálum."
Auk Ólafs taka átta aðilar þátt
í þessu fyrsta verkefni fyrirtækis-
ins. Þeir eru Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari, Ármann Helgason
klarinettuleikari, Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari og Daníel Þor-
steinsson píanóleikari, Svava Bern-
harðsdóttir lágfiðluleikari, Þórunn
Guðmundsdóttir söngkona, Hlíf
Siguijónsdóttir fiðluleikari, kamm-
erhópurinn Kammer Artica og
Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleik-
ari, en hann hljóðritar sína plötu
í Bandaríkjunum.
Hæfileikaríkt fólk
„Eftir að hafa unnið með þessu
fólki vil ég leyfa mér að segja að
það hefur komið mér á óvart hvað
við Islendingar eigum mikið af
hæfileikaríku tónlistarfólki,“ segir
Ólafur. „Sérstaklega er gaman að
sjá hvað tónlistarmenn af minni
kynslóð eru góðir hljóðfæraleikar-
ar og að mínu mati eiga margir
þeirra fullt erindi á hinn alþjóðlega
markað."
Að sögn Ólafs er hans hlutverk
að halda utan um starfsemi fyrir-
tækisins. Listamennirnir standi
sjálfir straum af kostnaði. „Ég
útvega fólki aðstöðu og klippingar
en auk þess hef ég samið við ís-
lensku hugmyndasamsteypuna um
hönnun, breskt fjölföldunarfyrir-
tæki um fjölföldun og Japis um
dreifingu á öllum geislaplötunum."
Ólafur segir að einstaklingurinn
megi sín ekki mikils þegar útgáfa
af þessu tagi sé annars vegar.
Kann hann því hinum íjölmörgu
aðilum sem lagt hafa hönd á plóg-
inn bestu þakkir. „Ótrúlega margir
hafa verið tilbúnir að rétta okkur
hjálparhönd og ég held að það stafi
einkum af því að menn sjá að hér
er á ferð ungt fólk sem vill hjálpa
sér sjálft.“
Upptökur eru vel á veg komnaí
en þær hafa að mestu farið fram
í Fella- og Hólakirkju í sumar.
Segir Ólafur að þar á bæ hafi tón-
listarfólkinu verið tekið með kost-
um og kynjum og er hann forsvars-
mönnum kirkjunnar afar þakklátur
fyrir stuðninginn. Ennfremur segir
hann að ákaflega fallegur hljómur
sé í kirkjunni; hún henti því vel til
hljóðupptakna.
Upptökur hafa staðið yfir í allt
sumar og hafa Bjöm Heimir Við-
arsson og Halldór Víkingsson
hljóðmenn haft yfirumsjón með
þeim. Ólafur hefur á hinn bóginn
sjálfur haft klippingar á sinni
könnu en hann festi kaup á staf-
rænu klippikerfi í vor. „Ég þurfti
að læra að klippa en tel mig hafa
náð góðum tökum á þessu núna.“
Þar sem grasrótarhreyfing er á
ferð hefur listafólkið, að sögn Ól-
afs, leyft sér að fara ótroðnar slóð-
ir við upptökurnar. „Tónlistar-
mennirnir sjálfir hafa til dæmis
fengið að prófa sig áfram með
hljóminn og fengið að hlusta vel á
prufutökur af verkunum. Þá höfum
við haft góðan tíma og gott næði
í kirkjunni sem getur skipt sköp-
um.“
Sígild tónlist í fyrirrúmi
Sígild tónlist verður í fyrirrúmi
á geislaplötunum níu. „Ég hef lagt
mikið upp úr því að þeir sem taka
þátt í þessu verkefni leiki tónlist
sem höfðar til almennings án þess
þó að fara út í poppaða klassík.
Flest leikum við klassíska tónlist
sem við höfum jafnvel verið að
læra í fjölmörg ár. Sjálfur leik ég
tvær Mozart sónötur og Tilbrigði
um stef Handels eftir Johannes
Brahms. Við höfum forðast nú-
tímatónskáld að mestu enda vil ég
ekki fara inn á vettvang þeirra sem
staðið hafa að þeim útgáfumálum
hér á landi.“
Fyrirhugað er að geislaplöturnar
komi út fyrir jól en útgáfutónleikar
verða haldnir í Borgarleikhúsinu
21. nóvember næstkomandi.
Ólafur lítur björtum augum til
framtíðar. „Ef vel gengur núna
er markmiðið að þetta verði árleg
útgáfa þar sem ungu tónlistarfólki
gefst tækifæri til að gefa út
geislaplötu. Verkefnið verður
sennilega seint mikill gróðavegur
en engu að síður er mikið í húfi
þar sem geislaplötur eru nánast
eins og nafnspjald erlendis; maður
kemst lítið áleiðis ef maður hefur
ekki gefið neitt út. Við Halldór
Víkingsson höfum síðan verið að
gæla við þá hugmynd að koma
þessum geislaplötum og um leið
íslenskum tónlistarmönnum á
framfæri erlendis. Allar slíkar
vangaveltur eru hins vegar án
ábyrgðar."
Dagur bókar-
innar á Spáni
Jón Þuríður Guð-
úr Vör mundsdóttír
Ibúum
Tarazona-
borgar
gefin
íslensk ljóð
ÍBÚAR Tarazonaborgar á Spáni
fengu óvæntan glaðning á Degi
bókarinnar 23. apríl.
Þann dag var dreift um 3.000
ókeypis eintökum ljóðasafnsins 101
norrænt ljóð (101 poemas nórdicos)
til fólks í borginni og mæltist þetta
vel fyrir að sögn viðstaddra.
Borgaryfirvöld í Tarazona studdu
útgáfu bókarinnar auk dagblaðsins
Tarazona, menningarmálanefndar
Aragónhéraðs og Sænsku menning-
arstofnunarinnar. Útgefandi er
Þýðendahús Tarazonaborgar (Casa
del Traductor) þar sem Francisco
J. Uriz er framkvæmdastjóri. Hann
er umsjónarmaður útgáfunnar,
skrifar inngang og þýðir flest ljóð-
anna, en íslensku ljóðin eru þýdd
af José Antonio Femández Romero
sem annaðist valið ásamt Eysteini
Þorvaldssyni.
Tíu íslensk skáld
í 101 norrænu ljóði eru ljóð eftir
skáld frá íslandi, Danmörku, Nor-
egi, Svíþjóð og Finnlandi. íslensku
skáldin eru Steinn Steinarr, Jón úr
Vör, Vilborg Dagbjartsdóttir, Einar
Bragi, Hannes Pétursson, Baldur
Óskarsson, Jóhann Hjálmarsson,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Matthías
Johannessen og Þuríður Guðmunds-
dóttir.
Að sögn Francisco J. Uriz var
ljóðagjöfin til íbúa Tarazonaborgar
hugsuð sem hylling til Norðurlanda
og ljóðlistarinnar.
------------- \
Trompetar og
orgel í Hall-
grímskirkju
NÍUNDU og jafnframt síðustu
tónleikar sumarsins í tónleika-
röðinni „Sumarkvöld við orgelið"
verða haldnir í Hallgrímskirkju
sunnudagskvöldið 27. ágúst kl.
20.30.
Það eru trompetleikararnir
Ásgeir H. Steingrímsson og Ei-
ríkur Orn Pálsson og Hörður
Áskelsson orgelleikari sem koma
fram á tónleikunum. Þeir flytja
tónlist frá barokktímabilinu eftir
Frescobaldi; en tónlist hans er á
mörkum endurreisnar og bar-
okks; og svo fimm fulltrúa síð-
barokks, þá Bach, Martini, Rat-
hgeber, Albinoni og Zipoli. Það
má segja að þrjár kansónur
Frescobaldis og þrjú orgelverk
eftir Zipoli tengi saman efnis-
skrána sem annars hefst á Tok-
kötu í C-dúr fyrir tvo trompeta
og orgel eftir Giovanni Battista
Martini og lýkur á Konsert, upp-
haflega fyrir tvö óbó og strengi,
eftir Tommaso Albinoni.
Trompetleikur í kirkjum hefur
verið iðkaður allt frá miðöldum.
Þá var blásið við komu prédikar-
ans og söfnuðurinn þannig
kvaddur saman.