Morgunblaðið - 06.09.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JMffrgnnlilAfcife
C
1995
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER
BLAÐ
Engin met
í úrhellinu
ÚRHELLI gerði vonir
manna um met á alþjóð-
lega Rieti mótinu í frjáls-
íþróttum að engu. Það
eina sem lífgaði upp á sál-
ina hjá þeim fáu áhorfend-
unum sem hættu sér út í
regnið var að Bandaríkja-
maðurinn Micheal John-
son sigraði í 200 metra
hlaupinu á 20,09 sekúnd-
um en þó að það sé fjarri
tima hans á heimsmeist-
aramótinu í Gautaborg,
19,79, er það engu að síður
þriðji besti tími ársins. A
myndinni hér til hliðar
kemur Johnson fyrstur í
mark. Norðmaðurinn Geir
Möen, sem varð þriðji, er
lengst til hægri og á milli
þeirra er Jeff Williams frá
Bandaríkjunum, en hann
varð annar.
Stangarstökkið, þar
sem Sergei Bubka var
mættur til leiks, féll niður
vegna bleytunnar.
KNATTSPYRNA
Tólf úr 1. deild
í leikbann
Aganefnd Knattspyrnusambandsins kom sam-
an í gær til að úrskurða um leikbönn og
fengu tólf leikmenn fyrstu deildar eins leiks bann.
Fram, sem berst við fail í aðra deild, verður
án Vals Fannars Gíslasonar gegn Akranesi á
föstudaginn. KR-ingar leika án Izudin Daða
Dervic gegn Vestamanneyingum, sem leika án
Dragan Manojlovic í baráttu liðanna um Evrópu-
sæti. Valsmenn, sem þurfa stig til að koma sér
af hættusvæðinu, fara til Grindavíkur án Harðar
Más Magnússsonar og Steward Beards en neðsta
lið deildarinnar, FH, sem enn á fræðilegan mögu-
leika á að halda sæti sínu í deildinni verður án
Petr Mrazek gegn Keflvíkingum en af Suður-
nesjamönnum verða Helgi Már Björgvinsson og
Óli Þór Magnússon í banni. Breiðablik er enn í
fallhættu og leikur án Gústafs Ómarssonar og
Rastislav Lazorik gegn Leiftri frá Ólafsfirði en
þar á bæ verða Gunnar Már Másson og Nebojsa
Corovic fjarri góðu gamni.
Tveir leikmenn þriðju deildar fengu lengri bönn
vegna brottvísana. Axel Gomez markvörður
Leiknis úr Reykjavík fékk fjögurra leikja bann
og Jósef Hreinsson úr Fjölni þijá leiki. Þar sem
aðeins er eftir einn leikur í þriðju deild munu
þessir leikmenn missa af fyrstu leikjum liða sinna
næsta sumar.
Grótta og Reynir
komin í 3. deild
Seinni leikir í undanúrslitum
fjórðu deildarinnar í knatt-
spymu fóru fram í gærkvöldi.
Grótta vann KS 2:1 á Siglufirði en
Seltirningar unnu einnig fyrri leik-
inn 2:1 og tryggðu sér því sæti í
þriðju deild næsta keppnistímabil
ásamt Reyni frá Sandgerði, sem
gerði 1:1 jafntefli við Sindra á
Hornafirði en fyrri leikurinn fór
2:0, Sandgerðingum í vil.
„Þetta var frábær leikur og bar-
átta í mínum mönnum þrátt fyrir
að þeir væru undir í leikhléi," sagði
Helgi Ragnarsson, þjálfari Gróttu,
eftir leikinn. „Við gerðum tvö mörk
strax eftir híé og það dugði. Ég
veit ekki með framhaldið hjá mér,
það er að minnsta kosti gott að fá
sumarfrí núna og þegar ég kem
niður úr skýjunum athuga ég mál-
ið. Þriðja deildin leggst vel í mig,
það er nægur mannskapur og ung-
ir strákar. Það er vonandi að þessi
úrslit bjargi fótboltanum á Nesinu,
þar var ekki hátt risið fyrir, því
við þurftum að spila heimaleiki
okkar á öðrum völlum vegna að-
stöðuleysis," sagði Helgi, sem
þjálfað hefur liðið í tvö ár en fyrir
tveimur árum kom hann HK úr
þriðju í aðra deild.
„Fyrst og fremst var þetta jafn
baráttuleikur, við vorum í betri
færum en þeir náðu að jafna á síð-
ustu mínútu,“ sagði Guðmundur
Hilmarsson, þjálfari Reynismanna,
eftir leikinn. „Reynisliðið á eftir að
spjara sig í þriðju deild og gæti það
jafnvel í annarri deild ef miðað er
við hvernig sum liðin þar spila. Við
erum með bland af ungum og
reyndum leikmönnum," bætti hann
við en reiknar ekki með að þjálfa
liðið áfram. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Guðmundur kemur Reyn-
ismönnum upp í þriðju deild því það
gerði hann einnig fyrir þremur
árum og hélt þeim þá þar í eitt ár
en liðið féll þegar hann sleppti af
því hendinni.
Urslitaleikur liðanna um sigur í
deildinni verður á hlutlausum velli
um næstu helgi.
Graham ætlar
ekki að áfrýja
GEORGE Graham, fyrrum framkvæmdastjóri Ars-
enal, ætlar ekki að áfrýja tólf mánaða banni frá
öllum afskiptum að knattspyrnu, sem hann hlaut
fyrir að þiggja ólöglegar greiðslur vegna félags-
skipta.
„Ég hef ekki botnlausa sjóði til að mæta kostnaði
við áfrýjun," sagði Graham í fréttatilkynningu, sem
lögfræðingar hans birtu. „í öðru lagi er ég hræddur
um að fá ekki réttláta málsmeðferð og að lokum vil
ég reyna að lifa áfram eðlilegu lífí og setja punkt
fyrir aftan þennan kafla í lífí mínu.“
Sem kunnugt er var Graham rekinn frá Arsenal
í febrúar þegar fram komu ýmis atriði, sem renndu
stoðum undir ásakanir um hinar ólöglegu greiðslur
sem hann fékk fyrir sölur Norðmannsins Pals Lyders-
ens og Danans Johns Jensens til Arsenal. Enska
knattspyrnusambandið rannsakaði málið og var Gra-
ham fundinn sekur fyrir að þiggja ólöglega rúmar
43 milljónir fyrir kaupin. í júlí sl. dæmdi sambandið
hann íiólf mánaða bann frá knattspymu og alþjóða-
knattspymusambandið, FIFA, staðfesti það síðar.
Graham hafði þó gert vel fýrir félagið því undir
hans stjóm vann það sex titla á átta árum, þar á
meðal Evrópubikarinn 1994.
Gould vill Le
Tissier til Wales
HINN nýi þjálfari welska landsliðsins í knatt-
spyrnu, Bobby Gould, vill gjarnan fá hinn
snjalla leikmann Southampton, Matthew Le
Tissier, í landslið sitt. Gould segir að Le Tiss-
ier sé einn þeirra manna sem geti lyft welska
landsliðinu úr öskustónni. Áður hafði skoska
knattspyrnusambandið lýst yfir sama áhuga.
Le Tissier hefur leikið með enska landsliðinu
í óopinberum leikjum, en þrátt fyrir það hefur
hann ekki fyrirgert rétti sínum til þess að leika
með öðrum breskum landsliðum.
Le Tissier er ættaður frá Guernsey, eyju í
Ermasundi og þar af leiðir að hann getur val-
ið með hvaða landsliði á Bretlandseyjum hann
vill leika, jafnvel er talið líklegt að hann geti
verið gjaldgengur með franska landsliðinu.
Terry Venables sem gekk einu sinni enn
framhjá Le Tissier vil val á enska landsliðinu
í síðustu viku þegar hann valdi hópinn fyrir
leikinn gegn Kolumbíu í kvöld segist ekki láta
sér detta í hug að leggja stein í götu Le Tiss-
iers. Hans sé valið og hann verði að fá gera
það sem hann langi mest til.
Joe Royle hældi
Guðna Bergssyni
JOE Royle, framkvæmdastjóri enska úrvals-
deildarliðsins Everton, hældi Guðna Bergssyni
landsliðsfyrirliða og leikmanni Bolton Wander-
ers, á blaðamannafundi sem KR-ingar héldu í
fyrrakvöld er Royle kom til landsins í þeim til-
gangi að fylgjast með KR i leiknum gegn Val.
Royle kvaðst hafa horft á leik Bolton gegn
Newcastle á dögunum, þar sem Guðni og félag-
ar höfðu betur gegn toppliðinu, og Guðni skor-
aði einmitt glæsilegt mark. Royle sagði mjög
vel hafa verið staðið að markinu og að enski
landsliðsmaðurinn Les Ferdinand, sem New-
castle keypti fyrir 4 miRjónir punda frá _QPR í
sumar, hefði átt erfitt uppdráttar gegn Islend-
ingnum. „Bergsson var mjög góður gegn New-
castle. Hann lék það vel gegn Ferdinand að
enginn á eftir að gæta hans betur í vetur,“ sagði
Royle.
Óþekktur spilari
sló Stich út
BYRON BLACK, 25 ára bóndasonur frá
Zimbabwe sem er í 70. sæti á heimslistanum í
tennis, gerði sér lítið fyrir í fjórðu umferð á
Opna bandaríska mótinu og sló Michael Stich
frá Þýskalandi út úr keppninni en Stich er
raðað í 8. sæti sama lista. Black vann fyrstu
tvær lotumar 6:4 en Stich svaraði fyrir sig
með 3:6 og 2:6 áður en Black kláraði næstu 6:3.
Black hefur sérstakan stíl því hann spilar
bak- og forhönd með báðum höndum og viður-
kennir að það takmarki möguleika hans.
KNATTSPYRNA: NOKKRAR STÓRÞJÓÐIR í VANDA í EVRÓPUKEPPNINNI / C3