Morgunblaðið - 13.09.1995, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995 C 3
ÚRSLIT
KNATTPYRINIA
KNATTPYRNA
Knattspyrna
UEFA-keppnin
Bratislava, Slóvakíu:
Slovan Bratislava - Kaiserslautern..2:1
Tittel (28.), Sobona (64.) — Hollerbaeh
(64.). 20.000.
Freiburg, Þýskalandi:
Freiburg - Slavía Prag..............1:2
Todt (78.) — Novotny (23.), Penicka (75.).
18.000.
Sofía, Búlgaríu:
Levski - Aalst (Belgiu)........... 1:2
Ivan Vassilev (68.) — Alexandar Markov
(57. - sjálfsm.), David Paas (77.). 20.000.
Stavangur, Noregi:
Viking-Auxerre......................1:1
Egil Ulfstein (56.) — Taribo West (14.).
4.097.
Vladikavkaz, Rússlandi:
Spartak - Liverpool.................1:2
Mirdzhalol Kasymov (20.) — Steve
McManaman (33.), Jamie Redknapp (53.).
38.000.
Kaupmannahöfn:
Bröndby - Lilleström................3:0
Bo Hansen (38.), Dan Eggen (57.), Ole
Bjur (87. - vítasp.). 7.686.
Aþena, Gríkklandi:
Olympiakos - Maribor (Slóveníu).....2:0
Andrei Juskoviak (52.), George Skartados
(69. - vítasp.).
25.000.
Beersheba, Israel:
Hapoel - Barcelona..................0:7
- Ivan de La Pena (4.), Garcia Roger 3 (45.,
67., 78.), Oscar Garcia (62.), Luis Figo 2
(65., 81.). 15.000.
Miinchen, Þýskalandi:
Bayem - Lokomotive Moskva...........0:1
- Charlatchev (71.). 28.000.
Odessa, Úkraníu:
Odessa - Widzew Lodz (Póll.)........1:0
Chisinau, Moldavíu:
Zimbm - RAF Riga (Lettl.)...........1:0
Lahti, Finnlandi:
MyPa - Eindhoven....................1:1
Mahlio (29.) - Ronaldo (50.).
Volgugrad, Rússlandi:
Rotor - Man. Utd....................0:0
Istanbúl, Tyrklandi:
Fenerbahce - Real Betis.............1:2
Kocaman (75.) — Cherubino (28.), Sabas
(79.). 15.000.
Malmö, Svíþjóð:
Malmö FF - Nott. Forest.............2:1
J. Persson (59.), A. Andersson (72.) Ian
Woan (36.). 12.486.
Prag, Tékklandi:
Spartak Prag - Silkiborg............0:1
Kerkrade, Hollandi:
Roda - Ljubljana (Sloveníu).........5:0
Barry van Galen (3.), Richard Roelofsen
(23.), Tijani Babangida (34.), Maurice Gra-
ef (44.), Johan de Kock (88. - vítasp.).
10.500.
Lugano, Sviss:
Lugano - Inter Milanó...............1:1
Jose Carrasco (67.) — Roberto Carlos (12.).
13.000.
Neuchatel, Sviss:
Neuchatel Xamax - AS Róma...........1:1
Lierse, Belgíu:
Lierse - Benfica....................1:3
Dirk Huysmans (38. - vítasp.) — Filho
Valdo (27. - vítasp.), Cipriano Marcelo (51.),
Paulo Bento (63.). 9.300.
V7n, Austurríki:
FK Austria - D. Minsk (H-Rússl.)....1:2
Mónakó:
Mónakó - Leeds.....................0:3
v.-Tony Yeboah 3 (3., 64., 80.). 14.000.
Guimaraes, Poitúgah
Vitoria - Standard Liege..........3:1
Gilmar Estevan 2 (21., 88.), Edinho (68.)
Giinther Schepens (32.). 15.000.
Róm, Ítalíu:
Lazíó — Omonia (Kýpur)................5:0
Pier Luigi Casiraghi 3 (11., 16., 89.), Ro-
berto Rambaudi (53.), Giuseppe Signori
(55. - vítasp.). 20.000.
Mílanó, Ítalíu:
AC Milan - Lublin (Póll.).................4:0
Dejan Savicevic (11.), Machaj (46. -
sjálfsm.), George Weah (67.), Zvonomir
Boban (71.). 7.629.
Strasbourg, Frakklandi:
Strasbourg - Ujpest (Ung.)..........3:0
David Zitelli (8.), Franck Leboeuf (71. -
vitasp.), Gerald Baticle (80.). 25.000.
Seville, Spáni:
Sevilla - Botev (Búlgar.)...........2:0
Davor Suker 2 (29., 34.).
England
Úrvalsdeildin:
Middlesbrough - Southampton.........0:0
1. Deild:
Birmingham - Stoke..................1:1
Huddersfield - Barnsley.............3:0
Oldham - Ipswich....................1:1
Port Vale - Leicester................0:2
Reading - Grimsby....................0:2
Sheff. Utd. - Charlton..............2:0
Sunderland - Portsmouth.............1:1
Tranmere - WBA.......................2:2
Watford - Crystal Palace ............0:0
HANDBOLTI
ValurogKAá
Akureyri
I kvöld eigast við í KA-húsinu á Akur-
eyri karlalið KA og Valur í Meistara-
keppni HSÍ. Leikurinn hefst klukkan
tuttugu. Sem kunnugt er eru Vals-
menn íslandsmeistarar og KA-menn
Bikarmeistarar, en liðin háðu harða
keppni á sl. keppnistímabili um báða
bikarana með fyrrgreindum árangri.
Skagamenn urðu að sætta sig við tveggja marka tap í lyrri leiknum gegn Raith Rovers 0f f|>ý 0 0^
Oþarflega
stórttap
- en Skagamenn eiga möguleika
AKURNESINGAR töpuðu 1:3 í
fyrri leiknum gegn Raith Ro-
vers í UEFA-keppninni í gær-
kvöidi í Skotlandi. Þeir léku
mjög vel á köflum, en geta
betur og það er Ijóst að seinni
leikurinn á Akranesi getur orð-
ið erfiður. Fyrri hálfleikurinn
var erfiður í gær, heimamenn
pressuðu Akurnesinga tölu-
vert en það var klaufalegt að
missa leikinn niður í tveggja
marka tap eins og hann hafði
þróast eftir hlé. íslandsmeist-
ararnir ættu þó að eiga mögu-
leika. Skotarnir koma eflaust á
Skagann til að halda fengnum
hlut en nái ÍA að sigra 2:0 fer
liðið áfram í 2. umferð.
Logi þjálfari Ólafsson gantaðist
með það fyrir leikinn að lík-
lega yrði á brattann að sækja,
þegar leikið yrði að öðru markinu.
Skapti Völlurinn hallar
skrifarfráSOn nefnilega talsvert,
Skotíandi mun meira en eðli-
legt getur talist þótt
ótrúlegt megi virðast og Skaga-
menn léku einmitt í þá átt í fyrri
hálfleik. Þá var á brattann að sækja
í orðsins fyllstu merkingu fyrir
varnarmennina, sérstaklega
Páima, hægri bakvörð, sem var
nánast í brekku allan hálfleikinn.
Skagamenn áttu mjög góða
spretti þótt mun meira hafí legið á
þeim í hálfleiknum; þegar knöttur-
inn fékk að rúlla eftir glæsilegu
grasteppinu komu þeir heima-
mönnum nokkrum sinnum í opna
skjöldu, sérstaklega var Arnar ógn-
andi - miðverðimir réðu ekkert við
hraða hans og tækni, en segja má
að þann margfræga herslumun
hafi nokkrum sinnum vantað. Það
var oft sem síðasta sending var
ekki nógu góð og ekkert varð úr
þegar útlit var fyrir að hægt væri
að refsa varnarmönnum Raith.
Mark snemma leiks
Það var strax á 14. mín. að
Raith skoraði. Hinn smái en knái
Danny Lennon fékk knöttinn
skammt utan vítateigs og þrumaði
í vinstra hornið hjá Þórði. Gott
mark en Skagamenn hefðu átt að
vera búnir að hreinsa frá - virtust
hafa tækifæri til þess en voru of
seinir að átta sig.
Heimamenn voru kraftmeiri sem
fyrr segir, meira með boltann og
voru oft nálægt því að komast í
færi en hættan varð ekki mikil við
mark IA fyrir hlé. Skagavörnin var
örugg og fékk góða aðstoð frá
miðjunni þó svo segja megi að þeir
hafí hleypt andstæðingunum nokk-
uð framarlega á völlinn áður en
þeir tóku á móti þeim.
Skagamenn byrjuðu betur
Akurnesingar komu tvíefldir frá
búningsherbergi sínu eftir hlé.
Byijuðu geysilega vel, knötturinn
gekk vel milli manna og þá sýndi
það sig að þeir höfðu í fullu tré
við Skotana. Stjórnuðu reyndar
leiknum fyrsta stundarfjórðung
seinni hálfleiksins, léku snilldarvel
og Arnar sýndi nokkrum sinnum
slíka takta að áhorfendur gátu
ekki annað en klappað honum lof
í lófa. Framganga Skagamanna var
farin að fara í skapið á Skotum
innan vallar sem utan - glósurnar
úr áhorfendastúkunni hættu að
Raith Rovers - ÍA 3:1
Stark’s Park í Kirkcaldy, UEFA-keppnin í
knattspyrnu, 1. umferð, fyrri leikur, þriðju-
daginn 12. september 1995.
Mörk Raith Rovers: Danny Lennon 2 (14.,
67.),_Barry Wilson (79.)
IA: Ólafur Þórðarson (45.).
Dómari: Branimir Babarojiv frá Júgósiavíu.
Línuverðir: Slobodan Jankovic og Nedeljko
Klepic frá Júgóslavíu.
Áhorfendur: Um 5.000.
Gult spjald: Sigurður Jónsson (42.) fyrir
mótmæli. David Kirkwood (85.) og Julian
Broddle (86.), báðir fyrir brot.
Raith Rovers: Scott Thompson - Stephen
McAnespie, Shaun Dennis, David Sinclair,
Julian Broddle - Barry Wilson (Ronnie Co-
yle 85.) David Kirkwood, Danny Lennon,
Anthony Rougier (Jason Dair 27.) - Colin
Cameron, Stephen Crawford (Ally Graham
60.).
ÍA: Þórður Þórðarson - Pálmi Haraldsson,
Ólafur Adolfsson, Zoran Miljkovic, Sigur-
steinn Gíslason - Ólafur Þórðarson, Aðal-
steinn Högnason, Sigurður Jónsson - Bjarki
Gunnlaugsson, Arnar Gunnlaugsson, Har-
aldur Ingólfsson (Stefán Þórðarson 79.).
vera prenthæfar. Akurnesingar
fengu fyrstu hornspyrnu sína á 62.
mín., hún nýttist ekki en fljótlega
fór að blása á móti aftur. Heima-
menn bættu marki við á 67. mín.;
Lennon var þar aftur á ferðinni
eftir klaufaskap í vörn ÍA. Markið
kom þvert gegn gangi leiksins og
strax í næstu sókn varði Þórður
Þórðarson mjög vel fast skot frá
miðjumanninum, miðheijanum Ca-
meron. En íslendingarnir hættu
ekki og fljótlega komst Bjarki
Gunnlaugsson í dauðafæri; komst
einn í gegn eftir glæsilega sendingu
Ólafs fyrirliða, en markvörðurinn
kom út á móti Bjarka og varði
vel. Þar fór dýrmætt tækifæri for-
görðum, og mark í þessari stöðu
hefði getað skipt sköpum. I staðinn
gerðu Skotarnir þriðja markið
skömmu síðar. Þá sváfu Skaga-
menn illa á verðinum, Það var al-
gjör óþarfi að fá þetta mark á sig
miðað við hvernig leikurinn hafði
þróast. Litlu munaði að Akurenes-
ingum tækist að minnka muninn
skömmu eftir markið. Varamaður-
inn Stefan Þórðarson fékk þá
dauðafæri skáhallt fyrir utan
markteiginn en þrumaði rétt fram-
hjá ijærstönginni.
Arnar lék vel
Skagamenn geta nagað sig í
handarbökin fyrir að tapa með
tveggja marka mun, þeir fengu
nokkur góð færi og voru sannfær-
andi á köflum - sérstaklega fyrsta
stundarfjórðunginn í síðari hálfleik.
Það verður þó að viðurkennast að
heimamenn sóttu mun meira í fyrri
hálfleik og fengu þá átta horn-
spyrnur gegn engri og Skagamenn
gátu verið þakklátir fyrir að fara
inn í búningsklefa með jafntefli.
Lið Raith er nokkuð sterkt, en
alls ekki ósigrandi og á góðum
degi ættu Skagamenn að geta sigr-
að þetta lið með nægilega miklum
mun. Skagamenn gerðu margt gott
í þessum leik, Arnar fór á kostum
í framlínunni og Sigurður var mjög
góður á miðjunni þar til hann gaf
eftir í lokin eins og flestir hinna.
Liðið í heild lék alls ekki illa en
hefði átt að geta náð hagstæðari
úrslitum.
okkur takist
að klára
dæmið
- segir Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna. „Ég
er ánægður með sigurinn en þrátt fyrir hann
náðum við aldrei að stjórna leiknum," sagði
Jimmy Nicholl, þjálfari Raith
utan
ingu
fyrir
14. mín skoraði Danny
■ Lennon með föstu skoti
teigs i vinstra hornið eftir send-
frá Stephen McAnespie, óveijandi
Þórð Þórðarsson í marki í IA.
IAlexander Högnason vann
boltann á miðjum leikvelli
Raith á 45. mín og renndi knettinum
inn í vítateiginn þar sem knötturinn
hrökk í hælana á Ólafi Þórðarsvni og
þaðan í varnarmann Raith. Olafur
Þórðarson var fyrstur að átta sig og
tók boltann og renndi honum fram hjá
markverði Raith Rovers.
2m Hár bolti barst inn í víta-
■ I teig Skagamanna á 67.
mín. eftir aukaspymu, þar fór boitinn
í hnakkann á Zoran Milkjovic og þaðan
til Danny Lennons sem þakkaði pent
fyrir sig og skoraði af stuttu færi.
3m «■ Eftir snögga sókn Rait-
■ I manna á 79. mínútu barst
knötturinn til Barry Wilsons eftir
sendingu frá Colin Camerons. Wilson
skaut rakleitt föstu skoti í netið og
tryggði sigurinn.
Bayern fékk skell
Tíu í bann
TÍU leikmenn 1. deildar karla voru úr-
skurðaðir í leikbann ínæstu umferð á
fundi aganefndar KSÍ í gær, en alls voru
fjörutíu og sex leikmenn úrskurðaðir í
leikbann. Þeir leikmenn fyrstu deildar
sem missa af leikjum í næstu umferð,
næstsíðustu umferðinni eru: Davíð Garð-
arsson og Guðmundur Brynjólfsson úr
Val, Einar Þór Daníelsson og Þormóður
Egilsson úr KR, Atli Helgason og Þor-
björn Atli Sveinsson frá Fram, Davíð Ól-
afsson leikmaður FH, Karl Fínnbogason,
Keflavík, Guðjón Ásmundsson frá Grinda-
vík og Zoran Miljkovic, ÍA.
BÆJARAR fengu heldur betur
skell þegar þeirfengu rúss-
neska liðið Lokomotiv frá
Moskvu í heimsókn á Ólympiu-
leikvanginn í Múnchen í UEFA-
keppninni — það hefði mátt
heyra nál falla þegar Yevgeni
Kharlachev skoraði sigurmark
Rússa, 0:1, nítján mín. fyrir
leikslok, með skoti sem Oliver
Kahn réð ekki við. Það er því
Ijóst að „draumalið" Ottos
Rehhagels verður að spýta
hressilega í lófana fyrir síðari
leikinn eftir tvær vikur í
Moskvu.
Barcelona átti aftur á móti ekki
í vandræðum með ísraelska
liðiö Hapoel Beersheeba, 7:0, í
ísrael. Garcia Roger skoraði
þrennu fyrir Barcelona og Luis
Figo gerði tvennu í stórsigri Hðs-
ins. Þess má geta að- Barcelona
hefur aldrei unnið UEFA bikarinn
og nú er það stefna félagsins að
tryggja sér hann í fyrsta skipti.
Anthony Yeboah var heldur bet-
ur á skotskónum í Mónakó, þar sem
hann skoraði þrennu í 3:0 sigri á
heimamönnum. Mikið gekk á undir
lokin og kapp þeirra Basile Boli og
markvarðarins Marc Delarroche
við að reyna að stöðva Yeaboah
þegar hann gerði þriðja markið var
svo mikið að þeir rákust á með
þeim afleiðingum að báða-þurfti
að flytja á spítala með höfuðáverka.
Fimmfaldir Evrópumeistarar AC
Milan yfirspiluðu pólska liðið
Zaglebie Lubin með fjórum mörkum
gegn engu. Enginn af markaskor-
urum ítalska liðsins var ítali heldur
voru það Svartfjöllungurinn Dejan
Savicevic, Líberíumaðurinn George
Weah og Króatinn Zvonimir Boban
sem gerðu þijú markanna og það
fjórða var sjálfsmark Stefan Mac-
haj.
Mörk Jamie Redknapp og Steve
McManaman færðu Liverpool dýr-
mætan útisigur á Spartak Vlad-
ikavkaz en það var Mirdzhalol
Kosynov sem gerði eina mark
heimamanna og reyndar fyrsta
mark leiksins. Það gerði hann við
mikinn fögnuð heimamanna en það
voru þó 50 stuðningsmenn Li-
verpool, sem slógust í för með lið-
inu, sem fögnuðu að leikslokum.
Tvö ensk lið sem einnig hafa sigr-
að í Evrópukeppninni eru ekki í
eins góðum málum og Liverpool.
Manchester United gerði marka-
laust jafntefli, einnig í Rússlandi,
gegn Rotor Volgograd og Notting-
ham Forest varð að bíta í það súra
epli að tapa 2:1 gegn frændum
vorum í Malmö FF. Ian Woan kom
Forest yfir á 36. mín., en það dugði
skammt gegn kraft- miklum
heimamönnum og Joakim Persson
og Andreas Andersson komu
heimamönnum yfir í síðari hálfleik.
Morgunblaðið/Greme Bell
Barátta
PÁLMI Haraldsson og Tony
Rougier háðu oft harða bar-
áttu um knöttinn á Stark
Park í Klrkcaldy í gærkvöldi.
Ístöðunni tvö eitt fengum við
gott færi til að jafna og 2:2 hefðu
verið mjög viðunandi úrslit, en í
stað þess að jafna komast þeir í
3:1 sem var mjög svekkjandi,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari
Skagamanna, að leikslokum í gær-
kvöldi.
„Eftir smá byijunarörðugleika
náðum við tökum á leiknum og
fengum færi en þau voru ekki
nýtt og þá var okkur refsað. Seinni
leikurinn gæti orðið erfiður. Þeir
koma til þess að halda fengnum
og það verður á brattann að
sækja. Við verðum að spila þannig
að við búum ekki til færi fyrir þá
eins og gert var í dag. Við sýndum
að við getum skapað okkur færi
og ég hef ekki nokkra trú á öðru
en að okkur takist að gera það
einnig í seinni leiknum og klára
dæmið.“
Klaufalegt að jafna ekkl
„Við spiluðum ágætlega í dag
og að tapa tvö eitt hefðu verið
þokkaleg úrslit. Þegar við lékum
með jörðinni höfðum við leikinn í
höndum okkar og það var klaufa-
legt að jafna ekki því við fengum
nokkur ágætis færi sem hefðu
geta nýst. Það var einnig óþarfi
að hleypa þeim inn í leikinn að
nýju í síðari hálfleik,“ sagði Arnar
Gunnlaugsson að leikslokum.
Þriðja markið sorglegt
„Það var gott að fara með jafn-
tefli til hálfleiks og við byijuðum
af krafti í síðari hálfleik. Þess
vegna var það reiðarslag að lenda
undir. Þetta var drullumark eftir
misskilning í vörninni. Þetta hefðu
þó geta verið sæmileg úrslit. Þriðja
markið var mjög sorglegt," sagði
Sigurður Jónsson.
„Við vorum óheppnir og fengum
fullt af færum en þegar menn ná
ekki að nýta þau þá fer sem fer.
Nú verðum við bara að safna liði.
Þetta er alls ekki búið. Við verðum
að búa okkur vel undir seinni leik-
inn og gefa allt í hann. Væntan-
lega komum við til með að pressa
þá mjög stíft, það er það eina sem
dugir.“
Getum sigrað með toppleik
„Mér fannst þetta vera þokka-
legt, en við getum gert betur. Þriðja
markið var rosalega svekkjandi og
við hefðum geta minnkað muninn
í þijú tvö. Nú verðum við þara að
rífa okkur upp og vinna nógu stórt
í seinni leiknum — Jiað er hægt
með toppleik,“ sagði Ólafur Þórðar-
son.
Náðum aldrei tökum á leiknum
„Ég er ánægður með sigurinn
en þrátt fyrir hann náðum við aldr-
ei að stjórna leiknum. Akranesliðið
er mjög duglegt lið sem vinnur
vel. Jafnvel þó liðið sé frá íslandi
þá er þetta gott lið. Ef við kom-
umst áfram þá getum við verið
mjög ánægðir með frammistöðuna.
Að mínu mati var leikmaður núm-
er níu [Arnar Gunnlaugsson] best-
ur hjá þeim. Hann vann mjög mik-
ið og það skapaðist oft hætta þeg-
ar hann fékk boltann við vítateig
okkar,“ sagði Jimmy Nicholl, þjálf-
ari Raith, að leikslokum í gær-
kvöldi.
O’Brien
ekki með í
Talence
BANDARÍSKI heimsmethaf-
inn í tugþraut, Dan O’Brien,
tekur ekki þátt í tugþrautar-
móti bestu tugþrautarmanna
heims sem fram fer i Talence
í Frakklandi um næstu helgi.
O’Brien meiddist á hné í
keppni í síðsutu viku í heima-
landi sínu og þau eru það al-
varlegt að hann ti'eystir sér
ekki til að vera með um næstu
helgi. Tugþrautarmótíð í Ta-
lence fer fer fram ár hvert
og er þangað er jafnan boðið
sextán sterkustu einstakling-
um ársins í greininni. MeðaJ
keppenda nú verður Jón Arn-
ar Magnússon, en hann á tí-
unda besta árangur ársins,
8.237 stíg frá því í Götzis í vor.
Wilander í
lið Svía
MATS Wilander hefur verið
valinn í landslið Svía í tennis
sem mætir Bandaríkjunum í
undanúrslitum Davis-bikars-
ins I Las Vegas síðar í mánuð-
inum. Wilander, sem er 31
árs, hefur ekki verið í liðinu
í fjögur ár, en Magnus Lars-
son og Jan Apell eru meiddir
og því var kallað á Wilander,
en nú eru 14 ár síðan hann
var fyrst valinn í landsliðið.
„Þetta er alveg frábært, ég
hafði ekki hugsað um að kom-
ast í liðið síðan ég byrjaði að
spila aftur,“ sagði Wislander,
en hann hættí að keppa árið
1991 en er byrjaður aftur.
Compagnoni
í uppskurð
ÍTALSKA skiðadrottningin,
Deborah Compagnoni, sem
varð tvöfaldur Ólympíumeist-
ari, verður skorin upp í dag
vegna verkja sem hún hefur
haft í hægra hné síðustu
daga. Compagnoni hefur tví-
vegis áður verið skorin upp,
en hún reif liðband í hnénu
I stórsvigi á Ólympíuleikun-
um í Albertsville árið 1992,
aðeins sólarhring eftir að hún
sigraði í risasviginu.
Fallbyssuskot í Varsjá?
KEPPNIN í meistaradeild Evr-
ópu hefst í dag og fara fram
leikir á átta vígstöðum — í
Porto, Aþenu, Versjá, Black-
burn, Dortmund, Búkarest,
Amsterdam og Zurich. Leikið
er í fjórum riðlum og komast
tvö efstu liðin úr riðlunum í
8-liða úrslit, sem verða leikin
í mars. Liðin sem leika eiga
við vandamál að stríða — leik-
bönn og meiðsli setji svip sinn
á umferðina.
1% | antes frá Frakklandi og Portó
■ ™ frá Portúgal mætast í A-riðli
og einnig Dymamo Kiev frá Úkra-
ínu og Panathinaikos frá Grikk-
landi. Frakkarnir leika án Nicolas
Quedec, sem er meiddur, en Jean-
Michel Ferri og Reynaíd Pedros
eru í banni. Hins vegar skartar lið-
ið nýjum framheija, Roman
Kosecki. Portómenn hafa aftur á
móti fengið þjálfarann Bobby Rob-
son til baka eftir veikindi og það
hefur hleypt lífi í liðið.
Meiðsli og leikbönn hijá bæði
hin liðin. Þar sakna Úkraínumenn
sérstaklega framheijans Viktors
Leonenkos, sem var settur í
tveggja ára bann hjá félagi sínu
fyrir að vera of þungur og ekki í
leikformi þegar hann kom aftur
eftir meiðsli — var með bjórvömb.
Þrumar eins og fallbyssa
Legia Varsjá frá Póllandi tekur á
móti Rósenborg frá Noregi og
enska liðið Blackburn Rovers fær
Spartak Moskvu í heimsókn. Þjálf-
ari Rósenborg, Nils Arne Eggen,
fór í njósnaför til Varsjá og fannst
mikið til mótherja sinna koma,
sérstaklega miðheija Legia, Lesz-
ek Pisz. „Hann þrumar eins og
fallbyssa,“ sagði hann en lofaði að
sitt lið myndi samt sækja af krafti.
„Við Norðmenn tökum íþróttirnar
ekki of alvarlega svo að það er
enginn stór skaði þó að við töp-
um,“ bætti Eggen við.
Englendingarnir hafa tapað
þremur af fyrstu fjórum leikjum
sínum í ensku deildinni en þeir
hafa meistaratitil að veija. Hins
vegar munu þeir geta stillt upp
sínu sterkasta liði, munu líklega
setja Chris Sutton aftur í liðið -
við hliðina á Alan Shearer.
Þrfr fyrrum leikmenn Juventus
meö Dortmund
í C-riðli fær Borussia Dortmund
frá Þýskalandi lið Juventus frá ít-
alíu í heimsókn á meðan Steaua
Búkarest tekur á móti skoska lið-
inu Glasgow Rangers í Rúmeníu.
Það vekur athygli að þrír leikmenn
Dortmund, Andreas Möller, Júrgen
Kohler og Julio Cesar, hafa allir
spilað með Juventus og einnig
Stefan Reuter, en hann er meiddur
og verður ekki með. Þjóðverjarnir
hafa harma að hefna eftir að hafa
verið slegnir út í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa í fyrra af
Juventus. Juventus mun spila án
Gianluca Vialli og Fabrizio Ravan-
elli, sem eru í banni og óvíst er
hvort markvörðurinn Angelo
Peruzzi muni leika vegna meiðsla,
nefbrotnaði í leik um sl. helgi.
Steaua mun spila án tveggja
leikmanna, Marius Lacatus og
Aurel Dragos Panait, sem taka út
fyrri leikinn af tveggja leikja banni.
Ekki er staðan betri hjá Skotunum
sem eru með fjóra leikmenn
meidda, Stuart McCall, Ian Fergu-
son, Trevor Steven og Mark Hate-
ley, og að auki er David Robertson
í banni.
Sorgleg afföll hjá Ajax
Ajax frá Hollandi og Real
Madrid frá Spáni hittast í Amst-
erdam og svissneska liðið Grass-
hoppers fær Ferencvaros frá Ung-
verjalandi í heimsókn í D-riðli.
Róðurinn verður þungur hjá liði
Ajax, sem hefur titilinn að veija,
og eru aðstæður hinar sorgleg-
ustu. Patrick Kluivert lenti í bíl-
slysi á laugardaginn — þar sem
bílstjóri hins bílsins lést. Nígeríu-
maðurinn Finidi George treystir
sér ekki til að leika, eftir að frétt-
ir bárust um að bróðir hans hefði
verið drepinn eftir knattspyrnu-
leik í Nígeríu. Að auki eru Danny
Blind fyrirliði og Arnold Scholten
í leikbanni. Hjá Spánverjunum
verður Michael Laudrup frá vegna
meiðsla á kálfa og varnarmaður-
inn Quique Sanchez í leikbanni.